Morgunblaðið - 28.07.2011, Síða 18

Morgunblaðið - 28.07.2011, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ádögunumvar hafteftir Árna Páli Árnasyni, efnahags- og við- skiptaráðherra, að atvinnuleysið nú væri ekki verra en búist hefði verið við „á þessum stað í hag- sveiflunni“. Ennfremur að það væri undir okkur sjálfum komið hversu lengi við þyrft- um að glíma við langtíma- atvinnuleysi. Þessi viðbrögð ráðherrans við nýjum tölum Hagstof- unnar um 8,5% atvinnuleysi og vaxandi langtímaatvinnu- leysi eru um margt umhugs- unarverð. Til að mynda má nefna að í endurskoðaðri þjóðhagsspá Hagstofunnar frá því í nóvember í fyrra var gert ráð fyrir að atvinnuleysið í ár yrði 7,3% og hafði spáin verið lækkuð úr 8,3% frá því í júní sama ár. Á þessum tíma var Hagstofan farin að trúa því að landið væri farið að rísa, eins og annar ráðherra ríkisstjórnarinnar hefur orð- að það, en nú má að minnsta kosti efast um að sú bjarta spá gangi eftir. Annað sem snertir mjög umræður um atvinnuleysi er fólksflóttinn frá landinu. Þeg- ar núverandi ríkisstjórn tók við gerðu menn almennt ekki ráð fyrir að flóttinn yrði jafn mikill og raun ber vitni og að þrátt fyrir hann yrði atvinnu- leysið með þeim hætti sem nú er staðreynd. Þá var því spáð að atvinnuleysið yrði mun minna á þessu ári en í fyrra og mun minna en horfur eru nú á að verði. Og ítrekað skal að enginn gat reiknað með því- líkum landflótta og raun hefur orðið á, sem er einn þeirra þátta sem fela hið raunveru- lega atvinnu- ástand í landinu. Af þessum ástæð- um er vafasamt að halda því fram að ástandið sé ekki verra en búist hafi verið við „á þessum stað í hag- sveiflunni“. Ráðherranum til varnar má þó segja að með því að tala um tiltekinn „stað í hagsveifl- unni“ er ekki beinlínis hægt að segja að hann fari með rangt mál. Hann er hins vegar að afvegaleiða umræðuna og láta að því liggja að allt hafi gengið eftir eins og búist hafi verið við. Því fer fjarri. Meginatriðið er að Ísland er á röngum stað í hagsveifl- unni miðað við það sem hefði átt að vera ef núverandi ríkis- stjórn hefði ekki náð að moka sandi á tannhjól efnahagslífs- ins. Hagkerfið hér á landi ætti að vera á hraðri uppleið úr öldudal hagsveiflunnar og þess vegna ætti atvinnuleysi að vera tiltölulegra lítið og fara hratt minnkandi. Hið sama á við um langtíma- atvinnuleysið. Þess í stað situr efnahags- lífið enn fast að verulegu leyti og þarf í sífellu að fást við nýjar atlögur stjórnvalda sem leggja sig fram um að halda hagkerfinu á þekktum stað í hagsveiflunni. Segja má að takist ríkisstjórninni að halda efnahagslífinu nægilega lengi á þessum stað muni á end- anum nást efnahagslegur stöðugleiki. Og þá þurfa ráð- herrar ekki að velta því fyrir sér á hvaða stað í hagsveifl- unni við erum. Þeir hafa þá náð þeim árangri að koma efnahagslífinu í lárétta stöðu með stöðugum langtímahorf- um. Ísland væri á hraðri uppleið ef stjórnin hefði ekki stráð sandi í gangverkið} Á röngum stað í hagsveiflunni Utanvegaakst-ur er vanda- mál sem árum saman hefur verið reynt að vinna bug á með misjöfnum árangri en þó aldr- ei nægum. Í gær sagði Morg- unblaðið frá þrálátu og vax- andi vandamáli á Suður- nesjum, en þar eins og víða um land er viðkvæm náttúra sem er lengi að jafna sig eftir ógætilegan akstur hjóla eða bifreiða. Ýmsum aðferðum hefur ver- ið beitt við að draga úr þessum náttúruspjöllum og jafnvel verið brugðið á það ráð að vakta stór svæði úr lofti með aðstoð þyrlu. Slíkt eftirlit er nauðsynlegt til að þeir sem láta sér detta í hug að aka á viðkvæmum svæðum hugsi sig um tvisvar. Eina ráðið sem dugar er hins vegar að hver og einn gæti sín og hafi í huga þær langvinnu og alvarlegu afleið- ingar sem stundargamanið getur haft. Nú þegar stærsta ferðahelgi landsins fer í hönd er sérstaklega mikilvægt að ferðalangar hugi vel að því að fara varlega um viðkvæma náttúru landsins. Utanvegaakstur getur haft langvar- andi og alvarlegar afleiðingar} Virðum viðkvæma náttúruna E itt sinn var ég félagi í Samfylk- ingunni. Þar komst ég að því að viss ógleði greip um sig meðal manna þar á bæ í hvert sinn sem nafn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar var nefnt. Árin hafa liðið en ekkert hefur breyst í þeim efnum. Reyndar er það svo að hjá ákveðnum hópi virðist mega segja hvað sem er um Hannes og þar er talað eins og hann sé þjóðhættulegur mað- ur sem verði að hafa gát á og helst svipta starfi. Hinn flinki stílisti Guðmundur Andri Thorsson skrifaði fyrir ekki löngu mikla grein í Fréttablaðið sem átti að sýna okkur að Hannes væri hættulegur maður. Prófess- orinn gengi laus uppi í Háskóla og væri þar að spilla æskulýðnum. Hann þægi laun fyrir það að fylla hugi ístöðulausra ungmenna af rang- hugmyndum og órum um það að vit væri í frjálshyggj- unni. Ekki fæ ég nú séð að það sé glæpur. En ég er reyndar á þeirri skoðun að það sé þó nokkurt vit í frjálshyggjunni. Mér finnst hún ekki hættuleg, miklu fremur forvitnileg og sumu þar er ég alveg hjartanlega sammála. Hins vegar finnst mér sú efnahags- og at- vinnustefna sem forræðishyggjuflokkurinn Vinstri grænir fylgir nánast vera þjóðhættuleg. Karl Th. Birgisson, þaulreyndur blaðamaður og rit- stjóri Eyjunnar, skrifaði á dögunum grein á sinn vef þar sem hann sagði að hatrið, ofstækið og brenglunin sem birtist í skrifum Hannesar og félaga hans væri af sama meiði og þegar fjölda- morðinginn Anders Breivik kallaði Gro Har- lem Brundtland landsmorðingja. Þetta er ekki smekkleg líking og nær engri átt. Það á reyndar einnig við skrif á athugasemdakerfi Eyjunnar um grein hans. Þar sagði einhver að foreldrar Karls hefðu gert mikil mistök þegar þeir drekktu Karli ekki við fæðingu, og því var bætt við að það hefði sennilega misfarist vegna þess að foreldrarnir væru hálfvitar. Óþverrinn í athugasemdakerfi Eyj- unnar kemur stöðugt á óvart. Það er orðin áleitin spurning hvort það eigi ekki að loka fyrir þetta athugasemdakerfi í eitt skipti fyr- ir öll. Fólk getur þá einbeitt sér að því að skrifa sóðaskap á Fésbókinni. Og talandi um Fésbókina. Þráinn Bertels- son nefndi þar Hannes í færslu og sagði í annarri smekklausri samlíkingu: „Þjóð sem gerir hægriöfga- menn að háskólaprófessorum hefur ekki efni á því að afgreiða norska hægriöfgamenn sem geðsjúklinga.“ Hver er glæpur Hannesar, annar en sá að vera á annarri pólitískri skoðun en þessir menn? Hannes er fyrirferðarmikill, tekur sterkt til orða og má vissulega búast við að fá andsvör. Sennilega hefur hann einhvern tíma móðgað þessa menn illilega, kannski kallað þá Baugspenna, sem þykir svívirðilegt skammaryrði. En það réttlætir ekki að þeir ausi yfir hann fúkyrðum. Hættið þessu, strákar mínir! kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Glæpir Hannesar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is F resturinn sem líbískir uppreisnarmenn gáfu einræðisherranum Muammar Gaddafi til að láta af völdunum rann út í gær, rúmu hálfu ári eftir að vopnuð uppreisn braust út í araba- ríkinu um miðjan febrúar. Hljótt hefur verið um tilboðið til Gaddafis. Vikurnar eftir að átökin hófust prýddu myndir af uppreisn- armönnum forsíður heimspress- unnar en eftir því sem átökin dróg- ust á langinn tóku aðrir heims- viðburðir, á borð við skulda- kreppuna, að skyggja á átökin. Miðað við tíðindi gærdagsins bendir fátt til að lausn sé í sjónmáli. Staðfesti tilboðið Mustafa Abdel Jalil, leiðtogi uppreisnarmanna, staðfesti að frest- urinn væri runninn út en Gaddafi mun hafa verið boðið að láta völd- unum í upphafi þessa mánaðar. Abdel Elah al-Khatib, erindreki Sameinuðu þjóðanna, hafði milli- göngu um tilboðið en hann mun hafa rætt við Gaddafi í höfuðborginni Tri- poli og við uppreisnarmenn í helsta vígi þeirra, borginni Benghazi. Khatib hefur ekki tjáð sig um einstök atriði tilboðsins en Reuters- fréttastofan hefur eftir ónefndum diplómata að það feli í sér að lýst verði yfir vopnahléi og völdunum síðan skipt á milli fulltrúa helstu fylkinga, þar með talið bandamanna Gaddafis, án aðkomu hans. Upp- reisnarmenn vilja ekki deila völdum. Ekki á síðustu dropunum Líbía er sem kunnugt er olíu- vinnsluríki. Því hafa farið af stað vangaveltur um hvort hersveitir á bandi Gaddafis hafi minni aðgang að olíulindunum en áður og eigi jafnvel á hættu að þurfa að rifa seglin vegna yfirvofandi olíuskorts. Að sögn heimildarmanns frétta- stofu Sky innan breska varnar- málaráðuneytisins eru hins vegar engar vísbendingar um að slíkur skortur sé yfirvofandi hjá banda- mönnum Gaddafis á næstunni. Staðan í Líbíu var talsvert til umræðu í breskum fjölmiðlum í gær en William Hague, utanríkis- ráðherra Bretlands, upplýsti þá að líbískir uppreisnarmenn myndu fá aðgang að 17,2 milljarða kr. olíusjóði sem frystur var vegna stríðsins. Viðurkenna uppreisnarmenn Við sama tækifæri skýrði Hague frá því að breska stjórnin liti nú svo á að stjórn líbískra uppreisn- armanna væri sú eina lögmæta í Líbíu. Túlkaði Daily Telegraph viðurkenninguna svo að hún væri skref í átt að skiptingu Líbíu í tvö yfirráðasvæði, þvert á markmið Atl- antshafsbandalagsins. Þá benti blað- ið á að Ramadan, helgur mánuður múslíma, færi senn í hönd og því myndu ástök dragast fram á haust. Hvort sem það var tilviljun eða úthugsuð refsing tók utanríkis- ráðherrann til máls aðeins nokkrum klukkustundum eftir að líbíska sjón- varpið sýndi myndir af hryðjuverka- manninum Abdel Baset al-Megrahi (sjá ramma til hliðar), skref sem túlkað var sem ögrun til þessa for- ysturíkis Evrópu innan NATO, bandalagsins sem staðið hefur fyrir loftárásum gegn sveitum Gaddafis. Rúmir fjórir mánuðir eru liðnir síðan árásir Atlantshafsbandalags- ins hófust. Þær eru dýrar og munar um hverja orrustu á krepputímum. Að þessu leyti vinnur tíminn með Gaddafi. Það á þó enn eftir að koma í ljós hvaða áhrif það hefur á framvinduna að frestur uppreisnar- manna sé liðinn. Síðustu kornin fallin í stundaglasi Gaddafis Reuters Persónudýrkun Risavaxin götumynd af Gaddafi var afhjúpuð á Græna torginu í Tripoli í vikunni. Hjól áróðursvélar hans snúast því enn. Umdeilt var þegar Abdel Baset al-Megrahi var látinn laus úr fangelsi í Skotlandi í ágúst 2009 með vísan til þess að hann væri með krabbamein og ætti þrjá mánuði ólifaða. Meg- rahi var á sínum tíma dæmdur fyrir aðild að tilræði gegn far- þegaþotu árið 1988 sem varð alls 270 manns að bana, þar af 11 í bænum Lockerbie í Skot- landi. Brugðust margir ætt- ingjar fórnarlambanna illa við tíðindum af lausn hans. Nýr kafli í málinu hófst í vikunni þegar Megrahi brá fyrir í líbísku sjónvarpi og var ekki annað að sjá en að fregnir af yfirvofandi andláti væru stórlega ýktar. Huldumaður í leitirnar LOCKERBIE-MÁLIÐ Í sjónvarpinu Megrahi er til vinstri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.