Morgunblaðið - 03.08.2011, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. Á G Ú S T 2 0 1 1
Stofnað 1913 179. tölublað 99. árgangur
RAFMÖGNUÐ
RAFTÓNLISTARHÁTÍÐ
UNDIR JÖKLI
DRAGGKEPPNI
HINSEGIN DAGA
Í HÖRPUNNI
PRJÓNAR ULLAR-
BARNAPEYSUR OG
UNGBARNATEPPI
BIÐLISTI EFTIR ÞÁTTTÖKU 26 KONAN Á BAK VIÐ KATTOMENIUM 10EXTREME CHILL FESTIVAL 28
Mikið annríki hefur verið í skála Ferðafélags Íslands í Land-
mannalaugum í sumar en að jafnaði hafa á milli 80 og 100
manns lagt þaðan af stað Laugaveginn á degi hverjum. Helga
Haraldsdóttir skálavörður segir að þokkalega hafi viðrað á
svæðinu, sumarið hafi gengið vel og áfallalaust og umgengnin
um náttúruna hafi verið góð og fari batnandi ár frá ári. Fjöldi
göngufólks á öllum aldri komi til að njóta umhverfisins sem
Helga segir þó dálítið kaldranalegt. „Landmannalaugar eru
dásamlegur staður og náttúran ótrúlega falleg en ekki
kannski það sem við myndum kalla kósý,“ segir Helga. „En
hér er gönguparadís og ágæt aðstaða og við leggjum mikið
upp úr því að hafa allt hreint og fínt.“
Dásamlegur staður en ekki beinlínis notalegur
Morgunblaðið/RAX
Ásmundur
Friðriksson, bæj-
arstjóri í Garði,
segir að það fjár-
magn sem kom
inn í HS orku
þegar lífeyr-
issjóðir keyptu
25% hlut í fyr-
irtækinu hafi að hluta farið í að
greiða lán til Ross Beaty, eins aðal-
eiganda fyrirtækisins. Hann hafi
keypt hlut sinn í HS orku fyrir af-
landskrónur og nú hafi hann hagn-
ast margfalt með leyfi fjármála-
ráðherra. »2
Segir peninga
lífeyrissjóða renna
í vasa Ross Beaty
Hægt er að hefja útboð nýrra
jarðganga milli Eskifjarðar og
Norðfjarðar með stuttum fyrirvara.
„Fyrir tveimur árum var reiknað
með að framkvæmdirnar færu í
gang upp úr miðju ári 2012 en það
þarf að taka nýja ákvörðun, það
verður gert í haust í tengslum við
afgreiðslu samgönguáætlunar,“
segir Hreinn Haraldsson vega-
málastjóri. „Það er forgangsverk-
efni að ráðist verði í gerð Norð-
fjarðarganga,“ segir Páll Björgvin
Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarða-
byggðar. Rúman hálftíma tók að
greiða úr umferðaröngþveiti í
göngunum á sunnudag. »9
Ný Norðfjarðargöng
eru forgangsverkefni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það kom starfsmönnum Heklu á
óvart hversu dræm viðbrögðin voru
þegar auglýst var eftir starfskröft-
um á verkstæði bílaumboðsins. Einn
sótti um starf sem auglýst hafði ver-
ið þrivar en hætti við þegar laun á
gamla vinnustaðnum voru hækkuð
vegna umsóknarinnar.
„Við höfum verið að eltast við fólk
en það hefur ekki gengið. Ég er bú-
inn að vera í þessum viðgerðabransa
síðan 1977 og hef því séð ýmislegt.
Þetta er hins vegar mjög áberandi
núna. Það er erfitt að ná í gott fólk,“
segir Ólafur B. Jónsson, deildar-
stjóri þjónustuumboða hjá Heklu,
um framboðið á starfskröftum.
Fjöldi skráður atvinnulaus
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, bendir
á gögn Vinnumálastofnunar síðan í
vor um að hundrað bifvélavirkjar
hafi þá verið skráðir atvinnulausir.
Guðmundur Ingi Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Kistufells, segir skýr
merki um að svarta hagkerfið sé að
stækka. „Skattlagning spilar hér inn
í. Hún er glórulaus … Með lægri
sköttum kæmi meira upp á yfirborð-
ið,“ segir hann og bætir því við að
stjórnvöld hafi tekið dræmt í hug-
myndir um að endurgreiða virðis-
aukaskatt af bílaviðgerðum, líkt og
boðið er upp á vegna viðhalds á hús-
næði í átakinu „Allir vinna“.
Ein umsókn eftir
þrjár auglýsingar
Hekla þurfti bifvélavirkja Atvinnuleysi er í stéttinni
Framkvæmdastjóri Kistufells segir skattbyrðina mikla
Morgunblaðið/Arnaldur
Viðhald Skipt um loftsíu.
MFá ekki menn til starfa »4
Benedikt Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Bílabúðar Benna,
varar við þeirri þróun að svartar
bílaviðgerðir séu að færast í
vöxt. „Þessu fylgir alltof mikil
áhætta. Fúsk í viðgerðum er tif-
andi tímasprengja.“
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins,
tekur undir þetta og segir þró-
unina koma niður á örygginu.
Má í því samhengi benda á að
síðustu áramót voru 204.736
fólksbílar skráðir á Íslandi.
Meðalaldur þeirra er 11,7 ár
og hækkar stöðugt. Eykst því
eftirspurnin eftir viðgerðum.
„Alltof mikil
áhætta“
VIÐHALD BÍLA
Hlutabréfavísitölur í Bandaríkj-
unum hafa lækkað átta síðustu við-
skiptadaga. Það er lengsta lækk-
unartímabil á Wall Street frá því í
október 2008. Óvissa um skulda-
stöðu ríkisins ræður þar mestu en
fjárfestar óttast mögulega lækkun á
lánshæfiseinkunn ríkisins. Moody’s
og Fitch staðfestu þó í gær AAA-
einkunn Bandaríkjanna. En horfur
eru enn neikvæðar svo lækkun er
ekki útilokuð. Þá hefur minnkandi
einkaneysla einnig áhrif á fjárfesta
en einkaneysla dróst saman í BNA í
júní í fyrsta sinn í tvö ár. Nasdaq og
S&P 500-vísitölurnar eru nú lægri
en þær voru í upphafi árs og Dow
Jones-vísitalan hefur ekki verið
lægri síðan um miðjan mars. Helstu
hlutabréfavísitölur Evrópu lækkuðu
einnig í gær en það er m.a. rakið til
efnahagsóvissu Ítalíu og Grikklands.
Reuters
Erfitt Hlutabréf hafa lækkað mjög.
Mikil
lækkun
Óvissa á Wall Street