Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011 Hundurinn „Sir Henry“, sem er af pug-kyni, situr hér með eigendum sínum, sem klæddust bæverskum þjóð- búningum, á samkomu í München í gær þegar um fjörutíu hundar af pug-kyni og eigendur þeirra gerðu sér glaðan dag. Pug-hundakynið er upprunnið í Asíu; hundarnir eru breiðleitir með hringaða rófu. Reuters Hefðarhundur af göfugu kyni Óttast er að 750.000 manns deyi úr hungri í Sómalíu á næstu fjórum mánuðum, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóðanna í gær. Lýst hefur verið yfir hungursneyð í alls sex héruðum í landinu. „Tugir þúsunda manna hafa þegar dáið, þar af helmingurinn börn,“ segir í yfirlýsingu embættismanna sem hafa metið ástandið í Sómalíu. „Alls þurfa fjórar milljónir manna neyðaraðstoð í Sómalíu og hætta er á að 750.000 manns deyi á næstu fjórum mánuðum.“ Lýst var yfir hungursneyð í sjötta héraðinu í gær, en áður hafði m.a. verið lýst yfir neyðarástandi í höfuð- borginni Mogadishu. Ástandið er verst í sunnanverðu landinu á svæð- um sem eru á valdi samtaka ísl- amista sem hafa hindrað hjálpar- starf. Lýst er yfir hungursneyð þegar dag hvern deyja minnst tveir úr hungri á hverja 10.000 íbúa. Óttast að 750.000 svelti í hel Hungursneyðin versnar í Sómalíu Bogi Þór Arason bogi@mbl.is David Cameron, forsætisráðherra Breta, sagði í gær að óháð nefnd ætti að rannsaka ásakanir um að breska leyniþjónustan MI6 hefði tekið þátt í því að ræna meintum hryðjuverka- mönnum og flytja þá til Líbíu þar sem þeir hefðu verið pyntaðir. Fulltrúar mannréttindasamtak- anna Human Rights Watch í Trípólí hafa fundið skjöl sem sögð eru sýna að MI6 og bandaríska leyniþjónust- an CIA hafi haft náið samstarf við líbísku leyniþjónustuna á árunum 2002-2004, rænt meintum hryðju- verkamönnum og flutt þá á laun til Líbíu. Hermt er að breska leyniþjón- ustan hafi einnig veitt einræðis- stjórn Muammars Gaddafis upplýs- ingar um andstæðinga hans. „Pyntaður reglulega“ Á meðal fanganna sem voru fluttir til Líbíu er Abdul Hakim Belhaj, sem var þá leiðtogi hreyfingar líb- ískra íslamista en er nú foringi vopn- aðra sveita uppreisnarmanna í Trí- pólí. The Guardian hefur eftir Belhaj að hann íhugi málshöfðun á hendur Bretum vegna málsins. Í einu skjalanna segir háttsettur embættismaður bresku leyniþjón- ustunnar að upplýsingar frá henni hafi leitt til handtöku Belhajs í Taí- landi í mars 2004. The Guardian seg- ir að Belhaj hafi verið færður til út- sendara CIA sem flutti hann á laun til Trípólí þar sem hann var hneppt- ur í fangelsi. „Mér var ekki leyft að fara í bað í þrjú ár og ég sá ekki sól- ina í eitt ár,“ hefur The Guardian eft- ir Belhaj. „Þeir hengdu mig upp á vegg og héldu mér í einangrunar- klefa. Ég var pyntaður reglulega.“ Peter Bouckaert, fulltrúi Human Rights Watch, segir að leyniþjón- ustumenn CIA hafi ekki aðeins flutt fangana til Líbíu. „Þeir sendu líka spurningar, sem þeir vildu að líbíska leyniþjónustan spyrði, og í skjölun- um kemur skýrt fram að þeir voru viðstaddir sumar yfirheyrslurnar.“ Bendlaðar við kúgun Gaddafis  Skjöl sögð sýna náið samstarf MI6 og CIA við leyniþjónustu Gaddafis í Líbíu Grunsamleg tengsl » Þúsundir bréfa frá banda- rískum og breskum leyniþjón- ustumönnum fundust í bygg- ingu í Trípólí. Þar mun hafa verið skrifstofa Moussa Koussa, sem var lengi yfir- maður leyniþjónustu Líbíu. » Koussa flúði til Bretlands og síðar Katar eftir að uppreisnin í Líbíu hófst. Mannréttinda- samtök hafa sakað hann um aðild að grimmdarverkum. Líklegt þykir að Helle Thorning- Schmidt, for- maður Jafnaðar- mannaflokksins, verði næsti for- sætisráðherra Danmerkur þótt útlit sé fyrir að flokkurinn fái minnsta kjör- fylgi sitt í rúm 100 ár. Ný skoðanakönnun bendir til þess að vinstriflokkarnir fái meirihluta á danska þinginu í kosningunum 15. september og Jafnaðarmannaflokkurinn fái 24,8% atkvæðanna. Verði þetta niðurstaðan í kosningunum verð- ur það minnsta kjörfylgi flokksins frá fyrsta áratug aldarinnar sem leið. Í síðustu kosningum fékk Jafn- aðarmannaflokkurinn 25,5% at- kvæðanna sem er minnsta kjör- fylgi hans í nútímasögunni, að sögn danska blaðsins Politiken. Þess má geta að Íhaldsflokk- urinn var aðeins með 16% kjör- fylgi þegar Poul Schlüter, þáver- andi formaður hans, hélt embætti forsætisráðherra árið 1990. Ven- stre var með enn minna fylgi, eða 12,3%, þegar þáverandi formaður hans, Poul Hartling, varð for- sætisráðherra árið 1973. Gæti sigrað með minnsta fylgi jafn- aðarmanna í 100 ár Helle Thorning- Schmidt Lögreglan í borginni Tsjeropovets í norðvestanverðu Rússlandi hefur bannað íbúum hennar að fara út á svalir eða standa við glugga á með- an Vladímír Pútín forsætisráðherra er í borginni. „Hátt settur embættismaður er að koma,“ sagði í tilkynningu frá lögreglunni. „Þess vegna er bannað að fara út á svalir eða vera nálægt gluggum, sem og að nota myndavélar.“ Pútín fór til Tsjeropovets í gær til að sitja fund stjórnarflokksins Sameinaðs Rússlands. Mikill öryggisviðbúnaður er í kringum Pútín hvert sem hann fer og al- gengt er að götum sé lokað í Moskvu þegar forsætisráð- herranum er ekið um þær. Bannað að fara út á svalir vegna Pútíns Jafnaðarmenn (SPD) og Græningjar sigruðu í þingkosningum í Mecklen- burg-Vorpommern á sunnudag og Græningjar eru nú í fyrsta skipti með sæti í þingum allra þýsku sambandslandanna. Kristilegir demókratar (CDU) biðu ósigur og hafa þar með tapað fylgi í fimm kosningum af sex í ár. Frjálslyndir demókratar (FDP) fengu aðeins 2,7% fylgi og ekkert þingsæti. ÞINGKOSNINGAR Í MECKLENBURG-VORPOMMERN Kjörfylgi í prósentum Skipting þingsæta Breyting í prósentustigum frá kosningum árið 2006 Alls 71 sæti Heimild: Landeswahlleiter Baden-Württemberg 27. mars Berlín 18. sept. Saxland-Anhalt 20. mars Bremen 22. maí Rheinland-Pfalz 27. mars Hamborg 20. febr. Mecklenburg- Vorpommern Á sunnudaginn var Kosningar í sambandslöndum í ár * PDS og WASG sameinuðust árið 2007 36,8 % ’11’06 5% 23,8 % 17,2 % 5,5 % 3,2 % 8,4% -5.0+6.6 +0.4 -1.8-6.4 +5.0 NPDCDUSPD Linke* FDP Græningjar SPD 29 (+6) CDU 18 (-4) Linke* 13 (±0) NPD 4 (-2) Græn. 7 (+7) Áætlað (ARD) Jafnaðarmenn sigruðu PIPAR \T BW A • SÍ A • 11 22 15 THE TWO 9/11S THEIR HISTORICAL SIGNIFICANCE Dr. Noam Chomsky er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og samfélagsrýnir. Hann er heiðursgestur Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og flytur erindi í röð öndvegisfyrirlesara á aldarafmæli skólans. Fyrirlesturinn fer fram í stóra sal Háskólabíós föstudaginn 9. september kl. 15.00 og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Allir velkomnir Vakin er athygli á fyrirlestri dr. Noams Chomsky, prófessors emeritus í málvísindum við Massachusetts Institute of Technology (MIT).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.