Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 28

Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Íslenska raftónlistarhátíðin Ext- reme Chill Festival 2011, Undir Jökli, er haldin nú um helgina, 5.-7. ágúst. Hátíðin fer fram í annað sinn á Hellissandi við ræt- ur Snæfellsjökuls en hún var haldin í fyrsta sinn í fyrra við góðar undirtektir. Í ár spila um 30 íslenskir listamenn en að auki koma þar fram tveir erlendir tón- listarmenn, Biosphere og Solar Fields. „Við vorum með útgáfutónleika þarna árið 2009, sem voru bara lítið venue (vettvangur), en þá kviknaði hugmyndin að þessu öllu,“ segir Pan Thorarensen, einn skipuleggjandi hátíðarinnar sem spilar einnig undir nafninu Beatmakin Troopa. Faðir hans, Óskar Thorarensen eða Stereo Hypnosis, hafði þá gefið út plötu. Teygir enda sína erlendis Tónlistin sem spiluð verður á hátíðinni teygir sig í ýmsar áttir innan raftónlistargeirans. „Þarna verður ágætis bland af hipphoppi, reggae, dup step og bara blanda af öllu rafdóti. Svo það geta örugglega allir fundið eitthvað við sitt hæfi“. Nú er bara að bíða og vona að veðurguðir haldi sig á mottunni og gefi gott veður. Pan segir að það sé nóg að vonast eft- ir að þurrt verði í veðri en sólin væri að sjálfsögðu óskandi. Hátíðin sem haldin var í fyrra á sama tíma virðist hafa hitt á réttar taugar hjá fólki þar sem sögur af henni hafa farið eins og eldur um sinu um heiminn. „Við vorum einmitt að hlæja að því um daginn hvað það vita ótrú- lega margir af þessu. Fólk um allan heim er að leggja ýmislegt á sig til að fara á svona hátíð,“ segir Pan en mikið af erlendum gestum sækir hátíðina, þá sér- staklega frá Kanada og Banda- ríkjunum. Extreme Chill Festi- val hefur því stækkað ört á þessu eina ári. Um 300 miðar eru í boði á hátíðina og hafa þeir rokið út og fáir eftir. Hægt er að nálgast miða á midi.is og í verslunum Brims á Laugavegi og í Kringlunni en sölu lýkur á föstudaginn kl. 12 á hádegi. Til heiðurs Biogen Hátíðin í ár er tileinkuð ís- lenskum frumkvöðli í raftónlist, Sigurbirni Þorgrímssyni, betur þekktum undir nafninu Bjössi Biogen, en hann lést í byrjun árs langt fyrir aldur fram. „Hann spilaði með okkur í fyrra og þetta er fyrsta hátíðin eftir að hann deyr. Það er svolítið skrítið,“ seg- ir Pan. „Þetta er alveg hans hátíð í ár, það má alveg segja“. Rafmögnuð músík undir Jökli  Extreme Chill Festival-hátíðin orðin þekkt erlendis  Hátíðin tileinkuð frumkvöðli raftónlistar, Biogen  Um 30 íslenskir tónlistarmenn koma fram ásamt tveimur erlendum Stemning Extreme Chill Festival vakti mikla lukku í fyrra og fyrir vikið er hátíðin aðeins stærri í sniðum í ár. Um 30 íslenskir listamenn koma til með að spila en einnig tveir erlendir, Biosphere og Solar Fields. Þrír Andri Már Arnlaugsson, Óskar Thorarensen og Pan Thorarensen standa fyrir hátíð raftónlistar á Íslandi en hún fer fram á Snæfellsnesi. Frábærar tæknibrellurnar frá WETA þeim sömu og gerðu Avatar! BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 L BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 2:30 L GREEN LANTERN 3D kl. 2:30 - 5 - 8 - 10:30 12 RISE OF THE PLANET OF THE APES kl. 5 - 8 - 10:30 12 CAPTAIN AMERICA 3D kl. 8 - 10:45 12 HORRIBLE BOSSES kl. 2:30 - 5 - 10:45 12 HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 8 12 / ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL GREEN LANTERN kl. 5:30 - 8 3D - 10:30 3D 12 CARS 2 Með ensku tali kl.11 L GREEN LANTERN kl. 8 - 10:30 VIP CARS 2 Með ensku tali kl.5:30 VIP HORRIBLE BOSSES kl. 5:30 - 8 - 10:30 - 10:40 12 HARRYPOTTER7-PART23D kl. 8 12 BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 5:30 L HARRYPOTTER7-PART2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 12 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 5:30 L TRANSFORMERS 3 kl. 8 12 SJÁÐU LOKAKAFLANN Í 3D HHHHH - T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHH - L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH - R.C - TIME HHHH - J.T - VARIETY HHHH "MÖGNUÐ ENDALOK" - KA, FBL SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA , EGILSHÖLL OG AKUREYRI SÝND Í EGILSHÖLL á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. “NÁNAST FULLKOMINN LOKASPRETTUR„ - KVIKMYNDIR.IS HHHH RYAN REYNOLDS BLAKE LIVELY MARK STRONG GEOFFREY RUSH „ÞAÐ ER SVO SANNARLEGA NÓG UM AÐ VERATIL AÐ HALDA 3D-GLERAUGUM ÁHORFENDA LÍMDUM Á ALLA MYNDINA.“ 70/100 HOLLYWOOD REPORTER Heimsfrumsýning á magnaðri stórmynd! Þróun sem verður að byltingu Agzilla, Andre, Árni Vector, Beatmakin Troopa, Bix, Captain Fufanu, Crackers, Epic Rain, Futuregrapher, Inferno 5, Intro- Beats, Jafet Melge, Jóhann Ei- ríksson, Krummi, Murya, Orang Volante, Plasmabell, Plat, PLX, Prins Valium, Quadruplos, Ra- dio Karlsson, Ruxpin, Skurken, Stereo Hypnosis, Steve Sam- pling, Subminimal, ThizOne, To- nik, Trouble og Yagya. Auk Biosphere og Solar Fields. Meðal þeirra sem koma fram:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.