Morgunblaðið - 28.07.2011, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011
Helgarferðin Eltum sólina í sumar
Iðandi mannlíf
á Austurlandi
um ferðahelgi
Veðurspá kl. 12 á laugardaginn
Heimild: vedur.is
G
ru
nn
ko
rt
:L
M
Í
11°
Bolungarvík
5
9°
Steingrímsfjarðarheiði
411°
Patreksfjörður
3
12°
Blönduós
3
14°
Akureyri
2
15°
Húsavík
3
11°
Raufarhöfn
3
16°
Egilsstaðaflugv.
3
12°
Höfn
4
12°
Kvísker
4
11°
Kirkjubæjarklaustur
1
10°
Vestmannaeyjar
9
12°
Reykjavík
3 13°
Hæll
4
12°
Hvanneyri
4
11°
Stykkishólmur
2 11°
Holtavörðuheiði
5
9°
Hveravellir
8 11°Kárahnjúkar
39°Sandbúðir
9Veðurfræðingar hafa verið sérlega óákveðnir í spám
sínum það sem af er vikunni og því engin leið að vita
hvar bongóblíðan verður allra mest um verslunar-
mannahelgina. Hvað sem
því líður er nóg um að
vera á Austurlandi og
þangað verður sjónum
beint hér.
Skannaðu kóðann
til að lesa allt um
Austurland.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Stærsta mannamót á Austurlandi og eitt það
stærsta á landinu um verslunarmannahelgina,
er unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum.
Nokkrir gamlir ungmennafélagsjaxlar voru
að leggja lokahönd á undirbúninginn þegar
fréttaritari Morgunblaðsins átti leið þar um í
gær og smellti af þeim mynd, en undanfarnar
vikur hefur fjöldi fólks unnið að verkefninu.
Síðustu daga hefur verið unnið myrkanna á
milli, að sögn Ómars Braga Stefánssonar,
framkvæmdastjóra unglingalandsmótsins.
„Við reiknum með að það verði hér um
1.200 keppendur, sem við segjum svo að fylgi
átta til tíu þúsund manns í heildina,“ segir
Ómar Bragi. Í Borgarnesi í fyrra voru um
1.700 keppendur svo mótið er aðeins smærra í
sniðum nú, en stórt engu að síður.
Dans, fimleikar, glíma og mótorkross
„Keppnissvæðin eru klár og nú bíðum við
eftir keppendunum okkar,“ segir Ómar Bragi,
en strax í gær var fólk byrjað að mæta á
tjaldstæðið þó svo undirbúningur væri þar
enn í gangi. Alls verður keppt í ellefu grein-
um að þessu sinni, í dansi og fimleikum,
frjálsíþróttum, glímu og golfi, hestaíþróttum,
knattspyrnu, körfubolta, mótorkrossi, skák og
sundi. Fatlaðir keppa í tveimur greinum sér-
staklega, sundi og frjálsum. Allir á aldrinum
ellefu til átján ára geta tekið þátt en skipulag-
ið er þannig að jafnvel þó svo einstaka gestir
eigi ekki aðild að fullskipuðu liði í hópíþrótt
geta þeir samt komist að og mótsstjórnin sér
um að skipuleggja mótið svo að allir komist í
lið og fái að spreyta sig.
Þannig er ungmennafélagsandinn, allir fá
að vera með og allir eru jafnir, hvort sem þeir
tilheyra félagsliðum eða ekki. „Ef strákur frá
Patreksfirði nær ekki saman í lið, getur hann
skráð sig sem einstaklingur og við búum til
lið. Allir fá að keppa hvort sem þeir eru í
íþróttafélagi eða ekki.“ Þess utan myndast
skemmtileg stemning innan einstakra hópa
fólks sem kemur frá sömu stöðum af landinu.
„Skagfirðingar eru til dæmis að koma með
hundrað manna hóp af keppendum og þeim
verður úthlutað sérstöku svæði á tjaldsvæð-
inu. Svo eru oft Vestfirðingar saman og hinir
og þessir sem halda hópinn,“ segir Ómar
Bragi. Glæsileg íþróttamannvirki eru til stað-
ar á Egilsstöðum. Íþróttaleikvangurinn er vel
staðsettur og stutt er í sundlaug og íþrótta-
hús. Tjaldstæðið er miðsvæðis og stutt þaðan
á alla viðburði en mótorkrosskeppnin verður
stuttan spöl fyrir utan bæinn.
Líka vímulaus kvöldskemmtun
Samhliða íþróttunum verður fjölbreytt dag-
skrá fyrir alla fjölskylduna á daginn. Kvöld-
vökur verða öll kvöld, varðeldur í kvöld og
flugeldasýning á sunnudagskvöld. Öll dagskrá
er endurgjaldslaus fyrir mótsgesti, en þátt-
taka í keppnisgreinunum kostar sex þúsund
krónur. „Þótt þetta sé vímulaus fjölskyldu-
samkoma verður hér iðandi líf
á kvöldin líka. [...] Það eru
alltaf einhverjar nýjungar.
Í ár erum við með fjöl-
breyttari afþreyingu,
stærri hljómsveitir. Í
svörtum fötum verða
hér, Ingó og veðurguð-
irnir, Bjartmar og Jón
Jónsson,“ segir Ómar
Bragi.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Allt að verða klárt Unnið var að því hörðum höndum í gær að gera íþróttavöllinn á Egilsstöðum kláran. Björn Ágússtson, Björn Hafþór Guðmundsson Hjálmar Jóelsson lögðu sitt af mörkunum.
Allir fá að reyna sig sem vilja
1.200 keppendur verða á unglingalandsmótinu og í heildina reiknað með hátt í tíu þúsund manns
Keppt í 11 íþróttagreinum og kvölddagskráin verður myndarlegri en áður og stór nöfn troða upp
„Við erum að fá í fyrsta skipti lítinn hóp
frá Grænlandi í gegnum Vest-nordisk Ung-
domsforum,“ segir Ómar Bragi. Sex
krakkar frá Grænlandi mæta á unglinga-
landsmótið.
„Við funduðum í vor með þeim og þeir
ætla að senda lítinn hóp af ungum krökk-
um, sem upplifa þetta með
okkur. Það búa um það bil
140 manns í þessu bæj-
arfélagi og þar er engin að-
staða fyrir íþróttir nema
pínulítill fótboltavöllur,“ seg-
ir Ómar Bragi. Upplifunin
ætti því að verða skemmti-
leg.
Grænlensk börn
á landsmótið
ERLENDIR GESTIR Í ÁR
Kátir krakkar
frá Grænlandi