Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 2

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ 07.10.2011 BÍLAR 07 | 10 | 2011 Útgefandi Árvakur Umsjón Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Blaðamenn Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Finnur Orri Thorlacius finnurorri@gmail.com Karl Eskil Pálssonkarlesp@simnet.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók Sigurður Bogi Sævarsson. Prentun Landsprent ehf. Dauðadjúpar sprungur jökla kortlagðar. Mikilvægt forvarnastarf. 12 Leigja út rafmagnsbíla í breiðstrætaborginni. Nýmæli í París. 22 Ökukennsla öðruvísi en áð- ur var. Læra að taka ábyrgð. Læra á erfiðar aðstæður. 16 Réttingamenn þétta rað- irnar. Tangarsókn gegn tryggingafélögunum. 8 B ílamenningin er að breytast. Einu gildir hvað átta horft er til; áherslan er hvarvetna sú að þróa og smíða bíla sem eru minni, ódýrari, nettari og menga minna en þeir sem áður hafa runnið af færiböndum bílaverksmiðja um veröld víða. Útblástur bíla á gróðurhúsalofti er orðinn sáralítill miðað við hvað var, enda er krafa dagsins sú. Með hverri nýrri árgerð og tegund bíla eru stórstígar framfarir í þessa veruna sem eru mjög athyglisverðar. Á Íslandi eru bílar miklu meira en bara far- artæki til að komast milli reita; frá A til B. Hérlendis eru þeir aflvaki skemmtilegrar menningar og sagna. Við þekkjum öll sögur af körlum sem bröskuðu með bíla og létu sér ekki allt fyrir brjóti brenna. Slíkir ævintýramenn eru nú á undanhaldi og aðrar persónur meira áberandi á leiksviðinu. Ung kona, Sif Björk Birgisdóttir, sem opnaði fyrir fáeinum dögum bílasölu við Klettháls í Reykjavík, segir að fyrst sé að læra hverjar séu helstu tegundir bíla og hvaða atriði ráði verðmyndun. Mestu skipti þó samskiptin við fólkið og að skapa við það tengsl sem geti leitt til viðskipta. „Muna eftir því hvenær tiltekinn við- skiptavinur kom við, hvernig bíl hann var að leita eftir og slá svo á þráðinn og færa viðkom- andi þær góðu fréttir að nú sé draumabíllinn kominn og bíði eftir nýjum eiganda,“ segir Sif. Svo eru það stórlaxarnir. Steingrímur Birg- isson rekur Bílaleigu Akureyrar og er með 2.200 bíla í útgerð yfir sumartímann. Hann segir áherslur í sínum ranni hafa breyst talsvert á síð- ustu misserum. „Við tökum mikið tillit til eyðslu eldsneytis og kolefnislosunar,“ útskýrir Stein- grímur og greinir frá því að markmið í sinni starfsemi sé jafnt og þétt dregið úr kolefnislosun. Og veitir víst ekki af, nú þegar markmið stjórnvalda eru æ þyngri skattar á bíleigendur þar sem meginreglan er sú að þeir borga sem menga. En þá gleymist að í strjálbýlu landi á norðurhjaranum þar sem allra veðra er von skiptir Íslendinga öllu að vera á traustum og góðum bílum. Auknar álögur mega aldrei vera á kostnað öryggis, en eins og málum virðist í dag háttað virðist stundum að slíku stefnt. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Atgangur Bílar hafa áhrif á líf okkar með ýmsu mót. Þegar snjórinn fellur hefst mikill atgangur á dekkjaverkstæðum. Það er mikið að gera í mjöllinni, eins og sjá mátti á verkstæði Hölds á Akureyri sl. miðvikudag. Bílarnir, fólkið og allar framfarirnar Aflgjafar aðrir en var. Volvo aðeins sem dísilbíll. 19

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.