Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Launamunur kynjanna hefur aukist,
konur eru óánægðari með launakjör
sín og segja álag í vinnu hafa aukist.
Sífellt fleiri ganga á sparnað til að ná
endum saman. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í nýrri launakönnun
SFR, Stéttarfélags í almannaþjón-
ustu.
Þetta er önnur könnunin á stuttum
tíma sem sýnir fram á verulegan
launamun karla og kvenna, en sam-
kvæmt könnun VR eru konur þar
með um 10% lægri laun en karlar.
Samkvæmt könnun SFR eru kon-
ur í fullu starfi að jafnaði með 24%
lægri laun en karlar í fullu starfi.
Þegar tekið hefur verið tillit til ald-
urs, vinnutíma, starfsaldurs, starfs-
stéttar, menntunar og vaktaálags
stendur eftir 13,2% óútskýrður kyn-
bundinn launamunur.
Það er hægt að laga þetta
„Þetta kemur okkur á óvart og við
erum afskaplega óánægð með þessar
niðurstöður,“ segir Árni Stefán Jóns-
son, formaður SFR. „Ekki síst vegna
þess að við höfum lengi haldið uppi
áróðri um þessi mál og höfum átt við-
ræður við ríkið og ríkisstjórnina um
að fá þau til að grípa til aðgerða. Það
er tilhneiging til að ýta þessum mál-
um inn í nefndir, en aðalmálið er að
gera eitthvað. Þetta er ekkert lögmál
heldur mannanna verk. Það er hægt
að laga þetta en það þarf peninga til
þess. Ég skynja ekki þann vilja sem
þarf til að breyta þessu.“
Árni segir að launamunur karla og
kvenna í SFR hafi minnkað 2008-
2009. Það hafi þó ekki verið vegna
þess að laun kvenna hafi hækkað um-
fram laun karla, heldur hafi laun
karla lækkað umtalsvert. „Núna
virðist þetta vera að fara í sama
gamla farið aftur. Mig grunar að
karlar séu að ná til baka launalækk-
ununum sem urðu eftir hrun.“
Í könnuninni kemur fram að staða
heimila félagsmanna SFR er lakari
en meðal almennings. Rúmlega
þriðjungur félaga í SFR notar
sparifé til að ná endum saman eða
safnar skuldum og hefur þeim fjölg-
að síðan í fyrra. Árni segir þetta mik-
ið áhyggjuefni. „En við höfum líka
áhyggjur af því að fleiri og fleiri séu
óánægðir með sín launamál og að
launaskrið á almennum markaði er
talsvert meira en hjá opinberum
starfsmönnum.“
Fleiri á grunnlaunum
Strípuð grunnlaun eru algengari
en áður, aðallega meðal kvenna.
Þeim konum hefur fækkað sem fá
aukagreiðslur ofan á grunnlaun, en
fjöldi þeirra karla, sem fá slíkar
greiðslur, stendur í stað. Færri kon-
ur fá greidda yfirvinnu en karlar og
þær fá einnig lægri upphæð greidda
að meðaltali.
Launakönnunin var unnin í sam-
starfi við VR og Starfsmannafélag
Reykjavíkur. Bandalag háskóla-
manna, BHM, var ekki aðili að könn-
uninni. „Almennt minnkar óútskýrð-
ur launamunur karla og kvenna með
hærra menntunarstigi, sem þó þýðir
alls ekki að vandinn sé ekki fyrir
hendi,“ segir Guðlaug Kristjánsdótt-
ir, formaður BHM. Hún segir að
launamunur innan BHM tengist að-
allega málaflokkum og stofnunum, á
þann veg að laun fólks í félagsþjón-
ustu séu lægri en fólks í fram-
kvæmdageirum. „Óútskýrður launa-
munur sem aðeins má rekja til kyns
er því jafnvel minna áberandi en
landlægt vanmat á málaflokkum þar
sem konur eru meirihluti starfs-
manna.“
Illa gengur að brúa bilið
Konur í SFR fá 24% lægri laun en karlar Formaður SFR: Launamunur
kynjanna er ekki lögmál heldur mannanna verk Óviðunandi, segir ráðherra
Jafnrétti Ein helsta krafa jafnréttisbaráttunnar er sömu laun fyrir sömu vinnu. Þrátt fyrir áratugalanga baráttu er enn munur á launum karla og kvenna.
Launamunur kynjanna
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Heimild. SFR
Munur á meðallaunum
kynbundinn launamunur Að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma, starfsaldurs,
starfsstéttar og menntunar
kynbundinn launamunur Að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma, starfsaldurs,
starfsstéttar, menntunar og vaktaálags 2010
Þróun heildarlauna 2007 - 2011 innan SFR
2007 2008 2009 2010 2011
Meira misrétti
» Samkvæmt könnuninni
voru meðalheildarlaun karla í
SFR rúmar 394 þúsund krón-
ur en kvenna tæplega 301
þúsund.
» Yfirvinnugreiðslur til karla í
SFR nema um 90 þúsund
krónum á mánuði en konur fá
um 40 þúsund krónur.
» Að mati 60% félagsmanna
SFR hefur álag í vinnu aukist
og eru konur í meirihluta
þeirra sem telja svo vera.
» Í ljósi alls þessa er skilj-
anlegt að karlar séu almennt
ánægðari með kaup sitt og
kjör en konur.
„Við erum alltaf á
vaktinni og mun-
um að sjálfsögðu
leita skýringa á
því hvað það er
sem er að breyt-
ast,“ segir Guð-
bjartur Hann-
esson velferðar-
ráðherra um
niðurstöður
launakönnunar
SFR. „Það er nýbúið að gera kjara-
samninga og við sættum okkur ekki
við þetta.“ Guðbjartur nefnir nokkr-
ar skýringar til sögunnar. „Er það
virkilega þannig að fyrirvinnu-
hugtakið er að koma aftur upp á yf-
irborðið? Eða eru allir þessir sér-
samningar, sem karlar voru með í
meiri mæli en konur fyrir hrun, að
koma aftur upp á yfirborðið? Þetta
verðum við að skoða.“
Lög kveða á um að konur og karl-
ar skuli njóta sömu kjara fyrir sam-
bærileg störf. Er ástæða til að grípa
inn í með einhverjum hætti? „Við
verðum fyrst að finna skýringuna
áður en við getum aðhafst eitthvað,“
segir Guðbjartur. annalilja@mbl.is
Sættum
okkur ekki
við þetta
Velferðarráðherra
hyggst leita skýringa
Guðbjartur
Hannesson
Að meðaltali telja
karlar í SFR
sanngjörn laun
vera 486 þúsund
á mánuði og kon-
um í félaginu
finnst sanngjörn
laun vera 376
þúsund á mánuði.
Þegar fólk er
spurt hvað það
geti gert til að
styrkja stöðu sína á vinnumarkaði
segja konur að þær geti farið í sjálfs-
styrkingu á meðan karlar nefna
frekar námskeið eða þjálfun á við-
komandi starfssviði.
Félagar í SFR eru um 7.000 tals-
ins og eru konur 70% félagsmanna.
Félagið skiptist í tvo hluta, opinber-
an hluta og almennan. Til opinbera
hlutans teljast einstaklingar í þjón-
ustu ríkisins, til almenna hlutans
teljast þeir sem vinna hjá ýmsum
fyrirtækjum sem starfa í almanna-
þágu. annalilja@mbl.is
Munur á
launakröfum
Laun Karlar fá
hærri laun.
Útför Stefáns Guðmundssonar,
fyrrverandi alþingismanns, fór
fram frá Sauðárkrókskirkju í gær.
Stefán var einn af stofnendum
Trésmiðjunnar Borgar hf. á Sauð-
árkróki 1963 og var fram-
kvæmdastjóri hennar 1963-1971.
Hann tók þátt í stofnun Útgerð-
arfélags Skagfirðinga hf. 1968 og
var framkvæmdastjóri þess 1971-
1981. Hann sat í bæjarstjórn Sauð-
árkróks 1966-1982 og í sveit-
arstjórn sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar 1998-2002. Hann var
alþingismaður Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi vestra
1979-1999.
Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson
og sr. Sigríður Gunnarsdóttir jarð-
sungu. Líkmenn voru Guðni
Ágústsson, Þórólfur Gíslason,
Gunnar Bragi Sveinsson, Guð-
mundur Bjarnason, Jón Eðvald
Friðriksson, Ásta Pálmadóttir, Pét-
ur Pétursson og Páll Pálsson. Morgunblaðið/Björn Björnsson
Útför
Stefáns Guð-
mundssonar
Skíðasvæði höf-
uðborgarsvæð-
isins hafa fengið
lánaða snjóbyssu
frá fyrirtækinu
Techno Alpin um
óákveðinn tíma. Í
gangi er frum-
undirbúningur til
að koma snjó-
byssunni fyrir í
Ártúnsbrekku og
er vonast til að
hægt verði að nota snjóbyssuna í
vetur. Enn eru þó nokkrir óvissu-
þættir fyrir hendi.
Að sögn Magnúsar Árnasonar,
framkvæmdastjóra Skíðasvæðanna,
fylgdi enginn kostnaður því að fá
snjóbyssuna að láni, og meira að
segja kostnaður við flutning var
greiddur. Enn á þó eftir að fá ýmis
leyfi sem eru forsenda þess að snjó-
byssunni verði komið fyrir í brekk-
unni.
Kanna snjó-
framleiðslu í
Reykjavík
Hlíðarfjall Snjór
hefur verið fram-
leiddur þar með
góðum árangri.