Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 AF LEIKLIST Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is Það er fátt betra en að fylgjastmeð góðum leikara ískemmtilegu hlutverki, svo lengi sem það hlutverk er í leikhúsi, sjónvarpi eða í kvikmyndum. Leik- listartilþrif leynast nefnilega víðar en á sviðum leikhúsanna, sjónvarpi eða í kvikmyndum, en við dettum í ýmis hlutverk á degi hverjum. Sem dæmi má nefna að þegar ég elda fyrir konuna mína sýnir hún stór- leik. Hún fer í hlutverk gríðarlega svangrar konu sem er svo svaka- lega ánægð með matinn sem borinn er á borð fyrir hana, að hún lofar að elda næst og þarnæst og jafnvel þar-þarnæst.    Leiklistin er partur af svomörgu, eins og til dæmis íþróttum. Knattspyrnumenn til- heyra sennilega þeirri stétt sem kemst næst því, fyrir utan leikara, að hafa fullkomnað leiklist- artilþrifin í þágu starfs síns. Hver hefur annars ekki séð knattspyrnu- mann henda sér í grasið, liggja þar og emja og ríghalda í útlimi líkt og þeir væru að detta af? Í kjölfarið dæmir dómarinn á þetta vítaverða brot, en svo kemur í ljós í hægri endursýningu að þetta var ekki neitt annað en leiklist á heims- mælikvarða.    Það eru fleiri stéttir semtreysta á leiklistina að miklu Leiklistartilþrif leynast víðar en á sviðum leikhúsanna Leiklistin Krakkarnir í Vesturporti eru gott dæmi um frábæra leikara. leyti, eins og bílasalar. Ég fór á bílasölu um daginn þar sem ég spjallaði við bílasala í hálftíma um bíl sem var til sölu hjá honum. Í þessu hálftímalanga leikriti var einn aðalleikari, eitt lítið auka- hlutverk og svo nokkrir statistar. Aðalhlutverkið var að sjálfsögðu í höndum bílasalans, sem blaðraði allan tímann um ágæti bílsins og hvað ég gerði góð kaup ef ég ákvæði að skella mér á hann. Aðal- leikarinn fór með fleygar setningar á borð við: ,,Það er svakalega gott í þessum bílum,“ ,,Ertu ruglaður. Þetta er stærri vélin sko!“ og ,,Þessi bíll verður farinn á morgun“ og þar fram eftir götunum. Mér var hins- vegar úthlutað litlu aukahlutverki sem beygður, fáfróður maður sem sagði ekkert annað í leikritinu en: ,,Eru þessar Hondur ekki alltaf að bila?“ Eftir frábæra frammistöðu aðalleikarans var ég staðráðinn í því að festa kaup á bílnum og hringdi í félaga minn sem hefur mikið vit á bílum og spurði hann álits. Hann hló bara að mér og spurði hvort ég væri eitthvað rugl- aður – þetta væri gamla boddíið!    Á hverjum degi mætum viðfólki sem leikur missannfær- andi hlutverk með missannfærandi handrit. Við verðum því að hafa augun opin fyrir leikaraskap í kringum okkur og gæta okkar á því að ráða okkur ekki óafvitandi í launalaust hlutverk. » ,,Það er svakalegagott í þessum bíl- um,“ ,,Ertu ruglaður. Þetta er stærri vélin sko!“ og ,,Þessi bíll verð- ur farinn á morgun“ Samkvæmt Tónlistanum, sem er unninn af Félagi hljómplötufram- leiðenda, seldust fleiri plötur á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Tónlistarbrans- inn er misjafn og fer eftir þeim titl- um sem í boði eru hverju sinni. Í ár stefna nýjar plötur Gus Gus, Bubba og Sólskugganna og Helga Björns og Reiðmanna vindanna í að ná gullsölu, 5.000 eintökum, aðeins ör- fáum vikum eftir útgáfu þeirra. Vinsælastir Gus Gus, Bubbi og Helgi Björns eru með þetta. Sala tónlistar á Íslandi eykst Söngkonan Sheryl Crow vill hjálpa þeim tíu skólum sem eyðilögðust í hvirfilbylnum sem skall á Missouri í maí sl. Crow ætlar að setja blæju- bílinn sinn á uppboð, Mercedes- Benz 190 SL Roadster árgerð ’59, þann 22. ágúst og gefa uppbygging- arstarfi skólanna peninginn. Reuters Hjálpsöm Crow er fædd í Missouri. Sheryl Crow leggur hönd á plóg CAPTAIN AMERICA 3D kl. 2:30 - 5:30 - 8 - 10:45 12 HORRIBLE BOSSES kl. 5:30 - 8 - 10:20 12 HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 2:30 - 5 - 8 - 10:45 12 BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 L TRANSFORMERS 3D kl. 8 - 11 12 KUNG FU PANDA 23D Með ísl. tali kl. 2:30 L / ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:15 12 HARRYPOTTER7-PART23D kl.2:45-5:20-8-10:40 12 HORRIBLE BOSSES kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:15 VIP HARRYPOTTER7-PART2 kl.2:45-5:20-8-10:40 12 BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L TRANSFORMERS 3 kl. 8 12 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L THE HANGOVER 2 kl. 5:30 12 CARS 2 Með ensku tali kl. 8 - 10:30 L KUNG FU PANDA 2 Með ísl. tali kl. 3 L SÝND Í KRINGLUNNI á allar sýningar merktar með grænu1.000 kr.SPARBÍÓ 3D „THE BEST 3D SINCE AVATAR“ - SCOTT MANTZ, ACCESS HOLLYWOOD H H H -T.V. KVIKMYNDIR.IS/ - SÉÐ OG HEYRT SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK, SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI ATHUGIÐ GLÆNÝ STUTTMYND SÝND Á UNDAN CARS 2 FRÁ HÖFUNDUM "SVALARI BÍLAR OG MEIRI HASAR" - T.D. -HOLLYWOOD REPORTER H H H H - J.C. -VARIETY H H H H - P.T. -ROLLING STONES H H H H LEIFTUR MCQUEEN OG KRÓKUR ERU AFTUR MÆTTIR, BETRI EN NOKKURN TÍMANN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.