Morgunblaðið - 20.09.2011, Qupperneq 1
Í MIÐJU MORGUNBLAÐSINS Í DAG »
Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 220. tölublað 99. árgangur
SIGURÐUR FÉKK
GÓÐA DÓMA
Í ÞÝSKALANDI
MANNFALL
Í JEMEN
STJÖRNUR
VESTRA Í
SVIÐSLJÓSINU
RÁÐIST Á MÓTMÆLENDUR 17 EMMY-VERÐLAUNIN 31TYRKJA-GUDDA 30
Fréttaskýring
eftir Karl Blöndal
Hart var deilt
um vegafram-
kvæmdir og
vegabætur á
Vestfjarðavegi á
fjölmennum
fundi í Bjarkar-
lundi með Ög-
mundi Jónassyni
innanríkis-
ráðherra. Gagn-
rýnt var á fund-
inum að sveitarfélögum bæri að
fara eftir gildandi skipulagi sem
Skipulagsstofnun síðan hafnaði.
Einn fundarmanna líkti málamiðl-
unartillögu ráðherra við kjafts-
högg fyrir Vestfirði. »2
Málamiðlun ráð-
herra vonbrigði
Ögmundur
Jónasson
Tíu erlendir stórmeistarar og tveir
alþjóðlegir meistarar hafa gengið til
liðs við Taflfélag Reykjavíkur (TR).
Margir þeirra eru á lista yfir 100
sterkustu skákmenn heims í dag.
Hinir nýju liðsmenn þessa bráð-
um 111 ára gamla félags eru auk
Karpov og Polgar þeir Vasily Papin,
Vugar Gashimov, Emil Sutovsky,
Gata Kamsky, Juri Kryvoruchko,
Martyn Kravtsiv, Mikhailo Oleksi-
enko, Jan Smeets, Jakob Vang Glud
og Helgi Dam Ziska. Þá hefur Karl
Þorsteins gengið til liðs við sitt
gamla félag.
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, for-
maður TR, sagði þetta vera mikinn
ávinning fyrir félagið. Innganga
hinna nýju liðsmanna yrði mikil
lyftistöng auk þess sem verið væri
að styrkja A-lið TR. Hún sagði að
skákmeistararnir hefðu verið fljótir
að þekkjast boðið um að ganga í
Taflfélag Reykjavíkur. »2
Anatoly Karpov og Judit Polg-
ar eru gengin til liðs við TR
Tólf erlendir skákmeistarar gengu í Taflfélag Reykjavíkur
Anatoly Karpov Judit Polgar
KR-ingum dugði ekki að vera manni fleiri í 75 mínútur gegn Eyjamönnum í
uppgjöri efstu liða Íslandsmótsins í knattspyrnu í gærkvöld. Stórleikurinn
endaði með jafntefli, 1:1, og liðin eru áfram jöfn á toppnum. KR stendur
hinsvegar betur að vígi, á eftir þrjá leiki en Eyjamenn tvo, og er auk þess
með betri markatölu. Guðmundur Þórarinsson úr ÍBV sýnir góð tilþrif en
KR-ingurinn Grétar S. Sigurðarson hefur gætur á honum. » Íþróttir
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson
KR-ingar standa best að vígi eftir jafntefli í Eyjum
Kanadíska fyrirtækið Alterra Po-
wer, áður Magma Energy, sem á
75% hlut í HS Orku, tapaði 21 millj-
ón dollara, 2,4 milljörðum króna, á
ársfjórðungi sem lauk 30. júní s.l.
Gengi bréfa í félaginu hefur lækkað
um 64% frá áramótum.
Í uppgjöri fyrir reikningsárið
2011, sem lauk 30. júní, er afkoma
HS Orku frá 17. ágúst 2010. Sé horft
á allt reikningsárið nemur tap Al-
terra 17 milljónum dollara eða
tveimur milljörðum króna.
Fram kemur í tilkynningu félags-
ins til kanadísku kauphallarinnar að
niðurstöður uppgjörsins endur-
spegli „endurskoðunarflækjur“
vegna mikils vaxtar á árinu 2011. Al-
terra jók hlut sinn í HS Orku og tók
yfir orkufyrirtækið Plutonic á árinu.
Samkvæmt tilkynningunni voru
hlutabréf félagsins í HS Orku færð
niður um 10 milljónir dollara. »16
Alterra færði bréf í
HS Orku niður um
tíu milljónir dollara
HS Orka Alterra á 75% í HS Orku.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Stúdentaráð Háskóla Íslands kann-
ar nú hvort sá möguleiki sé fyrir
hendi að Lánasjóður íslenskra
námsmanna taki upp styrkjakerfi
eins og tíðkast annars staðar á
Norðurlöndum. Meðal hugmynda
ráðsins er að stúdentar fái skattaaf-
slátt fyrstu tvö árin á vinnumarkaði
og að þeir sem ljúka námi á réttum
Stúdentaráð HÍ kannar kosti skattaafsláttar og niðurfellingar skulda Vilja að
námsmenn sem leigja saman á almennum markaði fái allir húsaleigubætur
Hagsmunamál
» Aðkallandi skortur á stúd-
entaíbúðum neyðir fólk út á
dýran leigumarkað.
» Náms- og starfsráðgjafar í
5,75 stöðugildum eiga að að-
stoða 14 þúsund nema Háskóla
Íslands.
tíma fái einhvers konar niðurfell-
ingu skulda.
Miklar skuldaafskriftir
Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður
Stúdentaráðs, segir hugmyndirnar
vel framkvæmanlegar og mun fýsi-
legri fyrir LÍN en skuldaafskriftir
sem séu afar miklar hjá sjóðnum.
Auk lánamála eru húsnæðismál
ofarlega á blaði stúdentaráðs.
Margir búi í dýru leiguhúsnæði því
þeir fái ekki íbúð á stúdentagörð-
um. „Núna eru reglurnar þannig að
þeir stúdentar sem leigja saman á
stúdentagörðum fá allir húsaleigu-
bætur en þegar fólk leigir á al-
menna leigumarkaðnum fær bara
einn leigjenda bætur. Þetta er
nokkuð sem væri auðvelt að breyta
og myndi hjálpa mörgum þar sem
leiguverð er mjög hátt,“ segir Lilja.
MVaxtarverkir »14-15
LÍN skoði styrkjakerfi