Morgunblaðið - 30.06.2011, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur
Æðarsetur Íslands var nýlega opnað
í Norska húsinu í Stykkishólmi. Af
því tilefni heimsóttu forsetahjónin
Hólminn og flutti Ólafur Ragnar
Grímsson ávarp og Dorrit Moussaieff
forsetafrú opnaði Æðarsetrið: Það
átti vel við því á Bessastöðum er gott
æðarvarp og þau eru í góðum
tengslum við æðarfuglinn.
Æðarsetur Íslands er sýning og
safn sem helgað er æðarfuglinum og
dúntekju. Með tilkomu Æðarseturs-
ins fjölgar um eitt safn í Hólminum
sem auðgar mannlífið og styrkir
Hólminn sem vinsælan ferðamanna-
stað. Það er óhætt að segja að æðar-
fuglinn eigi það skilið að honum sé
sýndur sómi, enda hefur hann gefið
af sér verðmæti til Íslendinga í gegn-
um aldirnar og er eina fuglategundin
er leggur til mikil útflutningsverð-
mæti.
Undirbúningur að stofnun Æðar-
seturs Íslands hófst í fyrra og hafa
heimamenn komið að honum með
feðginunum Friðriki Jónssyni og
Erlu Friðriksdóttur, sem reka Ís-
lenskan æðardún ehf. og Queen Ei-
der ehf. Erla og Friðrik hafa um
nokkurra ára skeið rekið dúnhreins-
un í Stykkishólmi en á síðasta ári
vaknaði sú hugmynd að stofna Æð-
arsetur Íslands í Stykkishólmi.
Hafa allt sem tengist fuglinum
„Ef einhvers staðar á að vera æð-
arsetur þá er það hér í Stykkis-
hólmi,“ segir Erla. „Hér höfum við
allt sem tengist fuglinum: Breiða-
fjörðinn, stærsta æðarvarp á landinu,
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á
Snæfellsnesi sem sérhæfir sig í rann-
sóknum á æðarfugli og Náttúrustofu
Vesturlands með mikla þekkingu á
vágestum æðarfuglsins, s.s. mink, ref
og örnum. Það er í raun ótrúlegt mið-
að við hina löngu hefð fyrir sölu og út-
flutningi á íslenskum æðardúni hvað
lítið er til um fuglinn, vörur úr dún-
inum og vörur sem tengjast dúninum
hér á landi,“ segir Erla jafnframt. Í
eldhúsinu í Norska húsinu verður
hlunnindasýning þar sem gamalt
handverk er sýnt og gömul áhöld sem
notuð voru við hreinsun á æðardúni.
Þar verða gamlar ljósmyndir og kvik-
myndir sýndar, sem gerðar hafa ver-
ið um varp og dúntekju í gegnum tíð-
ina. Boðið verður upp á erindi og
fræðslu í eldhúsinu í sumar og verður
stílað inn á sunnudaga í þeim efnum.
Leitað hefur verið til listamanna úr
Stykkishólmi til að gera listmuni fyr-
ir setrið er tengjast æðarfugli og
verða þeir til sölu þar í sumar, auk
þess sem hægt verður að kaupa
æðardúnssængur í ýmsum stærðum
og útfærslum.
Æðarsetur opnað í Hólminum
Æðarfuglinn er eini íslenski fuglinn sem skapar útflutn-
ingstekjur Breiðfirðingar hafa allt sem tengist fuglinum
Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff við opnun
Æðarsetursins í Stykkishólmi ásamt Erlu Friðriksdóttur.
Friðaður frá 1847
» Æðarfuglinn er arðmesti
fugl Íslands. Hann er staðfugl á
Íslandi og hefur verið friðaður
frá árinu 1847.
» Fluttur er út æðardúnn, um
2.500-3.000 kg á ári og eru
það um 75% af heims-
framleiðslunni. Helmingur af
dúni sem fellur til á Íslandi á
hverju ári kemur af Breiða-
fjarðarsvæðinu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það ræðir enginn um ísbirni
nema í góðlátlegu gríni. Fólk veit
að svæðið er vaktað og ekki nein
ástæða til að hafa áhyggjur af ís-
björnum,“ segir Reimar Vilmund-
arson, útgerðarmaður í Bolung-
arvík við Ísafjarðardjúp, sem
flytur ferðafólk í Jökulfirði og
Hornstrandir og komst í sviðs-
ljósið þegar hann fann ísbjörn á
Hornströndum í byrjun maí.
Reimar hefur í mörg ár flutt
ferðafólk frá Norðurfirði á Strönd-
um norður í Bolungarvík á Strönd-
um þar sem hann rekur gistiheim-
ili og á fleiri staði þar um slóðir.
Sigurður Hjartarson hefur verið
með ferðir frá Bolungarvík, ekki
síst í Jökulfirði. Þeir ákváðu í vet-
ur að sameina krafta sína og auka
þjónustuna. Þeir koma hvor með
sinn bátinn inn í samstarfið og
keyptu saman þriðja bátinn sem
þeir eru að gera upp í þessum til-
gangi.
Þróa nýjar gönguleiðir
„Hugmyndin er að fjölga ferðum
í Jökulfirði og á Hornstrandir
næsta sumar og koma betra skipu-
lagi á áætlunina. Þá ætlum við að
brydda upp á nýjungum í göngu-
ferðum um svæðið,“ segir Reimar.
Ekki virðist vera mikil framþró-
un í hinum hefðbundnu gönguferð-
um um Hornstrandir þar sem
göngufólkið ber með sér farang-
urinn. Reimar telur að sókn-
armöguleikarnir séu í því að þjóna
fólki sem vill hafa betri aðstæður í
gönguferðunum. „Mér finnst vera
vakning meðal fólks sem á ættir að
rekja norður og hefur aðgang að
húsum. Fólkið sækir mikið þangað
og við reynum að þjóna því með
flutninga,“ segir Reimar.
Þótt minni umsvif séu í ferð-
unum frá Norðurfirði í Bolung-
arvík nyrðri mun Reimar bjóða
upp á þær í sumar og segir ekki
útilokað að því verði haldið áfram
á næstu árum þótt áherslan verði
á ferðir frá Bolungarvík við Djúp.
„Það er engin ástæða til að
hafa áhyggjur af ísbjörnum“
Reimar Vilmundarson og Sigurður Hjartarson hafa sameinað kraftana
og auka þjónustu við ferðafólk í Jökulfjörðum og á Hornströndum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Félagar Reimar Vilmundarson og Sigurður Hjartarson slá saman til að bæta þjónustuna við ferðamenn.
Reimar er alinn upp í Bolungarvík, veiðimaður mikill og meðvitaður um
hættuna sem stafar af ísbjörnum. Hann fer því helst aldrei byssulaus á
sjó. Það gerðist þó í byrjun maí þegar hann sá ísbjörninn, eins og frægt
varð. „Ég hef upplifað margt á Ströndum,“ segir Reimar en hann sá eitt
sinn ísbjörn sem táningur. „Pabbi var alltaf með byssu á bak við hurðina
heima. Eitt vorið, þegar hafís hafði verið, kom hann og sagðist hafa
fundið ísbjörn. Það reyndist vera plastbjörn sem rekið hafði á fjöru.“
Alvöru birnir og úr plasti
HEFUR UPPLIFAÐ MARGT Á STRÖNDUM
Vegagerðin var í gær sýknuð í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur af kröfu Ís-
lenskra aðalverktaka (ÍAV) og NCC
International um skaðabætur
vegna þess að hætt var við útboð
Héðinsfjarðarganga, fyrra útboðið
sem opnað var í lok maí 2003.
Hæstiréttur hafði áður kveðið upp
dóm um að skaðabótaskylda væri
fyrir hendi.
Frá þessu er greint á vef Vega-
gerðarinnar. Komst héraðsdómur
að þeirri niðurstöðu að ÍAV og NCC
hefðu ekki sýnt fram á að um tjón
hefði verið að ræða. Dómurinn
hafnaði útreikningum þess efnis og
einnig lægri útreikningum mats-
nefndar þar sem þeir útreikningar
hefðu byggst á sömu forsendum og
upplýsingum og útreikningar ÍAV.
Kröfunni var því hafnað.
Örðugt að færa sönnur á tjón
Í niðurlagi dómsins segir m.a. að
fallast megi á það með stefnendum
að örðugt sér að færa sönnur á
raunverulegt tjón þeirra vegna
ákvörðunar stefnda um að hafna
tilboði þeirra í gerð Héðinsfjarð-
arganga.
Telja verði ósannað að stefn-
endur hafi orðið fyrir tjóni vegna
ákvörðunar stefnda um að hafna
tilboði þeirra í gerð ganganna. „Af
sömu ástæðu brestur forsendur til
þess að ákveða stefnendum bætur
að álitum. Verður stefndi því sýkn-
aður af öllum kröfum stefnenda.“
Göng Héðinsfjarðargöng voru opnuð í
fyrra. Frestun við útboð olli málaferlum.
Vegagerðin var
sýknuð af kröfu ÍAV
Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglu-
stjórinn á Selfossi, fagnar því að
Hæstiréttur hafi staðfest úrskurð
Héraðsdóms Suðurlands yfir meint-
um barnaníðingi í Vestmannaeyjum.
Hann bendir hinsvegar á að með því
sé gengið lengra en áður hafi verið
gert í skilgreiningu á hugtakinu „al-
mannahagsmunir“.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem Ólafur Helgi sendi frá sér í gær.
„Settur saksóknari kaus að lýsa
því, við flutning kröfunnar fyrir Hér-
aðsdómi Suðurlands, sem mistökum
Lögreglustjórans á Selfossi að hafa
ekki gert kröfu um gæslu yfir meint-
um geranda. Þetta gerir saksóknar-
inn vitandi vits að óformleg sam-
skipti höfðu farið fram milli
embættanna um mögulega gæslu-
varðhaldskröfu bæði við upphaf
máls, þegar upplýsingar um mynd-
efnið lágu fyrir og við ábendingar
barnaverndarnefndar Vestmanna-
eyja í mars sl. Niðurstaða þeirra
samskipta var samdóma álit um að
ekki skyldi krefjast gæsluvarðhalds.
Ábyrgðin á þeirri ákvörðun er hins-
vegar lögreglustjórans.“
Gerður að skúrki
Í yfirlýsingunni segir jafnframt að
einstakir fjölmiðlar og fjölmiðla-
menn hafi viðhaft hótanir um að
rægja lögreglustjórann vegna
ákvörðunar hans um að upplýsa sem
minnst um málið meðan Hæstiréttur
hefði það til umfjöllunar. „Þeir hafa
lagt í þá vinnu að kalla til viðtals
„sérfræðinga“ til álits og þannig sett
yfirmenn annarra lögregluliða í þá
stöðu að vitna um rannsókn máls
sem þeir hafa
ekki aðgang að til
að kynna sér [...]
Ein af ástæðum
þess að ekki var
farið fram á
gæsluvarðhald á
sínum tíma var að
sá friður sem
væri um þoland-
ann, á meðan
málsmeðferð
stæði, væri honum meira virði en það
ömurlega fjaðrafok sem nú skekur
fjölmiðla þar sem sá sem ábyrgur er
fyrir rannsókn máls hefur verið
gerður að „skúrkinum“ í því.“
Umfangsmikil rannsókn
Ólafur Helgi segir rannsókn máls-
ins umfangsmikla. „Hún hefur verið
unnin af yfirvegun af reyndum rann-
sóknarlögreglumönnum lögreglulið-
anna á Selfossi og í Vestmanneyjum.
Ábendingar um reynsluleysi þeirra
eru í besta falli settar fram af þekk-
ingarskorti en kynferðisbrot gegn
börnum hafa því miður verið algeng
verkefni rannsóknardeildarinnar
mörg síðastliðin ár. Þannig hefur
deildin rannsakað 177 kynferðis-
brotamál frá 1. janúar 2007 til dags-
ins í dag, 40 til 50 mál ár hvert.“
Fagnar staðfest-
ingu Hæstaréttar
Óformleg samskipti höfðu farið fram
Ólafur Helgi
Kjartansson
Skannaðu kóðann
til að lesa yfirlýs-
inguna í heild.