Morgunblaðið - 03.08.2011, Side 18

Morgunblaðið - 03.08.2011, Side 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 Þann 19. ágúst kemur út glæsilegt sérblað um skóla og námskeið sem mun fylgja Morgunblaðinu þann dag MEÐAL EFNIS: Endurmenntun. Símenntun. Iðnnám. Tómstundarnámskeið. Tölvunám. Háskólanám. Framhaldsskólanám. Tónlistarnám. Skólavörur. Skólatölvur. Ásamt full af spennandi efni. –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 15. ágúst NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám í haust. Skólar & námskeið SÉRBLAÐ Skólar & námske ið Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Það er algjört skil- yrði að ef við eigum að ná landinu upp úr þess- um forarpytti óstjórnar, þarf ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttir og hennar meðreið- arsveinar (kommar) að fara frá völdum nú þeg- ar. Ríkisstjórnin er svo djúpt sokkin í sínar eig- in blekkingar að hún er farin að trúa því að hún hafi gert eitthvað fyrir landann. Nei, það er svo sannarlega öfugmæli að svo sé. Hún hefur setið og þvælst fyrir öll- um málum sem þjóðin er að vonast eftir að fari af stað til að stöðva mesta höggið. En þjóðin er hætt að taka eft- ir þessu. Ég vil segja við lítilmagnann, ver- um róleg, munum vel eftir þessum ár- um, það koma kosningar, þá fær stjórnin að sjá það svart á hvítu hvernig hún hefur sagst stjórna, hún hefur níðst á þeim er síst skyldi með því að blóðmjólka þá með sköttum. Verðbólgan æðir áfram, ekkert er gert, fjöldi fólks er fluttur úr landi í leit að vinnu. Þriðjungur lækna er fluttur úr landi, lækn- ingaforstjóri Landspít- alans segir að heilsu- gæslan nálgist hrun, hún þoli ekki meira, hún standi á brauðfót- um. Þrátt fyrir alla undirmönnun í heil- brigðisgeiranum óttast ríkisstjórnin ekkert. Það er enn tími til kosn- inga. Það eina sem hún hræðist eru einmitt kosningar. Sjúklingar liggja allt að átta til tíu á göngum sem er ekki það versta, nema þeir gleymist. Ég hef talsvert verið á sjúkrahúsi und- anfarið, ég veit að starfsfólk þar gerir allt til að sjúklingum líði sem best. Það er kaldhæðni að Steingrímur launar þessu fólki dvölina eftir bíl- slysið með því að svelta það af launum og með sköttum. Sjálfur er hann gift- ur lækni og ætti að fá bestu fréttir, þó þagnarskylda sé á sjúkrahúsum. Fara verður tuttugu til þrjátíu ár aftur til að finna svipað ástand í heil- brigðisgeiranum, en þó aldrei annað eins kaupsvelti, þetta er alveg eins- dæmi. Lækningaforstjórinn bendir á að tapast muni heil kynslóð lækna héðan ef fer sem horfir. Þeir, sem verst fara út úr skatt- píningu ríkisstjórnar Jóhönnu, eru að sjálfsögðu lítilmagnarnir: Öryrkjar, sjúklingar, aldraðir, atvinnulausir. Bókstaflega allir sem eiga erfiðast með að koma sér áfram í lífinu. Svo vogar hún sér að guma af ímynduðum afrekum sínum (þvílík hræsni). Nýlega voru undirritaðir svokall- aðir kjarasamningar sem búið er að svíkja árum saman. Svo kemur að sjálfsögðu það sem flestir vissu að allt verðlag hækkar og það meira en hinir fyrirhuguðu samningar áttu að gefa. Verðbólgan komin í fimm prósent. Þó hafði ríkisstjórnin ein svikist um að koma að þessum samningum með sinn hlut. Það sjá orðið allir hvers- konar herfileg svik kommastjórnin er að fremja. Með inngöngu í ESB eru komm- arnir að svíkja þjóðina, afsala sjálf- stæði okkar til Brussel, ef þetta eru ekki landráð þá veit ég ekki hvað landráð eru. Ég skora á fólk að lesa og hlusta betur á það sem fjölmiðlar birta okk- ur, það eru allir sem eitthvað fylgjast með þeim sem segja það sama. Ef við förum í þetta ríkjabandalag blasir gjaldþrot við okkar litlu þjóð. Í írsku landhelginni eru 88% afla veidd af þjóðum ESB. Þarf meira til að fólk trúi. Ríkisstjórnin verður að fara frá völdum Eftir Karl Jóhann Ormsson » Þeir, sem verst fara út úr skattpíningu ríkisstjórnar Jóhönnu, eru að sjálfsögðu lít- ilmagnarnir. Karl Jóhann Ormsson Höfundur er fv. deildarstjóri. Þótt andlitið kunni að gleðjast um stund, getur hjartað grátið. Því missir þeirra sem elska er gjarnan mik- ill. Það vita þeir best sem reynt hafa. Því þeir missa mest sem mikið elska. Margir ganga nú dofnir með helsært hjarta um djúpan og dimman dal tilfinninga eftir voðaat- burðina í Noregi sem enginn getur útskýrt og því síður afsakað svo fjarstæðukenndir, óraunverulegir og fáránlegir sem þeir eru. Sorgin er ólýsanleg. Spurningar þyrlast upp í hugann á meðan svör- unum fækkar og angist nagar nær óbærilegt tómarúmið. Það er gott að gráta Það er svo þungt að missa. Til- veran er skekin á svo yfirþyrmandi hátt. Angist fyllir hugann, örvænt- ingin og umkomuleysið er algjört. Tómarúmið hellist yfir og tilgangs- leysið virðist blasa svo áþreifanlega við. Það er svo sárt að sakna en það er jafnframt gott að geta grátið. Því að tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minn- inga sem þú einn átt og enginn og ekkert getur afmáð eða frá þér tek- ið. Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna. Gráttu því að sælir eru sorgbitnir því að þeir munu huggaðir verða. Sælir eru þeir sem eiga von á hinn upprisna og lifandi frelsara, Jesú Krist, í hjarta, hann sem segir: Ég lifi og þér munuð lifa, því að þeir munu lífið erfa og eignast framtíð bjarta. Minningarnar ylja Leyfðu sorginni bara að hafa sinn tíma og fara sinn eðlilega far- veg. Svo mun það ger- ast, smátt og smátt að þú gefst upp fyrir henni og minningarnar björtu og góðu komast að, taka við og munu búa með þér. Ómetanlegar minningar sem enginn getur frá þér tekið. Að harðasta vetrinum loknum fer svo að vora og yljandi vindar taka aftur um þig að leika og litskrúðug ólýsanlega fögur blóm gera vart við sig, hvert af öðru. Þau taka að spretta umhverfis lind minning- anna. Forðumst ekki sorgbitna Forðastu ekki þá sem sorgin hef- ur bitið. En mundu að spakmæli, reynslusögur, viðmið eða of mörg orð yfirleitt eiga ekki við í húsum sem sorgin hefur sótt heim. Hlust- aðu bara, faðmaðu og vertu, í þol- inmæði. Því að þegar þú vitjar sjúkra, sorgbitinna eða þeirra sem ellin þjakar er ekki endilega málið að staldra svo lengi við. Vertu hins vegar á meðan þú ert án þess að vera sífellt að líta á klukkuna. Já, blessaðir séu þeir sem gefa sér tíma til að strjúka vanga og þerra tár af kinn, bara með því að faðma og vera. Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Blessaðir séu þeir sem gefa sér tíma til að strjúka vanga og þerra tár af kinn, bara með því að faðma og vera. Höfundur er rithöfundur. Missir Eitt af því fyrsta sem Íslendingar gerðu eftir lýðveldisstofnunina var að færa út landhelgislínuna. Var það vorið 1952. Í lok sjötta áratug- arins var farið að ræða það hvernig hægt væri að nýta hin gjöfulu kola- mið í Faxaflóa. Sett var reglugerð sem heimilaði bátum undir 40 tonn- um að veiða með dragnót. Dragnót- in er á erlendu máli kölluð dönsk nót vegna uppruna síns. Veiðarnar ganga þannig fyrir sig að fyrst er kastað út dufli, sem fest er við ann- að „tógið“, tógið sem getur verið 2.000 metra langt er slakað út í hálfhring sem er rúmur kílómetri í þvermál. Þegar fyrra tógið er kom- ið út er nótinni kastað, og svo seinna tóginu í annan hálfhring. Þegar fyrra tógið hefir verið fest í bátinn er byrja að draga og tekur það ca. hálfa klukkustund, eiga tóg- in, sem hafa afmarkað flöt sem er ca. 80 hektarar að smala fiskinum að nótarkjaftinum. Enginn veit hverig það gengur því fiskurinn getur synt upp eða kramist undir tógunum. Sumarið 1960 veiddu Reykjavík- urbátarnir 2.986 tonn af slægðum fiski með haus í sínar dragnætur, frá miðjum júní til loka október. Nú eru tveir bátar eftir sem veiða samtals ca. 500 tonn og eru að allt árið. Fyrir nokkrum árum heimsótti ég Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sá þar líkanprófanatank fyrir veið- arfæri. Í þeim tanki er hægt að hanna nýtt veiðarfæri sem getur nýtt þessi gjöfulu fiskimið hér í Faxaflóa. Þetta nýja veiðarfæri gæti t.d. verið eins konar bómutroll sem æki á hjólum eftir botninum. Bóman uppblásin brunaslanga sem fengi loft úr litlum kút með þrýsti- jafnara sem héldi ákveðnu trukki yfir umhverfisþrýstingnum. Slang- an myndi öðrum þræði virka sem höfuðlínuflot. Þegar trollið er tekið um borð er loftinu hleypt úr höf- uðlínunni. Eitt hal í dragnót sem tekur hálfa klukkustund rótar upp ca. tveim milljónum fermetra af botni. Reynslan af friðuninni 1952 sýndi að héðan frá Reykjavík má hæglega veiða 1.500 tonn af flat- fiski í rétt veiðarfæri. GESTUR GUNNARSSON tæknifræðingur. Veiðarfæri Frá Gesti Gunnarssyni Bréf til blaðsins Morgunblaðið birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.