Morgunblaðið - 28.07.2011, Side 6

Morgunblaðið - 28.07.2011, Side 6
flokki, auk fulltrúa frá efnahags- og skattanefnd. Þessi hópur er á stöð- ugum fundum þessa dagana því vinnu við fjárlagafrumvarpið á að ljúka í fyrstu viku ágústmánaðar. Vinna hópsins byggir á stefnu- mörkun stjórnarinnar í ríkisfjármál- um fyrir árin 2009–2013 sem ríkis- stjórnin samþykkti í febrúar 2009, en áætlunin var unnin í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og lá til grundvallar stuðningi sjóðsins við Ísland. Á að hverfa frá markmiði um jöfnuð 2013? Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru sumir innan fjárlaga- hópsins þeirrar skoðunar að óraun- hæft sé að halda sig við þessa áætlun óbreytta, en hún gerir ráð fyrir já- kvæðum frumjöfnuði á ríkissjóði á árinu 2011 (þ.e. hallalausum rekstri að undanskildum fjármagnskostnaði ríkissjóðs) og hallalausum fjárlögum 2013. Einn viðmælandi blaðsins sagði sterkan vilja meðal stjórnarþing- manna að halda sig við markmið um hallalaus fjárlög 2013. „Það væri slæmt fyrir trúverðugleika Íslands út á við að hverfa frá markaðri stefnu. Það myndi hafa slæm áhrif á lánshæfi Íslands. Láns- hæfis- fyrir- 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Ársverðbólga mælist nú 5% og hef- ur farið hratt vaxandi frá áramót- um. Hún hefur ekki mælst meiri síðan í júní í fyrra þegar hún var 5,7%. Viðvarandi verðbólga leiðir vitaskuld til kjaraskerðingar á formi kaupmáttarrýrnunar. Það var því ein af forsendum nýgerðra kjarasamninga að endurskoða bæri þá með reglulegu millibili með tilliti til þróunar verðbólgu og kaupmátt- ar, meðal annars. Matthías Kjeld, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, segir kjarasamningana ennþá það ný- gerða að erfitt sé að draga mark- tækar ályktanir af áhrifum þeirra fyrr en líða tekur á haustið. „Auð- vitað er svolítið óþægilegt að sjá þessar tölur, en það er náttúrlega heilmikið eftir af árinu,“ segir hann. Sam- kvæmt samning- unum kemur svo- kölluð forsendunefnd, skipuð fulltrúum aðildarsamtaka ASÍ og Samtaka atvinnulífsins, saman í byrjun næsta árs og fer yfir það hvernig til hefur tekist frá und- irritun til áramóta. Þá verður meðal annars horft til þess hvort kaupmáttur launa hafi aukist og hvort gengi krónunnar hafi styrkst það sem af er samn- ingstímanum. „Það er náttúrlega sterkt samband á milli gengissigs og verðbólgu, sérstaklega hjá okk- ur á Íslandi,“ segir Matthías. Helstu þættirnir sem ýtt hafi undir verðbólgu upp á síðkastið séu ann- ars matvöru- og eldsneytisverð. Þá hafi fasteignaverð haft sitt að segja. Of snemmt að draga ályktanir Matthías leggur áherslu á það að rétt sé að bíða áður en ályktanir séu dregnar. Hugsanlegt sé að mót- verkandi kraftar verki gegn verð- bólguþróuninni, til að mynda þegar dregur úr spennu á vinnumarkaði í sumarlok eins og oft vill verða. Þá hafi sumarútsölur oft hjaðnandi áhrif á verðbólguna. Því hefur verið haldið fram, þar á meðal af Árna Páli Árnasyni, efna- hags- og viðskiptaráðherra, að kjarasamningarnir sjálfir hafi ýtt undir verðbólgu. Tólf mánaða verð- bólga mælist nú meiri en prósentu- hækkun launa sem samið var um – 4,25%. Matthías bendir á að samn- ingarnir séu ennþá nýgerðir og áhrif þeirra á verðbólguþróun því óljós. Það sé hins vegar áhyggju- efni ef kjarabæturnar minnki út af þessari verðbólguþróun. „Við viljum auðvitað ekki fara út í þennan launaspíral sem var hér á árum áður,“ segir hann og vísar til víxlverkunar launa- og verðhækk- ana sem á endanum leiða til óða- verðbólgu. „Ég held að menn hafi reynt í lengstu lög að forða okkur frá slíkri þróun [við gerð kjara- samninga].“ Náið verði fylgst með verðbólguþróuninni næstu vikur og mánuði og orsakavaldanna leitað. „Óþægilegt að sjá þessar tölur“  Kjarabótum stafar ógn af verðbólgu sem hefur aukist mikið frá áramótum  Hagfræðingur ASÍ seg- ir of snemmt að draga ályktanir af áhrifum launahækkana á verðbólguþróun  Náið fylgst með þróun Matthías Kjeld FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Hörð átök eru milli stjórnarflokk- anna um hvort hækka eigi skatta á næsta ári. Innan Samfylkingarinnar er mikil andstaða við hugmyndir VG um hækkun skatta en flokkurinn leggur til að skorið verði meira niður í útgjöldum ríkisins. Viðræður flokk- anna eru pólitískt viðkvæmar vegna þess að stjórnin hefur núna aðeins eins þingmanns meirihluta og því er hefur sérhver þingmaður neitunar- vald við fjárlagagerðina. Þegar fjárlagafrumvarp þessa árs var lagt fram í upphafi þings í haust risu nokkrir stjórnarliðar upp og mótmæltu. Ástæðan var sú að frum- varpið gerði ráð fyrir að fjárveiting- ar til sjúkrahúsa á landsbyggðinni yrðu skornar niður um þrjá millj- arða. Einstakir þingmenn sögðu að þessi niðurskurður hefði komið þeim á óvart og þeir hefðu aldrei sam- þykkt hann. Í framhaldinu spurðu stjórnarandstæðingar fjármálaráð- herra hvort meirihluti þingmanna styddi frumvarpið. Tillögurnar voru í kjölfarið endurskoðaðar og niður- skurðurinn varð aðeins brot af því sem upphaflega var áformað. Nánara samstarf við þingið Þessi uppákoma varð til þess að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hétu því að hafa meira samráð við þing- menn stjórnarflokkanna um fjár- lagagerðina. Þetta hefur gengið eft- ir. Stofnaður var fyrr á þessu ári sérstakur fjárlagahópur en í honum eru þrír þingmenn frá hvorum tækin þekkja vel markmiðið um hallalaus fjárlög 2013 og það væru slæm skilaboð til þeirra að fara eitt- hvað að slaka á í þeim efnum. En til að ná settum markmiðum þarf að taka fastar á árum.“ Samfylkingin útilokar ekki uppsagnir Innan Samfylkingarinnar er and- staða við að almennir skattar verði hækkaðir meira á heimili og fyrir- tæki, en fjármálaráðherra hefur lát- ið vinna tillögur sem fela í sér hækk- un skatta. Samfylkingin vill ganga lengra í niðurskurði ríkisútgjalda, en andstaða er innan VG við leiðir sem samfylkingarmenn vilja fara í niður- skurði. Þess ber að geta að samfylking- armenn tala ekki einni röddu í rík- isfjármálum. Hluti þingflokksins tel- ur óhjákvæmilegt að hækka eitthvað skatta ef ná á settum markmiðum. Stærstur hluti af útgjöldum rík- issjóðs eru laun og þeir sem and- mæla tillögum um harðari niður- skurð hafa bent á að tillögurnar feli í sér fjöldauppsagnir ríkisstarfs- manna. Einn heimildarmanna blaðs- ins, sem hvetur til frekari niður- skurðar, bendir á að atvinnuleysi hafi minnkað og t.d. sé orðið erfitt að fá iðnaðarmenn í vinnu. Við þessar aðstæður sé vel réttlætanlegt fyrir ríkið að fækka starfsfólki. „Þetta er líka spurning um hvort við viljum verja launin eða verja störfin.“ Útgjöld ríkissjóðs hækka um milljarða vegna kjarasamninga sem gerðir hafa verið á þessu ári. Þetta ásamt útgjöldum vegna fjármála- stofnana eins og Íbúðalánasjóðs, gerir fjárlagavinnuna enn erfiðari. Andstaða við skattahækkun  VG vill hækka skatta enn frekar en Samfylkingin krefst meiri niðurskurðar  Ræða hvort standa eigi við markaða stefnu um jöfnuð á ríkissjóði árið 2013 Morgunblaðið/Golli Lokar gatinu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mundar pennann, en hann reynir nú að skapa samstöðu um tillögur sem loka fjárlagagatinu. Þó skuldir rík- issjóðs hafi hækk- að á síðustu árum hafa vaxtaútgjöld ríkisins ekki hækkað eins mik- ið og reiknað var með. T.d. var í fjárlaga- frumvarpi ársins 2010 reiknað með að ríkissjóður þyrfti að greiða 94,3 milljarða í vexti, en kostnaðurinn varð hins vegar 68 milljarðar. Ástæðan fyrir þessu er að vextir hafa verið óvenju- lega lágir bæði heima og erlendis. Nú bendir hins vegar flest til að breyting sé að verða á. Vextir er- lendis fara hækkandi og seðla- bankastjóri hefur boðað vaxtahækk- un sem eru vondar fréttir fyrir ríkissjóð. Væntingar um vaxtahækk- un eru þegar komnar fram á mark- aði. Ávöxtunarkrafa á 25 ára rík- isskuldabréfum á eftirmarkaði var t.d. 6,5% um síðustu áramót en er núna tæplega 8%. Ríkissjóður skuld- ar yfir þúsund milljarða og hvert prósentustig í hærri vöxtum eykur útgjöld ríkissjóðs um milljarða. Líkur á að vaxtagjöld aukist Vextir heima og er- lendis eru að hækka Vextir Það er dýrt að skulda mikið. Við gerð fjárlagafrumvarpsins byggir fjármálaráðuneytið á hagspá sem Hagstofan gefur út. Í byrjun árs spáði Hagstofan að hagvöxtur myndi aukast á næsta ári um 2,9%. Fyrr í þessum mánuði gaf Hagstofan út nýja spá og gerir þá ráð fyrir 3,1% hagvexti. Í mánaðargamalli spá OECD er hins vegar reiknað með 2,9% hagvexti. Í hagspá Hagstofunnar fyrir næsta ár er byggt á þeirri forsendu að atvinnuvegafjárfestingar aukist um 17,6%. Reiknað er með að fjár- festingar vegna kísilverksmiðjunnar í Helguvík hefjist í haust og nái hámarki á næsta ári og fjárfest- ingar utan stóriðju komist á skrið. Í fyrra byggði fjármálaráðherra frumvarp sitt á spá Hagstofunnar um 3,2% hagvöxt. Þetta gagnrýndu margir því á sama tíma spáði OECD 1,5% hagvexti, ASÍ 1,7% og Seðla- bankinn 2,1% hagvexti. Eftir að fjár- lagafrumvarpið var lagt fram lækk- aði Hagstofan spá sína, en þar með varð að endurskoða tekjuáætlun frumvarpsins. egol@mbl.is Spá 3,1% hagvexti Á síðasta þingi sögðu þrír þing- menn sig úr þingflokki VG og þar með hangir stjórnarmeiri- hlutinn aðeins á einum manni. Einn þingmannanna, Ásmundur Einar Daðason, gekk til liðs við Framsóknarflokkinn og mun því væntanlega greiða atkvæði með flokksmönnum sínum þegar kemur að afgreiðslu fjárlaga. Hinir þingmennirnir tveir, Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason, nefndu andstöðu við fjárlög sem meginástæðu fyrir því að þeir gætu ekki lengur stutt stjórnina. Stjórnin getur því tæplega reiknað með stuðningi þeirra við fjárlagavinnuna. Þessi tæpi meirihluti gerir vinnuna við fjárlagafrumvarpið enn erfiðari. Engar tillögur um skattahækkun eða um lækkun útgjalda rata inn í frumvarpið nema allir 32 þingmenn stjórn- arflokkanna samþykki þær. Það reynir því á samstarfsvilja og samningalip- urð þeirra sem bera ábyrgð á fjárlagavinn- unni. Allir með neitunarvald VIÐKVÆM STAÐA EFTIR KLOFNINGINN Í VG Atli Gíslason Lilja Mósesdótti Ásmundur Einar Daðason Kaupmáttur launa þarf að hafa aukist á tímabilinu desember 2010 til desember 2011 og aftur til ársloka 2012. Þá þarf verðlag að hafa haldist stöðugt á samn- ingstímanum og tólf mánaða verðbólga innan við 2,5% í des- ember árið 2012. Gengisvísitala krónunnar þarf að vera innan við 190 í desember 2012. Hún er í dag um 218. Forsendurn- ar skýrar KJARASAMNINGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.