Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands fagnar á þessu ári 30 ára af- mæli sínu en miðað við stærð háskólans í dag og fjölda nem- enda, er erfitt að ímynda sér hvernig stúd- entar komust af áður en þeir gátu leitað til náms- og starfsráðgjafa til að aðstoða sig í gegnum frum- skóg háskólastigsins. Þó er það svo að þeir náms- og starfsráðgjafar NSHÍ sem þjónusta 14 þúsund nemendur háskólans fylla aðeins 5,75 stöðugildi. „Það er full þörf á því að hafa fleiri náms- og starfsráðgjafa við jafn stóran skóla, því þó að stærst- um hluta nemenda gangi bara vel þá takmarkar þetta svolítið það sem er hægt að gera fyrir nem- endur,“ segir María Dóra Björns- dóttir, deildarstjóri NSHÍ. Starfið sé þó engu að síður afar skemmti- legt og gefandi. Hún segir þjónustuna sem NSHÍ veitir nemendum bæði fjölbreytta og yfirgripsmikla. Stundum erfitt að velja „Að sumu leyti er það dálítið bundið tímabilum á árinu hvað er efst á baugi hjá nemendahópnum og undanfarnar vikur hafa til dæmis að miklu leyti snúist um námsvalið,“ segir María. Margir nýnemar skipti um skoðun á náms- valinu yfir sumartímann og eftir fyrstu skóladagana, en valið sé kannski erfiðara nú en oft áður. „Af því að það er búið að vera þröngt um vik á vinnumarkaðinum þá veltir fólk því fyrir sér hvaða möguleika það á að námi loknu. En próf á grunnnámsstigi er sjaldnast bein ávísun á ákveðin störf og það er nú oft hægt að breyta um stefnu og fara í eitthvert annað meist- aranám. Þetta er ekki óhagganleg stefna og það er mikilvægt að nem- endur líti ekki á það þannig,“ segir hún. Þurfa að læra ný vinnubrögð Þegar valið liggur fyrir og há- skólanámið er hafið fyrir alvöru taka stundum annars konar vanda- mál við. „Þegar fólk kemur í nýtt námsumhverfi þá kemur gjarnan í ljós að þau vinnubrögð og aðferðir sem það notaði í framhaldsskóla með góðum árangri ganga ekki upp í háskólanámi. Það er mest- megnis verið að lesa á ensku, les- efnið er mun yfirgripsmeira og prófin lengri. Þá þarf fólk að breyta vinnubrögðunum og skipu- laginu og fleiru,“ segir María. Hún segir það tilfinningu náms- og starfsráðgjafa NSHÍ að fleiri fari nú beint í framhaldsnám að loknu grunnnámi vegna ástandsins á vinnumarkaðnum en í kjölfar hrunsins hafi einnig margir skilað sér í nám sem höfðu ekki hug á því áður. „Fólk er kannski að útskrifast með grunnháskólagráðu og svo þegar ekkert gengur að fá vinnu, fara þeir beint í framhaldsnám sem hefðu annars unnið í nokkur ár áður en þeir héldu áfram námi. Og vegna uppsagna og breytinga á vinnumarkaði, þá hafa sumir grip- ið kærkomið tækifæri til að hefja nám eða bæta við sig námi. Fyrir aðra er námið kannski bara plan b,“ segir hún Alltaf hægt að breyta um stefnu  Náms- og starfsráðgjafar í 5,75 stöðugildum þjónusta 14 þúsund nemendur Háskóla Íslands  Fólk lítur til erfiðra aðstæðna á vinnumarkaði við námsval  NSHÍ á 30 ára afmæli á árinu Morgunblaðið/Eggert Íhugun Gott er að tæma hugann þegar ögrandi verkefni eru framundan. María Dóra Björnsdóttir Fjöldi nema á almennum sviðum háskólastigsins Menntun Hugvísindi og listir Félagsvísindi, viðskipti og lögfræði Raunvísindi, stærð.- og tölvunarfræði Verkfr. framleiðsla og mannvirkjagerð Landbúnaður og dýralækningar Heilbrigði og velferð Þjónusta Alls Konur 1.232 907 1.334 301 90 13 981 0 4.858 Karlar 266 510 1.202 566 347 69 282 0 3.242 Alls 1.498 1.417 2.536 867 437 82 1.263 0 8.100 Konur 2.372 1.598 3.795 483 468 63 1.767 193 10.739 Karlar 478 777 2484 784 953 52 331 60 5.919 Alls 2.850 2.375 6.279 1.267 1.421 115 2.098 253 16.658 Konur 2.208 1.760 4.057 613 534 117 2.170 287 11.746 Karlar 565 1.022 2.740 1.062 1.212 62 340 120 7.123 Alls 2.773 2.782 6.797 1.675 1.746 179 2.510 407 18.869 1997 2007 2010 Á háskólastiginu er nú fjöldi kennslugreina í boði í fjarnámi og Kristín Sigurmundsdóttir, sem bú- sett er í Keflavík, er ein þeirra sem hafa nýtt sér þennan möguleika. Hún stundar nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri í gegnum Mið- stöð símenntunar á Suðurnesjum. „Fjarnámið gerði það að verkum að það varð raunhæfur möguleiki fyrir mig að stunda þetta nám,“ segir Kristín, sem er þriggja barna móðir. „Mér fannst þetta vænlegri kostur en Háskóli Íslands þar sem ég get stundað þetta nám frá minni heima- byggð og það er mun þægilegra en að keyra til Reykjavíkur hvern ein- asta dag.“ Hljóðupptökur mikill kostur Að læra hjúkrunarfræði var gam- all draumur Kristínar en hún er nú á þriðja ári. Hún fylgir sömu stunda- töflu og staðnemar á Akureyri og horfir á fyrirlestra í beinni í símennt- unarmiðstöðinni. Þó er ákveðinn sveigjanleiki til staðar þar sem margir kennaranna taka fyrirlestr- ana upp á hljóðformi og þannig er hægt að hlusta á þá seinna ef eitt- hvað kemur upp á á kennslutíma. Hljóðupptökurnar koma sér einnig vel þegar fjarsendibúnaðurinn klikk- ar. Verklega kennslu, verkefnavinnu og próf sækir Kristín til Akureyrar. „Eina til tvær vikur á önn erum við hérna fyrir norðan og þá er reynt að þjappa eins miklu á þessa daga og hægt er,“ segir Kristín. „Svo erum við í verknámi; ég er að fara á Land- spítalann í haust í þrjár vikur, síðan fer ég á Selfoss í eina viku og svo eru bollaleggingar um að fara til Noregs í skiptinám, sem er mjög spennandi,“ segir hún. Háskólinn á Akureyri sé í norrænu samstarfi við aðra háskóla og nemum á þriðja ári bjóðist að sækja um styrk til að stunda verk- nám í Noregi, Danmörk, Svíþjóð eða Finnlandi. Nám á eigin forsendum Kristín segir það hafa reynst auð- velt að laga námið að fjölskyldulífinu og þar megi ekki síst þakka hljóð- upptökunum góðu, sem hún segir fjarnema sérstaklega þakkláta fyrir. „Maður er orðinn þetta gamall og er í þessu algjörlega á eigin forsendum, fer í þetta sem þroskuð manneskja sem kann orðið að skipuleggja sinn tíma. En þessi sveigjanleiki sem fjar- námið býður upp á er mjög stór kost- ur.“ Kristín segir námið fjölbreytt og bjóða upp á ýmsa möguleika á vinnu- markaðnum. „Hjúkrunarfræðingar starfa mjög víða í þjóðfélaginu, þetta er mjög góður grunnur. Síðan stefni ég á framhaldsnám, fyrst maður er kominn af stað þá stoppar maður ekkert,“ segir hún. Hvaða sérgrein hún hyggist leggja fyrir sig í framtíð- inni verði tíminn hins vegar að leiða í ljós. holmfridur@mbl.is Nemur hjúkrunarfræði við HA frá Keflavík Fjarnemi Kristín Sigurmundsdóttir.  Fjarnám gerði henni kleift að láta gamlan draum rætast „Eftir útskrift úr framhaldsskóla skráði ég mig í nám í sagnfræði við Háskóla Íslands. Ég mætti þó aldrei í neinn tíma í því fagi og skipti strax yfir í japönsku. Á þessum tíma var ég nýlega kom- in heim úr löngu Evrópu- ferðalagi og var frekar óákveðin í því hvað ég vildi læra. Ég fór að vinna og skráði mig ekki aftur í háskólann fyrr en tveimur árum síðar. Þá byrjaði ég aftur í jap- önskunni. Ég hafði mjög gaman af nám- inu en hafði einfaldlega ekki nógu mikinn aga til að sitja yfir bókunum. Ég skipti þá yfir í kynjafræði. Það nám var mjög fróðlegt og spennandi en ég flosnaði engu að síður fljótlega upp úr því líka. Haustið eftir skráði ég mig í stjórnmálafræði og líkaði það ágætlega. Meðfram náminu vann ég í hlutastarfi í miðbænum. Það var svo skemmtilegt að smám saman fór ég að vinna meira og læra minna. Svo fór að ég hætti al- veg í skólanum og fór að vinna. Á þeim tíma steig ég ekki fæti inn á háskólalóð- ina. Mér fannst það að vera alfarið á vinnu- markaðnum vera góð- ur skóli. Einhverjum misserum síðar benti einhver mér á listfræð- ina og eftir smáumhugs- unartíma ákvað ég að slá til. Það stóð nú aldrei til að verða svona af- kastamikill fagaflakkari í háskól- anum. Í samfélaginu hérna er mikil áhersla lögð á menntun og fólk almennt duglegt að sækja nám og bæta við menntunina langt fram á fullorðinsaldur. Svo er það líka þannig að þegar mað- ur klárar framhaldsskóla í kring- um tvítugt er ekki svo mikið framboð af vinnu fyrir mann. Þá er það oft vænlegri kostur að fara í skóla og safna einhverjum einingum, sem vonandi eiga þá eftir að nýtast manni seinna. Eftir að ég byrjaði í listfræð- inni er ég alveg hætt að skipta um fag við upphaf hverrar ann- ar. Það eitt og sér er mjög góður árangur. Ég held líka að fólkið í kringum mig hafi verið orðið ansi þreytt á að spyrja mig í sí- fellu hvað ég ætlaði nú eiginlega að fara að læra núna. Ætli ég sé ekki í eðli mínu mjög fróðleiksfús og áhugasöm um svo marga hluti. Núna er stefnan sett á að klára listfræðina með ensku sem aukagrein. Kröfur um menntun eru alltaf að aukast og ég geri því ráð fyrir að taka mastersgráðu í einhverju list- tengdu fagi. Það verð ég að gera erlendis. Svo hefur það nú reyndar lengi blundað í mér að læra dýralækn- ingar. Kannski skelli ég mér í það við tæki- færi!“ Ég ætla að verða ? þegar ég verð stór  Björk Konráðsdóttir hefur komið víða við á háskólagöngu sinni Björk Konráðsdóttir Vísindin efla alla dáð og nám er vinnandi vegur. En hvað gerist raunverulega að námi loknu á tímum atvinnuleysis og þreng- inga? Fær fólk vinnu við hæfi, eða vinnu yfirhöfuð? Margir virð- ast kjósa að halda beint í fram- haldsnám, heima eða erlendis. Á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.