Morgunblaðið - 17.08.2011, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Háskólinn í Reykjavík var settur í
gærmorgun þegar tekið var á móti
nýnemum skólans. Dagskrá ný-
nemadaga stendur í tvo daga, en þá
er komandi nám kynnt fyrir nem-
endum, auk þess sem þjónusta og
aðstaða skólans er kynnt.
Að þessu sinni hefja um 1300
nemendur nám við Háskólann í
Reykjavík. Flestir hefja nám við
tækni- og verkfræðideild eða um
400. Tæplega 300 nemendur hefja
nám við tölvunarfræðideild og við-
skiptadeild og rúmlega 150 nem-
endur hefja nám við lagadeild.
HR tekur til starfa
Bílstjórar Strætó bs. sigruðu á
Norðurlandamóti í ökuleikni
vagnstjóra, sem haldið var í
Stokkhólmi í Svíþjóð nýlega. Sví-
ar voru í öðru sæti og Finnar í
því þriðja. Hörður Ingþór Tóm-
asson, formaður Akstursklúbbs
Starfsmannafélags Strætó, segir
að sigurinn megi fyrst og fremst
þakka mikilli reynslu og iðni við
æfingar.
Sex keppendur eru í hverju liði
á Norðurlandamótinu í ökuleikni.
Hver keppandi ekur braut með
ákveðnum þrautum tvisvar sinn-
um. Mælt er hversu fljótir kepp-
endur eru að aka í gegnum
þrautirnar og jafnframt hve
margar villur þeir gera í akstr-
inum. Auk keppni á milli landa er
sérstök einstaklingskeppni vagn-
stjóra. Finnskur vagnstjóri, Timo
Kettunen, sigraði en Þórarinn
Söebech náði bestum árangri
meðal íslensku keppendanna og
varð þriðji. Aðrir í íslenska liðinu
voru Sigurjón Guðnason, Andrés
Bergsson, Steindór Steinþórsson,
Elías Viggó Bíldal Guðmundsson
og Björg Guðmundsdóttir.
Íslenskir vagnstjórar tekið þátt
frá árinu 1983 og hafa alls farið
með sigur af hólmi átta sinnum.
Vagnstjórar Strætó báru af á Norðurlanda-
mótinu í ökuleikni – meistarar í 8. skipti
Tæplega 7.000 hlauparar höfðu í
gær skráð sig til þátttöku í Reykja-
víkurmaraþon Íslandsbanka. Þetta
eru nokkru fleiri skráningar en á
síðasta ári en vaninn er að skráning
taki verulegan kipp dagana fyrir
hlaupið. Nú þegar hafa fleiri skráð
sig í hálft og heilt maraþon en tóku
þátt í fyrra auk þess sem fleiri boð-
hlaupslið hafa skráð sig til þátt-
töku.
Frestur til að skrá sig á netinu
rennur út í dag klukkan fjögur en
hægt verður að skrá sig í hlaupið í
Laugardalshöllinni á föstudag.
Enn á ný verður hlaupið til
styrktar góðum málefnum í Reykja-
víkurmaraþoni Íslandsbanka.
Áheitasöfnunin fer fram á hlaup-
astyrkur.is og gengur hún einnig
vonum framar. Nú þegar hafa safn-
ast rúmar 16 milljónir króna en á
sama degi í fyrra höfðu safnast 11,2
milljónir króna. Því er um að ræða
43% aukningu milli ára. Um 2.800
hlauparar hafa skráð sig á hlaupa-
styrk en á síðasta ári hlupu tæplega
2.000 manns til góðs.
Hægt er að skrá sig í hlaupið á
www.marathon.is
Morgunblaðið/Eggert
Hlaupið Þúsundir hlaupara verða á
götum Reykjavíkur á laugardag.
Þúsundir ætla að
taka þátt í maraþoni
Borgarskákmótið fer
fram fimmtudaginn 18.
ágúst, og hefst það kl.
16:00. Mótið fer fram
venju samkvæmt í Ráð-
húsi Reykjavíkur og
standa Reykjavík-
urfélögin, Taflfélag
Reykjavíkur og Tafl-
félagið Hellir, að
mótinu, eins og og síð-
ustu ár. Mótið fór fyrst
fram árið 1986 á 200 ára
afmæli borgarinnar.
Núna er það haldið í 26.
sinn á 225 ára afmæli
Reykjavíkurborgar.
Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taki
þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Mótið er öllum op-
ið og er þátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is.
Tefldar verða 7 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Þetta er
iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Guðmundur Gísla-
son, sem þá tefldi fyrir Tapas barinn.
Borgarskákmótið fer fram á morgun
Á fundi stjórnar Íbúasamtaka Mið-
borgar þann 9. ágúst sl. var lýst yfir
ánægju með lokun Laugavegar fyr-
ir bílaumferð nú í sumar og jafn-
framt hvetur stjórnin til þess að
haldið verði áfram á sömu braut
sem fyrst.
Eigi að síður minnir stjórnin á
mikilvægi þess að metinn sé árang-
ur aðgerðarinnar þannig að kostir
og gallar komi skýrt fram. Meðal
annars verði metin áhrif á umferð
um nálægar götur, áhrif á verslun
og líðan íbúa og vegfarenda eins og
Íbúasamtökin bentu á í bréfi sem
þau sendu borgaryfirvöldum hinn
25. maí síðastliðinn.
Ánægja með lokun
STUTT
Andri Karl
andri@mbl.is
Nokkuð hefur borið á gaskútaþjófn-
uðum á höfuðborgarsvæðinu upp á
síðkastið og sá lögregla í gær ástæðu
til að vara gaskútaeigendur sérstak-
lega við. Ekki er þó talið að um sé að
ræða menn sem leggi gasið sér til
nefs heldur reyni að að skila kút-
unum til þjónustustöðva olíufélag-
anna, s.s. til að fá andvirði þeirra
greitt út.
Eftir töluverðum upphæðum er að
slægjast fyrir óprúttna því á milli
fjögur og tólf þúsund krónur eru
greiddar út fyrir tóma gaskúta. Að
sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlög-
regluþjóns hjá lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins, ættu þeir sem eiga gas-
kúta að gera ráðstafanir, ekki síst
þeir sem eru með gaskúta á fellihýs-
um sínum og svo gasgrillum sem
standa úti við. Tilkynnt var um fjóra
stolna gaskúta á síðastliðinn föstu-
dag og laugardag en víst er talið að
þeir séu töluvert fleiri. Samkvæmt
upplýsingum frá olíufélögunum N1
og Olís er vinnureglan sú að óska
eftir kvittun frá viðskiptavini sem
hyggst skila gaskút og fá andvirðið
greitt. Það sé hins vegar fremur
sjaldgæft þar sem langflestir komi
til að fá áfyllingu á kút sinn. Þá sé
starfsfólk mjög vakandi fyrir stoln-
um gaskútum og hefur gaskútaþjóf-
um verið vísað frá og hringt á lög-
reglu. Forsvarsmenn beggja félaga
tóku skýrt fram að reynt sé að hafa
gott samstarf við lögreglu í þessum
málum. Meðal annars er stuðst við
eftirlitsmyndavélar á þjónustustöðv-
unum til að upplýsa gaskútaþjófnaði.
Þó svo vinnureglan sé að fara
fram á kvittun þegar gaskútum er
skilað viðurkenna forsvarsmenn
olíufélaganna, að oft sé það í höndum
starfsmanna þjónustustöðvanna að
taka ákvörðun um hvort viðkomandi
fær að skila kút eða kútum án kvitt-
unar. Til að mynda sé oft um fasta-
kúnna að ræða á þeirra hverfisstöð,
hjólhýsa- og fellhýsaeigendur sem
vilji losa sig við kúta fyrir veturinn,
og vart þurfi að véfengja hvað liggi
þar að baki.
Stela gaskútum og
skila til olíufélaga
Starfsmenn með vakandi auga vegna gaskútaþjófnaða
Morgunblaðið/Sverrir
Gaskútar Töluvert fé fæst fyrir
að skila gaskút til olíufélaganna.
Samtök atvinnulífsins hafa sent bréf
til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra og Steingríms J. Sigfús-
sonar fjármálaráðherra þar sem þau
mótmæla áformum um skattahækk-
anir á stóriðju, sjávarútveg og banka
vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2012.
„Þau áform sem kynnt hafa verið um
skattahækkanir bera þess merki að
ákveðin uppgjöf hafi orðið við að ná
endum saman í ríkisbúskapnum.
Ekki virðist vilji til að fylgja eftir
markmiðum um auknar fjárfesting-
ar, minna atvinnuleysi og meiri hag-
vöxt sem gæti skilað ríkissjóði sjálf-
krafa auknum skatttekjum. Aðeins
virðist nást samstaða um vanhugs-
aðar aðgerðir gegn stóriðju, sjávar-
útvegi og bönkum,“ segir í bréfinu
sem er undirritað af formanni og
framkvæmdastjóra SA.
Þeir minna á að í desember 2009
hafi fjármálaráðherra og iðnaðar-
ráðherra undirritað sameiginlega
yfirlýsingu með SA og stóriðjufyr-
irtækjum þar sem gert var sam-
komulag um fyrirkomulag skatt-
lagningar á þessi fyrirtæki á árunum
2010-2012. „Með því samkomulagi
voru aðrar hugmyndir um skattlagn-
ingu á fyrirtæki lagðar á hilluna en
sammælst um að frá og með árinu
2013 þegar stóriðjan verður hluti af
ETS yrðu fyrirtækjum búin sam-
bærileg samkeppnisskilyrði og stór-
iðjufyrirtækjum í sama iðnaði í Evr-
ópusambandinu. Áform um nýja
skatta á stóriðju á árinu 2012 eru al-
gjörlega á skjön við þetta samkomu-
lag.“
Í bréfinu kemur fram að SA telji
skynsamlegt að frekari áform um
breytingar á lögum um stjórn fisk-
veiða verði lögð á hilluna og leggja til
að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarn-
ir friðmælist þess í stað við sjávar-
útveginn en fari ekki sífellt gegn
þessari atvinnugrein með ófriði. Þá
vara samtökin við frekari skattlagn-
ingu á íslensk fjármálafyrirtæki.
Mótmæla áformum
um skattahækkanir
Bera merki um
uppgjöf við að ná
endum saman
Morgunblaðið/Ómar
Straumsvík SA mótmæla skatta-
hækkunum á stóriðju.
Með minningarorðum um Evu Lynn
Fogg sem birtist í Morgunblaðinu
15. ágúst sl. fylgdi ljóð sem á vantaði
síðustu ljóðlínu. Greinin er eftir
Kötlu frænku, Ástvald og fjölskyldu.
Höfundi ljóðsins urðu þessi leiðu
mistök á við innsendingu greinar-
innar og ljóðið er því birt hér aftur:
Ljósið mitt skæra
perlan mín kæra
ljósgullnir lokkar á höfðinu skarta
brosin þín blíðu ylja um hjarta
gullið mitt bjarta.
(Katla Margét Ólafsdóttir)
LEIÐRÉTT
Vantaði síðustu ljóðlínu
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is