Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011 Sudoku Frumstig 1 9 4 4 7 8 3 9 3 6 8 2 8 1 6 4 2 6 3 2 9 7 3 8 2 4 1 7 4 8 3 6 2 6 4 9 3 5 9 3 6 8 7 2 9 8 5 3 7 9 8 2 5 9 3 7 8 2 3 4 1 7 4 8 4 2 5 8 9 2 1 6 2 5 3 9 7 9 6 2 3 5 4 9 8 7 1 6 8 1 6 7 5 3 9 4 2 4 9 7 1 2 6 8 3 5 9 5 1 8 6 2 3 7 4 3 2 8 5 4 7 1 6 9 7 6 4 9 3 1 2 5 8 5 7 9 3 8 4 6 2 1 1 4 2 6 7 9 5 8 3 6 8 3 2 1 5 4 9 7 9 4 2 6 3 7 1 8 5 7 5 3 8 1 4 9 2 6 1 8 6 5 2 9 7 3 4 5 3 4 1 6 8 2 7 9 6 2 7 9 5 3 4 1 8 8 1 9 4 7 2 5 6 3 2 9 8 7 4 6 3 5 1 3 6 5 2 9 1 8 4 7 4 7 1 3 8 5 6 9 2 8 7 5 3 9 2 6 4 1 4 3 6 7 1 5 2 8 9 9 1 2 4 6 8 3 7 5 7 4 3 6 5 9 1 2 8 5 6 8 1 2 3 7 9 4 1 2 9 8 4 7 5 3 6 2 9 4 5 7 6 8 1 3 6 8 7 9 3 1 4 5 2 3 5 1 2 8 4 9 6 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 6. september, 249. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4, 16.) Víkverji er áhugamaður um veð-urfar og veðurspár og hefur af- skaplega gaman af því að tala um veðrið, líklega eins og stór meirihluti þjóðarinnar sem býr norður við hjara veraldar. Jafn mikið og Vík- verji gleðst yfir góðu veðri þá verður hann álíka úrillur og leiðinlegur ef veður er vont. Enn verra verður ástandið ef veðurspár rætast ekki á þeim stað sem Víkverji er staddur á hverju sinni. Það er beinlínis óþol- andi! x x x Þannig var það um helgina, erVíkverji brá sér á golfmót. Kvöldið fyrir leik leit spáin býsna vel út; það átti að skína sól með smá gjólu og einstaka skýjum – engin rigning. Þetta með rigninguna stóðst, engir komu dropar úr lofti en það var annað mál með vindinn og sólina. Það var beinlínis hávaðarok og í upphafi móts gægðist sólin fram einstaka sinnum gegnum þykka skýjabólstra þar til að hún hvarf sjónum. Vindur hefur nefnilega tölu- verð áhrif á kylfinga, sérstaklega þá sem eru jafn lélegir í golfi og Vík- verji. Kúlan fór yfirleitt allt annað en hún átti að fara og Víkverji lauk leik með neðstu mönnum. Eftir sæmilegt gengi vikurnar á undan hafði Víkverji gert sér ákveðnar væntingar á þessu móti en veð- urguðirnir, með veðurfræðingana sér til fulltingis, kæfðu þessa drauma í fæðingu. Spurt er: Hver er ábyrgð veðurfræðinga í málum sem þessum? Þurfa þeir aldrei að svara til saka fyrir gjörðir sínar? x x x Til að ljúka reiðilestrinum, oggæta allrar sanngirni, þá má það koma fram að umrædd veðurspá rættist degi síðar en hún átti að gera. Þá kom gjólan og sólin skein í heiði. Víkverji lét sig hafa það að fara í golf þrátt fyrir vonbrigðin dag- inn áður. Ekki þarf að fjölyrða um að nú spilaði hann eins og engill en ekki var um neitt mót að ræða í þetta sinn og verðlaunin því engin, önnur en ánægjan og gleðin yfir því að Víkverji á sér enn von í íþróttinni þrátt fyrir allt! víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 andspænis, 4 svara, 7 góð lykt, 8 skilja eft- ir, 9 lengdareining, 11 herm- ir eftir, 13 langar til, 14 sjúkdómur, 15 jarðaði, 17 autt, 20 ósoðin, 22 gufa, 23 lítils skips, 24 hluta, 25 hafa upp á. Lóðrétt | 1 missa marks, 2 gamalær, 3 tyrfinn texti, 4 karldýr, 5 hluti hringflatar, 6 stétt, 10 svardagi, 12 dýr, 13 skynsemi, 15 þreif, 16 trylltar, 18 bylgjukvikið, 19 rýja, 20 lof, 21 kappsöm. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 geðvondur, 8 gyllt, 9 lydda, 10 uml, 11 tærir, 13 senna, 15 seinn, 18 óninn, 21 átt, 22 launi, 23 trauð, 24 sannindin. Lóðrétt 2 eflir, 3 votur, 4 núlls, 5 undin, 6 ógát, 7 gata, 12 iðn, 14 enn, 15 sæla, 16 iðuna, 17 náinn, 18 óttan, 19 iðaði, 20 næði. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fræðimaðurinn. S-Allir. Norður ♠ÁDG ♥976 ♦ÁDG10 ♣Á64 Vestur Austur ♠K96 ♠1087432 ♥KDG ♥32 ♦732 ♦96 ♣D832 ♣1096 Suður ♠5 ♥Á10854 ♦K854 ♣KG7 Suður spilar 5♥. Eddie Kantar er mikill fræðimaður. Svörin við Róman -ykilspilaspurning- unni komast fyrir á hálfri A4-síðu, en Kantar hefur skrifað um sagnvenjuna stóra bók. Með viðbótum og viðaukum. Ein viðbótin lýtur að kóng í hliðarlit. Hér opnar suður á 1♥ og norður fer strax að íhuga slemmu, en krefur fyrst í geim með 2♦. Suður hækkar í 3♦, norður segir 3♥ og suður 4♥, enda áhugalítill um framhald. Þá spyr norð- ur um lykilspil og fær svarið 5♥: TVÖ, án trompdrottningar. Kóngurinn í tígli (hliðarlitnum) er talinn með. Tvö lykilspil duga þó skammt og norður passar 5♥. Útspilið er ♥K. Best er að dúkka ♥K. Taka næsta slag á ♥Á, leggja niður ♠Á og renna svo frítíglum. Fyrr eða síðar fær vest- ur hjartaslaginn sinn og verður þá að gefa slag á svartan lit. 6. september 1928 Bandalag íslenskra lista- manna var stofnað til að styðja vöxt og viðgang íslenskra lista, gæta hagsmuna lista- manna og efla samvinnu þeirra. 6. september 1943 Íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness kom út. Ekkert verka Halldórs hefur fengið jafn góðar viðtökur. Þetta var fyrsta bók af þremur sem sam- an eru nefndar Íslands- klukkan. Hinar eru Hið ljósa man og Eldur í Kaupinhafn. 6. september 1944 Annar burðarstrengur Ölfus- árbrúar slitnaði. Tveir bílar féllu í ána en bílstjórarnir björguðust, annar eftir að hafa borist tólf hundruð metra með straumþunganum. 6. september 1952 Iðnsýning var opnuð í Reykja- vík. Hana sóttu um 73 þúsund manns eða annar hver Íslend- ingur. 6. september 1984 Aðeins munaði nokkrum metr- um að tvær farþegaþotur rækjust á eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli. Alls voru 403 um borð í þotunum. 6. september 2005 Skipti ehf. greiddi íslenska ríkinu 66,7 milljarða króna fyrir Landssíma Íslands. Tæp- um helmingi átti að verja til að greiða niður erlendar skuldir, 18 milljörðum til uppbygg- ingar hátæknisjúkrahúss og 15 milljörðum til samgöngu- bóta. Einnig átti að kaupa varðskip, byggja upp fjar- skiptaþjónustu o.fl. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Ak- ureyri, á 45 ára afmæli í dag. „Dagurinn verður ósköp hefðbundinn. Ég mæti í vinnuna og sinni mínu starfi, svo þegar ég er búinn að ljúka bæj- arstjórnarfundi sem verður síðdegis þá fer ég heim í faðm fjölskyldunnar,“ segir Eiríkur en hann er kvæntur Ölmu Jóhönnu Árnadóttur og eiga þau þrjá drengi, fædda 1997, 2008 og 2009. Spurður um eftirminnilegasta afmælisdaginn segir hann engan sérstakan skera sig úr en honum hafi hér áður fyrr oft þótt sérstakt að eiga afmæli á haustin því skólarnir hefja oft aftur starfsemi sína á þessum degi. „Í minningunni voru það blendnar tilfinningar að eiga afmæli og skólinn að byrja aftur eftir sumarfrí,“ segir hann. „Svo er annað sem var dálítið sérstakt og er enn. Íslenska landsliðið er að fara að spila við Kýpur og svo virðist sem þetta sé mjög vinsæll dagur til að spila landsleiki á. Í gegnum tíðina var maður alltaf að mæta á landsleiki með íslenska landsliðinu 6. september. Það má því segja að þónokkuð margir afmælisdagar hafi farið í það hjá mér að vera á Laugardalsvellinum að horfa á íslenska landsliðið í fótbolta.“ ylfa@mbl.is Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri 45 ára Dagur landsliðsleikja Söfnun Orri Starrason, Herbert Óskar Óla- son og Styrmir Kjartansson stóðu fyrir söfnum með því að mála steina og selja fyrir utan Bónus í Ögur- hvarfi í Kópavogi. Þeir seldu fyrir tæpar 10.000 kr. sem þeir færðu Rauða krossi Íslands. Flóðogfjara 6. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.37 3,0 6.50 1,4 13.30 3,1 20.00 1,4 6.25 20.29 Ísafjörður 2.44 1,6 9.02 0,8 15.44 1,9 22.26 0,8 6.24 20.39 Siglufjörður 5.25 1,1 11.16 0,7 17.46 1,3 6.07 20.23 Djúpivogur 3.30 0,7 10.12 1,8 16.49 0,9 22.43 1,5 5.53 19.59 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Fjarvistir og ferðalög geta tekið sinn toll hjá fjölskyldunni. Spurðu spurninga! Sanngirni er lykilorð dagsins. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þótt þú sjáir í gegnum fólk skaltu fara þér hægt í að afhjúpa það. Orðið fordómar er ekki til í þinni orðabók. Af hverju ferðu ekki út á land í stutta stund? (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Eins og langflestir þekkir þú mun- inn á góðu og illu. Gættu þess að fæla fólk ekki frá við nánari kynni. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Auðgaðu andann með því að lesa eitthvað óvenjulegt sem þú hefur ekki lagt þig eftir áður. Þú styður við bakið á fólki sem kann að meta það. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Vinnan krefst þess að þú sért skapandi og því ertu svo sannarlega heppin/n að því leyti. Láttu ekki misnota gæsku þína. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú stendur sig vel í vinnunni og langar til þess að uppskera virðingu annarra. Fundir og ráðstefnur ættu að sama skapi að ganga vel. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Flas er ekki til fagnaðar. Festu þig ekki í viðjum vanans, vertu heldur jákvæð/ur fyrir nýjungum. Reiðin getur verið nauðsynleg til þess að koma einhverju í verk. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú hefur miklar áhyggjur af heilsu ættingja. Upplagt er að kaupa eitthvað fallegt fyrir heimilið eða fjölskylduna í dag, ef það er á dagskrá. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þótt þú eigir bágt með að skilja hugmyndir vinar þíns er engin ástæða til þess að leggja vináttuna á ís. Auðveldaðu vin- um og fjölskyldu að bjóða þér aðstoð. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Tilfinningar þínar eru líkt og rússi- bani. Einföld hugmynd tekst á loft eins og eldflaug. Hentu þér í djúpu laugina. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú stendur með hugmyndum þín- um, án þess að vita nákvæmlega hvernig þú ætlar að framkvæma þær. Brátt gerist eitt- hvað óvænt sem færir þig nær takmarki þínu. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú gefur ást þína af öllu hjarta. Óvæntur gestur skýtur upp kollinum næstu daga. Taktu vel á móti viðkomandi. Stjörnuspá 1. e4 c5 2. Rc3 a6 3. Rge2 d6 4. g3 e5 5. Bg2 g6 6. d3 Bg7 7. Be3 Rc6 8. Dd2 Be6 9. 0-0 Rge7 10. f4 Rd4 11. Rd1 0-0 12. c3 Rxe2+ 13. Dxe2 exf4 14. Bxf4 Dd7 15. Rf2 Rc6 16. Dd2 Hfe8 17. Bh6 Bh8 18. Be3 Dd8 19. Hae1 Bxa2 20. Rg4 Re5 21. Rh6+ Kf8 22. d4 cxd4 23. cxd4 Rd7 24. b3 Bxb3 25. Db4 Db6 Staðan kom upp í opnum flokki heims- meistaramóts 20 ára og yngri sem lauk fyrir skömmu í Chennai á Indlandi. Bandaríski stórmeistarinn Ray Robson (2.560) hafði hvítt gegn heimamanninum Aditya Udeshi (2.378). 26. d5! og svartur gafst upp enda er drottningin að falla eða hann verður mát eftir t.d. 26. … Dxb4 27. Hxf7#. Pólski stórmeistarinn Dariusz Swiercz (2.553) varð heimsmeistari í ár en hann fékk 10½ vinning af 13 mögulegum. Armenski kollegi hans, Robert Hovhann- isyan (2.556), lenti í öðru sæti en hann fékk jafnmarga vinninga og sá pólski en færri stig. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.