Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar í síma 669 1376 Blaðbera vantar á Hólmavík • Félagslíf Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31, s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Ragnhildur Filippusdóttir, Garðar Björg- vinsson, Michael-miðill, Símon Bacon, Guðríður Hannesdóttir kristalsheilari og auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félags- mönnum og öðrum upp á einka- tíma. Upplýsingar um félagið, starfsemi þess, rannsóknir og útgáfur, einkatíma og tíma- pantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR Raðauglýsingar Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Til sölu þessir fallegu hvítu hreinræktuðu hvolpar sem verða ættbókarfærðir skv. reglum HRFÍ. Frábærir fjölskylduhundar með ein- staklega gott geðslag. Upplýsingar á art@mi.is Enskur cocker spaniel Til sölu enskir cocker spaniel hvolpar. Frábærir fjölskylduhundar. Þeir eru bólusettir, örmerktir og með ættbók frá HRFÍ. www.leirdals.is Frekari upplýsingar í síma 868-9455. Heilsa Zero-3 kúrinn frá Svensson Besti og þekkt- asti megrun- arkúrinn frá Svensson. Ekkert sérfæði. 100% jurta- afurð. Algjörlega öruggur. Notkunarleiðbeiningar á Ís- lensku fylgja. Virkar fljótt. Sími 566 7580 mán.- fim. Kl. 10-14 www.Belis.is Húsgögn Rýmingarsala á skrifstofu- húsgögnum Rýmingarsala á skrifstofuhúsgögnum í útibúi Arion banka í Grafarvogi, Foldatorgi 1-5. Skrifborð, hillur, stólar o.fl. Opið 7. og 8. sept. frá 12:30 til 18 báða dagana. Uppl. í síma 856 1488. Húsnæði íboði Ca. 30 fm þokkafull einstaklings- íbúð til leigu Lækir 105 R. Leigð til vors. Helstu húsgögn. Hiti, rafm. innifalið. Svefn- herb., stofa m. eldhúskrók. Baðherb. (68 þús.) baldur1@internet.is Atvinnuhúsnæði Vörulager og skrifstofur Til leigu eitt eða fleiri skrifstofu- herbergi ásamt vörulager með innkeyrsludyrum í 104 Rvk. Uppl. í síma 896 9629. Bæjarhraun 26, móti Fjarðar- kaupum. 300 m2 verslunar / þjónustuhúsnæði. Einn besti sölu- staðurinn í Hafnarfirði. Uppl. 66 45 900. Sala- Leiga Geymslur Vetrargeymsla á ferðavögnum og húsbílum Vetrargeymsla á farartækjum og eftirvögnum í upphituðu húsnæði í Keflavík með sólarhrings öryggis- og brunakerfisvakt. Uppl. 868 9087 og husbilageymsla@gmail.com (einnig á Facebook undir ,,Húsbílageymsla"). Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Skemmtanir Í REYKJAVÍK: HRAÐI + ACTION Sönn skemmtun. Sjóveiki nei. Bara stuð. Vinnuhópar. Vinahópar. Sími 861 3840. Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s. 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Bókhald og reikningsskil Ársreikningar, bókhald, laun, ráðgjöf og stofnun félaga. Reynsla, þekking, traust. Viðskiptaþjónustan, Dalvegi 16d, Kópavogi. vth.is / arni@vth.is / s. 517 0100. Við bjóðum alla bókhalds- þjónustu. Traust og gagnkvæmur trúnaður. www/fsbokhald.is. Fyrirtæki og samningar ehf, Suðurlandsbarut 46, 108 Reykjavík. S. 5526688 Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Náttföt - Sloppar Náttkjólar - Undirkjólar Sundföt - Undirföt Vertu vinur á facebook Mjóddin s. 774-7377 Sendum í póstkröfu Frú Sigurlaug Green-house Erum flutt Nýju haustvörurnar eru komnar. Opið í dag kl. 13-19. Frír bæklingur. 3 flíkur á verði tveggja af eldri vöru. Green-house, Móaflöt 25, Garðabæ. Teg. 1014 Fallegir dömuskór úr leðri. Litur: Beige - Stærðir: 37-41 - Verð: 13.450,- Teg. 1647 Fallegir dömuskór úr leðri. Litur: Svart - Stærðir: 36-41 - Verð: 15.950,- Teg. 5606 Þægilegir dömuskór úr mjúku leðri. Litur: Svart - Stærðir: 36-42 - Verð: 14.685,- Teg. 5606 Þægilegir dömuskór úr mjúku leðri. Litur: Beige/grátt - Stærðir: 36-41 - Verð: 14.685,- Teg. 6802 Sérlega mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri. Litur: Svart lakk - Stærðir: 36-42 - Verð: 18.775,- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, opið lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaþjónusta Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Fellihýsi Góð geymsla fyrir fellihýsi og tjaldvagna Upphitað og loftræst. Steinsteypt og einangrað hús. 801 Selfoss. Uppl. s. 897 1731. Ferðavagnageymsla Borgarfirði Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, báta og fleira í upphituðu rými. Gott verð. S. 612-6130. E-mail solbakki.311@gmail.com. - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is Ég á tvo stráka, yndislega stráka. Alexander kvaddi þessa jarð- Alexander Lind Géssé ✝ AlexanderLind Géssé fæddist í New York 21. apríl 2009. Hann lést á Barna- spítala Hringsins 27. júní 2011. Útför Alexand- ers fór fram frá Borgarneskirkju 2. júlí 2011. vist fyrir skömmu en ég mun alltaf eiga tvo stráka. Um miðjan des- ember 2009 byrjaði Alexander að verða veikur en var ekki greindur fyrr en í september 2010. Það sem við vissum var að lífslíkur væru skertar en mjög óljósar. En ekki grunaði mig að 9 mánuðum seinna myndi ég sitja með Alex- ander í fanginu þegar hjartað hans sló í hinsta sinn. Þegar Alexander fæddist þurfti aldrei að kenna honum að taka brjóstið, ég setti hann á og strax byrjaði hann að drekka eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég fékk hann fyrst í fangið og setti hann á brjóstið. Mér fannst það svo greinilegt þá að litli strák- urinn minn ætlaði að lifa. Þú varst fljótt lítill kúrustrák- ur og svafst alltaf upp í hjá mömmu, pabba eða Christian. Barnarúmið þitt var ekki mikið notað. Oft sofnaðir þú í hálsa- kotinu mínu og ef þú vaknaðir var nóg fyrir mig að stinga nef- inu í silkimjúka fallega hárið þitt og þá sofnaðir þú aftur. Fljótt fór að bera á fallega brosinu þínu og þá ljómuðu augun og allt andlitið brosti og náði að lýsa upp allt herbergið. Þú geislaðir þegar þú brostir, þú varst litli sólargeisl- inn okkar og náðir að framkalla bros frá öllum í kringum þig. Geislun þín var full af gleði, svo innilegri blíðu, kátínu og smá- ákveðni. Þessi geislun náði að snerta hjörtu svo margra. Þú varst mikil félagsvera og fannst gaman að vera þar sem fólk og fjör var. Úti í búð stopp- uðu okkur margir því að þú brostir svo innilega og varst svo fallegur. Þú byrjaðir hjá Berglindi dag- mömmu í febrúar 2010 og aldrei kom eitt tár þegar mamma fór frá þér. Þér leið svo vel hjá Berg- lindi og Fríðu, að leika við alla krakkana. Snemma fór að bera á hversu músíkalskur þú varst. Þegar Kristinn Hugi eða Sveinn Ísak spiluðu á píanóið fórstu all- ur af stað og dansaðir og dans- aðir. Þú hlustaðir mikið á Söngvaborg og svo fannst þér ofsalega gaman að fara í sunnu- dagaskólann í Lindakirkju. Þér fannst strákarnir í Pollapönki skemmtilegir. Ég man þegar Pollapönk kom í leikstofuna í október 2010 og þú söngst með og dansaðir af alefli. Þú kenndir mér það að við eig- um öll að temja okkur að vera glaðari og brosa meira. Það er svo hollt að brosa og hlæja. Þú kenndir mér það að lifa í núinu, lifa fyrir daginn í dag og njóta lífsins. Þú kenndir mér að það er þetta einfalda í lífinu sem skiptir máli. Fara út og hitta fólkið sem manni þykir vænt um. Litli kúturinn minn, litla ynd- islega barnið mitt blíða, ég kveð þig með söknuði. Svo miklum trega að mér finnst hjartað mitt ætla að springa. Hjartað mitt er svo þungt, svo yfirþyrmandi þungt. En ég hugga mig við allar fallegu minningarnar sem ég á um þig. Ég hugga mig við það að þú sért ekki lengur veikur, finnir ekki til, heldur hafir þú séð ljósið og skokkað af stað í áttina af ljós- inu haldandi í hönd ömmu Stínu. Elsku Alli minn, megi fallega ljósið hans umvefja þig á nýja staðnum þínum. Ég veit að þú ert allt í kring þótt þú sért ekki áþreifanlegur lengur. Mamma sín, Jóhanna Lind Géssé.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.