Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 10
María Ólafsdóttir maria@mbl.is Ég hef alltaf haft áhuga á oggert einhverja handa-vinnu. En þegar ég byrj-aði á Íslandsteppinu þá var ég búin að eiga mér dagdrauma um kyrrð og ró yfir handavinnu,“ segir Jónína Hulda Gunnlaugsdóttir, fimm barna móðir á Selfossi. Kyrrðin varð þó heldur minni en reiknað var með í fyrstu enda liggur heilmikil vinna að baki slíku stærðar teppi. Vöruð við bútasaumsdellunni „Fyrsta árið fór bara í að velta þessu fyrir mér en það er nú eigin- lega henni Guðrúnu Erlu Gísladóttur að þakka að ég byrjaði. Hún kom með bútasauminn á Selfoss, setti þar upp vefverslun og verslun í kjölfarið og þá kviknaði svona alvöru áhugi hjá mér. Reyndar var búið að hræða mig mjög mikið, að smitast ekki af þessari bútasaumsdellu. Það væri það versta sem hægt væri að fá í sambandi við handavinnu því þá gæti maður ekki hætt. En ég fór að lesa mér til um bútasaum og skoða myndir af fal- legum verkum. Einhvern tímann þegar ég var að gramsa í handa- vinnukassanum mínum fann ég síðan úrklippu sem ég hafði klippt út sem unglingur. Á henni var mynd af Ís- landi með einhverjum hagfræðiupp- lýsingum og ég hafði ætlað að sauma krosssaum eftir þessari mynd. En það kom náttúrulega ekki til greina þegar ég var komin með bútasaums- delluna. Þá fékk ég hugmynd að búa til bútasaumsteppi eftir þessu og leika mér að því að raða saman lit- um,“ segir Jónína Hulda Gunnlaugs- dóttir um tilurð teppsins en hún vann í því á árunum 2003 til 2007. Byrjaði á Vatnajökli Jónína Hulda byrjaði á að skoða hvað hún ætti af efnum. Hún hélt að hún ætti helling en segir það ekki hafa reynst neitt neitt í svo stórt verkefni. Hún byrjaði að tína til það sem hún átti og fór síðan að skoða efni og byrja að skera í Vatnajökul- inn. Hún skar niður fimm cm fern- Smitaðist af búta- saumsdellunni Íslandsteppið er 215 x 270 cm bútasaumsteppi gert úr 3.008 bútum í 160 mis- munandi litaafbrigðum. Teppið hannaði og saumaði Jónína Hulda Gunnlaugs- dóttir sem vildi láta gott af sér leiða með afrakstrinum. Teppið verður því boðið upp og selt hæstbjóðanda á komandi fjölskyldu- og bæjarhátíð – Sumar á Selfossi. En allur ágóði mun renna óskiptur til styrktar Barnaheilla á Íslandi. Teppið Saumað úr 3008 bútum í 160 mismunandi litaafbrigðum. Til sýnis Teppið nýtur sín best á stórum vegg eins og hér sést. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 Það má gleyma sér í marga tíma við að skoða skemmtileg matarblogg. Annaðhvort bara við að skoða girni- lega myndir af mat eða til að fá góð- ar hugmyndir og prófa sig áfram sjálfur í eldhúsinu. Vefsíðunni pinchmysalt.com er haldið úti af bandarískri konu að nafni Nicole. Hún er mikil áhugamanneskja um mat en í kynningu um sjálfa sig á síð- unni segir hún ástríðuna fyrst hafa kviknað þegar hún bjó í fjögur ár á Sikiley. Ef maður er að leita að ein- hverju sérstöku er hægt að leita í lista yfir uppskriftir. Þar má finna ótal hugmyndir að girnilegum mat, en nýjustu uppskriftirnar eru að kaldri gúrku og avókadósúpu og smoothie úr grískri jógúrt og ferskju. Nicole mælir með að bera hvort tveggja fram í sumarmatarboðinu. Á síðunni má líka finna krækjur á ýmiss konar önnur matarblogg. Vefsíðan www.pinchmysalt.com Innblástur frá Sikiley Hversdagslegt umhverfi í miðbæ Reykja- víkur öðlast nýtt líf í göngu sem Listasafn Reykjavíkur hefur skipulagt með Framand- verkaflokknum Kviss Búmm Bang í kvöld kl. 20. Gangan er hluti af Kvosargöngum sem menningarstofnanir Reykjavíkur- borgar gangast fyrir öll fimmtudagskvöld yfir sumartímann. Kviss Búmm Bang-hópurinn hefur vakið athygli fyrir fjölbreytileg leikverk, sem varpa fersku ljósi á samfélagið oft með þátttöku áhorfenda. Hópurinn saman- stendur af þeim Evu Rún Snorradóttur, Evu Björk Kaaber og Vilborgu Ólafsdóttur en þær hafa bakgrunn í sviðslistum og -fræð- um, myndlist og kynjafræði. Gangan tekur um klukkustund, en lagt er upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Endilega … … farðu í kvöldgöngu Morgunblaðið/ÞÖK Kvöldganga Gaman að rölta um borg með skemmtilegum konum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Fjarðarkaup Gildir 28. - 28. júlí verð nú áður mælie. verð Grísahnakki úrb. (kjötb.)............. 998 1.398 998 kr. kg Lúxus grísakótelettur (kjötb.)....... 1.498 1.898 1.498 kr. kg Hamborgarar 2 stk. m/br., 115g. 396 480 396 kr. pk. SS Mexíkó grísakótelettur ........... 1.582 1.978 1.582 kr. kg Kostur Gildir 28. - 31. júlí verð nú áður mælie. verð Bauta rauðvíns grísakótelettur .... 1.259 2.098 1.259 kr. kg Goði grísahnakki PiriPiri.............. 1.574 2.098 1.574 kr. kg Goði lambalærisn. salt/pipar...... 2.249 2.998 2.249 kr. kg Goði hunangs grísakótelettur ...... 1.574 2.098 1.574 kr. kg Kostur grísafille kryddað ............. 1.490 1.998 1.490 kr. kg Dortitos, 4 teg. 65 g ................... 195 215 195 kr. stk. Lay’s snakk, 2 teg., 200 g .......... 269 365 269 kr. stk. Pepsi Max, Mix., 33 cl. dósir ....... 69 79 69 kr. stk. Pepsi og pepsi Max, 2 ltr ............ 195 215 195 kr. stk. Nettó Gildir 28. - 31. júlí verð nú áður mælie. verð Bautab. grillborg., 4 stk. m/brau. 558 698 558 kr. pk. Ferskt lambalærissneiðar ........... 1.698 1.998 1.698 kr. kg Ferskt lambalærissteik ............... 1.699 2.698 1.699 kr. kg Nettó kjúklingaleggir .................. 718 798 718 kr. kg Nettó kjúklingur 1/1 .................. 718 798 718 kr. kg Nettó kjúklingabringur................ 1.999 2.295 1.999 kr. kg Ferskvara svínalærissteik............ 1.399 1.998 1.399 kr. kg Ferskt svínahnakkasneiðar ......... 1.199 1.998 1.199 kr. kg Kjötb. grísahn. úrb. mangó/chili.. 1.399 1.998 1.399 kr. kg Bökunarkartöflur ........................ 98 185 98 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 28. - 31. júlí verð nú áður mælie. verð Goði hamborgari alvöru 2x120 g . 399 649 399 kr. pk. Ísfugl kjúkl.borgarar forsteiktir ..... 1.099 1.998 1.099 kr. kg Kjötsel grill svínahnakki úrb. ....... 1.198 1.498 1.198 kr. kg Kjötsel grill svínakótelettur reykt .. 1.159 1.449 1.159 kr. kg Kjötsel grill svínabógsneiðar ....... 698 798 698 kr. kg Kjötsel grill grísafille sneiðar ....... 1.499 1.798 1.499 kr. kg Kjötborð lambagrillleggir ............ 989 1.149 989 kr. kg Kjötborð lambaframpartssn. ....... 796 1.098 796 kr. kg Kjötborð lambalærissn., 1 fl........ 1.499 1.989 1.499 kr. kg Mangó ...................................... 199 429 199 kr. kg Þín Verslun Gildir 28. - 31. júlí verð nú áður mælie. verð Svínakótelettur úr kjötborði......... 1.198 1.854 1.198 kr. kg Fjallalamb grillsneiðar þurrkr....... 1.679 2.098 1.679 kr. kg Ísfugl Hot Wings ........................ 798 899 798 kr. kg MS ostakaka súkkulaði, 800 g.... 975 1.093 1.219 kr. kg Dala gráða- og fetaostur, 325g ... 459 498 1.412 kr. kg Doritos Nacho osta snakk, 165 g 249 315 1.509 kr. kg Coca Cola, 1 ltr ......................... 175 210 175 kr. ltr Burtons Toffypops kex, 120 g...... 149 195 1.242 kr. kg Haribo BBQ sykurpúðar, 175 g.... 335 449 1.914 kr. kg Swiss Miss kakó, 284 g.............. 489 598 1.722 kr. kg Helgartilboðin Morgunblaðið/Kristinn Viðvarandi þreyta er heilsufars- vandamál sem hrjáir margan nú- tímamanninn. Á bresku síðunni ivillage.co.uk má finna tíu góð ráð til að forðast þreytu:  Forðist skyndilausnir: Ekki fá sér kaffi eða nammi til að slá á þreytu.  Svefn: Fara alltaf að sofa á sama tíma og á fætur á sama tíma. Og ekki sofa minna en í 7 tíma.  Mataræði: Borðið næringarríkan mat í hvert mál. Staðgóður morgunverður skiptir öllu.  Hreyfing: Regluleg líkamleg hreyfing er nauðsynleg. Gönguferð eða sundsprettur í 20 mínútur dugar.  Drekkið vatn: Drekkið ekki minna en 2,5 l af vatni yfir daginn.  Passið upp á vítamín- og stein- efnabúskap líkamans: Án þeirra starfar líkaminn ekki rétt.  Ekki sofna fram á borðið: Þegar þreytan ætlar að yfirbuga fólk er gott að krota um stund á blað, það skerpir hugann og dregur úr syfju.  Taktu til: Hafðu allt á sínum stað, þá hefurðu meiri tíma til að gera það sem þig langar.  Þekktu streitumörkin og hafðu stjórn á þeim: Gefðu þér tíma til slökunar dag hvern.  Skipuleggðu fram í tímann: Til að koma í veg fyrir álagið sem fylgir því að vera á síðustu stundu. Heilsa Nokkur ráð til að forðast þreytu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.