Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 11
bært fyrirbæri, en þá er prjónað
eftir mynd þar sem hver lykkja á
sinn kassa á myndinni. Þá er talið
út – kannski 15 rauðar lykkjur og
átta gular – og svo er snúið við. Það
þarf semsagt að prjóna fram og til
baka. Í minni hönnun á Kattomeni-
um-peysunum teikna ég upp munst-
ur eftir grafískum reglum sem ég
gef mér sjálf.“
Vinkonur úr Borgarfirði
Ingibjörg bað vinkonu sína Sig-
rúnu Elíasdóttur að koma í lið með
sér með peysuævintýrið. Hún leit-
aði í heimabyggð, til Borgarfjarðar,
þar sem þær Sigrún eru báðar ald-
ar upp og hafa þekkst frá því þær
voru stelpur. „Sigrún prjónaði
nokkrar flíkur fyrir mig en sjálf er
ég ekki flink prjónakona. Við þurft-
um að vinna með stærðir og slíkt og
núna erum við að prófa að setja
þetta á markað, til að sjá hverjar
viðtökurnar verða. Við erum báðar
á þessum barneignaraldri og þess
vegna hugsuðum við þetta sem
barnavöru, en margir hafa viljað fá
svona peysur í fullorðinsstærðum.
Ef allt gengur vel stefnum við á að
framleiða líka stærri peysur og
jafnvel fylgihluti.“
Ullin þvegin, lituð og
ofin á Íslandi
Ingibjörg segir að Sigrún hafi
umsjón með framleiðslu flíkanna og
haldi utan um samvinnu við prjóna-
fólkið heima á Íslandi. „Ég vil ekki
láta fjöldaframleiða peysurnar í
Kína eða einhverju öðru landi
langt í burtu, eins og margir ís-
lenskir hönnuðir gera. Ég vil
styrkja Ísland sem framleiðslu-
land. Ég vil ekki flytja íslensku
ullina til útlanda til að láta vinna
hana þar og láta prjóna flík-
urnar þar. Ég vil vinna eftir
því sem kallað er „slow fas-
hion“ sem er ekki ósvipað
og „slow food“.
Áherslan hjá Katto-
menium er því á íslenskt
gæðahráefni sem er þvegið,
litað og ofið heima á Íslandi
og að nýta íslenska prjóna-
hefð. Með því að hafa þetta allt
í nærumhverfi getum við tryggt að
vinnuumhverfi starfsfólksins okkar
sé ásættanlegt. Fyrir vikið verður
varan vissulega dýrari en þær ís-
lensku vörur sem eru framleiddar í
Asíu eða öðrum löndum. En margir
vilja frekar styðja alíslenska fram-
leiðslu, þótt hún sé eitthvað dýrari.“
Kattomeni-
um Enn sem
komið er
barnavörur.
Rúmteppi
Flott og
litrík.
Fjör Það er gaman
að klæðast flottri
lopapeysu.
Kattomenium-peysurnar fást í
nýrri verslun, Nordic Store við
Lækjartorg. Stefnt er á að opna
vefverslun í samvinnu við Nordic
Store í haust. www.kattomenium-
.wordpress.com. Facebook: katto-
menium.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011
„Uppáhaldstjaldsvæðið mitt er við
Apavatn. Þangað hef ég líka farið
oftast í útilegu. Við Apavatn er allt
til alls fyrir alla. Það er gott leik-
svæði fyrir börn og góð almenn að-
staða og snyrti-
leg,“ segir Brynja
Gunnarsdóttir
dagmóðir í
Reykjavík.
Brynja hefur
ekki komist að
Apavatni í sumar
en þó farið í tvær
útilegur. „Ég er
búin að fara í
tvær útilegur í ár
og þær voru báð-
ar farnar í Gaulverjabæjarhrepp,
sem nú er nefndur Flóahreppur. Þar
tjaldaði ég við félagsheimilið Fé-
lagslund í eitt skipti og æskuheimili
mitt í Hólshúsum í hitt skiptið og
það var bara núna um helgina. Við
systkinin átta, aðrir ættingjar og
vinir höfum gert það að sið að hitt-
ast þar um verslunarmannahelgina
og vorum við um áttatíu um helgina.
Það er best að fara í útilegu á æsku-
slóðir,“ segir Brynja ánægð eftir
helgina.
Hún og eiginmaðurinn hennar eru
nýbúin að fjárfesta í gömlum tjald-
vagni en voru áður í tjaldi. „Mér
þykir mjög gaman í útilegum og ætl-
ar að gera meira af því að fara í þær
í framtíðinni, það er líka auðveldara
að leggja í hann með tjaldvagn. Ég á
hugsanlega eftir eina útilegu á
þessu sumri,“ segir Brynja. Það er
aldrei að vita nema farið verði að
Apavatni í það skiptið.
Brynja gefur hér lesendum eina
góða uppskrift að hentugu úti-
legunesti.
Kaldar tortillavefjur
1 pakki tortilla vefjur
1 askja hreinn rjómaostur
1 dós salsasósa
1 rauðlaukur
1 paprika
½ gúrka – kjarninn tekinn úr
Álegg eftir smekk t.d kjúklinga-
skinka eða pepperoni.
Allt saxað og hrært saman. Blönd-
unni smurt inn í vefjurnar, þeim rúll-
að upp og skornar í bita. Bitunum
raðað í box eða dós og tekið með í
útileguna. „Þetta verður bara betra
eftir því sem líður á helgina.“
Uppáhaldstjaldsvæði Brynju Gunnarsdóttur
Morgunblaðið/RAX
Tjaldstæði Ferðamenn velja að tjalda
á misjöfnum stöðum um landið.
Þykir gaman að fara með fjöl-
skylduna í útilegu á æskuslóðir
Brynja
Gunnarsdóttir
hönnun. „Hann er í miklu samstarfi
við þekkta framleiðendur og hefur
verið með raunhæf verkefni fyrir
marga af framleiðendunum, eins og
Ferrari og BMW, og mér fannst það
spennandi.“
Skólinn er einnig starfræktur á
Spáni og í Brasilíu en Bjarni var
ákveðinn í að fara til Ítalíu. „Ferrari
og Lamborghini og þessir flottu bílar
eru frá Ítalíu þannig að landið er svo-
lítið mekka bílahönnunar.“ Grunn-
námið er þrjú ár og því næst tekur
við þriggja til sex mánaða starfsnám
og eftir það ætlar Bjarni líklega í
meistaranám sem tekur eitt til tvö ár.
Hann ætlar að halda úti bloggsíðu
meðan á náminu stendur og er
áhugasömum bent á að kíkja á carde-
signstudent.com.
REUTERS
Bílahönnun Hver veit nema Bjarni eigi eftir að hanna álíka framúrstefnu-
legan bíl og þennan BMW i8 Concept?
Patti Húsgögn
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18
Basel
Aspen
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Torino
Rín
Roma