Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
3
3 7 1 9
1 2 9 6
6 5 2
7 4
4 5 1 9
7 3
3 2 6
9 7 1
2 8 1 6 5 9
6 3 1
2 3 8
9 7
1 8
7 8 5
9
1 6 3 9
5 7 8
9 3
2 8 1 4
8
8 4 9
1 6 7
3 1 5
6 8 7
9
2 1
5 6 8 7 2 3 9 1 4
3 9 2 1 8 4 7 5 6
4 7 1 5 6 9 2 3 8
2 1 5 4 9 8 3 6 7
9 4 6 3 7 2 5 8 1
7 8 3 6 5 1 4 2 9
8 3 7 9 1 5 6 4 2
6 2 4 8 3 7 1 9 5
1 5 9 2 4 6 8 7 3
7 3 6 2 1 8 4 9 5
4 2 1 7 5 9 6 8 3
8 5 9 6 3 4 2 1 7
6 4 7 5 9 3 8 2 1
9 8 2 1 6 7 3 5 4
5 1 3 8 4 2 9 7 6
2 9 4 3 7 5 1 6 8
3 6 5 9 8 1 7 4 2
1 7 8 4 2 6 5 3 9
2 1 4 6 5 9 3 7 8
9 8 5 7 3 2 1 4 6
3 7 6 4 1 8 9 2 5
8 3 9 1 6 4 7 5 2
5 6 2 9 8 7 4 3 1
7 4 1 3 2 5 6 8 9
4 2 7 5 9 1 8 6 3
6 9 8 2 4 3 5 1 7
1 5 3 8 7 6 2 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 20. september,
263. dagur ársins 2011
Orð dagsins: En nú varir trú, von og
kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er
kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.)
Mannanafnanefnd er með virk-ari nefndum hins opinbera og
sendir reglulega frá sér úrskurði
um leyfileg og óleyfileg nöfn sam-
kvæmt íslenskri málfræði og venju.
Sendi nefndin frá sér yfir 30 úr-
skurði á síðasta ári og er komin
með hátt í 20 það sem af er þessu
ári. Í hvert sinn eru tekin fyrir
nokkur nöfn þannig að manna-
nafnaskráin lengist stöðugt. Kennir
þar ýmissa grasa og stundum eru
tekin fyrir nöfn sem næsta ótrúlegt
þykir að nokkrum lifandi manni
kæmi til hugar að nota á barnið sitt.
Víkverji hefur fyrir því óstaðfestar
heimildir að ákveðnir aðilar úti í bæ
dundi sér við að dæla á manna-
nafnanefnd ýmsum nöfnum, að-
allega til að skemmta sjálfum sér og
viðhalda tilverurétti nefndarinnar.
Álitamál um nafngiftir hvítvoðunga
geta ekki með nokkru móti end-
urspeglað úrskurðagleði nefnd-
arinnar. En svo sem ágætt á meðan
einhver skemmtir sér yfir þessu og
fjölmiðlar eru duglegir að tíunda
úrskurðina.
x x x
Það væri óskandi að önnur opin-ber nefnd væri jafn dugleg að
senda frá sér úrskurði, en það er Ís-
lensk málnefnd, sem Víkverji veit
ekki betur en að sé enn starfandi.
Mun gagnlegra fyrir íslenska tungu
er að sú nefnd kveði upp úr með
málnotkun og ambögur sem heyrast
í almennu tali. Nefndin ætti að vera
sýnilegri í umræðunni og senda
meiri fróðleik frá sér og ábend-
ingar. Víkverji óttast að málfar og
íslenskukunnátta sms-kynslóð-
arinnar fari versnandi með hverju
árinu og fyrirmyndir ungmenna
sanna þetta. Þannig sá Víkverji
sjónvarpsviðtal við ungan tónlistar-
mann, Friðrik Dór, sem var að lýsa
því er hann reyndi að ná tali af Eiði
Smára niðri í bæ fyrir nokkrum ár-
um. „Hann nennti mér ekki,“ sagði
Friðrik og var væntanlega að lýsa
því að Eiður hefði ekki virt hann
viðlits. Hvort sem þetta var með-
vituð málvilla hjá Friðriki eða ekki,
þá ætti Íslensk málnefnd að taka
svona ambögur fyrir án tafar og
kæfa þær í fæðingu! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 birki, 4 þrúga, 7
hörkufrosts, 8 fráleitt, 9
doka við, 11 tala, 13 drepa,
14 lygnir, 15 gort, 17 erfitt
verk, 20 ílát, 22 jarðeign,
23 Gyðingar, 24 gyðja, 25
tarfi.
Lóðrétt | 1 bugða, 2 dáin, 3
fæði, 4 afbrotamann, 5
sníkjudýr, 6 hindra, 10
hvetja, 12 rödd, 13 augnhár,
15 málæði, 16 konu, 18
skjóðu, 19 sverð, 20 hafði
upp á, 21 skaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 lostafull, 8 dílum, 9 líkna, 10 ill, 11 útför, 13 ansar, 15
linna, 18 strák, 21 lít, 22 blund, 23 annir, 24 linnulaus.
Lóðrétt 2 orlof, 3 tímir, 4 fella, 5 lokks, 6 edrú, 7 saur, 12 önn, 14
nýt, 15 labb, 16 nauði, 17 aldan, 18 stagl, 19 runnu, 20 kort.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Djassaður bútur. V-Allir.
Norður
♠10432
♥G76
♦65
♣Á984
Vestur Austur
♠D95 ♠G8
♥52 ♥ÁD4
♦KG983 ♦1042
♣D32 ♣KG1065
Suður
♠ÁK76
♥K10983
♦ÁD7
♣7
Suður spilar 1♥.
Austur opnar létt á 1♣ í þriðju
hendi, suður kemur inn á 1♥ og þar
deyja sagnir. Nú er spurningin þessi:
Hefur suður ástæðu til að gráta glat-
að geim eða vinnst bara bútur?
Spilið er frá stuðningsmóti við
landslið opna flokksins, sem haldið
var í Hörpunni á laugardaginn undir
dunandi djasstónlist. Þorlákur Jóns-
son var í suður. Hann tók laufútspilið
með ás og svínaði ♦D. Vestur drap
og spilaði laufi. Þorlákur trompaði,
tók ♦Á og stakk tígul, fór svo af stað
með ♥G. Austur tók með ás og spil-
aði enn laufi. Þorlákur trompaði og
var nú kominn niður á ♥K-10 og einn
tromphund í borði, ásamt með spöð-
unum fjórum. Hann spilaði ♠Á-K og
spaða til vesturs. Og sjá – hjarta-
drottning austurs var flækt í feigð-
arvef.
20. september 1900
Ofsaveður olli slysum og tjóni
á skipum og húsum. Meira en
þrjátíu manns fórust, þar af
drukknuðu átján menn á Arn-
arfirði. Kirkjurnar á Urðum
og Upsum í Svarfaðardal fuku
og brotnuðu í spón.
20. september 1917
Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti að leigja Eimskipa-
félagi Íslands til 90 ára lóð „á
uppfyllingunni“ við Hafnar-
stræti. Þar voru höfuðstöðvar
félagsins í marga áratugi.
20. september 1963
Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti að leyfa kvöldsölu
gegnum lúgu í söluturnum til
kl. 22 og borgarráði var veitt
heimild til að leyfa að hafa
lúgurnar opnar til kl. 23.30.
Afgreiðslutími var gefinn
frjáls rúmum aldarfjórðungi
síðar.
20. september 1995
Ný brú yfir Jökulsá á Dal var
formlega tekin í notkun. Hún
er 125 metra löng og er hærra
yfir vatnsborði en nokkur önn-
ur brú, um 40 metra. Eldri brú
var frá 1931.
20. september 2007
Um fjörutíu kílógrömm af
sterkum fíkniefnum fundust í
seglskútu sem var að koma til
Fáskrúðsfjarðar. „Stærsta
smyglmál Íslandssögunnar,“
sagði Vísir. Sex menn voru
dæmdir fyrir smyglið, einn
þeirra hlaut níu og hálfs árs
dóm.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Edda Borg Ólafsdóttir tónlistarkona ætlar að eyða
afmælisdeginum með fjölskyldunni en hún kom
heim frá Barcelona í gærkvöldi. „Ég er búin að
vera Herbalife-dreifingaraðlili meðfram því að
vera tónlistarkona í gegnum tíðina. Ég var á ráð-
stefnu að kynna mér nýja sportlínu hjá Herbalife
og hvernig ég kem til með að hjálpa íþróttafólki
að ná enn betri árangri,“ segir hún.
Eftirminnilegasti afmælisdagur Eddu er fer-
tugsafmælið fyrir fimm árum. „Sonur minn sem
var þá 9 ára söng mjög erfitt djasslag, I thought
about you, sem Tony Bennet er þekktur fyrir að
syngja, með djasshljómsveit. Ég táraðist og átti ekki orð, það kom
mér virkilega á óvart. Sama kvöld steig eldri sonur minn, þá 16 ára,
upp á svið með MC Gauta og þeir röppuðu fyrir mig við tónlist sem
þeir höfðu búið til úti í skúr. Ég hafði aldrei heyrt hann rappa áður,“
segir Edda en hún á fjögur börn með eiginmanni sínu, Bjarna Svein-
björnssyni bassaleikara. Í staðinn fyrir að halda stóra veislu segist
Edda ætla að halda tónleikaröð þar sem hún syngur djass. „Ég er svo
að fara að halda tónleika á Rósenberg 13. október með toppliðinu í
djassheiminum í dag.“ ylfa@mbl.is
Edda Borg Ólafsdóttir tónlistarkona 45 ára
Synirnir sungu og röppuðu
Hlutavelta
Ragna Guðrún
Guðmundsdóttir og
Marteinn Willam
Elvarsson héldu
tombólu við Skalla í
Árbæ og söfnuðu 3.875
krónum sem þau færðu
Rauða krossinum
til styrktar börnum
í Sómalíu.
Flóðogfjara
20. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.41 1,4 11.11 3,1 17.30 1,6 23.43 2,8 7.05 19.39
Ísafjörður 0.25 1,6 6.48 0,8 13.14 1,7 19.44 0,9 7.08 19.45
Siglufjörður 3.23 1,1 9.04 0,7 15.35 1,2 22.03 0,6 6.51 19.28
Djúpivogur 1.42 0,7 8.07 1,7 14.33 0,9 20.15 1,5 6.34 19.09
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú leggur hart að þér til að ná ár-
angri þessa dagana. Farðu þér hægt og
berðu alla kosti vandlega saman áður en þú
velur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Með því að taka höndum saman við
fólk sem hugsar eins og þú, getur þú gert
stórar breytingar. Samræður við maka þinn
gætu leitt til þess að hann tæki til hendinni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Láttu ekki tilfinningaköst annarra
setja þig út af laginu. Mundu að vinir og
vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur allt sem til þarf til að fram-
kvæma stóra hluti og margir sækjast eftir að
fá að taka þátt í þeim með þér. Sár gróa
hægt og rólega, mundu það.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt þú hljótir ekki verðlaunin, mun það
gefur þér í aðra hönd að hafa átt hlut að máli.
Þér liði miklu betur ef þú hreyfðir þig meira.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú reynir verulega á forystuhæfileika
ykkar. Láttu slag standa því þú munt hugs-
anlega hagnast á aðgerðum þínum. Láttu
engan skemma það fyrir þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það hefur ekkert upp á sig að vera með
stöðuga eftirsjá og sjálfsgagnrýni. Gefðu þér
góðan tíma og þegar ákvörðun liggur fyrir
lætur þú ekkert stöðva þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hindranir á ferli þínum má yf-
irstíga með smá styrk og ákveðni. Gönguferð
í fjöru eða á fjall er allra meina bót.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú skiptir máli að fara varlega og
segja ekki hluti sem þú munt sjá eftir síðar.
Einhver sem þú þekkir gæti líka gengið fram
af þér á einhvern hátt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér er nauðsynlegt að halda þér til
hlés um sinn til að íhuga þinn gang og end-
urnýja orkuna. Gerið upp lítil deilumál eða
gleymið þeim.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vatnsberinn er í toppformi, bæði
að innan og utan. Hæfni þín til að meta feg-
urð, ævintýri, rómantík og gáskafullan leik
með börnum er mikil í dag.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að gefa sjálfum þér hvatn-
ingu. Ekki hika við að sinna rannsóknum eða
leita nýrra lausna við vandamálum.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. O-O
Rge7 5. He1 a6 6. Bf1 d5 7. d3 h6 8.
Rbd2 b6 9. h4 Bb7 10. h5 Dc7 11. c3 O-
O-O 12. b4 cxb4 13. cxb4 Rxb4 14. Bb2
Rec6 15. a3 dxe4 16. Rxe4 Rd5 17. Hc1
f5 18. Red2 Rf4 19. Be5 Bd6 20. Rc4
Bxe5 21. Rcxe5 Hd6 22. Da4 Rd5 23.
Rd4 Rde7 24. Rexc6 Rxc6 25. Rxe6
Dd7 26. Db3 Kb8 27. d4 Ra5 28. Dg3
Hc8
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem fer senn að ljúka í Khanty-
Mansiysk í Rússlandi. Ísraelski stór-
meistarinn Emil Sutovsky (2700) hafði
hvítt gegn rússneskum kollega sínum
Evgeny Vorobiov (2574). 29. Rc5! bxc5
svartur hefði einnig tapað eftir 29…
Dd8 30. He6 Hcc6 31. d5. 30. dxc5 f4
31. Dxf4 Rb3 32. Hcd1 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.