Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 15

Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Leiðtogar Þýskalands og Frakk- lands, Angela Merkel og Nicolas Sarkozy, hittust í gær á fundi í París til að ræða lausnir á vanda evru- svæðisins sem fer enn vaxandi þrátt fyrir ýmsar björgunartilraunir. Ekki bætir úr skák að nýjar tölur sýna að hagvöxtur var mun minni í Evrópu á öðrum ársfjórðungi en áður hafði verið talið og reyndar enginn í Frakklandi. Mest voru vonbrigðin með vaxtartölurnar frá Þýskalandi sem hefur virst ætla að sleppa óskaddað út úr kreppunni en þar minnkaði einkaneysla óvænt. Á blaðamannafundi sögðu þau Merkel og Sarkozy brýnt að sam- hæfa betur fjármálastjórn evruland- anna til að kljást við skuldavandann. Frjálslyndir demókratar, samstarfs- flokkur Merkel kanslara, hafa hótað að yfirgefa stjórnarsamstarfið fallist hún á að gefin verði út svonefnd evruskuldabréf til þess að bjarga evrunni eða koma á einni fjármála- stjórn fyrir öll 17 ríki evrunnar. Stjórnarandstaðan styður hins veg- ar hugmyndirnar. Ef gefin verða út skuldabréf af þessu tagi munu öll ríki á evrusvæð- inu ábyrgjast þau en margir fjár- málasérfræðingar vestan hafs sem austan segja nú að þessi aðgerð sé sú eina sem geti bjargað myntsamstarf- inu frá algeru hruni. En Merkel hefur margoft hafnað þessari lausn enda mikil andstaða við hana í Þýskalandi. Telegraph í Bretlandi segir að í skoðanakönnun YouGov komi fram að 59% Þjóðverja hafni öllum björgunaraðgerðum fyr- ir önnur evruríki. Nær enginn vöxtur í ESB  Hótað stjórnarslitum fallist Merkel á kröfur um evruskuldabandalag Meðalhagvöxtur 0,2% » Hagvöxtur á evru-svæðinu var að meðaltali 0,2% á öðrum ársfjórðungi en var 0,8% á fyrstu þremur mánuðum árs- ins. » Í stærsta hagkerfi Evrópu, Þýskalandi, var aðeins 0,1% hagvöxtur og í Frakklandi var hann enginn. Belgíski rækjuveiðimaðurinn Eddy D’Hulster dregur net sín með aðstoð reiðskjóta í gær en D’Hulster, sem er 68 ára, hefur stundað rækjuveiðar í fjörunni við borgina Oostduinkerke í 47 ár. Aðferðin er um 500 ára gömul. Netin eru lögð á háfjöru og aflinn eftir nóttina kemst vafalaust fyrir í tágakörfunum á hestinum. Reuters 500 ára gömul fjöruveiðiaðferð enn notuð á strönd Norðursjávarins Rækjuveiðihestur að störfum Norska ríkisolíu- félagið Statoil hefur fundið nýj- ar og geysilega auðugar olíu- lindir á botni Norðursjávar og er um stærsta olíufund félags- ins í meira en 20 ár að ræða. Talið er að þar megi vinna 500-1200 milljónir olíufata, að sögn Nettavisen. Nýju svæðin eru kennd við Avaldsnes og Aldous og munu vera tengd. „Þetta sýnir að það eru meiri möguleikar í Norðursjónum en nokkurn hafði órað fyrir,“ sagði Daniel Raavik, greinandi hjá Hand- elsbanken. Nokkur önnur félög, þ. á m. Lundin Petroleum, tóku þátt í leit- inni á svæðinu með Statoil sem á þó stærsta hlutann af olíunni. Félagið hefur einnig fundið mikið af lindum við norðanverðan Noreg á síðustu árum. Hlutabréf í Lundin hækkuðu um 7% við tíðindin en bréf Statoil um 0,5%. kjon@mbl.is Geysimikill olíu- fundur á svæði Statoil í Norðursjó Olíuborpallur á Norðursjó. Hörð framsals- deila er komin upp milli stjórn- valda í Dan- mörku og Ind- landi og reyna hin síðarnefndu að beita efna- hagslegum þrýstingi í mál- inu, segir í Jyl- landsposten. Daninn Niels Holck er sakaður um ýmis brot í Indlandi árið 1995, meðal annars er hann sagður hafa skipulagt vopnaflutninga til upp- reisnarmanna í Vestur-Bengal. Holck andmælti framsali með þeim rökum að hann ætti á hættu að verða pyntaður eða sæta annarri niðurlægjandi meðferð. Málið fór fyrir dómstóla og endaði með því að hæstiréttur úrskurðaði lok júní að Holck skyldi ekki framseldur. kjon@mbl.is Neita að framselja Dana til Indlands Niels Holck Kristján Jónsson kjon@mbl.is Forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, vildi í kjölfar óeirðanna gera Bandaríkjamanninn William Bratton að næsta yfirmanni Lund- únalögreglunnar. En Theresa May innanríkisráðherra var á móti hug- myndinni, yfirmaðurinn yrði að vera Breti. Svo fór að Bratton var gerður að ráðgjafa Camerons varðandi glæpagengi. En hver er þessi 63 ára gamla „of- urlögga“ eins og bresku blöðin kalla Bratton? Hann gat sér frægð vestra þegar hann var lögreglustjóri í Bost- on og síðar New York og Los Angel- es, glæpatíðni snarminnkaði á nokkrum árum. Bratton lagði áherslu á að lög- reglumenn yrðu sýnilegir og blönd- uðu geði við borgarana en það sem mestu skipti var að taka hart á öllum afbrotum, sýna af sér „lágmarks umburðarlyndi“. Unglingar voru jafnvel hirtir fyrir að krota á veggi. Í Los Angeles var helsta viðfangsefni hans að kveða niður glæpagengi en Bratton tókst að fækka glæpum í borginni um 40% á þrem árum. Hann taldi að hækka yrði þrösk- uldinn, ef menn sættu sig við að rúða væri brotin átölu- laust yrði afleið- ingin að sífellt fleiri gengju á lagið, teldu sig mega skemma hluti annarra, stela og ræna. Í stuttu máli: brjóta lögin. Enginn efast um að Bratton er afburðasnjall, ein af nýjungum hans var að beita svo- nefndum GIS-tölvukerfum til að kortleggja glæpatíðni. Þá var hægt að gera baráttunna markvissari, nýta betur en ella mannskap og bún- að. Margar ástæður nefndar Oft hefur verið bent á að Bratton hafi fengið að fjölga lögreglumönn- um í New York um 5.000 sem hafi gert löggæsluna mun skilvirkari. Enginn veit með vissu hvers vegna alvarlegum glæpum hefur fækkað svo mikið síðustu árin í flest- um bandarískum stórborgum, ástæðurnar eru vafalaust margar. Hlutfallslega fleiri afbrotamenn eru í fangelsi en áður, þá hlýtur af- brotum að fækka og fleira hefur ver- ið tínt til. Ofurlögga gefur ráð  William Bratton tókst að snarlækka glæpatíðni í þrem bandarískum stórborgum og aðstoðar nú Breta William Bratton Mikið tjón varð af flóðum í kjölfar mikilla rigninga í Þrændalögum og víðar í sunnan- og vest- anverðum Noregi í gær og síðdeg- is voru enn átta hús algerlega ein- angruð, að sögn Aftenposten. Sums staðar varð að nota þyrlur til að bjarga fólki í neyð af hús- þökum. Litlir lækir breyttust þegar á mánudagskvöld á örfáum klukku- stundum í vatnsveggi sem rifu og tættu allt í sundur í Aalen, að sögn sjónarvotta. Aftenposten sagði að sjá mætti hús sem bók- staflega virtust hanga í lausu lofti eftir að vatnsflaumurinn ruddi burt jarðvegi undir þeim. Lénsmaðurinn í Stange, Nils Ringnes, sagði að fyrst og fremst hefði orðið tjón á vegum og húsum í grennd við Strandlykkja. „Það mun óhjákvæmilega taka nokkurn tíma að laga til en við höfum til allrar hamingju ekki fengið neinar tilkynningar um að fólk hafi slas- ast,“ sagði Ringnes. kjon@mbl.is Mikið tjón í vatnsflóðum í Noregi Fólki víða bjargað með þyrlum Þekktasti baráttumaður gegn spill- ingu í Indlandi, Anna Hazare, var í gær handtekinn er hann hugðist hefja hungurverkfall til að fylgja kröfum sínum eftir. Minnst 1300 manns voru teknir höndum í Nýju- Delí fyrir að styðja aðgerðir Hazare. Hann er 74 ára og mælir ávallt með friðsamlegum andmælum í anda sjálfstæðishetjunnar Mahatma Gandhis. Fólkið hafði áður fengið leyfi til að halda 5.000 manna mótmælafund í almenningsgarði en var síðar sakað um að hafa brotið lög. Ríkisstjórnin ráðfærði sig nýlega við Hazare og samdi lagafrumvarp um rannsókn á spillingu. En þar er tekið fram að ekki skuli rannsaka störf forsætis- ráðherra, dómara, þingmanna og helstu embættismanna stjórnkerfis- ins og sættir Hazare sig ekki við þessar undanþágur. Manmohan Singh forsætisráðherra, sem er í Kongressflokknum, er grunaður um aðild að máli ráðherra er varð uppvís að mútuþægni. kjon@mbl.is Reuters Átök Lögreglan handtekur einn af stuðningsmönnum Hazare er hann reyndi að stöðva bíl sem flutti leiðtogann í fangelsi í Nýju Delí gær. Indverjar mót- mæla spillingu  Minnst 1300 handteknir í Nýju Delí Ein af hugsanlegum skýringum á lækkandi glæpatíðni í Banda- ríkjunum eftir 1990 er að eftir að fóstureyðingar voru leyfðar upp úr 1970 með niðurstöðu hins þekkta máls Roe gegn Wade hafi mun færri ógiftar unglingsstúlkur úr röðum blökkumanna eignast börn. Gögn sýna óneitanlega að mjög stór hluti allra afbrota er fram- inn af ungum sonum einstæðra, svartra mæðra. Bent er á að glæpatíðnin hafi einmitt farið að lækka vestra upp úr 1990 en þá hefðu ófæddu strákarnir ella verið komnir á kreik. Ekki er eining um þessa kenn- ingu sem m.a. var rakin í bók- inni Freakonomics. Mörgum óar auk þess við henni og finnst þetta hljóma eins og hrottaleg vörn fyrir fóstureyðingar. Tengsl við glæpatíðni? FÓSTUREYÐINGAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.