Morgunblaðið - 20.09.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011
Veður víða um heim 19.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 13 léttskýjað
Akureyri 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 léttskýjað
Vestmannaeyjar 9 skúrir
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 11 alskýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 15 skýjað
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Helsinki 12 skúrir
Lúxemborg 16 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 17 léttskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 16 skýjað
Berlín 17 skýjað
Vín 11 alskýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 26 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 17 þrumuveður
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 17 léttskýjað
Chicago 18 alskýjað
Orlando 29 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:05 19:39
ÍSAFJÖRÐUR 7:08 19:45
SIGLUFJÖRÐUR 6:51 19:28
DJÚPIVOGUR 6:34 19:09
Skagamenn eru að koma upp góðri
aðstöðu fyrir sjósundsfólk fyrir neð-
an knattspyrnustúkuna við Langa-
sand. Stutt er þaðan niður í fjöru og
eins upp í Jaðarbakkalaug.
Sjósunds- og sjóbaðsfélag
Reykjavíkur fór í heimsókn upp á
Akranes á laugardaginn. Lang-
isandur tók á móti gestunum með
frábæru veðri og flottum sjó og öld-
urnar gerðu mikla lukku. Hópurinn,
um 60 manns, lék sér heillengi í öld-
unum og að sögn viðstaddra hefur
sjaldan verið hlegið meira í sjósundi.
Sjósund nýtur æ meiri vinsælda
meðal landsmanna. Félagar í Sjó-
sunds- og sjóbaðsfélagi Reykjavíkur
hafa undanfarin ár æft daglega í
Nauthólsvík. Víða um land hefur að-
staða til að stunda þetta heilsu-
samlega sport verið bætt svo að
fleiri geti tekið þátt. sisi@mbl.is
Sjósunds-
menn
léku sér
í öldunum
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
Íbúafundur um drög að lýðræðis-
stefnu Mosfellsbæjar verður hald-
inn í Bókasafni Mosfellsbæjar í
kvöld, þriðjudag, kl. 20. Þar verða
drög stefnunnar kynnt og fundar-
gestum gefst tækifæri til að ræða
þau og spyrja spurninga.
Síðastliðið haust var stofnaður
starfshópur um lýðræðismál sem í
áttu sæti fulltrúar frá öllum fram-
boðum í bæjarstjórn auk formanns
sem var bæjarstjóri. Hlutverk
starfshópsins var að vinna drög að
nýrri lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar
og reglum um íbúakosningar í
Mosfellsbæ. Gerð var skoð-
anakönnun meðal íbúa um hvaða
aðferðum best er að beita til að ná
betur til íbúa og efla samráð um
hin ýmsu málefni og eru nið-
urstöður hennar birtar á vef Mos-
fellsbæjar.
Nánari upplýsingar um verk-
efnið má finna á www.mos.is/
lydraedisnefnd.
Íbúafundur haldinn
um lýðræðisstefnu
!"#
$ %
&&Næsta námskeið byrjar 21. september 2011
Efnahags- og viðskiptaráðherratelur að Íslendingar þurfi að
tileinka sér meiri yfirvegun í um-
ræðu um erlenda fjárfestingu.
„Við þurfum að forðast að taka á
hugmyndum um er-
lendar fjárfestingar
í einu allsherjar
móðursýkiskasti,“
segir ráðherrann í
umvöndunartóni.
Nú er slæmt aðstjórnarráðslögin nýju skuli
ekki þegar hafa tekið gildi með
ákvæðum sínum um upptökur rík-
isstjórnarfunda, því að ráðherrann
hlýtur að vera að lýsa því sem
gerst hefur á bak við luktar dyr á
þeim samkomum. Í það minnsta
hefur ekki orðið vart við að lands-
menn séu almennt í móðursýk-
iskasti vegna erlendra fjárfest-
inga.
Svo er möguleiki að ráðherrannsé að spinna, sem yrði ekki í
fyrsta sinn. Staðreyndin er sú að
móðursýki hefur ekkert með málið
að gera og þó að ráðherrann kjósi
að tala niður til almennings, þá
vita allir hvað veldur því að erlend-
ir fjárfestar eru farnir að líta á
fjárfestingar hér á landi sem sér-
staklega áhættusamar.
Útlendingar vita að rík-isstjórnin er sérstaklega
fjandsamleg fjárfestum, erlendum
jafnt sem innlendum.
Þeir vita líka að ráðherrar talatungum tveim og bregða fæti
fyrir viðsemjendur sína í bakher-
bergjum.
Það að saka Íslendinga um skortá yfirvegun eða jafnvel um
móðursýki breytir engu um þetta
og hjálpar ekkert við að auka trú-
verðugleika Íslands í augum fjár-
festa.
Árni Páll Árnason
Um móðursýki
spunamanns
STAKSTEINAR