Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011
Fólk um allan heim
leggur ýmislegt á sig
til að fara á svona hátíð 28
»
Í kvöld mun færeyskur karlakór
halda tónleika í Langholtskirkju.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu af þrem-
ur í ferð þeirra um landið sem lýkur á
Dalvík á laugardaginn. Meðlimir
kórsins sem ber nafnið tvöfaldi kvart-
ettinn Vega, eru þeir Kristian Pet-
ersen, Heini Beder, Hjalti Lunds-
bjerg, Samson í Lambanum, Jógvan
á Lakjuni, Jan Joensen, Páll Laksá-
foss og Eyðun á Lakjuni. Þeir félagar
koma frá Fuglafirði á Austurey þar
sem íbúar eru um 1.500 manns.
Sungið saman um árabil
Kórinn hefur sungið saman í nokk-
ur ár að mestu sér til skemmtunar. Í
kringum jólahátíðina hafa þeir þó
komið fram og sungið á samkomum
sem hafa verið haldnar á dvalarheim-
ilum fyrir aldraða bæði á Austurey og
á Norðureyjum. Auk þess hefur kór-
inn verið fenginn til að koma fram við
ýmis önnur tilefni.
Kórinn kemur hingað til lands til
að syngja á Fiskideginum mikla sem
haldinn verður á laugardaginn á Dal-
vík. Ákveðið var að nýta ferðina og
setja upp tónleika kvöldsins ásamt
öðrum sem haldnir verða á Akureyri
á fimmtudagskvöld. Á dagskrá
kvöldsins verða einkum færeysk ætt-
jarðarlög og sálmar, en einnig flytur
kórinn nokkur norræn og léttari am-
erísk lög.
Aðgangur verður seldur við inn-
ganginn og kostar 2.500 kr. inn.
Gömul færeysk
ættjarðarlög og sálm-
ar á efnisskránni
Karlakór Tvöfaldi kvartettinn Vega heldur tónleika í Langholtskirkju í kvöld. Þar verða flutt færeysk ættjarðarlög.
Færeyskur karlakór í Langholtskirkju
Nú stendur yfir tónlistarhátíðin
Bergmál sem haldin er á Dalvík í
annað sinn. Í kvöld mun píanóleik-
arinn Kristján Karl Bragason stíga
á svið og flytja sónötur eftir Schu-
bert, Prokofiev og Chopin á ein-
leikstónleikum. Ungt tónlistarfólk
stendur að hátíðinni en hún er hald-
in í nýju og glæsilegu menningar-
húsi þeirra Dalvíkinga. Aðgangur
er ókeypis fyrir alla sem eru undir
25 ára á hátíðina sem er sér-
staklega miðuð að því að kynna
klassíska tónlist fyrir ungu fólki.
Nánar verður fjallað um Bergmál í
blaðinu á morgun en frekari upp-
lýsingar má finna á dalvik.is.
Tónar berg-
mála á Dalvík
Bergmál Það er ungt tónlistarfólk
sem stendur að tónlistarhátíðinni.
Í dag klukkan 12.00 verða haldnir
hádegistónleikar í Kristskirkju í
Landakoti þar sem Friðrik Vignir
Stefánsson, organisti Seltjarnar-
neskirkju, leikur á orgelið.
Á efnisskránni eru orgelverk eft-
ir þrjú barrokktónskáld sem öll
byrja nafnið á B. Þau heita Buxte-
hude, Bruhns og Bach. Í lokin
verður leikið Festmusikk eftir
Mons LeidvinTakle sem er nýlegt
norskt verk í lírukassastíl eða
polki.
,,Ég kalla þetta B-in þrjú og svo
flugeldamúsík í lokin, segir Friðrik
,,Ég spila verk eftir Buxtehude,
Bruhns og Bach, þannig að ég
kalla þetta B-in þrjú. Svo ætla ég
að enda á hálfgerðri flugelda-
músík,“ segir Friðrik og bætir við
að það sé frábært að spila í Krists-
kirkju.
Friðrik lauk burtfararprófi frá
Tónlistarskólanum á Akranesi árið
1983 og kantors- og einleikaraprófi
frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið
1987. Friðrik var á árunum 1998-
2005 organisti og kórstjóri Grunda-
fjarðarkirkju sem og skólastjóri
Tónlistarskóla Grundarfjarðar og
er í dag sem fyrr segir organisti
Seltjarnarneskirkju.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og allir velkomnir.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Landakot Tónleikarnir fara fram í
Kristskirkju í Landakoti.
B-in þrjú
og flugelda-
músík
Hádegistónleikar
í Kristskirkju
Hallgrímur Sveinsson hefur
tekið saman í bók umfjöllun af
ýmsu tagi um Jón Sigurðsson.
Bókin ber nafnið Maðurinn
sem láðist, en þar er fjallað
um uppruna og helstu áfanga
á æviferli Jóns. Umsagnir
samtíðarmanna eru áberandi í
bókinni og ýmislegt annað
markvert og jafnvel smálegt,
sem vel má rifja upp þessa
dagana. Birtar eru allar þær
ljósmyndir sem eru kunnar af Jóni og úrval
blaðagreina sem höfundur hefur skrifað í nærri
hálfa öld í Morgunblaðið, þar sem Jón kemur við
sögu.
Bókmenntir
Rit um Jón
Sigurðsson
Jón
Sigurðsson
Yfirlitssýning á ævistarfi Pét-
urs J. Thorsteinsson (f. 1845, d.
1929) í Gallerie Dynjanda á
Bíldudal hófst 23. júlí sl. Sýn-
ingin drepur á nokkur atriði í
ævistarfi Péturs þegar hann
var á Bíldudal. Pétur var at-
hafnamaður og einn auðugasti
maður Íslands. Hann átti Bíldu-
dalseignir frá 1880 og fram yfir
aldamót. Pétur lagði fyrstu
járnbrautina á Íslandi og var
fyrstur til þess að leggja vatn á bryggjur. Hann átti
verslun og stundaði þilskipaútgerð, en skipin voru
22 talsins þegar mest var. Sýningin stendur til 22.
ágúst nk. og það er frítt inn.
Yfirlitssýning
Sýning um Pétur
J. Thorsteinsson
Pétur J.
Thorsteinsson.
Annað kvöld lýkur sýningu
Örnu G. Valsdóttur myndlist-
arkonu í Flóru í Listagilinu á
Akureyri með listamanns-
spjalli. Viðburðurinn er gott
tækifæri fyrir þá sem eiga eftir
að sjá sýninguna eða langar til
að fræðast frekar um verk
Örnu.
Arna hefur unnið margvísleg
rýmisverk og gjörninga, bæði
sem vídeóverk og innsetningar.
Verkið sem hún sýnir að þessu sinni er hluti af
sýningaröðinni Staðreynd og er sú fjórða í röðinni.
Spjallið hefst klukkan 20.00, aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Myndlist
Listaspjall í
Flóru á Akureyri
Verk eftir Örnu
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Tónlistarhátíð unga fólksins hefst í dag og er þetta
í fjórða sinn sem hún er haldin. Hátíðin sam-
anstendur af námskeiðum, tónleikum og fyr-
irlestrum sem allir eru velkomnir á. Hátíðin er
hugmynd ungra tónlistarnema, Helga Jónssonar
og Guðnýjar Þóru Guðmundsdóttur, en þau
ákváðu að koma á fót tónlistarhátíð til að mæta
þeim skorti á tónlistarnámskeiðum sem er á Ís-
landi yfir sumartímann.
Í ár verða 16 námskeið í boði fyrir ungt tónlist-
arfólk, fyrirlestraröð með Árna Heimi Ingólfssyni
og Nínu Margréti Grímsdóttur og svo tónleikaröð í
Salnum. Hátíðin stendur frá 3.-13 ágúst. Aðal-
áhersla er lögð á kammermúsík á hátíðinni og eru
allir nemendur settir í kammerhópa. Einnig er
lögð áhersla á að kynna alhliða tónlistarmenntun,
en í ár verður m.a. boðið upp á námskeið í jóga, Al-
exanderstækni, spuna og sviðsframkomu. Fjöldi
nemendatónleika verður í Salnum meðan á hátíð-
inni stendur þar sem þátttakendur sýna hvað þeir
hafa lært á námskeiðunum.
Að hátíðinni í ár standa þær Gunnhildur Daða-
dóttir, Elín Ásta Ólafsdóttir og Guðný Þóra Guð-
mundsdóttir.
„Hátíðin hefur stækkað ótrúlega mikið og það
bætist alltaf við fólk sem kemur að utan,“ segir
Guðný Þóra. „Við höfum auglýst í erlendum tón-
listarháskólum og það hefur borið mikinn árangur
enda hefur fólk frá öllum heimsálfum komið á há-
tíðina,“ segir Guðný og bætir við að stemningin
sem myndast á hátíðinni einkennist af gleði í bland
við kappsemi.
Búist er við að um 100 nemendur taki þátt í há-
tíðinni, flestir frá Íslandi en einnig frá Japan, Taív-
an, Bandaríkjunum, Hollandi og Þýskalandi. Lögð
er áhersla á að kynna alhliða tónlistarmenntun, en
í ár verður m.a. boðið upp á námskeið í jóga, Alex-
anderstækni, spuna og sviðsframkomu.
Opnunartónleikarnir
Í kvöld klukkan átta leikur strengjasveitin
Skark á opununartónleikum hátíðarinnar í Salnum
í Kópavogi. Skark var stofnuð árið 2008 af ungum
strengjaleikurum og leikur sveitin árlega á milli
þess sem meðlimir dvelja erlendis við framhalds-
nám. Þessi 14 manna sveit hefur frá stofnun komið
víða við og hlotið ljómandi dóma fyrir leik sinn,
meðal annars fimm stjörnur hjá gagnrýnanda
Morgunblaðsins (RÖP 2009).
Á tónleikunum í kvöld kennir ýmissa grasa.
Sveitin leikur Serenöðu fyrir strengi op. 22 eftir
Antonin Dvorák, Arouru eftir gríska tónskáldið
Iannis Xenakis og Skúlptúr#2 eftir Þráin Hjálm-
arsson.
Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á
heimasíðunni musicfest.is.
Tónlistarhátíð unga
fólksins haldin í fjórða sinn
„Stemningin á hátíð-
inni einkennist af gleði
í bland við kappsemi“
Tónleikar Opnunartónleikar Tónlistarhátíðar unga fólksins fara fram í kvöld, en þá mun Strengja-
sveitin Skark leika ýmis verk. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og aðgangseyrir er 2.300 kr.