Morgunblaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Leikjanámskeiðin í Hafnarfirði stóðu í gær fyr-
ir dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju.
Spenningur var í krökkunum og veiðarfærin
ýmiss konar sem og aflinn sem var fjöl-
breyttur. Keppnin var opin börnum á aldrinum
sex til tólf ára, en hefð er fyrir því að Hafn-
arfjarðarbær haldi slíka keppni. Þátttakendur
voru hátt í 400 og þyngsti fiskurinn reyndist
vera um hálft kíló.
Árleg dorgveiðikeppni krakkanna á leikjanámskeiðum í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rennt fyrir fisk af Flensborgarbryggju
Hjörtur J. Guðmundsson
Ómar Friðriksson
„Við erum náttúrlega bara að
tryggja hag alls atvinnulífsins. Þann-
ig að við teljum að ef við hefðum farið
að fella samninginn þá hefði það sett
allt upp í loft og það er kannski það
síðasta sem við þurfum í dag,“ segir
Vilmundur Jósefsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins (SA), en
samtökin ákváðu í gær að staðfesta
kjarasamningana sem undirritaðir
voru 5. maí síðastliðinn.
Frestur til þess að staðfesta samn-
ingana rann út í gær en staðfesting
þeirra þýðir að þeir gilda í þrjú ár
eða til 31. janúar 2014 eins og til stóð
en hefðu annars aðeins gilt út þetta
ár. Fram kom hjá fulltrúum Alþýðu-
sambands Íslands (ASÍ) að sam-
bandið myndi ekki standa í vegi fyrir
því að samningarnir giltu til þriggja
ára.
Einn ráðherra í vegi
Vilmundur segir SA eftir sem áður
mjög ósátt við framgöngu stjórn-
valda í tengslum við kjarasamn-
ingana og einkum vanefndir á loforð-
um um að farið yrði í auknar
framkvæmdir.
„Við erum náttúrlega hundóá-
nægð með það hvernig þessi ríkis-
stjórn vinnur, til að mynda í sam-
göngumálunum. Það bara lýsir
fullkomnu forystu- og getuleysi
þessarar ríkisstjórnar að einn ráð-
herra, [Ögmundur Jónasson] innan-
ríkisráðherra, skuli geta lagt stein í
götu framkvæmda upp á tugi millj-
arða í einkaframkvæmd og komið
þannig í veg fyrir að tugir og hundr-
uð manna fái vinnu. Fyrir utan þá
innspýtingu sem kæmi inn í efna-
hagslífið,“ segir Vilmundur.
Hann segir að stjórnvöld hafi í
sumum málum gert það sem talað
hafi verið um í tengslum við kjara-
samningana eins og að koma laga-
breytingum í gegnum þingið sem
hafi þó ekki að öllu leyti verið í sam-
ræmi við það sem lofað hafi verið.
„Það ber að þakka fyrir það sem þó
er gert en það vantar mikið upp á.
Við erum ennþá með 13-14 þúsund
manns atvinnulausa og hagvöxtur-
inn kannski 0-2% á þessu ári og það
er ekki beint til þess að lyfta okkur
hratt upp úr þessari kreppu,“ segir
Vilmundur. Þá hjálpi ekki fram-
ganga stjórnvalda gagnvart sjávar-
útveginum í landinu.
Tækifæri til fjárfestinga
„Okkar samninganefnd taldi ekki
forsendur fyrir öðru en að samning-
arnir tækju gildi,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ. Hann bendir
hins vegar á að hagvaxtar- og fjár-
festingaráætlun stjórnvalda hafi átt
að vera grundvöllur að uppbyggingu
og endurreisn þar sem farið yrði
skipulega yfir möguleika í þeim efn-
um og ennfremur hvað stjórnvöld
gætu gert til að stuðla að og hvetja
til þess að hlutirnir færu í gang.
Þessi áætlun hafi hins vegar ekki lit-
ið dagsins ljós.
Gylfi segir ennfremur að gildis-
taka kjarasamninganna feli í sér
tækifæri fyrir atvinnulífið til þess að
fara í gang með fjárfestingar. „Við
teljum mjög skrítið að bankakerfið
veiti ekki meira fjármagn í fjárfest-
ingar heldur geymi peningana í
Seðlabankanum. Ekki er hann að
lána þetta út. Einhvern veginn er allt
þetta fjármagn í einhverri kyrrstöðu
og auðvitað verður atvinnulífið sjálft
að taka boltann. Það er ekki ein-
göngu ríkisstjórnarinnar að fjár-
festa,“ segir Gylfi.
Fullkomið „forystu- og getuleysi“
Samtök atvinnulífsins ákváðu í gær að staðfesta kjarasamningana frá í maí en eru eftir sem áður
„hundóánægð“ með framgöngu stjórnvalda Forseti ASÍ kallar eftir fjárfestingum atvinnulífsins
Vilmundur
Jósefsson
Gylfi
Arnbjörnsson
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við fórum bara yfir þessa skýrslu
með hagfræðingunum og þeir voru
spurðir spjörunum úr eins og sagt
er,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir,
formaður sjávarútvegsnefndar Al-
þingis og þingmaður vinstri grænna.
Nefndin fundaði í gær að ósk fulltrúa
sjálfstæðismanna og framsóknar-
manna um greinargerð sérfræðinga-
hóps sjávarútvegsráðuneytisins sem
birt var á dögunum um hagræn áhrif
frumvarps til nýrra laga um stjórn
fiskveiða, en í henni kemur fram hörð
gagnrýni á frumvarpið.
Á fundi nefndarinnar var sam-
þykkt samhljóða tillaga Lilju og
Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns
Samfylkingarinnar og varaformanns
nefndarinnar, um að óskað yrði eftir
því við sjávarútvegsráðuneytið að
gerð yrði úttekt á samfélagslegum og
hagrænum áhrifum núverandi fisk-
veiðistjórnunarkerfis á íbúa og
byggðaþróun á Íslandi auk annarra
samfélagslegra þátta eins og atvinnu-
öryggis, jafnræðis- og mannréttinda-
sjónarmiða.
Aðspurð segir Lilja að tillagan sé
ekki hugsuð til höfuðs greinargerð
sérfræðingahópsins heldur sé um að
ræða þætti sem æskilegt sé að teknir
verði saman í tengslum við um-
ræðuna um breytt fiskveiðistjórnun-
arkerfi.
„Að mínu mati var þessi tillaga
borin upp í ljósi þess að örvænting
hefur gripið um sig í röðum stjórn-
arliða. Þetta er örvæntingarfullt út-
spil af þeirra hálfu til þess að ræsa út
allar björgunarsveitir til þess að
finna einhvern sem treystir sér til
þess að segja eitthvað jákvætt um
fiskveiðistjórnunarfrumvörp ríkis-
stjórnarinnar. Hingað til hefur sú leit
engan árangur borið eins og allir
vita,“ segir Einar K. Guðfinnsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Sérkennileg vinnubrögð
Hann segir að fulltrúar sjálfstæð-
ismanna í sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefnd hafi ákveðið að leggjast
ekki gegn tillögunni en benti jafn-
framt á að mjög sérkennilegt væri að
fara að huga fyrst að þessu nú mán-
uðum eftir að frumvarpið var lagt
fram og ennfremur að flestar þær
upplýsingar sem afla ætti lægju þeg-
ar að miklu leyti fyrir.
Samþykkt að gera úttekt
á áhrifum kvótakerfisins
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Einar K.
Guðfinnsson
Gylfi Magnússon, fyrrverandi við-
skiptaráðherra, var á fundi borg-
arstjórnar í gær kosinn í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur og tekur
sæti Aðalsteins Leifssonar, sem
hverfur úr stjórninni.
Haraldur Flosi Tryggvason var
endurkjörinn formaður stjórn-
arinnar, en auk þeirra tveggja kaus
borgarstjórn þau Brynhildi Davíðs-
dóttur, Kjartan Magnússon og Sól-
eyju Tómasdóttur. Ný stjórn tekur
til starfa á aðalfundi OR sem verð-
ur haldinn á morgun. Varamenn í
nýrri stjórn Orkuveitunnar eru
Ingrid Kuhlman, Elín Blöndal, Reg-
inn Mogensen, Júlíus Vífill Ingvars-
son og Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir.
Akraneskaupstaður og Borg-
arbyggð eiga eftir að kjósa fulltrúa
sína í stjórnina, skv. upplýsingum
frá skrifstofu borgarstjóra.
Fyrrum ráð-
herra kosinn
í stjórn OR
Morgunblaðið/ÞÖK
fyrst og fremst ódýr
GAMANAÐ SPARA