Morgunblaðið - 22.06.2011, Side 6
FRÉTTASKÝRING
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Álftanes, Reykjanesbær og fleiri
sveitarfélög með eignaleigusamn-
inga við Eignarhaldsfélagið Fast-
eign, munu að öllum líkindum taka
aftur yfir að öllu leyti rekstur og við-
hald viðkomandi fasteigna, á borð
við sundlaugar og íþróttamannvirki.
Líklega gerist þetta með haustinu.
Aðeins einn starfsmaður er nú hjá
Fasteign, fjármálastjórinn, en þar
að auki hefur þjónusta verið keypt af
fasteignafélaginu Klasa, svo starfs-
maður þess mun sjá um fram-
kvæmdastjórn. Aðrir starfsmenn
eignarhaldsfélagsins hafa hætt
störfum.
Kynningarfundur í gær
Í gær hélt stjórn Fasteignar
kynningarfund fyrir eigendur fyr-
irtækisins, sem jafnframt eru leigj-
endur viðkomandi eigna, á hugs-
anlegri lausn á málefnum félagsins.
Það hefur verið í verulegum krögg-
um frá hruni, líkt og sumir leigj-
endurnir, ekki síst sveitarfé-
lagið Álftanes og Háskólinn
í Reykjavík, sem leigir hús
sitt við Nauthólsvík af
fyrirtækinu en hef-
ur ekki getað staðið
við sínar greiðslur. Aðrir eigendur
eru til dæmis Grímsnes- og Grafn-
ingshreppur, Sandgerði, Vestmann-
eyjabær, Vogar, Norðurþing,
Fjarðabyggð og Ölfus.
Að sögn Árna Sigfússonar, bæj-
arstjóra í Reykjanesbæ og stjórn-
arformanns Fasteignar, gengur
meginhugmyndin, sem kynnt var á
fundinum, út á að félagið haldi utan
um greiðslur til lánardrottna, til
bankanna, en sveitarfélögin taki al-
farið yfir viðhald og rekstur fast-
eignanna. Hingað til hefur það að
stórum hluta til hvílt á Fasteign.
Þannig er verið að létta á ýmsum
erfiðum þáttum í rekstri félagsins,
en vitanlega skiptir miklu máli í
þessu samhengi að lánardrottnarnir,
ekki síst Íslandsbanki, munu þurfa
að afskrifa talsvert af skuldum í
þessu ferli.
Árni segir að meiri kynningar sé
þörf á þessari leið hjá sveitarfélög-
unum sem hlut eiga að máli, en að
reiknað sé með að niðurstaða um
þetta muni liggja fyrir nú á haust-
mánuðum.
Taka aftur yfir við-
hald og rekstur eigna
Einn starfsmaður eftir hjá Eignarhaldsfélaginu Fasteign
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég fer í skaðabótamál,“ sagði
Anna Kristín Ólafsdóttir stjórn-
sýslufræðingur. Ríkislögmaður
hefur hafnað kröfu hennar um
skaðabætur. Kærunefnd jafnrétt-
ismála úrskurðaði að ráða hefði
átt Önnu Kristínu í starf skrif-
stofustjóra í forsætisráðuneytinu
en karlkyns umsækjandi var ráð-
inn.
Anna Kristín sagði að sér hefðu
verið boðnar miskabætur, sem að
hámarki gætu orðið 500.000 krón-
ur, en engar skaðabætur. „Það
kom ekki til greina að sættast á
það. Jafnréttislögin gera beinlínis
ráð fyrir skaðabótum ef þau eru
brotin,“ sagði Anna.
Fór fram á 5 milljónir króna
Hún kvaðst hafa lagt fram
sáttatilboð upp á fimm milljóna
króna greiðslu fyrir skaða- og
miskabætur. Hún vísaði í dóm í
máli svipaðs eðlis sem féll á Ak-
ureyri fyrir nokkrum árum og
framreiknaði upphæðina. „Ef for-
sætisráðherra landsins hafnar nið-
urstöðu nefndar sem er skipuð af
Hæstarétti – og niðurstöður henn-
ar eru bindandi
samkvæmt lög-
um – þá á að
leggja þessa
nefnd [kæru-
nefnd jafnréttis-
mála] niður. Þá
hefur hún ekkert
hlutverk og ekk-
ert gildi.“
Sett í 5. sæti
Fram hefur
komið að Anna Kristín hafi verið í
fimmta sæti umsækjenda þeirra
fimm sem kallaðir voru í síðara
viðtal vegna starfsins.
Einungis var þó haft samband
við meðmælendur Önnu Kristínar,
þó ekki alla sem hún benti á, og
meðmælendur þess sem var ráð-
inn. Meðmælandi hans var einnig
beðinn að gefa álit sitt á Önnu
Kristínu! Kærunefndin taldi því að
mjög hefði hallað á Önnu Kristínu
í samanburðinum.
Anna Kristín telur þetta stað-
festa að valið hafi alltaf staðið á
milli hennar og þess sem var ráð-
inn. „Það er því óskiljanlegt hvers
vegna því er alltaf haldið fram að
ég hafi verið fimmti besti kost-
urinn,“ sagði Anna Kristín.
Hyggst höfða
skaðabótamál
á hendur ríkinu
Sættist ekki á hálfa milljón króna í
miskabætur sem boðnar voru í sátt
Anna Kristín
Ólafsdóttir
Fundur flugmanna og Icelandair
stóð í allan gærdag hjá rík-
issáttasemjara. Boðað hefur verið
til nýs fundar fyrir hádegi í dag.
„Það miðar í rétta átt og menn virð-
ast vera með meiri samningsvilja,“
sagði Jón Einarsson, formaður
samninganefndar flugmanna.
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna hefur boðað til yfirvinnu-
banns á föstudag náist samningar
ekki áður.
Miðar í rétta átt
í viðræðum flug-
manna og Icelandair
Morgunblaðið/Ernir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það hefur stórdregið úr allri umferð
Íslendinga um landið og það mun auð-
vitað hafa sín áhrif,“ segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar. Í kjölfar
efnahagskreppunnar hér á landi varð
talsverð aukning í ferðalögum Íslend-
inga innanlands en með síhækkandi
eldsneytisverði er ljóst að slíkum
ferðalögum muni fækka með tilheyr-
andi áfalli fyrir ferðaþjónustuaðila.
„Það er mikill samdráttur í umferð
og það má í raun segja að því lengra
sem fyrirtæki eru frá helstu markaðs-
svæðum, á borð við höfuðborgarsvæð-
ið, þeim mun meiri áhyggjur hafa þau
af þróun sumarsins,“ segir Erna. Að
hennar mati er brýnt að stjórnvöld
grípi inn í og lækki álögur á eldsneyti.
„Hægt er að gæða ferðaþjónustuna
lífi með því að lækka eldsneytisverð
og fá fólk til að keyra meira og
lengra,“ segir Erna og bendir á að
slíkt væri til þess fallið að auka heild-
artekjur ríkissjóðs. „Þetta er gömul
saga sem margbúið er að sanna en
þeir sem halda um taumana í dag
virðast ekki trúa þessu.“
Þau fyrirtæki sem einblína á þjón-
ustu við Íslendinga víðsvegar um
landið eru mörg hver uggandi yfir
þeirri slæmu þróun sem virðist eiga
sér stað sökum mikillar álagningar á
eldsneyti. „Það eru ákveðnar tegund-
ir af gististöðum sem Íslendingar
sækja og auðvitað hafa þeir aðilar
sem reka slíka þjónustu miklar
áhyggjur.“
Erna bendir á að útlenskir ferða-
menn sem hingað koma eru margir
hverjir vanir háu eldsneytisverði og
hafa ferðaþjónustuaðilar því ekki
miklar áhyggjur af samdrætti í akstri
meðal þess hóps. „Það verður þó að
hafa það í huga að erlendir ferðamenn
sem hingað koma búa við meiri kaup-
mátt,“ segir Erna og bætir við að
verði ekkert að gert muni það hafa al-
varlegar afleiðingar fyrir marga þjón-
ustuaðila sem treysta á komu inn-
lendra ferðamanna.
Ekkert má út af bregða
Samtök ferðaþjónustunnar segja álögur á eldsneyti ótækar fyrir Íslendinga
„Náist ekki að fullnýta háannatíma ferðamanna, lifa menn vart veturinn af“
Mjög erfið staða
» Ljóst er að vegið er að ferða-
þjónustunni úr ýmsum áttum.
Samdráttur er í ferðalögum Ís-
lendinga innanlands sem og
óvissa sökum yfirvinnubanns
flugmanna.
» „Erlendar ferðaskrifstofur
fylgjast náið með ástandinu
hér og ef það stefnir í óefni þá
kippa þær að sér höndum og
senda hópana einfaldlega ann-
að,“ segir Erna.
Samkomulag er alveg að nást um lausn á fjárhagsvandræðum Álftaness,
að sögn Pálma Þórs Mássonar bæjarstjóra. Hann vill þó ekki tjá sig um
hvað væntanlegt samkomulag bæjarins við lánardrottna felur í
sér, en lengi hefur verið ljóst að þeir, og þá einna helst Ís-
landsbanki, munu þurfa að færa skuldir Álftaness talsvert
niður. Það gæti hlaupið á milljörðum króna. Haraldur Líndal
Haraldsson, sem situr í fjárhaldsstjórn Álftaness, segir lík-
ur á því að starf fjárhaldsstjórnarinnar verði framlengt enn á
ný. Skipun nefndarinnar hefur nú þegar verið framlengd í tví-
gang og nær til 1. júlí næstkomandi. Óttar Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, vill ekki tjá
sig um málefni Álftaness, en segir það stefnu sjóðsins
að afskrifa ekki skuldir. Sú stefna sé óbreytt.
Fjárhaldsstjórnin starfar áfram
STYTTIST Í SAMKOMULAG UM SKULDIR ÁLFTANESS
Morgunblaðið/Ómar
Rennibraut Lánardrottnar Álftaness þurfa að gefa verulega eftir af skuldum sveitarfélagsins, en laugin fer hvergi.
ums.is
SÍÐASTI DAGUR FYRIR
GREIÐSLUSKJÓL NÝRRA UMSÓKNA
UM GREIÐSLUAÐLÖGUN ER
30. JÚNÍ 2011