Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 7

Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011 „Svæðið er ekki í eigu Hafnar- fjarðarbæjar heldur í einkalandi að mestu leyti í nágrenni við gamla efnisnámu sem var þarna. Þetta var skotæfingasvæði á sínum tíma en bú- ið er að færa það og því eru ein- hverjir að nýta sér það í óleyfi,“ segir Sigurður Páll Harðarson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðarbæjar, en Morgun- blaðið fjallaði í fyrradag um yfir- gengilegan sóðaskap í hrauni vestur af bænum. Sigurður segir að brugð- ist hafi verið við strax og farið yfir svæðið með starfsmanni heilbrigðis- eftirlitsins. Hann segir að reynt verði að hafa samband við landeigendur, bæði til að tryggja að gripið verði til aðgerða um hreinsun og eins til að koma í veg fyrir að fólk sé að losa sig þar við rusl. Tveir gamlir malarslóðar liggi að svæðinu og verið sé að íhuga hvort það megi ekki loka þeim. Þegar spurt er hvað eigi að gera varðandi skotsvæðið segir Sigurður að svo virðist sem enn sé verið að skjóta þar í leyfisleyfi enda sé það ekki inni á skipulagi sem slíkt svæði. Það verði væntanlega rætt við land- eigendur um aðgerðir til að lágmarka notkun þess; það þýði að vel þurfi að fylgjast með svæðinu. Næsta skref sé að taka frumkvæði og fá landeig- andann til að bregðast við og hreinsa svæðið. sigrunrosa@mbl.is Landeigandi hreinsi svæðið Morgunblaðið/Sigurgeir S. Sóðar Fólk virðist af einhverjum ástæðum nýta hraunið sem ruslahaug.  Sóðaskapur í hrauninu ekki í landi Hafnarfjarðarbæjar  Bærinn íhugar að loka tveimur vegarslóðum að svæðinu Þrjár kannabis- ræktanir voru stöðvaðar í Hafn- arfirði á föstudag og laugardag. Lagt var hald á bæði kannabis- plöntur og græð- linga auk ýmiss búnaðar sem fylgir svona starf- semi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók nokkra karla og yfirheyrði í tengslum við málin. Á einum staðnum var einnig lagt hald á töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Á sunnudag var einnig framkvæmd húsleit í Hafn- arfirði og þá fundust nokkrir tugir gramma af marijúana. Að auki voru þrír karlmenn um tvítugt handteknir í Hafnarfirði á föstudaginn grunaðir um fíkniefna- sölu. Í fórum þeirra fundust samtals nokkrir tugir gramma af marijúana og viðurkenndu þeir allir að fíkniefn- in hefðu verið ætluð til sölu. Fjöldi fíkni- efnamála í Hafnarfirði Magn Lagt var hald á kannabis. AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HJÓLUM HJÓLADEILDIN ER Í HOLTAGÖRÐUM. 30% NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS „Samkvæmt lýsingum vitna er grunur um að tveir bílar hafi spyrnt frá gatnamótum Kalkofnsvegar og þetta hafi verið annar þeirra. Það er verið að reyna að ná í aðra sem voru á ferðinni, alla sem gætu skýrt hvað gerðist,“ segir Geir Jón Þór- isson yfirlögregluþjónn um slysið sem átti sér stað á Geirsgötu á föstudaginn þegar bíll hafnaði á húsvegg með þeim afleiðingum að farþegi lést. Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur ökumönnum í tengslum við rannsókn hennar á slysinu sem varð um hálftíuleytið síðastliðið föstudagskvöld. „Öku- tæki þeirra voru staðsett á gatna- mótum Geirsgötu og Tryggvagötu þegar slysið varð. Um er að ræða gráa Suzuki-fólksbifreið á hægri ak- rein (á vesturleið) en talið er að karlmaður hafi ekið bílnum. Hinn bíllinn kom úr gagnstæðri átt og var á vinstri akrein (á aust- urleið). Hvorki er vitað hvort karl eða kona ók þeim bíl né heldur hverrar tegundar hann er. Öku- mennirnir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Geir Jón segir að töluvert sé um hraðakstur og spyrnur á þessum slóðum en tæknirannsókn og lýs- ingar vitna eigi vonandi eftir að leiða endanlega í ljós hvað þarna gerðist. Grunur um spyrnu tveggja bíla Leita vitna að umferð- arslysi við Geirsgötu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.