Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 8

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 8
Þ að eru óeðlileg afskipti af starfsemi verkstæða, ef tryggingafélög banna mönnum að eiga við þau viðskipti. Þau geta hins vegar bent mönnum á það á hvaða verkstæði óskað sé eftir að gert verði við bílinn enda njóti trygg- ingafélög þar ef til vill sérkjara um viðgerðir. Allir eru þó í raun á svip- uðum töxtum, sem tryggingarnar hafa haft mikil áhrif á. Við viljum að bíleigendur eigi val,“ segir Jón- as Þór Steinarsson, talsmaður Fé- lags réttinga- og málningarverk- stæða. Félagið var sett á laggirnar á sl. ári en að því eiga aðild fulltrúar alls 45 verkstæða þar sem bílar eru réttaðir og málaðir. Talin var, að sögn Jónasar, þörf á stofnun sam- taka sem leggja áherslu á að gæta hagsmuna verkstæða og vera mál- svari þeirra. Óánægja er með sam- skiptin við tryggingafélögin og bendir Jónas á að verkstæðin hafi ekki áhrif á framkvæmd og þróun Cabas tjónamatskerfisins. Fagmenn fái tjónabíla „Kostnaður við varahlutaöflun hef- ur vaxið og notkun á notuðum vara- hlutum hefur aukist. Oft erum við líka að fá óraunhæfar óskir og kvaðir, meðal annars frá trygg- ingafélögum, og einingarverð í við- gerðum hefur ekki verið uppfært í takt við þróun verðlags. Núgild- andi kerfi um burðarvirkismælingu og tjónabíla, eftirlit með tjónabíl- um og ferli þeirra eru atriði sem sí- fellt þarf að skoða. Við höfum líka hamrað á því að hætt verði að bjóða upp tjónabíla sem hver sem er getur fest kaup á. Mikilvægt er að aðeins fagmenn endurgeri tjónabíla enda er viðgerð þeirra vandasöm og allt verður að vera samkvæmt ýtrustu reglum í for- varnaskyni,“ segir Jónas. Margt hefur verið í deiglunni á fyrsta misserunum í starfi Félags réttinga- og málningarverkstæða. Miklu hefur verið áorkað á þessu ári og mörg mál komist á hreyf- ingu. Meðal annars hefur verið útbúið sérstakt gæðakerfi og hald- in námskeið. 90 verkstæði „Verkstæðin verða að geta inn- heimt eðlilegt verð fyrir sína fram- leiðslu,“ segir Torfi Þórðarson hjá Bílastoð í Kópavogi, formaður Fé- lags réttinga- og málningarverk- stæða. „Verkstæðin verða að reikna út sinn kostnað og sjá hver staðan er, en ekki taka við sendingum frá öðr- um. Ekki gengur að allir aðrir hækki og þyki eðlilegt að hækka með gengi og verðlagsþróun. Verk- stæðin verða hins vegar að bera kostnað af hækkun efnisliða án þess að geta rukkað fyrir og í raun að gefa með. Við höfum betri grunn nú en áður til að byggja á og ég tel nauðsynlegt að félagið eflist frekar. Áætla má að það séu kringum 80- 90 verkstæði sem eru aðallega í réttingu og málningu þannig að okkar hlutdeild er orðin veruleg.“ sbs@mbl.is Bíleigendur eigi val um verkstæði Viðgerð Áætlað er að um 500 manns starfi við bifreiðasmíði og málningu. Menn í greininni þurfa að kunna á ýmsu skil en umfram flest annað þurfa þeir að hafa smiðsauga og tilfinningu fyrir góðum vinnubrögðum eins gildir í öllum störfum. Fagmaður Verkstæðin verða að geta innheimt eðlilegt verð, segir Torfi Þórðarson hjá Bílastoð í Kópavogi sem er formaður Félags réttinga- og málningarverkstæða. Tangarsókn gegn trygg- ingunum. Réttingaverk- stæði vilja rétta sinn hlut. Stór atvinnugrein sameinast í einu félagi sem var stofnað á sl. ári. Mikilvægt er að aðeins fag- menn endurgeri tjónabíla enda er viðgerð þeirra vandasöm og allt verður að vera samkvæmt ýtrustu reglum í forvarna Morgunblaðið/Golli Frá árinu 1989 hafa tæplega 300 manns brautskráðst með réttindi bifreiðasmíða og -málara. Annar eins fjöldi manna nam fagið fyrir nefnt ár, einhverjir hafa hætt störf- um, haslað sér völl á öðrum vett- vangi og svo mætti áfram telja. Að öllu samanlögðu má því reikna með að um það bil 500 manns starfi á þessu sviði bíliðna. Þá er nokkur hópur í námi í iðninni við Borg- arholtsskóla en þar eru flestar grein- ar er snúa að bílum kenndar. „Þetta er starf sem býður upp á ýmsa möguleika. Framleiðsla bíla er í mikilli þróun og starfið er fyrir vikið mjög fjölbreytt. Núna þurfa menn til dæmis mjög að tileinka sér þær miklu breytingar sem fylgja raf- magnsbílum,“ segir Torfi Þórðarson sem lauk námi í bifreiðasmíði fyrir bráðum 25 árum. Nam fagið í Sví- þjóð en þegar heim kom hóf hann störf hjá Toyota og var þar í 15 ár og síðan setti hann verkstæðið Bílstoð sem er í Kópavogi á laggirnar. Fimm hundruð manns starfa í faginu Pússað Bifreiðasmíði er starf sem felur í sér margvíslega möguleika. Fram- leiðsla bíla er í mikilli þróun og nú þurfa menn í faginu að fylgjast mjög vel rafbílunum enda fjölgar þeim stöðugt. Með bilaða bíladellu „Þetta er smitandi. Ég er að vísu sá fyrsti í minni fjölskyldu sem starfar á þessu sviði. Synir mínir tveir eru hins vegar með bilaða bíladellu eins og pabbinn. Annar er búinn með nám í iðninni og starfar á rétt- ingaverkstæði Toyota. Hinn lærir fagið í Borgarholtsskóla,“ segir Torfi sem telur mikilvægt að styrkja starfsskilyrði verkstæða sem sinna réttingum og málum. Í dag séu þau í næsta ójöfnum leik gagnvart trygg- ingafélögunum sem eðli málsins samkvæmt stjórni markaðnum. „Stóru verkstæðin sem bílaum- boðin reka eru allsráðandi og hafa komist upp með að stjórna sinni verðlagningu sjálf. Í viðskiptum við tryggingafélögin höfum við sem stöndum að minni verkstæðum og erum kannski með þrjá til fimm karla í vinnu alls ekki þessa sömu stöðu. Þann aðstöðumun er nauðsynlegt að jafna,“ segir Torfi að síðustu. 8 | MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.