Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 22
✝ Ása Líney Sig-urðardóttir fæddist í Kópavogi 1. júní 1959. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 20. júlí 2011. Foreldrar henn- ar: Pálína Jóhann- esdóttir, húsmóðir frá Ham- arshjáleigu, Gaul- verjabæjarhreppi, f. 2. apríl 1925 og Sigurður Magnús Jóns- son, húsgagnasmiður frá Hnífs- dal, f. 23. september 1923, d. 13. ágúst 1988. Systkini Ásu: 1) Jón Haukur, f. 12. nóvember 1949, m. Luz Stella Triana. 2) Bene- dikt Tryggvi, f. 27. janúar 1951, m. Ásta Kristín Níelsdóttir. 3) Elín Stella, f. 29. apríl 1952, m. Helgi Hauksson. 4) Erla Sig- urlín, f. 3. maí 1955, d. 8. janúar 1957. 5) Jóhannes Ómar, f. 1. október 1956, m. Soffía Krist- jánsdóttir. 6) Sölvi Ellert, f. 21. mars 1958, m. Sigurveig Guð- mundsdóttir. 7) Helgi Guð- mundur, f. 6. ágúst 1960, m. Guðrún Magnúsdóttir. 8) Einar Már, f. 14. janúar 1965, m. Ellen Baer. 9) Guðrún Fanney, f. 30. maí 1966, m. Laurent Nicolas Bonthonneau. tölvunarfræðingur. Börn þeirra: Kristófer, f. 21. október 2003 og Tómas, f. 18. janúar 2008. Börn Ásu og Þorgríms Óla: 1) Sigrún Hanna, meistaranemi í þjóð- fræði, f. 6. október 1984, m. Ant- on Scheel Birgisson, hár- snyrtimeistari. Barn þeirra er Líney Hekla, f. 18. apríl 2011. Fyrir á Anton son, Dag Gísla. 2) Sigurður Ingi, margmiðl- unarhönnuður, f. 21. desember 1987, m. Særós Ester Leifs- dóttir, nemi. Ása Líney lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og námi í opinberri stjórnun og stjórnsýslu frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Vorið 2010 lauk Ása BS-gráðu í við- skiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Ása var aðalbókari sýslu- mannsins á Selfossi síðustu ár. Hún stofnaði og rak, ásamt Lilju Guðmundsdóttir, gjafa- vöruverslunina Í tilefni dagsins á Selfossi frá 1990-96. Áður starfaði hún m.a. hjá Lands- virkjun og Selfosskaupstað. Ása tók virkan þátt í félagsstörfum, var einn af stofnfélögum ITC Selja og var um tíma forseti deildarinnar. Hún var formaður Framsóknarfélags Selfoss, vara- bæjarfulltrúi um tíma og sat í ýmsum nefndum á vegum sveit- arfélagsins. Helstu áhugamál Ásu voru fjölskyldan, handa- vinna, ferðalög og garðrækt. Útför Ásu Líneyjar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 28. júlí 2011, og hefst athöfnin kl. 13.30. Ása Líney fædd- ist í Víðihvammi 3 í Kópavogi, þar ólst hún upp og gekk í Kópavogsskóla til 12 ára aldurs er fjölskyldan fluttist á Bragagötu 30 í Reykjavík. Ása lauk landsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1976. Þann 14. nóv- ember 1981 giftist Ása Þorgrími Óla Sigurðssyni, aðstoðaryf- irlögregluþjóni, f. 24. júlí 1952. Foreldrar hans: Ingibjörg Þor- grímsdóttir, húsmóðir, f. 20. ágúst 1926 og Sigurður Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, f. 18. mars 1929, d. 8. september 1986. Bræður Þorgríms Óla: 1) Jón Arnar, m. Anna Halldórs- dóttir. 2) Þór, m. Ingveldur Guð- jónsdóttir. 3) Sigurður Rúnar. 4) Gunnlaugur Valgarð, m. Anna Steinþórsdóttir. Öll sín búskap- arár bjuggu Ása og Óli á Sel- fossi þar sem þau bjuggu fjöl- skyldu sinni fallegt og gott heimili. Dóttir Ásu og Páls I. Blöndals Sigurbjörnssonar, f. 15. apríl 1955, er Linda Rós, hjúkr- unarfræðingur, f. 22. september 1977, m. Dagur Gunnarsson, Aðfaranótt miðvikudagsins 20. júlí síðastliðins vaknaði ég upp við símhringinguna sem ég hafði átt von á en þó ekki svona snemma. Yndislega móðir mín, Ása Líney Sigurðardóttir, var látin. Eins mikið og maður hafði reynt að undirbúa sig fyrir þetta símtal gat maður ekki ímyndað sér hversu sárt og erfitt það væri að fá þessar fregnir. Vorið 2009 hóf mamma stríðið við krabbameinið. Ekki er annað hægt að segja en að sú barátta hafi verið aðdáunarverð og ein- staklega hetjuleg. Aldrei hafði mig órað fyrir hversu sterk þessi manneskja gat verið. Aldrei sá maður það á henni að hún væri kvalin og ótrúlegt var að sjá hversu brosmild og glaðleg svona veik manneskja gat verið. Alltaf hugsaði hún um aðra fram yfir sig sjálfa. Í miðri baráttu lauk hún námi sem hún hafði hafið áð- ur en hún greindist og ekki nóg með það heldur útskrifaðist hún með hæstu einkunn. Mamma var alltaf einstaklega ráðagóð og gat maður alltaf leit- að til hennar með sín vandamál hver sem þau voru og aldrei dæmdi hún. Alltaf hringdi maður í mömmu ef maður var ekki viss með hlutina og er óhætt að segja eins og oft er sagt að mamma manns viti nú alltaf best. Hún kom jafnt fram við alla og aldrei heyrði ég slæm orð um nokkurn mann koma frá henni. Mamma mín var alltaf einstak- lega lagin í höndunum og eru þau ófá sauma- og föndurverkin sem hún skilur eftir sig fyrir okkur hin til að njóta. Það er og verður mér alltaf minnisstætt þegar ég bað hana um að prjóna á mig lopapeysu og ég gat ekki valið hvort ég vildi rennda eða lokaða peysu svo að hún prjónaði bara tvær. Hún kvaddi þennan heim af mikilli yfirvegun og alltaf var stutt í grínið og gamanið hjá henni allt fram að seinustu stundu. Eitt er þó ljóst að þessi frábæra manneskja, einstaka kona, mín ástkæra móðir skilur eftir sig djúpt skarð í huga og hjarta mér og allra sem nærri henni komu. Takk mamma mín Takk fyrir að bera mig undir belti. Takk fyrir að ala mig upp. Takk fyrir öll ráðin sem þú gafst mér. Takk fyrir að kenna mér að taka réttar ákvarðanir. Takk fyrir að banna mér að gera hluti sem átti ekki að gera. Takk fyrir að segja mér að gera hluti sem ég átti að gera. Takk fyrir að styðja mig í öllu. Takk fyrir að vera alltaf til staðar. Takk fyrir tímann sem við áttum sam- an. Takk fyrir allt mamma mín. Þinn sonur, Sigurður Ingi Þorgrímsson. Elsku yndislega mamma mín. Mikið vildi ég óska þess að þú værir hér enn hjá okkur. Ég hefði viljað hafa þig hjá mér svo miklu, miklu lengur. Söknuður- inn og sorgin er ólýsanlega mikil. Eins og lífið getur nú verið ynd- islegt þá er svo sárt og ósann- gjarnt þegar fólk fellur frá í blóma lífsins, þú varðst bara 52 ára. Svona hlutir minna mann á hvað lífið er stutt og dýrmætt, og hversu mikilvægt það er að njóta líðandi stundar. Þú varst ekki bara frábær mamma sem ég gat alltaf leitað til, heldur líka besta vinkona mín. Þú varst einstaklega jákvæð og góðhjörtuð manneskja, gáfuð og dugleg og gædd svo ótal mörgum kostum. Alltaf svo styðjandi og skilningsrík. Þú hafðir líka yndi af ömmuhlutverkinu og sýndir barnabörnunum þínum þremur mikinn áhuga, ást og hlýju. Ég er svo þakklát fyrir að drengirnir mínir hafi kynnst þér og veit hvað þér fannst dýrmætt að ná að sjá nýjasta barnabarnið ykk- ar, dóttur Sigrúnar, fæðast í apríl síðastliðnum, og að fá að fylgjast með henni vaxa og dafna síðast- liðna 3 mánuði. Þú varst sátt við það sem þú áorkaðir í lífinu og talaðir mikið um hvað þú værir stolt af okkur börnunum þínum. Þú notaðir tímann vel eftir að þú veiktist, varst ákveðin í að ljúka viðskipta- fræðinni, og gerðir það með glæsibrag og hélst stóra veislu. Við þrjár mæðgurnar áttum ómetanlega góðar stundir í ynd- islegri ferð til Frakklands á síð- asta ári. Ég á svo margar góðar minningar um þig, elsku mamma mín, við höfum átt svo góð samtöl og margar samverustundir í gegnum allt mitt líf. Þú áttir góð- an tíma með Óla pabba og góðum vinum í utanlandsferð í vor þar sem þið nutuð lífsins saman. Þar fékkst þú stund milli stríða í veikindum þínum. Fyrir rúmum 2 árum greindist þú með krabbamein. Síðasta hálfa árið fóru veikindin að áger- ast og taka æ meiri toll af þér. Alltaf héldum við þó í vonina um að þú myndir sigra eða ná að halda sjúkdómnum niðri og að við fengjum lengri tíma með þér. Síðustu vikurnar voru þér mjög erfiðar og tæpum tveimur vikum áður en þú kvaddir okkur var orðið ljóst að baráttan myndi senn tapast. Þú tókst því með ótrúlegri yfirvegun og æðruleysi og varst fyrst og fremst að hugsa um okkur hin og gerðir þitt besta í að undirbúa okkur fyrir það sem í vændum var. Svo lagðir þú af stað í þína síðustu langferð, frjáls og laus undan öllum þján- ingum. Nú ert þú komin á fal- legan stað þar sem friðsæld og fegurð ríkja þar sem þú verndar og vakir yfir okkur hinum. Þú varst svo stór hluti af lífi mínu að það er mjög óraunveru- legt að hugsa til framtíðarinnar án þess að þú sért þar með okk- ur. Saman munum við fjölskylda þín og ástvinir styrkja hvert ann- að í sorginni, og reyna að brosa í gegnum tárin. Við munum ylja okkur við góðar minningar með þakklæti í hjarta og segja börn- unum okkar frá þér. Takk fyrir allt, elsku mamma. Ég mun aldrei gleyma þér. Elska þig að eilífu. Þín dóttir, Linda Rós. Elsku mamma mín. Tilveran er undarleg. Stundum undur- samleg. Stundum óskiljanleg. Þú varst komin aftur á byrjunarreit, tilbúin til brottfarar. Kvaddir þennan heim nánast á sama stað og þú komst í hann, þá var líka sumar og í hjarta þínu var alltaf sumar. Takk, elsku besta mamma mín, þú gafst mér svo margt, kenndir mér svo margt. Þú sáðir fræjum kærleika, umhyggju, um- burðarlyndis og heiðarleika, þú varst regnið sem vökvaði og sólin sem vermdi. Nú er það okkar sem eftir stöndum að hlúa að græðlingnum og tileinka okkur allt það sem þú kenndir okkur. Þannig lifir þú með okkur áfram, alltaf. Elsku yndislega mamma mín, alltaf svo jákvæð og bjart- sýn. Þú sást sólina setjast að kvöldi þíns hinsta dags en þegar hún reis upp aftur hafðir þú kvatt. Vogurinn var svo fallegur í morg- unskímunni. Um stund sá ég ekki fegurðina, fannst tíminn standa í stað og sem allt væri frosið. En svo var mér litið í augu litlu nöfnu þinnar og sá að þar skein sól þín svo skært, þar og í hjarta mínu og allra sem unnu þér. Ég horfði yfir hafið, á sólina, á him- ininn sem var svo fagur og aftur í augu litlu nöfnunnar. Þar ert þú, yfir og allt um kring og þú segir okkur svo vonandi síðar hvað er bak við ystu sjónarrönd. Þín elskandi dóttir, Sigrún Hanna. Elsku Ása, á þessari stundu streyma minningarnar til mín um samverustundir okkar, upp- vaxtarárin í Kópavogi, unglings- árin í Reykjavík, sveitina í Skriðu, börnin, afmælin … Það bera ekki allir gæfu til að fæðast inn í góða fjölskyldu en við systkinin höfðum heppnina með okkur. Við nutum þess að eiga yndislega foreldra og alast upp í stórum systkinahópi við umhyggju og ást. Þó ég væri að- eins árinu yngri en þú þá fórstu fljótlega að hafa vit fyrir mér og ég lærði svo margt af þér. Frá fyrstu tíð var þér lagið að fara vel með það sem að þér var rétt. Strax í æsku þegar við feng- um pening fyrir bíó og nammi þá var ég ekki fyrr kominn inn í kvikmyndahúsið en ég hafði eytt hverri krónu. Þú aftur á móti sparaðir peninginn og lagðir hann til hliðar þegar heim var komið. Á unglingsárunum varstu mér hjálpleg, straujaðir skyrtuna mína og burstaðir skóna fyrir ballferðir okkar. Við brölluðum margt. Ég mun aldrei gleyma þegar við ætluðum út á lífið og þú gerðir tilraun á mér með hár- greiðslu og snyrtingu. Perm- anentið misheppnaðist svo rosa- lega að mér hefði aðeins verið hleypt inn á grímuball það kvöld. Næstu vikur voru kvöl og pína. Með tíð og tíma náði þó hárið aft- ur eðlilegum blæ og ég gat tekið gleði mína að nýju. Síðar gátum við alltaf hlegið að þessu atviki og eftir á að hyggja hefði ég ekki vilja missa af þessari reynslu. Þú kynntir mig fyrir Guðrúnu sem varð síðar eiginkona mín og barnsmóðir. Vinátta ykkar var alla tíð einstök. Eitt af því sem einkenndi þig var hversu létt þú fórst með að læra og hvað námið sóttist vel. Þegar pabbi var að reyna að koma mér áfram á þeirri braut tók hann auðvitað nærtækasta Ása Líney Sigurðardóttir 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR, Furugrund 60, Kópavogi, lést á Landakotsspítala sunnudaginn 24. júlí. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Óskar Jónsson, Halla Eysteinsdóttir, Bjarni Dagur Jónsson, Sólveig Magnúsdóttir, Dagur Jónsson, Valdís Þórðardótir, Rúnar Jónsson, Elsa Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÍRIS SIGURBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þriðju- daginn 26. júlí. Hafsteinn Ágústsson, Aðalheiður Hafsteinsdóttir, Sigurður Ingi Ólafsson, Ágústa Hafsteinsdóttir, Ástþór Jónsson, Lára Hafsteinsdóttir, Einar Birgisson, Örn Hafsteinsson, Sólveig Jónsdóttir, Árni Hafsteinsson, Sara Hafsteinsdóttir, Þórólfur Guðnason, Svava Hafsteinsdóttir, Ólafur H. Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, SÆVAR MARINÓ CIESIELSKI, lést föstudaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 2. ágúst kl. 13.00. Júlía Marinósdóttir, Steinar M. Skúlason, Hafþór Sævarsson, Sigurþór Sævarsson, Victor Blær Jensen, Lilja Rún Jensen, afabörn og systkini hins látna. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BALDVIN SIGURÐSSON frá Eyvindarhólum, A-Eyjafjöllum, lést á hjúkrunar og dvalarheimilinu Klaustur- hólum laugardaginn 9. júlí. Útför hans fór fram í kyrrþey 23. júlí. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJARNEY SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hælavík, sem lést á Droplaugarstöðum að kvöldi föstudagsins 15. júlí, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 2. ágúst. Athöfnin hefst kl. 13.00. Kristján Á. Ögmundsson, Elín Þórjónsdóttir, Lúðvík B. Ögmundsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurbjörg G. Ögmundsdóttir, Snæbjörn Ó. Ágústsson, Jóhann S. Ögmundsson, Kristinn B. Ögmundsson, Auður Hreinsdóttir, Þorteinn H . Ögmundsson, Sigríður E. Hafsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SVÖVU SÍMONARDÓTTUR, Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir góða umönnun og Rb. st. nr. 5, Ásgerðar fyrir ómetanlega aðstoð vegna útfararinnar. Guð blessi ykkur öll. Þórir Sigurðsson, Ingibjörg Elísabet Þóroddsdóttir, Tómas Ævar Sigurðsson, Kristjana Ragnarsdóttir, Viktor Grímar Sigurðsson, Anna Steingerður Björnsdóttir, Sigríður Selma Sigurðardóttir, Ólafur Ágúst Símonarson, Sigrún Sigurðardóttir, Hinrik Helgi Hallgrímsson, Sesselja Magnúsdóttir, Tómas Friðjónsson og ömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.