Morgunblaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Það eru ár og aldir síðan éghef notað þetta orð, „harð-kjarni“, í dómi um tónleikahér á landi og skýringin er
einföld. Íslenska harðkjarnasenan,
sem var geysiöflug árin 2000-2003, er
svo gott sem horfin, í dag ræður
þunga- og nýbylgjurokkið ríkjum.
Það var því nett rölt niður stræti
minninganna að sækja tónleika með
harðkjarnakóngunum í Converge,
sem höfðu gríðarleg áhrif á senuna
hér á landi og hafa reyndar verið
mjög áhrifaríkir í harðkjarnarokkinu
almennt, þau tuttugu ár sem kóng-
arnir hafa eigrað um harðkjarnal-
endur. Ég fékk því með öðrum orð-
um hálfgert endurlit eða „deja vu“
þegar ég labbaði inn í salinn. Con-
verge er á einhvern skringilegan hátt
bæði íhaldssöm og framsækin. Með-
limir vinna af natni með harðkjarna-
hljóðheiminn og eru óhræddir við til-
raunastarfsemi en um leið vinna þeir
af ríkri hugsjón og af mikilli einurð
með pönk/harðkjarnahugsjónirnar.
Þetta voru því harðkjarnatónleikar
með stóru H-i, sveitin, með hinn
sjarmerandi Jacob Bannon í forvígi,
svipti upp tónleikum þar sem hvergi
var slegið af og ástríða bundin í
hvern svitadropa. Converge-menn
virðast alveg jafn áhugasamir og
orkuríkir og þeir voru í upphafi og
mikið óskaplega græddu áhorfendur
á því. Það er eitthvað við harðkjarna-
tónleikaformið sem er svo fallegt,
mörkin á milli listamanna og áhorf-
enda eru þurrkuð út og orkan sem
myndast á vel heppnuðum tónleikum
af því taginu er mögnuð og eiginlega
ekki hægt að lýsa henni í orðum.
Sveitin trukkaði af stað með upphafs-
lagi Jane Doe, „Concubine“ og
minniháttar atómsprenging varð í
salnum. Hún hélt svo þræðinum
glæsilega allt til loka, fyllti upp í alla
þá kosti harðkjarnatónleika sem far-
ið var í hér að framan. Lokað var með
„Last Light“ af You Fail Me og
áhorfendur tóku undir,
allir sem einn. Á ein-
um stað sagði Ban-
non: „Höfum það á
hreinu að við erum
alveg eins og þið.
Bara kolklikkaðir
krakkar sem eru að
reyna að átta sig á
lífinu með tilstuðlan
tónlistarinnar.“ Ban-
non meinti hvert orð,
og uppskar mik-
ið lof fyrir.
Einstök
hljómsveit.
„Bara kolklikkaðir krakkar …“
Ljósmynd/Höskuldur Þ.H.
Ofsagleði Jacob Bannon vafði áhorfendum um fingur sér …
Sódóma Reykjavík
Converge
bbbbn
Tónleikar bandarísku harðkjarnasveit-
arinnar Converge, mánudaginn 20. júní.
For a Minor Reflection og Logn hituðu
upp.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Morgunblaðið króaði Nate New-
ton, hinn stuðvæna bassaleikara
sveitarinnar, af eftir tónleika og
fékk hann í lauflétt spjall.
Þið spiluðuð hérna árin 2004
og 2005. Hvað fannst þér um
hérlenda harðkjarnasenu?
„Þetta var mjög jákvæð
reynsla, senan hérna virtist ekki
einsleit, spillt af karlmennsku-
hormónum og egóflippurum. Ork-
an í salnum minnti mig á senuna
úti í Bandaríkjunum upp úr 90,
þegar hún var lítil og þéttofin,
mynduð af fólki sem passaði
hvergi annars staðar. Það var
hreinsandi að spila fyrir fólk
sem var einfaldlega hungrað í
tónlist og jákvæða strauma.
Það var enginn að horfa
flóttalega í kringum sig og
passa sig á því að hann væri
örugglega í rétta bolnum.
Ný plata á leið-
inni?
„Við er-
um að
semja
á fullu en
hljóðritun fer
ekki nærri því strax
í gang. Ætli við smell-
um okkur ekki í
hljóðver á næsta
ári.
Nú er plata ykkar Jane Doe,
frá árinu 2001, álitin tíma-
mótaverk í öfgarokkstónlist.
Veistu af hverju og ertu sam-
mála þessu?
„Tja … þetta var sannarlega
tímamótaplata á okkar ferli en ég
á erfitt með að gægjast út fyrir
okkar heim og meta þetta kalt.
Fyrir okkur small allt saman
þarna, hlutir sem við vorum að
reyna að ná fram gengu upp
þarna. Ég skoða ekki gagnrýni
mikið en er þakklátur ef þessi
plata er að gera eitthvað fyrir
fólk.“
Hvað heldur þér gangandi?
„Lífið. Ef maður hægir á sér
deyr maður. Við erum eins og há-
karlar.“
En hvað segir þú um þróun
harðkjarnarokks almennt?
„Tónlistin þarf að taka
eitt skref aftur á bak ef hún
ætlar að taka einhver skref
fram á við. Mér finnst of
margir rembast við að finna eitt-
hvað „nýtt“ og sjá ekki hversu
mikill hafsjór af tónlist er til sem
hægt er að vinna jákvætt úr. Þeg-
ar þú þekkir ekki ræturnar ertu
dálítið í ruglinu. Ég fíla bönd sem
þekkja greinilega söguna en nýta
þá þekkingu til að búa til eitthvað
nýtt.“
Hver er uppáhaldsteikni-
myndapersónan þín?
„Jacob Bannon.“
Ef maður hægir á
sér þá deyr maður
SPJALLAÐ VIÐ NATE NEWTON BASSALEIKARA CONVERGE
Sænsk-íslenska tvíeykið Sandström/
Gunnarsson Duo heldur tónleika í
sumartónleikaröð Fella- og Hóla-
kirkju í kvöld og hefur þar með
stutta tónleikaferð um landið. Dúett-
inn skipa sænski gítarleikarinn Vikt-
or Sandström og íslenski kontra-
bassaleikarinn Leifur Gunnarsson.
Þeir kynntust er þeir stunduðu nám
við Rythmiska konservatoríið í
Kaupmannahöfn og tóku upp sam-
starf í framhaldi af því. Þess má geta
að Leifur starfar líka með djass-
tríóinu The Tiny Trio.
Tónlist þeirra Viktors og Leifs er í
grunninn djass, en á efnisskrá dú-
ettsins eru bæði hefðbundir djass-
slagarar og íslensk þjóðlög sem þeir
hafa útsett með það í huga að gera
þau djassvæn, álíka og sænski
djasspíanistinn Jan Johanson gerði
á sínum tíma, en þó eftir þeirra
höfði.
Ferð Sandström/Gunnarsson dú-
ettsins er styrkt af sænsk-íslenska
samstarfssjóðnum sem hefur það að
markmiði að styrkja tvíhliða sam-
starf Svíþjóðar og Íslands, fyrst og
fremst á sviði menningar, mennt-
unar og rannsókna. Hluti af sam-
starfsverkefni þeirra Viktors og
Leifs er að starfa með öðru listafólki
og því mun Magnús Tryggvason Elí-
assen koma fram með þeim á tón-
leikunum í kvöld og einnig er fyr-
irhugsað samstarf við þjóðlaga-
sveitina Korku. Þeir hyggjast fara
álíka tónleikaferð um Svíþjóð á
næsta ári.
Fyrstu tónleikar Sandström/
Gunnarsson Duo verða á Sum-
artónum í Elliðaárdal í Fella- og
Hólakirkju í kvöld og hefjast kl.
20:00, en síðan verður tónleikahald
þeirra svo: Á fimmtudag kl. 20:00
leika þeir í Listasal Mosfellsbæjar í
Þverholti, á föstudag kl. 20:00 í
Sögusetrinu Hvolsvelli og á laug-
ardag kl. 14:00 í Gallerýi Gónhól á
Eyrarbakka.
Dúett Félagarnir Viktor Sandström gítarleikari og kontrabassaleikarinn
Leifur Gunnarsson skipa tvíeykið Sandström/Gunnarsson Duo.
Sandström/Gunnarsson tvíeykið heldur í tónleikaferð um
landið Hefðbundnir djassslagarar og íslensk þjóðlög í boði
Sænsk-íslenskur
sumardjassbræðingur
Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson
var valinn bæjarlistamaður Garða-
bæjar árið 2011, en valið var kynnt
við hátíðlega athöfn í Vídal-
ínskirkju 17. júní sl.
Ómar er fæddur árið 1978 og
byrjaði píanónám um átta ára aldur
en sneri sér að gítarnum er hann
var tólf ára gamall. Hann stundaði
síðan nám við Tónlistarskóla FÍH
og útskrifaðist þaðan árið 2003.
Meðal kennara hans voru Hilmar
Jensson, Jón Páll Bjarnason og Sig-
urður Flosason. Ómar lék með
hljómsveitinni Mími í Músíktil-
raunum 1998 og var valinn besti
gítarleikari tilraunanna. Hann var
einnig meðlimur í kvartettnum Off
Minor sem spilaði í Norðurlanda-
djasskeppni ungliða í Helsinki árið
2002 á vegum „Young Nordic Jazz
Comets“ og leiddi síðan HOD, eigin
sveit, 2003 í Ósló í sömu keppni.
Ómar hefur starfað sem atvinnu-
tónlistarmaður sl. tólf ár og hefur
leikið með mörgum af fremstu tón-
listarmönnum og hljómsveitum
landsins. Hann er sem stendur með-
limur í Jagúar, ADHD, Latinsveit
Tómasar R. Einarssonar og Sjs big
band. Fyrsti sólóhljómdiskur Óm-
ars, Varma Land, kom út árið 2003
og var tilnefndur til Íslensku tón-
listarverðlaunanna. Hann fékk Ís-
lensku tónlistarverðlaunin fyrir
bestu plötu ársins í djassflokki árið
2009, plötuna „Fram af“ / Ómar
Guðjónsson tríó, og árið 2010 fyrir
verkið ADHD með samnefndri
hljómsveit.
Ljósmynd/Björn Pálsson
Heiðraður Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Ómar Guð-
jónsson, bæjarlistamaður Garðabæjar og Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
Ómar valinn
bæjarlistamaður