Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 BAKSVIÐ Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Nokkrar konur, áhugasamar um bakstur, ætluðu sér að selja heima- bakaðar múffu-smákökur í Lysti- garðinum á Akureyri næstkomandi laugardag og gefa ágóðann til góð- gerðamála. Þeim var hins vegar tilkynnt af heilbrigðisyfirvöldum að ekki væri leyfilegt að selja mat- væli sem framleidd væru í heima- húsum og ekkert verður því úr múffu-hátíðinni á laugardag. Kökubasarinn Mömmur og muff- ins var haldinn í fyrsta skipti í fyrra. Um 1.000 kökur seldust og rann ágóðinn, 400.000 krónur, óskiptur til fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Auður Skúladóttir segir að mömmunum hafi ekki komið til hugar í fyrra að bannað væri að selja kökur og því hafi þær ekki sett sig í samband við heilbrigðiseftirlitið. „Okkur finnst alveg rosalega leiðinlegt að við getum ekki haldið muffins- daginn aftur. Við fengum ekki neitt leyfi til að gera þetta í fyrra enda höfðum við ekki hugmynd um að þetta mætti ekki. Við höfðum margoft gefið kökur í fjáraflanir og það hvarflaði ekki að okkur að við værum að gera eitthvað ólög- legt. Heilbrigðisyfirvöld reyndu að aðstoða okkur en að lokum var nið- urstaðan að salan mætti ekki fara fram.“ Hreinlætissjónarmið ráða för Alfreð Schiöth, framkvæmda- stjóri Heilbrigðiseftirlits Norður- lands eystra, segir að heilbrigðis- fulltrúar um allt land reyni að beina matvælaframleiðslu inn í við- urkennd eldhús. „Það segir í lög- um og reglugerðum um matvæli að framleiðsla á matvælum eða starf- semi til dreifingar á matvælum megi ekki vera í beinu sam- bandi við óskyldan rekstur. Það eru hreinlætissjónar- mið sem ráða þessu,“ segir Alfreð. Hann seg- ir jafnframt að kven- félög, sem taki að sér veitingaþjón- ustu, notist nú í auknum mæli við viðurkennd eldhús við matvælafram- leiðslu. „Fólk hefur tekið þessu vel og unn- ið meira sem hópur frekar en ein- staklingar, hver í sínu horni.“ Ekta grasrótarstemning í fyrra Auður segir að aðstandendum Mamma og muffins hafi ekki kom- ið til hugar að notast við eldhús sem hlotið hafi opinbert samþykki. „Við erum bara nokkrar sem stöndum að þessu og höfum hvorki tök á því né áhuga að leita króka- leiða að þessu. Það var ekta gras- rótarstemning í þessu í fyrra. Við erum alltof fáar til að ætla að skipuleggja einhverja maraþon- bakstra í eldhúsum – þá yrðu kök- urnar líka bara einsleitar.“ Auður segir ennfremur að fjár- hæðin sem safnaðist í fyrra hafi komið að góðum notum á fæðing- ardeild Sjúkrahússins á Akureyri. „Það safnaðist líka mikið á upp- boðinu sem við héldum. Þar voru fimm kökur á rosalega flottu köku- fati sem Margrét Jónsdóttir, lista- kona, hannaði seldar á 100.000 krónur.“ Mjög hættulegar múffur?  Múffulaus helgi framundan á Akureyri eftir að heilbrigðisyfirvöld bönnuðu mömmum að selja kökur  400.000 krónur söfnuðust í góðgerðarmál í fyrra Morgunblaðið/ Helga Haraldsdóttir Múffa Múffurnar voru margvíslegar að gerð og lit á basarnum sem var haldinn í Lystigarðinum á Akureyri í fyrra. „Það hefur verið bakað í heimahúsum í tugi ára og selt, t.d. í fjáröflun fyrir íþróttafélög, kvenfélög og kóra [...] hvers vegna er þetta allt í einu orðið svona hættulegt? Það er alltaf verið að eyðileggja það sem er skemmtilegt,“ segir Lilja Pétursdóttir, ein fjölmargra sem hafa tjáð sig um bannið á facebooksíðu Mamma og muffins. Flestir sem tjá sig á síð- unni lýsa yfir furðu sinni gagnvart því að ekki sé leyfilegt að selja kökur til styrktar góðu málefni. Auður Skúladóttir segir að Mömmur og muffins-dagurinn hafi heppnast ákaflega vel í fyrra. „Kökurnar sem við fengum voru hálfgerð listaverk. Þær voru svo fallega skreyttar. Við höfðum vonast til að geta selt um 4-500 stykki en það fóru 1.000. Mig minnir að það hafi orðið sjö kökur afgangs.“ Hún segir jafn- framt að fjöldi kvenna hafi haft samband við sig og hafi vilj- að taka þátt í ár. „Við vorum með lifandi músík og svona í fyrra en við sáum fyrir okkur að þetta yrði miklu stærra í ár en í fyrra,“ segir Auður og bætir við að það sé dálítið leið- inlegt að þegar sparnaður blasi hvarvetna við í samfélaginu megi fólk ekki sjálft leggja sig fram við að gera eitthvað til að hjálpa til. Skemmtilegt er bannað ENGINN KÖKUBASAR Á AKUREYRI Í SUMAR Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Skipta má þeim sem fremja fjölda- morð eins og þau sem framin voru í Noregi síðastliðinn föstudag í tvo hópa að sögn Gísla H. Guðjónssonar, réttarsálfræðings og prófessors við King’s College í London. Annars vegar þá sem vilja gera sjálfa sig að fórnarlömbum, drepa aðra og drepa síðan sig sjálfa eða láta lögreglu drepa sig. Gísli segir að það sem vaki fyrir slíkum einstaklingum sé yfir- leitt það að þeir séu ósáttir við lífið og ósáttir við aðra. Þeir vilji hefna sín á öðrum og síðan deyja sjálfir. „Svo eru það þeir sem skipa hinn hópinn sem líta á sig sem bjargvætti og vilja fá athygli. Þeir vilja ekki deyja. Þeir vilja lifa til þess að sjá ár- angurinn af því sem þeir gerðu,“ seg- ir Gísli. Hann segir að Anders Beh- ring Breivik, sem framdi voðaverk- in í Noregi, falli inn í þennan hóp. Hann hafi ákveð- in brengluð við- horf um heiminn. Telji sig vera ein- hvers konar bjargvætt Evr- ópu gegn ógn sem stafi af múslimum og að norski Verkamannaflokkurinn hafi brugð- ist í þeim efnum. Vildi sem mesta athygli „Þessar skoðanir hans eru mjög ákveðnar og þær taka eiginlega yfir hans persónuleika. Það er ekkert annað sem skiptir máli. Það sem síð- an kemur inn í þetta er narsisismi [sjálfsupphafningar-persónuleika- röskun]. Hann telur sig vita hvað sé fyrir bestu, hann hafi völd til að gera það og hafi einhvern veginn betri yf- irsýn en aðrir,“ segir Gísli. Það sé þó ekki nóg heldur vilji hann vekja at- hygli á sér og fá einhvers konar heið- ur fyrir það sem hann gerði. Þá telji hann sig hafa gert það eina rétta í stöðunni. „Það er ekki nóg að fá bara athygli heldur mikla athygli. Hann vildi greinilega gera sem mest, drepa sem flesta til þess að fá sem mesta at- hygli,“ segir Gísli. Þá snúist slík mál yfirleitt um ákveðin völd, þeir sem um ræðir geti ákveðið hverjir fái að lifa og hverjir skuli deyja. Haft hefur verið eftir Breivik að hann hafi meðal annars verið búinn að reyna að vinna sjónarmiðum sín- um fylgis innan stjórnmálahreyfing- ar, þá líklega átt við norska Fram- faraflokkinn, en án árangurs. Gísli segir að gjarnan sé reynt að réttlæta og um leið afsaka slíkar gerðir með því að allt annað hafi verið fullreynt. Með því sé reynt að réttlæta gerð- irnar bæði fyrir viðkomandi sjálfum og öðrum. Vissi hvað hann var að gera „Nú hef ég ekki skoðað þennan mann en miðað við þær upplýsingar sem komið hafa fram er ekkert sem bendir til þess að um geðveiki sé að ræða. Þessi maður hefur fulla stjórn á sér, hann veit hvað hann er að gera og hvað hann ætlar sér og er mjög ánægður með afleiðingarnar. Þetta eru brenglaðar hugsanir og ákveðin persónuleikaröskun,“segir Gísli. Hann segir að inn í þetta spili sjálfsupphafningin. Breivik trúi því að hann hafi verið að bjarga Evrópu og í því fái hann ákveðna umbun líkt og sjálfsmorðssprengjufólk sem trú- ir því að það fari til himna. Telur Breivik ekki vera geðveikan  Réttarsálfræðingur telur norska fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik haldinn persónuleika- röskun byggðri á sjálfsupphafningu  Segir hann hafa viljað lifa og sjá árangurinn af eigin gerðum Reuters Morðingi Anders Behring Breivik. Gísli H. Guðjónsson „Þessi skafl er í rauninni mjög merkilegur mæli- kvarði á lofts- lagið,“ segir Páll Bergþórsson veð- urfræðingur um snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni en af- skaplega náið samhengi sé á milli tíðarfarsins og þess hvort skaflinn hverfi yfir sum- armánuðina eða í kjölfar þeirra. Páll segir að enn sé óvíst hver ör- lög skaflsins verði í sumar en hann hafi enn ekki horfið. Fram kemur hins vegar í grein eftir hann á vef- síðu Veðurstofu Íslands að á síðasta ári hafi skaflinn horfið tíunda árið í röð. Það hafi ekki gerst svo lengi samfellt síðan farið var að fylgjast nokkuð reglulega með honum 1909. Þá segir í grein Páls að heimildir séu fyrir því að umræddur snjór hafi ekki horfið í áratugi fyrir árið 1929 eða a.m.k. síðan 1863. Horfið í september Af grein Páls má sjá að nokkuð breytilegt hefur verið hvenær snjó- skaflinn í Gunnlaugsskarði hefur horfið þau ár sem það hefur gerst. Undanfarin ár hefur það jafnvel ekki gerst fyrr en í september líkt og árin 2008 og 2009. Í fyrra hvarf hann hins vegar 15. júlí og því ljóst að hann er eitthvað seigari í ár. hjorturjg@mbl.is Örlög skaflsins enn óljós  Hefur horfið undanfarin 10 ár Páll Bergþórsson Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stef- ánsson hefur verið á miklu skriði á alþjóðlegu skákmóti sem fram fer í Pardubice í Tékklandi. Hannes er efstur 279 skákmanna frá 31 landi. Hannes er með 5,5 vinninga í 6 skákum, eftir 3 sigurskákir í röð. Í gær vann hann indverska stór- meistarann Magesh Chandran Panchanathan. Mótið er sterkt en meðal keppenda eru 50 stórmeist- arar og 58 alþjóðlegir meistarar. Í sjöundu umferð sem fram fer í dag teflir Hannes við rússneska stórmeistarann Konstantin Cherny- shov. Á www.skak.is geta skák- áhugamenn fylgst með skákunum í beinni útsendingu. Hannes Hlífar í efsta sæti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.