Morgunblaðið - 22.06.2011, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 22.06.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011 Öryggi sjúklinga ógnað  Landlæknir mun gera sérstaka úttekt á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri Andri Karl andri@mbl.is Landlæknisembættið mun gera sérstaka úttekt á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri. Þar verður meðal annars farið yfir öryggi sjúklinga en í skýrslu ríkisendurskoðunar sem birt var í gær kemur fram að á sumum deildum starfi svo fáir læknar að öryggi sjúklinga kann að vera ógnað. Skortur á læknum, sem hefur verið viðvarandi um nokkurt árabil, er talinn einn helsti vandi sem sjúkrahúsið glímir við. Velferðarráðuneytið óskaði eftir úttekt á sjúkrahúsinu í desember síðastliðnum eftir álykt- un læknaráðs tveimur mánuðum áður. Í henni sagði að læknar væru að hverfa frá spítalanum og í vaxandi mæli reyndist erfitt að manna þær stöður. „Læknum spítalans líst illa á þróunina og sjá fyrir sér mikla erfiðleika nú þegar og versnandi ástand í bráð og lengd.“ Lögbundinni skráningu ábótavant Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að lækna- skorturinn hafi haft í för með sér mikið álag á starfandi lækna og fyrir hefur komið að hjúkr- unarfræðingar verði að ganga í störf þeirra. Jafn- framt segir að í viðtölum við starfsmenn sjúkra- hússins hafi komið fram að á sumum deildum sjúkrahússins sé lögbundinni skráningu í sjúkra- skrá og frágangi læknabréfa ábótavant vegna mikils álags. Þetta virðist hafa komið stjórnendum sjúkra- hússins á óvart því í umsögn þeirra segir að deild- arlæknar hafi að öllu jöfnu ríkulegan tíma til að skrá í sjúkraskrá. Þá beri öllum læknum að færa sjúkraskrá og margoft hafi verið áréttað að þeir geri það jafnóðum. Þá sé ámælisvert ef yfirmenn séu ekki upplýstir um brotalamir í því efni. Um læknaskortinn segir svo að jafn marga lækna vanti til starfa árið 2011 eins og 2010 og árin þar á undan. Í viðbrögðum embættis Landlæknis segir að frá árinu 2009 hafi verið fylgst með niðurskurðar- áformum stjórnenda heilbrigðisstofnana og emb- ættið hafi ekki talið ástæðu til að gera athuga- semdir við aðgerðir stjórnenda Sjúkrahússins á Akureyri. Hins vegar verða þær hafðar til hlið- sjónar við þá úttekt sem gerð verður. Tökum lauk í gær á þriðju myndinni um ævintýri Sveppa og vina hans en hún ber nafnið Algjör Sveppi og töfraskápurinn. Tekur nú eftirvinnslan við en mynd- in verður frumsýnd í byrjun september. Hennar er ef- laust beðið með mikilli óþreyju af yngstu kynslóðinni, og jafnvel þeirri eldri líka, en fyrstu tvær myndirnar nutu gríðarmikilla vinsælda. Kvikmyndin er tekin víða um Reykjavík, m.a. á Þjóð- minjasafninu, í Nauthólsvík og í Fornbókabúð Braga Kristjónssonar. Leikararnir sem stilltu sér upp fyrir ljósmyndara eru Egill Ólafsson, Guðjón Karlsson (Gói), Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Þröstur Leó Gunnars- son og Vilhelm Anton Jónsson (Villi) en nær óþekkj- anleg fyrir miðju myndar er Ragnhildur Gísladóttir. Tökum lokið á þriðju Sveppa-mynd Morgunblaðið/Árni Sæberg Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Kvartbuxur verð frá 10.900 Gallabuxur verð frá 11.900 Flottar í fríiðSt. 36-52 Rýmum fyrir nýjum vörum Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is 30% afsláttur af öllu í verslun sendum frítt úr vefverslun www.lindesign.is Bikini - Tankini Sundbolir Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Hæðasmára 4 – Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 A-FF skálar www.noatun.is www.noatun.is Pantaðu veisluna þína á eða í næstu Nóatúns verslun Grillveislur 1299 Á MANN VERÐ FRÁ MEÐ MEÐL ÆTI Grísahnakkasneiðar Lambalærissneiðar Kjúklingabringur Lambafille Þín samsetning Grillveislur Nóatúns Kreditkort ætlar að kæra til áfrýj- unarnefndar þá niðurstöðu Neyt- endastofu að framkvæmd greiðslu- dreifingar sem korthöfum hefur verið boðið upp á frá 1991 brjóti í bága við ákvæði laga um neytendalán. Vegna fjölda kvartana frá neyt- endum tók Neytendastofa til skoð- unar greiðsludreifingu sem Kredit- kort býður upp á og komst að þeirri niðurstöðu að Kreditkort bryti bæði gegn ákvæðum laga um neytendalán og laga um eftirlit með viðskiptahátt- um og markaðssetningu með greiðsludreifingunni. Telur stofnunin að greiðsludreifingin sé neytendalán sem gera verði sjálfstæðan skriflegan samning um þar sem fram koma allar þær upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda. Kreditkort segir mikið óhagræði hljótast af fyrir neytendur ef niður- staðan verður staðfest. Litið sé á dreifinguna sem greiðslufrest og tíðk- ist hún hjá öllum kortaútgefendum. Kæra til áfrýjunar- nefndar Hæstiréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm yfir 53 ára karl- manni, Auðuni Þorgrími Þorgríms- syni, fyrir að kveikja eld í húsi við Tryggvagötu í janúar á síðasta ári. Talið var að líta yrði svo á að elds- voði í húsinu hefði einn og sér haft í för með sér augljósa hættu á yf- irgripsmikilli eyðingu á eignum ann- arra. Maðurinn hellti bensíni úr plast- brúsa inn í stigagang hússins og á gólf á jarðhæð og kveikti síðan í. Íbúi í húsinu komst út um útidyrnar áður en eldurinn kviknaði, en hann breiddist út með þeim afleiðingum að húsið varð alelda en slökkviliðinu tókst þó að slökkva eldinn fljótlega. Fram kemur í dómnum, að mað- urinn játaði sök. Sagðist hann hafa komist að því að fyrrverandi eig- inkona hans, sem þarna bjó, hefði verið í tygjum við tvo aðra karl- menn. Sjálfur hefði hann verið á nokkurra daga fylliríi þegar þetta gerðist og eftir símtal við konuna tekið þá skyndiákvörðun í reiði, „að loka þessu greni“ með því að kveikja í því. Hann hefði þó áður gætt að því hvort fleiri væru í hús- inu með því að líta inn í íbúðar- herbergin. Fangelsi fyrir að kveikja í Hæstiréttur hefur tekið til greina kröfu Íslandsbanka um að kaupandi hlutabréfa í Glitni 1. október 2008 greiði kaupverðið til baka, tæpar tvær milljónir króna. Fyrir lá að bankinn reyndi margsinnis að skuld- færa reikning mannsins fyrir við- skiptunum án árangurs. Glitnir greiddi kaupverðið fyrir manninn 7. október 2008 og að mati Hæstaréttar getur engu skipt að Fjármálaeftirlitið hafi daginn áður stöðvað viðskipti með hlutabréf í Glitni, enda hafi kaupin verið gerð áður og bankinn ekki getað losnað undan skyldu til greiðslu kaupverðs. Greiðir fyrir verðlaus bréf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.