Morgunblaðið - 22.06.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sigurður treysti sér ekki tilað vera með í þessu núnasvo ég ákvað að gera þettaein. Það eru tuttugu ár síð-
an fyrri bókin kom út, hún var
prentuð þrisvar sinnum og er löngu
uppseld. Ég hef verið mikið spurð
að því hvort hún fari ekki að koma
aftur. Ég byrjaði
á endurskoð-
uninni fyrir um
þremur árum og
vann að þessu
eldsnemma á
morgnana áður
en ég fór í vinn-
una og á kvöld-
in,“ segir Guðrún
sem er stofustjóri
hjá orðfræðisviði
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum en einnig prófessor
á hugvísindasviði Háskóla Íslands.
Henni fannst mikilvægt að bókin
yrði aðgengileg aftur og endurbætt.
„Það er búið að samþykkja svo
mörg ný nöfn. Ég gæti trúað að það
væru fast að hundrað nöfn á ári
samþykkt hjá Mannanafnanefnd,
bæði ný nöfn og nafnmyndir. Við
vorum frjálsari í því í fyrri útgáfunni
að hafa með nöfn úr fornu máli sem
voru aldrei notuð en nú er ég ekki
með þau, bara með nöfn sem hafa
verið notuð eða eru á Manna-
nafnaskrá.“
Skemmtilegt grúsk
Guðrún segir nafnahefðina hér
á landi hafa breyst á þeim tuttugu
árum sem liðið hafa á milli bókanna.
„Já hún hefur gert það, það er kom-
ið meira af nafnmyndum af því að
samkvæmt lögum mega erlendar
nafnmyndir fara inn ef hefð er fyrir
rithættinum. Svo sér maður að það
er meira sótt í erlend nöfn, bæði hjá
Íslendingum og fólki sem hefur sest
hér að.“
Guðrún sótti sér aðallega heim-
ildir hjá Hagstofunni, Þjóð-
skjalasafni og Þjóðskrá. „Ég fór yfir
hverja einustu grein og allar tölur
eru nýjar. Nú eru fleiri manntöl
komin í rafrænt form hjá Þjóð-
skjalasafni og þá gat ég borið saman
hvort tölurnar úr fyrri útgáfunni
væru réttar. Ég notaði grunninn að
gömlu bókinni, bar hann saman við
upplýsingar frá Hagstofunni og við
allar tilvísanir til manntala. Aðrar
heimildir fékk ég héðan og þaðan,
úr bókum og nafnaskrám. Ég hef
verið að bæta í þetta og safna í tutt-
ugu ár. Þetta er skemmtilegt grúsk
og vinnst smám saman, undir lokin
fékk ég afskaplega góða hjálp með
Þykir öll nöfn góð
og öll nöfn falleg
Á stofuborðinu hjá nýbökuðum foreldrum má gjarnan sjá bókina Nöfn Íslend-
inga. Öll kríli þurfa nöfn og því hvergi betra að leita hugmynda en í „alfræðiriti“
íslenskra nafna. Bókin kom fyrst út árið 1991 og voru það Guðrún Kvaran og
Sigurður Jónsson sem tóku hana saman. Nöfn Íslendinga hefur nú verið endur-
útgefin með þónokkrum endurbótum. Guðrún stóð ein að þeirri endurútgáfu.
Morgunblaðið/Ómar
Skírnarfontur Árið 2007 voru 3.266 börn af 4.533 sem fæddust þá skírð í
Þjóðkirkjunni. 356 voru skírð í skráðu trúfélagi en 911 fengu nafngjöf.
Guðrún Kvaran
Nútímamaðurinn
lifir og hrærist í
hröðum tækni-
framförum, svo
ekki sé talað um
græjuæðið sem
hamrar á honum.
Eilíf krafa um
nýtt og fullkomn-
ara getur verið
harla þreytandi
fyrir suma og þá
er Johns-síminn
himnasending.
Hann hefur verið
kynntur sem
heimsins einfald-
asti sími og má
með sanni segja að hann standi undir
því. Þetta er sími fyrir þá sem vilja
einvörðungu hringja og svara í síma.
Engin myndavél og engin símaskrá er
í honum en aftan á honum er lítil sæt
bók og penni og því hægt er að skrá
þar niður símanúmer. Rafhlaðan end-
ist í þrjár vikur. Takkarnir eru stórir
og letrið stórt, alveg fullkomið fyrir
þá sem hættir eru að sjá eins vel og
þeir gerðu áður. Fyrir áhugasama er
tilvalið að kíkja inn á heimsíðuna jo-
hnsphones.com og líta nánar á grip-
inn. Fæst í versluninni Macland í
Reykjavík.
Vefsíðan www.johnsphones.com
Gargandi snilld Johns síminn er flottur og frábær.
Einfaldleikinn snýr aftur
Viðey mun loga af gleði og söng í mið-
nætursólinni annað kvöld, fimmtudags-
kvöld. Þá munu djassdívan Kristjana
Stefánsdóttir og trúbadúrinn Svavar
Knútur leggja saman raddir sínar á dú-
ettakvöldi. Þar taka þau saman fjöl-
breytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt
frá Abba til Dolly Parton með viðkomu
hjá Nick Cave og Páli Ísólfssyni, auk
frumsamdra laga og sígildra perla.
Tónleikarnir eru tvennir. Þeir fyrri
hefjast kl. 20 og er mæting á Hafn-
arbakkann um sjöleytið. Þeir síðari
hefjast kl. 23. Miðaverð er 3000 kr. fyr-
ir fullorðna og fylgir far með ferjunni
með. Börn borga 1000 kr.
Endilega …
… farið á tónleika í Viðey
Út í Viðey Kristjana og Svavar syngja saman annað kvöld úti í Viðey.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
„Við erum í sumarstarfi hjá ÍTR og þetta var eitt
af verkefnunum okkar, að nýta gamla hluti úr
Góða hirðinum. Við fundum allskonar hluti eins
og kaffivél og dúkku og bjuggum til lampa úr því.
Gáfum dótinu nýtt líf,“ segir Hera Leifsdóttir.
Hera er hluti af tíu manna hópi ungmenna á
aldrinum 18 til 20 ára úr frístundamiðstöðinni
Kringlumýri sem vinnur við listsköpun í sumar á
vegum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavík-
urborgar. Þetta er fyrsta sumarið sem boðið
er upp á slíkt starf fyrir ungmenni og eru
fjórir tíu manna hópar að störfum víða
um borgina. „Við verðum með allskonar
skemmtileg verkefni í sumar sem
borgarbúar verða varir við,“ segir
Hera.
Fyrsta verkefni hópsins var að
vinna með notaða hluti úr Góða
hirðinum og gera úr þeim lampa.
Hópurinn vann saman fjóra
lampa og eru þeir nú til sýnis á
nytjamarkaði Góða hirðisins í
Fellsmúla.
„Markmið okkar
var að gefa gömlum
hlutum nýtt líf og
sýna fólki hvað er
hægt að gera við gam-
alt dót. Það þarf ekki
endilega að henda því. Hug-
myndin var að gera eitthvað
skemmtilegt sem fólk hefur ekki séð áð-
ur,“ segir Hera sem bjó til lampa úr dúkku
og hátalara.
ingveldur@mbl.is
Sumarstarf
Kaffivél Það er sniðugt
að nota gömlu kaffivél-
ina sem lampa í eld-
húsið.
Gáfu gamla dótinu nýtt lampa-líf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lampalið Hópurinn í Góða hiðinum; Þórir, Hera, Valgeir, Hrafnhildur og Kol-
finna. Fyrir aftan standa Bjarki og Hera sem sjá um hópinn.
Dúkkuljós Svolítið óhugnan-
legur en flottur lampi gerður
úr dúkku.