Morgunblaðið - 03.08.2011, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.08.2011, Qupperneq 12
Morgunblaðið/Sigurgeir S. Fontana Laugarvatn Heilsulindin Fontana Laugarvatn opnaði nýlega en þar er búist við um 80 til 100 þúsund ferðamönnum á næsta ári. Upphaflega stóð til að opna það árið 2008. Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is Á Laugarvatni var nýlega opnuð heilsulind, Laugarvatn Fontana, sem er byggð á hver sem er þar við vatnsborð Laugavatns. Þar kannast eflaust margir Íslendingar við að hafa farið í gufu en fyrst var byggt þar gufubað árið 1930. Gamla gufabaðið var rifið árið 2007 og átti að opna það nýja árið 2008. Töluverðar tafir urðu því á verkinu. Nýja heilsulaugin var opnuð 3. júlí og samanstendur af tveimur laugum, Sælu og Laugu, ásamt einum heitum potti, Visku, og að sjálfsögðu nýju gufubaði. Í Sælu er að finna listaverk og gosbrunn eftir íslensku listakonuna Erlu Þórarinsdóttur. Arkitekt- inn var Sigríður Ólafsdóttir og landslags- arkitekt var Oddur Hermannsson. Upplifun, slökun og endurnæring Helsta heilsulindin við Laugavatn Fontana er gufubaðið. Að sögn Önnu G. Sverris- dóttur, framkvæmdastjóra Laugavatns Fontana, hefur það jákvæð áhrif á húðina og öndun. „Í gufunni er bæði brennisteinn og flúor sem er talið hollt að anda að sér í litlu magni auk þess sem það hreinsar húðina. Eins er gufan góð fyrir þá sem finna fyrir stoðkerfisvandamálum.“ Þó segir Anna að þau líti „mest á þetta sem heilsulaug og gufu til auknar almennrar vellíðunar og heil- brigðis auk þess að vera upplifun, slökun og endurnæring.“ Hún bætir við að Íslendingar viti best að baðmenning þjóðarinnar hefur haft jákvæð áhrif á langlífi og almenna vel- líðan. Nýr viðkomustaður í Gullna hringnum Gestir í Fontana sem rætt var við í gær voru ánægðir með nýju mannvirkin og Anna segir að flestir gestir hafi lýst yfir ánægju sinni. Þeir sem áður sóttu í gamla gufubaðið hafi sumir orðið daglegir gestir í því nýja. Gufa ehf., sem á Laugavatn Fontana, vinnur í samstarfi við innlendar og erlendar ferða- skrifstofur og fleiri ferðaþjónustuaðila við það að bæta þessari heilsulind við sem við- komustað í Gullna hringnum. Að sögn Önnu áætla þau að um 80 til 100 þúsund gestir muni baða sig í heilsulindunum á næsta ári. Hveralyktin og gufan rís upp úr nýrri heilsulind við Laugarvatn  Erlendir og íslenskir ferðamenn láta líða úr sér í nýrri heilsulind við Laugavatn  Útsýni og hönnun lofuð  Jákvæð áhrif á húð og öndun  Nýr viðkomustaður í Gullna hringnum Buslað Krakkarnir hafa gaman af listaverkum Erlu í Sælu. Gamalt Gamla gufubaðið var reist árið 1930. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 Erlendir baðgestir heilsulaugarinnar Laugarvatn Fontana sem rætt var við í gær voru allir ánægðir með nýju laugina. Erika Kroenke frá Þýskalandi sagði útsýnið og aðstöðuna vera til fyrirmyndar en smávegis vonbrigði að ekki væri hægt að synda í lauginni þar sem hún væri of grunn. Andrea Ivaldi, sem buslaði í lauginni ásamt fjölskyldu sinni, sagði heimsókn í hvera- og jarðböð eins og Fontana, Bláa lónið og Jarðböðin við Mývatn vera einstaka upplifun þar sem ekkert slíkt væri að finna á Ítalíu, heimalandi þeirra. Spurður um hveralyktina segir hann hana „síður en svo trufla, hún er hluti af upplifuninni“. Íslenskir baðgestir voru einnig á staðnum og þau Gréta Björgvinsdóttir og Jón Agnar Gunn- laugsson, sem höfðu oftar en einu sinni lagt leið sína í gömlu gufuna, hrósuðu einnig útsýninu og hönnuninni. Einstök upplifun fyrir erlenda ferðamenn Ánægð Ivaldi fjölskyldunni frá Ítalíu fannst hveralyktin vera hluti af upplifuninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.