Morgunblaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Sumarhefti Þjóðmála er komið útog að vanda kennir þar margra
grasa, meðal annars um vafasama
beitingu valds. Páll Vilhjálmsson,
kennari og blaðamaður, ritar þar til
dæmis hugleiðingu
út frá bók Björns
Bjarnasonar, Rosa-
baugi, og vekur at-
hygli á því hvernig
viðskiptaveldið
Baugur „hafði í ná-
inni samvinnu við
Samfylkingu,
Vinstrihreyfinguna - grænt fram-
boð og forseta lýðveldisins lagt rík-
isvaldið að velli“, en þar vísar hann
til lykta fjölmiðlamálsins árið 2004.
Jón Magnússon hæstaréttar-lögmaður skrifar um ákæruna
á hendur Geir H. Haarde og segir
meðal annars: „Ákæran á hendur
Geir er pólitískt uppgjör í búningi
sakamáls. Saksóknari Alþingis
hefði átt að segja sig frá málinu
þegar hún hafði skoðað máls-
gögnin, ekki síst þegar hún var
skipuð ríkissaksóknari. Það sam-
ræmist illa þeim störfum og gefur
slæm fyrirheit þegar hún stendur
að pólitískum réttarhöldum í upp-
hafi starfsferilsins.“
Jón heldur áfram og bendir á af-skipti núverandi stjórnvalda af
saksókn og meðferð brotamála. „Í
öllum öðrum lýðræðisríkjum myndi
slíkt kalla á rannsóknir og snörp
viðbrögð þingmanna sem vilja
vernda réttarríkið,“ segir Jón.
Loks er ástæða til að nefna um-fjöllun Vilhjálms Eyþórssonar
rithöfundar um fjölmiðlalögin ný-
samþykktu. Þau bera að hans sögn
með sér „að þótt kalda stríðinu sé
lokið, eru íslenskir alræðissinnar í
fullu fjöri og þeir koma hér fram,
að orwellskum sið eins og alltaf,
undir formerkjum „lýðræðis“ og
„mannréttinda“. Í þessu tilviki
hyggjast þeir lögleiða ritskoðun í
nafni „tjáningarfrelsis“.“
Umfjöllun um vafa-
samt valdabrölt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 heiðskírt
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 7 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 14 skúrir
Vestmannaeyjar 14 léttskýjað
Nuuk 15 heiðskírt
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 16 skýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 12 skúrir
Glasgow 16 léttskýjað
London 18 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 23 skýjað
Berlín 28 heiðskírt
Vín 28 léttskýjað
Moskva 27 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 35 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 31 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 20 alskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:04 23:59
ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20
DJÚPIVOGUR 2:20 23:43
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Dýragarðurinn í Peking hefur reynt
að fá frjóvguð lundaegg frá Íslandi
en yfirvöld hafa ekki gefið útflutn-
ingsleyfi. Sigtryggur Rósmar Ey-
þórsson, fram-
kvæmdastjóri
XCO ehf. sem
hefur átt við-
skipti við Kína
áratugum saman,
sagði að versl-
unarfulltrúi kín-
verska sendiráðs-
ins hefði leitað til
sín fyrir fjórum
árum fyrir hönd
dýragarðsins og
spurt hvort ekki væri hægt að fá hér
lundapysjur.
„Þeir höfðu heyrt að dýragarðar
hefðu fengið pysjur héðan,“ sagði
Sigtryggur og kvaðst vita að íslensk-
ir lundar væru í dýragörðum í Evr-
ópu, Bandaríkjunum og Asíu. Þegar
beiðnin barst var ástand lunda-
stofnsins ekki jafn slæmt og nú. Sig-
tryggur heimsótti dýragarðinn í
Peking 2009 og sá þar stórt kælt búr
þar sem lundunum var ætlaður fé-
lagsskapur við mörgæsir. Búrið er
að helmingi laug með kældum sjó.
Sigtryggur hafði samband við
starfsmann Náttúrufræðistofnunar
sem hafði reynslu af pysjuútflutn-
ingi. Sá lagði til að senda
frekar egg í hitakassa.
Kínverjarnir vildu
fyrst fá 300 lunda-
egg en drógu svo úr
og óskuðu eftir að fá 50
egg og að fuglafræð-
ingur fylgdi sendingunni
héðan. Sigtryggur sótti
um leyfi til að flytja út eggin.
„Þá rakst ég á þröskulda sem mér
hefur ekki tekist að yfirstíga enn,“
sagði Sigtryggur. Hann hefur sótt
um útflutningsleyfi á lundaeggjum
til umhverfisráðuneytisins fjögur ár
í röð og alltaf fengið neitun. Sig-
tryggur gekk á fund umhverf-
isráðherra í vetur og lagði fram
beiðni. Um síðustu mánaðamót var
beiðninni hafnað vegna slæms
ástand lundans.
Sigtryggur kvaðst vita af slæmu
ástandi lunda á Suður- og Vest-
urlandi en það væri betra fyrir norð-
an. Hann hafði rætt við fuglafræð-
ing sem þekkir vel til í
lundabyggðum og taldi sá það ekki
ógna stofninum þótt flutt yrðu út
nokkur lundaegg frá svæði þar sem
ástandið er gott.
Sigtryggur sagði að hann hefði
enga hagsmuni af þessu stússi.
Hann væri einungis að liðsinna vin-
um sínum í Kína eftir gott samstarf.
Kínverjar vilja íslenska
lunda í dýragarð í Peking
Ekki hefur fengist leyfi til að flytja út frjóvguð lundaegg fjögur ár í röð
Morgunblaðið/RAX
Lundar Dýragarðurinn í Peking hugðist fá héðan lundaegg til að unga út og setja lundana í búr með mörgæsum.
Sigtryggur Rósmar Eyþórsson ræddi um að koma á samstarfi milli dýra-
garðsins í Peking og Húsdýragarðsins. „Kínverski verslunarfulltrúinn
kom með þá hugmynd að Húsdýragarðurinn fengi lánaðan pandabjörn í
nokkra mánuði. Það myndi vekja mikla lukku hjá ungu kynslóðinni að
sjá pandabjörn,“ sagði Sigtryggur. En fleiri birnir hafa verið
nefndir í samskiptunum við Kínverja.
„Ég fékk tölvupóst í vor þar sem þeir spurðu hvort hægt
væri að fá hér hvítabjörn. Ég svaraði því að þeir kæmu ör-
sjaldan og væntanlega væri betra að hafa samband við
Danmörku vegna Grænlands. Svo var ég að bíða eftir
samtali við tengilið í umhverfisráðuneytinu og minntist á
þetta við ritara. Þá sagði hún: „Hvítabjörn? Hann var að
ganga á land fyrir klukkutíma!““.
„Hann var að ganga á land!“
KÍNVERJAR LÝSTU ÁHUGA Á AÐ FÁ HVÍTABJÖRN FRÁ ÍSLANDI
Hvítabirna á Hornströndum.
Sigtryggur R.
Eyþórsson