Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011 Kveðja frá Háskóla Íslands Með Áslaugu Hafliðadóttur lyfja- fræðingi er gengin gagnmerk og heilsteypt kona. Auk dyggrar þjónustu í lyfjabúðum hér á höf- uðborgarsvæðinu í áratugi vann Áslaug stórmerkilegt starf ásamt fámennum hópi valinkunnra lyfjafræðinga við að koma upp safni um sögu lyfjafræðinnar á Íslandi við Neströð á Seltjarnar- nesi. Ég veit að hennar er sárt saknað í þeim hópi en andi henn- ar lifir í safninu sem hún bar svo heitt fyrir brjósti. Lyfjafræði- safnið er án efa eitt fallegasta og vandaðasta fagsafn á Íslandi. Öll sín störf vann Áslaug af stakri vandvirkni, hógværð og fag- mennsku. Áslaug stundaði nám í lyfja- fræði við Lyfjafræðingaskóla Ís- lands og verknám í Ingólfs Apó- teki sem þá var til húsa í Fischersundi í miðbæ Reykjavík- ur. Eftir útskrift sem aðstoðar- Áslaug Hafliðadóttir ✝ Áslaug Haf-liðadóttir fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1929. Hún lést 21. ágúst 2011. Útför Áslaugar fór fram 5. sept- ember 2011. lyfjafræðingur hélt Áslaug til Dan- merkur og lauk kandídatsprófi frá Danmarks Farma- ceutiske Höjskole 1957. Sama ár hófst þriggja ára nám í lyfjafræði við Há- skóla Íslands og ár- ið 1982 var síðan tekið upp fimm ára kandídatsnám í lyfjafræði við skólann. Áslaug starfaði lengst af í Reykjavíkur Apóteki og Lyfja- búð Breiðholts. Í starfstíð Ás- laugar fór töluverður hluti lyfja- framleiðslu fram í apótekum. Í Reykjavíkur Apóteki voru til að mynda framleiddar töflur, stungulyf, smyrsl, stílar, skammtar, mixtúrur o.fl. Áslaug lagði mikla rækt við lyfjafræði- nema sem komu til verknáms undir hennar handleiðslu. Í Lyfjabúð Breiðholts starfaði Ás- laug með Ingibjörgu Böðvars- dóttur apótekara. Auk samstarfs í apótekinu skrifuðu þær mikið saman um sögu lyfjafræði og vildu hlúa að sögulegri vitund í samfélaginu. Þær voru ötulir hvatamenn að útkomu Lyfja- fræðingatals. Sú sjálfboðavinna sem Áslaug vann í þágu Lyfja- fræðingafélags Íslands verður seint fullþökkuð. Áslaug ánafnaði Háskóla Ís- lands höfðinglega gjöf í minningu foreldra sinna og óskaði þess að hún gengi til eflingar íslenskri tungu. Hennar verður lengi minnst við skólann fyrir þennan einstaka rausnarskap og þá göf- ugu hugsun sem að baki bjó. Ás- laug var sannarlega ein þeirra sem lét betur að gefa en þiggja. Ég votta ættingjum og vinum einlæga samúð við andlát hennar. Kristín Ingólfsdóttir. Nú, þegar sumri hallar og Ás- laug okkar kæra frænka hefur kvatt okkur svo snöggt og óvænt sunnudaginn 21. ágúst, er margs að minnast. Fallegar og góðar minningar eru dýrmæt gjöf sem gott er að leita til á stund sakn- aðarins. Áslaug og hennar fjöl- skylda hafa verið hluti af tilveru okkar systkinanna alla tíð. Heim- ilið á Bjarkargötu 12 var mikið menningar- og regluheimili og einstakt á sinn hátt, þar sem engu hefur verið breytt og nán- ast allir hlutir á sama stað síðan við munum eftir okkur. Þar ríkti fádæma gestrisni sem á árum áð- ur foreldarnir Sesselja ömmu- systir okkar og Hafliði stóðu á bak við ásamt dætrum sínum Maríu og Áslaugu, þetta gekk svo sannarlega í arf til systranna eft- ir lát foreldranna sem þær önn- uðust frábærlega, svo um var tal- að af þeim sem til þekktu. En því miður tók við langt og erfitt veik- indaferli hjá Maju og þá var það að sjálfsögðu Áslaug sem annað- ist hana þar til yfir lauk. Áslaug var lyfjafræðingur og var ekki sú manngerð sem skipti oft um vinnustað en við vitum að hún var bæði virt og dáð af vinnuveitend- um og samstarfsfólki. Skyldu- rækni og nákvæmni var henni í blóð borin og á gleðistundum í góðra vina hópi var hún hrókur alls fagnaðar því brosið hennar fallega og gamanmálin voru aldr- ei langt undan. Í frístundum sínum stundaði hún af miklum móð göngur og sund, að sjálfsögðu í Vesturbæj- arlauginni fyrir vestan læk, ann- að kom ekki til greina. Alla ævi ferðaðist hún eins mikið og aðstæður leyfðu, bæði innanlands og utan. Áslaug lifði sig inn í þjóðhætti annarra, tók mikið af myndum og sagði frá þegar heim kom, en alltaf átti Kaupmannahöfn sinn sess hjá henni þar sem hún var við fram- haldsnám í lyfjafræðinni og hennar síðasta ferð erlendis nú fyrir stuttu var einmitt þangað, þar sem hún fór á heimsmót esperantista. Eftir starfslok helgaði hún krafta sína lyfja- fræðisafninu sem var henni mjög hugleikið og naut þess að vera þar með góðum vinum og sam- starfsfólki. Við erum aldrei tilbúin að kveðja, til þess er lífið of dýr- mætt og við finnum svo vel hvað veraldlegir hlutir eru einskis virði samanborið við vináttu- böndin, frændsemina og vænt- umþykjuna sem vissulega var til staðar hjá fjölskyldum okkar Áslaug frænka okkar, vertu blessuð og sæl að sinni. Hjördís, Jóhanna, Anna Jóna og Óskar. Allar mínar dýrmætustu minningar úr bernsku tengjast ferðalaginu austur í Selá þar sem foreldrar mínir og síðar ég líka eyddum nokkrum dögum við veiðar á sumrin. Í mörg ár var það órjúfanlegur hluti af ferða- laginu að heimsækja Völlu frænku á Ólafsfirði. Í minning- unni er alltaf sól þegar við renn- um í hlað á Vesturgötu 7 þar sem frænka mín tekur á móti okkur með útbreiddan faðminn. Það var gott að koma til Völlu Valgerður Sigtryggsdóttir ✝ Valgerður Sig-tryggsdóttir fæddist á Ytra- Álandi, Þistilfirði, N-Þing., 10. desem- ber 1923. Hún lést á Hornbrekku, Ólafs- firði, 20. ágúst 2011. Útför Valgerðar var gerð frá Ólafs- fjarðarkirkju 27. ágúst 2011. frænku. Gestrisnin, hlýjan og gleðin einstök og fullkom- lega ógleymanleg. Mörg minningar- brotin tengjast eld- húsinu, hjarta heimilisins, þar sem í okkur voru bornar hver krásin á fætur annarri. Læri með öllu tilheyrandi eða siginn fiskur með smjeri, ís í desert. „Endilega fáðu þér meira, það er nóg til“, var viðkvæðið þó maður stæði á blístri og fötin væru við það að rifna á saumunum. Eftir fyrstu máltíðina settist ég gjarnan í stofuna þar sem ég fletti fjölskyldualbúminu og skemmti mér yfir ljósmyndum af sætu frændum mínum sem á sjö- unda áratugnum tóku tilhugalífið með framtíðarmakanum með stæl, skartandi hlussubörtum, skræpóttum skyrtum og buxum með rausnarlega útvíðum skálm- um. Valla sýndi okkur stolt myndir af nýjustu kvistunum á blómstrandi ættartrénu og greiddi úr flækjunni um hver átti nú hvern, það var ekki lif- andis leið að muna þetta allt á milli ára. Svo var kíkt í heimsókn til Steina frænda og nýjasta föndrið hans skoðað og tekið hús á öllum hinum sem voru líka dugleg að koma á Vesturgötuna í kaffi og spjall á meðan við stopp- uðum við. Valla frænka var lítil kona með risastórt hjarta. Þessi móð- ursystir mín sem náði mér rétt rúmlega í mitti hefur ávallt verið mér kær. Hjá henni leitaði ég skjóls eina páskana þegar ég fyrir mörgum árum var í ást- arsorg eftir æ, hvað hét hann nú aftur? – og hjá henni höfðum við mamma viðkomu þegar við fór- um norður til að leysa voffann minn hann Leo úr prísundinni í Hrísey eftir flutningana frá Par- ís. Þeir endurfundir byrjaðu á því að hundspottið stórslasaði sig í öllum gleðilátunum þegar hann steig á glerbrot á bryggju- sporðinum á Árskógsströnd svo lá við að honum blæddi út. Ennþá blæddi þegar við vorum komnar með hann á nýlagt park- etið á Vesturgötuna til Völlu sem dreif í því að farið var með Leo til heimilislæknisins á Ólafsfirði til að líta á loppuna á seppa þar sem engum dýralækni var til að dreifa. Valla frænka var rösk, dugleg og úrræðagóð, glaðlynd og hláturmild. Vandamálin voru til að leysa þau. Hún gat líka verið fjandanum þrjóskari og þegar hún beit eitthvað í sig þurfti stundum að berjast um á hæl og hnakka til að fá sínu fram. Oft hafði Valla betur eins og sýndi sig í minni síðustu heimsókn norður þegar hún heimtaði að ganga úr rúmi fyrir mig og bjó um sig á gólfinu í einu herberginu. Það var ekki nokkur leið að fá hana ofan af því. Valla ferðaðist töluvert um landið með Steina frænda og það var ætíð tilhlökkunarefni að fá þau í heimsókn suður þar sem við reyndum eftir bestu getu að endurgjalda gestrisnina. Valla var pabba mínum sem lést 2008 einstaklega hjartfólgin. Rödd hans varð mjúk og meyr þegar hann talaði um Völlu frænku. Ég veit að hann pabbi minn hefur tekið vel á móti mág- konu sinni. Við hin söknum hennar sárt. Gerður Harðardóttir. Minningin um Jóhönnu Hrafnfjörð ljósmóður er skýr í mínum huga. Hún var góð kona, örlát við þá sem minna máttu Jóhanna Hrafnfjörð ✝ Jóhanna Frið-mey Líkafróns- dóttir Hrafnfjörð fæddist 29. nóv- ember 1925 á Hrafnsfjarðareyri, N-Ísafjarðarsýslu. Hún lést 15. ágúst 2011 á Elli- og hjúkrunarheim- ilinu Grund í Reykjavík. Útför Jóhönnu fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 23. ágúst 2011. sín og tryggur vin- ur. Jóhanna vann umönnunarstörf alla sína starfsævi. Hún þótti góð ljós- móðir og um árabil rak hún sitt eigið fæðingarheimili. Jóhanna var mikil sjálfstæðiskona, sat marga landsfundi flokksins og var óþreytandi að telja upp kosti síns flokks í um- ræðum um þjóðmál. Enga þekki ég sem var fljót- ari að svara fyrir sig með hnyttnum orðum sem ekki gleymdust svo glatt. Það var vel hugsað um Jóhönnu í veikindum hennar og vil ég þakka öllum sem önnuðust hana. Ég bið guð að geyma þig kæra vinkona. María. Blessuð sé minning Jóhönnu Hrafnfjörð, konunnar sem gerði okkur það kleift að flytja úr föð- urhúsum og standa á eigin fót- um. Við vorum þrjár 23ja ára gamlar konur að flytja að heim- an – enginn virtist hafa betri skilning á því en einmitt hún. Við verðum henni ævinlega þakklátar fyrir að hafa leigt okkur fallegu íbúðina að Ás- vallagötu með græna, sanseraða veggfóðrinu og fallegu húsgögn- unum, en þar áttum við vinkon- urnar dásamlegan tíma saman sem batt vináttu okkar órjúf- anlegum böndum. Við litum nokkrum sinnum í heimsókn til hennar á Grund og Jóhanna var alltaf til í smá- spjall um daginn og veginn. Okkur leið afskaplega vel á Ás- vallagötunni og við ræddum oft um það hver okkar fengi að búa í íbúðinni áfram og hver fengi að taka upp eftirnafnið Hrafn- fjörð. Við vinkonurnar munum ávallt hugsa hlýtt til Jóhönnu og með þakklæti í hjarta kveðjum við eiganda fallegu íbúðarinnar sem gaf okkur svo margar gleðistundir. Eva Margrét Kristinsdóttir, Eva María Árnadóttir og Margrét Rós Sigurjóns- dóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinnKomum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, KRISTJÁN PÁLSSON, Grænlandsleið 31, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 1. september. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju fimmtudaginn 8. september kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð hjartveikra barna, s. 552 5744, www.neistinn.is. Erna S. Sigursteinsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir, Hákon Hákonarson, Fríða Kristjánsdóttir, Gunnar Jóhannsson, Sigursteinn Kristjánsson, Gunnhildur B. Ívarsdóttir, Jóhanna Fríða Kristjánsdóttir, Anders Friberg, Kristján Kristjánsson, Hrönn Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ELFA ÓLAFSDÓTTIR, Hraunbæ 150, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 3. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Guðni Sigurðsson, Ólafur Elfar Sigurðsson, Snædís Valsdóttir, Svanborg Þórdís Sigurðardóttir, Óttarr Ólafur Proppé, Sigrún Laufey Sigurðardóttir og barnabörn. Lokað Verslunin er lokuð í dag vegna útfarar ÖNNU BIERING. Blómatorgið Birkimel. ✝ Móðir mín, fv. tengdamóðir, amma og lang- amma, SYLVÍA ÞORSTEINSDÓTTIR hjúkrunarkona, áður til heimilis á Guðrúnargötu 8, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 7. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Haraldur S. Þorsteinsson, Sigrún Hv. Magnúsdóttir, Stefán Hallgrímsson, Óskar Haraldsson, Erla Sylvía Haraldsdóttir, Craniv A. Boyd, Borgar Þór Bragason, Freydís Kneyf Kolbeinsdóttir, Þórunn Sylvía, Þórdís Birna og Ester. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNÍNA MARGRÉT GÍSLADÓTTIR, áður til heimilis í Sóltúni 11, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstu- daginn 2. september. Útförin verður auglýst síðar. Grímur H. Brandsson, Sigríður Ágústsdóttir, Tómas J. Brandsson, Karen Jónsdóttir, Ágústa Brandsdóttir Hummel, Werner Hummel, Guðbrandur G. Brandsson, Arnheiður Vala Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.