Morgunblaðið - 22.06.2011, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 22.06.2011, Qupperneq 11
Jón og Gunna? Algengasta kvenmannsnafnið 1. janúar 2010 var Guðrún og algengasta karlmannsnafnið var Jón. yfirlestur og annað hjá JPV sem gefur bókina út.“ Skoðun á nöfnum breytist Spurð hvort hún eigi sér uppá- haldsnafn segir Guðrún að hún eigi erfitt með að segja til um það. „Þeg- ar maður er búinn að eiga við þessi nöfn svona óskaplega lengi finnst mér eiginlega öll nöfn góð og öll nöfn falleg. Einhvern tíma fannst mér afskaplega skrítið að vera að gefa litlu barni nafnið Ronja, því mér datt alltaf í hug Ronja ræn- ingjadóttir. Nú talar dóttir mín mik- ið um dóttur vinkonu sinnar sem heitir Ronja og þá þykir mér þetta eðlilegasta nafn í heimi. Maður venst nöfnum. Mér þótti hér áður fyrr oft nafn ferlega ljótt og gamaldags en um leið og ég kynnist einhverjum sem mér líkaði við og bar þetta nafn breyttist skoðunin á því um leið.“ Gömlu íslensku nöfnin vinsæl Guðrúnu þykir afskaplega skemmtilegt að velta nöfnum fyrir sér og tískusveiflum í þeim. „Eins og kemur fram í bókinni hafa verið allavega tískusveiflur alla tíð. Bókasería eins og Ísfólkið hafði áhrif og nöfn eins og Heikir kom inn á Mannanafnaskrá þegar allir voru að lesa hana. Fyrir nokkrum árum voru það Aron og Benjamín sem toppuðu en svo döluðu þau aftur. Það segja mér menn að það beri meira á því núna en áður að fólk biðji um gömlu íslensku nöfnin, svo þetta kemur alltaf aftur.“ Vinnu við mannanafnabók lýkur aldrei og er Guðrún þegar byrjuð að safna viðbótum í næstu útgáfu. „Það er afskaplega gaman að vinna þetta. Bækur eins og þessi úr- eldast, hún er aldrei endanlega búin. Þannig að ég er byrjuð að safna við- bótum í næstu útgáfu sem kemur kannski út eftir nokkur ár. Endur- útgáfan nær til ársloka 2009 svo það vantar nöfn sem Mannanafnanefnd hefur samþykkt frá þeim tíma og er ég byrjuð á þeim. Svona bók þarf alltaf að vera í endurnýjun. Allar upplýsingar frá lesendum um eitthvað sem vantar eða betur má fara eru að sjálfsögðu afar vel þegnar.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011  Í bókinni eru um 6.000 nöfn. Öll nöfn sem voru á mannanafnaskrá 1. janúar 2009 er að finna í bókinni og öll nöfn á skrá yfir millinöfn frá sama tíma.  Öll nöfn á að fallbeygja samkvæmt íslenskum beygingarreglum óháð því hvort þau eru notuð sem einnefni eða fyrra eða síðara nafn af tveimur.  Eiginnafn er það nafn sem maður öðlast við skírn eða nafngjöf.  84,6% barna fá fleiri en eitt nafn 2007 en tíu árum áður var talan 79,7%.  Árið 2007 voru 3.266 börn af 4.533 sem fæddust þá skírð í Þjóðkirkj- unni. 356 voru skírð í skráðu trúfélagi en 911 fengu nafngjöf.  Algengasta kvenmannsnafnið á Íslandi 1. janúar 2010 var Guðrún en 5.053 konur hétu það þá. Anna, Sigríður, Kristín og Margrét koma svo.  Algengasta karlmannsnafnið 1. janúar 2010 var Jón en 5.442 karlar hétu því nafni þá. Næst komu Sigurður, Guðmundur, Gunnar og Ólafur. Guðrún og Jón algengust NÖFN ÍSLENDINGA Litla bifhjólaprófið fylgir fyrstu 5 hjólunum, eða 30 þús. kr. afsláttur! Ekta Vespa fæst aðeins hjá Heklu! www.vespur.is Piaggio Vespa S 125, verð aðeins: 629.000 kr. Piaggio Vespa LX 125, verð aðeins: 599.000 kr. Piaggio Vespa LXV 125 - Afmælisútgáfa, verð: 689.000 kr. sem ætlar ekki á Landsmót hesta- manna sem hefst um næstu helgi. „Mér finnst miklu meira gaman að ríða út en að horfa á aðra sýna kúnst- ir. Keppni með hesta og stemningin í kringum það höfðar ekki til mín, ég vil miklu frekar vera úti í guðsgrænni náttúrunni og njóta.“ Syngur með syni Vilhjálms Þuríður heldur tónleika í kvöld í Salnum í Kópavogi ásamt hljómsveit- inni Vönum mönnum undir yfirskrift- inni Minningar og heldur þar upp á 45 ára tónlistarafmæli sitt. „Það er upp- selt. Hvert einasta sæti skipað. Ég er með smá hnút í maganum, þetta átti í upphafi að vera lítið og sætt, einir tónleikar í Bátahúsinu á Siglufirði sem voru um daginn og aðrir á Græna hattinum á Akureyri. Þar troðfylltist allt og ákveðið var að hafa líka tón- leika hér fyrir sunnan. Ég fæ til mín góðan gest í kvöld, Jóhann Vilhjálms- son, son Vilhjálms Vilhjálmssonar. Hann ætlar að koma og syngja með mér lagið Minningar, en við pabbi hans sungum það saman hér forðum. Þetta verður stór stund því ég man eftir Jóhanni þegar hann kom með pabba sínum á æfingar, þá þriggja til fjögurra ára,“ segir Þuríður og bætir við að möguleiki sé á að tónleikarnir verði haldnir í fjórða sinn í haust. „Hann Grámann er uppáhalds- hesturinn minn,“ segir hestakonan og myndlistarkonan Þuríður Sigurðar- dóttir þegar hún er spurð að því hvaða hest hún haldi mest upp á. Þur- íður var rétt nýstigin af baki þegar náðist í hana, nýkomin heim úr sleppi- túr þar sem hún reið með hrossin sín austur í Kjarnholt í Biskupstungum, en þar heldur hún meira og minna til á sumrin í sumarhúsinu sínu með hest- ana við túnjaðarinn, ríður út og nýtur sveitalífsins. „Ég kynntist Grámanni fyrir nokkr- um árum í hestaferðalagi um Víkna- slóðir, en þá fengum við hjónin láns- hesta hjá Stefáni á Útnyrðingsstöðum og nutum hans frábæru leiðsagnar. Ég varð ástfangin af Grámanni í þess- ari ferð. Það myndaðist strax einhver tenging milli okkar, rétt eins og stundum gerist þegar maður hittir fólk. Ég sagði við bónda minn að ég færi ekki heim nema með þennan hest með mér og það varð úr. Ég þurfti reyndar að beita mér töluvert til að ná því fram. Grámann er alger draumahestur með góðan vilja og sterkar taugar. Við riðum yfir bratta hálsa, þröngar götur og utan í hlíðum, en þessi elska var alltaf pollrólegur. Hann kippti sér ekki upp við að maður og hestur duttu úr halla niður á göt- una við fætur hans,“ segir Þuríður Uppáhaldshestur Þuríðar Sigurðardóttur Þetta var ást við fyrstu kynni Gleði Þuríður í hestaferð á Grámanni ásamt hinu uppáhaldinu sínu, eiginmann- inum Friðriki sem situr Pardus. Hoffellsjökull skartar sínu fegursta í baksýn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.