Morgunblaðið - 28.07.2011, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.07.2011, Qupperneq 11
Ljósmynd/Guðmundur Karl Afrakstur Jónína Hulda Gunnlaugsdóttir var í fimm ár með hið glæsilega Íslandsteppi. inga og byrjaði að sauma og tíndi svo í kring eftir því sem vantaði. Jónína Huld sá strax fyrir sér fallega drapp- liti í jöklinum. Hún byrjaði því á hon- um og vann sig síðan út frá því. Hún gekk með litaprufur og efnabúta í veskinu í nokkur ár ef hún skyldi rek- ast á vefnaðarvöruverslun sem ætti réttu litina til að bæta við. Einnig gramsaði hún mikið í afgöngum í vefnaðarvöruverslunum og keypti líka 10 til 15 cm ræmur af ströngum. „Þetta er kannski ekki flókinn búta- saumur en þetta er nákvæmnisvinna. Það þarf að skera bútana akkúrat rétt niður og allir saumar þurfa að passa og ekkert annað í boði en það væri 100% vel gert. Ég saumaði sam- an fjögurra búta blokkir eins og kall- að er og þegar ég var komin með fjór- ar slíkar saumaði ég þær saman og var þá komin með 16. Þannig raðaði ég teppinu upp en það kom líka oft fyrir að ég var ekki ánægð með lita- samsetninguna á búti í miðju og þá var bara að rekja upp. Þetta verk kenndi mér því líka dálítið mikið í þolinmæði og þrautseigju. Alltaf þeg- ar aðstæður voru hagstæðar heima fyrir, en ég var bæði að sjá um heim- ilið og sinna þar skrifstofustörfum fyrir fyrirtæki okkar hjóna, þá skaust ég í þetta og átti mjög góðar stundir.“ Hékk á borðstofuskápunum Jónína Hulda segir áhugann ekki hafa smitað út frá sér og í fyrstu hafi hún verið dálítið einmana í þessu. Hún byrjaði á borðstofuborðinu heima og það dugði fyrir Vatnajökul og miðhálendið. Eftir það hengdi hún lak utan á borðstofuskápana og nældi bútana þar í. Svo stækkaði teppið og aðgengið að stofuskápunum var orðið mjög slæmt og hún orðin plássfrek á heimilinu. Þá varð hún svo heppin að kynnast góðri konu sem var með álíka dellu. Sú bauð henni að leigja á móti sér iðnaðarhúsnæði og þáði Jón- ína Hulda það með þökkum. Hún segir þetta hafa komið sér vel og það hafi verið ánægjulegt að komast að- eins út á meðal fólks og sinna hugð- arefni sínu. Nú hefur Jónína Hulda fengið sína eigin saumastofu sem hún fékk manninn sinn til að hjálpa sér við að byggja inn af gröfuverkstæð- inu sem hann rekur. Þannig segir hún að Íslandsteppið hafi ekki leitt neitt nema gott af sér. Nú lætur hún sér þó nægja að sauma lítil stykki og hefur verið að sauma veski og buddur úr endurnýttum efnum. Þær hafa fengist í Handverksskúrnum á Sel- fossi og safnbúðinni í Þjóðminjasafn- inu. 500 vinnustundir að baki Eins og áður sagði verður teppið boðið upp á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi sem haldin verður laugar- daginn 6. ágúst. Ólafur Helgi sýslu- maður mun bjóða teppið upp og seg- ist Jónína Hulda ætla að reikna með góðu veðri til að hægt verði að hengja teppið upp utandyra. Henni reiknast til að um 500 vinnustundir liggi í verkinu auk efniskostnaðar. Hún segir 600.000 krónur því vera lág- marksboð fyrir teppið. „Þetta er tilraun og það væri mjög ánægjulegt ef einhver sýndi áhuga á að eignast teppið og styrkja um leið gott málefni. Ég áttaði mig fljótlega á því að það væri svo stórt að það myndi njóta sín best í stóru rými, kannski í fyrirtæki eða stofnun. Þar sem allt hafði verið svo skemmtilegt við vinnsluna setti ég mér það mark- mið að láta teppið verða til góðs. Það lá beinast við að styrkja Barnaheill eftir að hafa sinnt barnauppeldi í mörg ár og ég á eftir að verða þakklát ef einhver kaupir teppið,“ segir Jón- ína Hulda. En það hangir nú til sýnis í Bókasafni Árborgar á Selfossi. Endurnýtt efni „Bútasaumurinn var mjög vin- sæll og viss kjarni sem hefur sinnt honum. Eftir efnahagshrunið hækk- uðu efnin hins vegar svo mikið í verði að saumaskapurinn reyndist erfið- ari,“ segir Jónína Hulda og samsinnir því að hún hafi í raun saumað sitt teppi á hárréttum tíma. Upphaflega hugmyndin er þó auðvitað sú að fólk noti afganga og endurnýti efni líkt og Jónína Hulda gerir í dag. Hún segir að sauma- mennskan eigi vonandi eftir að þróast aftur í þá upphaflegu átt með breyttum aðstæðum. Bútasaumurinn er upphaflega frá Evrópu og barst þaðan til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið mjög vinsæll. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Strangar Jónína Hulda gekk um með efnisbúta í vasanum í nokkur ár. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 Litlatún í Garðabæ - verslunarkjarni í alfaraleið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.