Morgunblaðið - 26.09.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.09.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2011 Ráðherrar ríkisstjórnarinnarhafa verið mjög á faraldsfæti með fríðu föruneyti sínu, sem er fagnaðarefni.    Össur Skarphéð-insson utanrík- isráðherra gerði garðinn frægan á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna í New York um helgina eins og lesa má um í frétt á vef ráðuneytsins.    Þar kemur fram að ráðherrannhafi verið „viðstaddur“ þegar Abbas, forseti Palestínu, hafi ávarpað Allsherjarþingið. Ekki er greint frá því sérstaklega að Össur hafi verið vakandi á meðan Abbas flutti mál sitt, en þó er það alls ekki talið útilokað.    Árni Páll Árnason, efnahags- ogviðskiptaráðherra, gerði enn betur en Össur því að hann flutti ræðu í háskóla í Washington, að því er segir í frétt á vef ráðuneytisins. Þar mun hann hafa miðlað reynslu Íslands í efnahagsmálum af yfir- gripsmikilli þekkingu sinni.    Steingrímur J. Sigfússon, fjár-málaráðherra, fór líka til Washington að því er segir í frétt á vef ráðuneytisins og fundaði hjá AGS. Í fréttinni kemur fram að Steingrími gafst þar tækifæri til að fara yfir forsendur þess að áætlun íslenskra stjórnvalda og AGS heppnaðist.    Ekki síður vel heppnuð og gagn-leg var ferð Jóhönnu Sigurð- ardóttur, forsætisráðherra, til Lísu í Undralandi, þar sem hún útskýrði fyrir Lísu hvernig henni hefði tek- ist að útrýma atvinnuleysi og rífa upp hagvöxt hér á landi. Össur Skarphéð- insson á fundi SÞ. Á milli svefns og vöku víða um heima STAKSTEINAR Veður víða um heim 25.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 8 rigning Akureyri 11 skýjað Kirkjubæjarkl. 9 rigning Vestmannaeyjar 10 skýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 10 skúrir Ósló 13 heiðskírt Kaupmannahöfn 16 heiðskírt Stokkhólmur 16 léttskýjað Helsinki 11 heiðskírt Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 16 skýjað Glasgow 13 skúrir London 20 alskýjað París 25 heiðskírt Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 20 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 22 heiðskírt Moskva 8 skýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 27 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 23 heiðskírt Winnipeg 17 heiðskírt Montreal 21 skýjað New York 25 heiðskírt Chicago 14 alskýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:22 19:17 ÍSAFJÖRÐUR 7:27 19:22 SIGLUFJÖRÐUR 7:10 19:05 DJÚPIVOGUR 6:52 18:47 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, HSS, búast við að nið- urskurður í rekstri næsta árs verði að óbreyttu 70-80 milljónir króna. Þetta kemur fram í pistli forstjóra HSS, Sigríðar Snæbjörnsdóttur, á vef stofnunarinnar. Þar er vitnað til þess að Alþingi vinni nú að fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 2012, sem leggja á fram 1. október nk. Því hafi verið lýst yfir að heilbrigðisstofnanir fái kröfu um niðurskurð upp á 1,5% en það segi þó ekki alla söguna þar sem sú upphæð, sem geymd var frá síð- asta ári, leggist við 1,5%. Því megi búast við 70-80 milljóna króna nið- urskurði, sem fyrr segir. „Það verður ekki þrautalaust að takast á við þetta verkefni, sem mun væntanlega þýða minni þjónustu. Hins vegar má segja að það er ekki endanleg niðurstaða því eins og mörgum er minnisstætt breyttist fjárlagafrumvarpið verulega í með- förum þingsins á síðasta ári,“ segir Sigríður. Aukin sálfélagsleg þjónusta Hún segir starfsemina almennt hafa gengið vel á þessu ári og stefnt sé að því að reksturinn verði í jafn- vægi á árinu. Frá janúar til loka ágúst jókst starfsemin verulega í móttöku hjúkrunarfræðinga á heilsugæslunni, í ungbarnavernd, heimahjúkrun og hjá geð- og sál- félagslega teyminu. Vekur Sigríður athygli á að þar sé kominn sami fjöldi samskipta fyrstu átta mánuði þessa árs og hann var allt árið í fyrra. Fram kemur í pistli Sigríðar að reynt hafi verið að efla þessa geð- og sálfélagslegu þjónustu HSS, enda eftirspurnin mikil. Nú sé unnið að því að bæta þjónustu við unglinga og fullorðna en til þessa hafi verið ein- blínt meira á þarfir barna. „Nokkuð ljóst er að þjónusta í þessum mála- flokki mun aukast á næstunni,“ segir Sigríður ennfremur. Búist við 70-80 milljóna niðurskurði  Aukin spurn eftir geð- og sálfélagslegri þjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Rekstur HSS » Á árunum 2008-2010 minnkaði launa- og rekstrar- kostnaður HSS um 419 millj- ónir kr., nam 1.805 milljónum á síðasta ári. » Á sama tíma minnkuðu framlög af fjárlögum um 277 milljónir, úr 1.990 milljónum árið 2008 í 1.713 milljónir 2010. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Á fimmta aðalþingi Sambands ís- lenskra framhaldsskólanema, gengu þrjú nemendafélög Borgarholts- skóla, Fjöl- brautaskólans við Ármúla og Fram- haldsskólans í Mosfellsbæ í sambandið en þar með eru öll nem- endafélög fram- haldsskóla á Ís- landi gengin í SÍF. Þingið markaði tímamót, segir Andri Steinn Hilmarsson, nýkjörinn formaður sambandsins, en mikill baráttuvilji hafi verið hjá þeim 70 fulltrúum sem sátu þingið og fjöll- uðu um framtíð SÍF og ýmis hags- munamál framahaldsskólanema. En hver eru þessi baráttumál? „Þau eru í rauninni mjög mörg,“ svarar Andri, „en einna helst erum við að berjast á móti þessari forræð- ishyggju sem hefur verið viðvarandi síðustu ár,“ segir hann. Skólameist- arar og stjórnendur hafi meiri af- skipti af nemendafélögunum en þau kæra sig um en árið 2008 hafi verið sett lög þar sem segir að skólameist- ari- eða stjóri sé ábyrgur fyrir nem- endafélögunum. Þessi lög vilji fram- haldsskólanemendur afnema. Of mikil afskipti af nemendum Sem dæmi um ofríki skólastjórn- enda nefnir Andri afskipti af skóla- blöðum og notkun áfengismæla á skólaböllum. „Í sumum skólum er látið blása í mæla til að athuga með ölvun,“ útskýrir hann. Nemenda- félag Fjölbrautaskólans í Garðabæ hafi kært málið en auk þess sem yngri og eldri nemendum sé mis- munað, þ.e. þeir yngri séu látnir blása oftar en þeir eldri, sé ósann- gjarnt að þetta tíðkist í sumum skól- um en ekki öðrum. „Svo er líka búinn að vera mikill niðurskurður í framhaldsskólunum eins og annars staðar og iðnnemar hafa sérstaklega fengið að kenna á honum,“ segir Andri um önnur bar- áttumál. Það hafi ekki farið mikið fyrir umræðu um hvernig niður- skurðurinn í þjóðfélaginu hafi bitnað á þessum hópi. „Það er alltaf verið að passa upp á grunnskólanemana, það er að segja litlu börnin, og háskólana, þá er fólk alveg að koma út á vinnumarkaðinn. En framhaldsskólarnir eru gleymda miðjubarnið,“ segir Andri. „Við viljum í rauninni bara vekja athygli á því að við erum til.“ Framhaldsskólar gleymda miðjubarnið  Öll nemendafélög framhaldsskóla gengin í SÍF  Margvísleg baráttumál Morgunblaðið/Ásdís Framhaldsskólanemar Eru „gleymdu börn“ niðurskurðarumræðunnar. Andri Steinn Hilmarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.