Morgunblaðið - 22.06.2011, Síða 36

Morgunblaðið - 22.06.2011, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 173. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Kynþokkafull kærasta Clooney … 2. Hvernig fór Beatrice að því að … 3. Þriggja ára stúlka slapp ómeidd 4. Dótakassi á Klambratúni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hróarskelduhátíðin fer fram dag- ana 30. júní-3. júlí. Allir vikupassar á Hróarskeldu í ár eru uppseldir en að- eins eru þrír dagar síðan dagskrá há- tíðarinnar var opinberuð. Enn eru til einhverjir Get-a-tent miðar og dag- passar fyrir fimmtudag, föstudag og sunnudag, en í litlu magni. Allt að fyllast á Hróarskelduhátíð  Íslenska hljóm- sveitin Endless Dark er að leggja lokahönd á und- irbúning fyrir hljómleika- ferðalag sitt um Evrópu. Sveitin mun af því tilefni halda tónleika- partí á Sódóma Reykjavík í kvöld og kveðja með alvöru rokktónleikum. Húsið verður opnað kl. 21 og að- gangseyrir er 1.000 krónur. Endless Dark kveður landann í kvöld  Forsalan á Þjóðhátíð í Eyjum hefst kl. 18 á þjónustustöðvum N1 um land allt á morgun en Þjóðhátíð fer fram 29.-31. júlí. Forsölunni verður fagnað á N1 við Hringbraut á sama tíma en þar munu Friðrik Dór, Blaz Roca og Ingó Veðurguð gleðja gesti með lifandi tónlist. Einnig mun N1 gefa Pepsi Max og ís á meðan birgðir endast. Forsala á Þjóðhátíð hefst á morgun Á fimmtudag og föstudag N 3-10 m/s, en breytileg átt S-lands. Skýjað með köflum og sums staðar skúrir, einkum síðdegis. Dálítil rigning NA-til á föstudag. Hiti 5 til 14 stig, mildast á S- og V-landi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum og síðdegisskúrir á sunnanverðu landinu, en dálítil súld austanlands og við norður- ströndina. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast suðvestantil. VEÐUR Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir, landsliðskona í hand- knattleik og besti leikmaður Íslands- mótsins, er á leið til ungverska félagsins ÉTV-Érdi VSE. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru samningar í höfn og Anna yfirgefur því Val eftir tveggja ára árangursríka dvöl á Hlíðarenda og tvo Ís- landsmeistaratitla. »1 Anna Úrsúla á leið til Ungverjalands Einar Daði Lárusson er orðinn fjórði besti tugþrautarmaður Íslands frá upphafi eftir góða frammistöðu í Tékk- landi um síðustu helgi. Einar segir við Morgunblaðið að hann hafi fyrst og fremst sett sér skammtíma- markmið en dreg- ur ekki dul á að hann stefni að því að komast á topp- inn í greininni. „Ég ætla að gefa allt í þetta,“ seg- ir Einar Daði. »4 Einar Daði ætlar sér á toppinn í tugþrautinni Úrslitin á Íslandsmóti karla í ís- hokkíi eru loksins ráðin. Kæru- mál Skautafélags Reykjavíkur á hendur Skautafélagi Akureyrar vegna þess að síðarnefnda liðið notaði Josh Gribben í úr- slitakeppninni í vetur er til lykta leitt og endanlega ljóst hvaða lið hampar Íslandsbik- arnum 2011. »1 Úrslitin í íshokkíinu eru loksins ráðin ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Félagar í Handraðanum komu að Fólkvangi Mardallar á Akureyri um helgina og sýndu gestum og gang- andi gamalt handverk. „Handraðinn er kominn með ansi djúpar rætur á Eyjafjarðarsvæðinu þar sem við höf- um unnið um árabil að því að við- halda þekkingunni á hinum fornu, ís- lensku hefðum,“ segir Guðrún H. Bjarnadóttir, formaður Handrað- ans. Fólkvangur Mardallar fór fram á Akureyri 19. til 21. júní undir yf- irskriftinni „Vitið þér enn – eða hvað? Samtal um rætur“. Mardöll er félag á Eyjafjarðarsvæðinu um menningararf kvenna. Tilgangurinn er „að grafa eftir, finna, safna, spinna, rýna í, hlúa að, rækta, dreyma, magna, vefa og miðla menn- ingararfi og auði kvenna frá fornöld til framtíðar. Sérstök áhersla er lögð á þann arf og auð sem býr í rótum ís- lenskra kvenna, norrænum og kelt- neskum, en heimurinn allur er þó vettvangur Mardallar.“ Leikur Guðrún segir að Handraðinn leggi áherslu á lifandi safn. Félagsmenn komi saman og fari í leik. „Þetta er í rauninni leikþáttur þar sem börn og fullorðnir leika sér við það að vera fólk fyrri tíma. Með því að gera það kennum við hvert öðru handverkið,“ segir hún. Guðrún bætir við að mikið sé lagt upp úr því að læra að búa til föt eins og fólk klæddist á árum áð- ur. Þannig viðhald- ist handverkið og þekking á sög- unni. Hún seg- ir að fyrir bankahrun- ið haustið 2008 hafi myndast gjá á milli kynslóða í fyrsta skipti frá upphafi allra tíma, næsta kynslóð hafi ekki lært af fyrri kyn- slóð. Útlit hafi verið fyrir að gjáin yrði óbrúanleg en hrunið hafi valdið því að fólk hafi fengið áhuga á því að vita hvaðan það kom. „Fólk vaknaði af einhverjum dvala sem það var í,“ segir hún. Mörg verkefni Um 100 manns eru skráðir í félag- ið og þar af er um þriðjungur virkur. Þátttaka í árlegum Gásadögum, sem verða 16. til 19. júlí í ár, er eitt helsta verkefnið, en þá eru settar upp búðir á Gásum skammt utan við Akureyri. Hópur félagsmanna kemur líka fram á starfsdögum á Laufási, handverks- hátíðinni á Hrafnagili og víðar. Hrunið vakti fólk af dvala  Handraðinn viðheldur þekk- ingu og hefðum Morgunblaðið/Ómar Handverk Miðaldahópurinn sýndi handverk og fleira í tengslum við Fólkvang Mardallar á Akureyri. Handraðinn er hópur fólks sem vinnur að því að við- halda gömlum hefðum og þekkingu á þjóðháttum landsins hvort sem er í handverki, tónlist, sagna- hefð eða náttúru. Guðrún H. Bjarnadóttir kynntist heimabyggðafélögum í Svíþjóð og fyrir um 20 árum kom hún á laggirnar „lifandi“ safni í samvinnu við Minjasafnið á Akur- eyri. Hún byrjaði á því að mæta í safnið fyrir jól og steypa tólgar- kerti. Hópurinn stækkaði og byrj- að var að spinna í safninu. Hóp- urinn fór að sýna í Laufási og var þá nefndur Laufáshópurinn. Fé- lagið var stofnað 2001, Mið- aldahópurinn varð til og loks var Handraðinn stofnaður um alla starfsemina. Hugmynd frá Svíþjóð HANDRAÐINN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.