Morgunblaðið - 07.10.2011, Síða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
B
ílaleiga Akureyrar er
stærsta bílaleiga lands-
ins með um 2.200 bíla í
rekstri yfir sumartím-
ann. Steingrímur Birg-
isson forstjóri segir að þessi fjöldi
hafi verið svipaður undanfarin tvö
til þrjú ár. „Vertíðin í ár var í raun
aðeins tveir mánuðir, en venjulega
eru mánuðirnir þrír. Júní var hins
vegar frekar dapur en júlí og ágúst
voru ágætir,“ segir Steingrímur.
„Bílaflotinn okkar er fjöl-
breyttur, allt frá litlum fólksbílum
upp í lúxusbíla, enda er góð þjón-
usta og sveigjanleiki okkar að-
alsmerki. Eftir hrun fjölgaði ein-
yrkjum í ferðaþjónustu til mikilla
muna, margar litlar bílaleigur hafa
til dæmis á boðstólum ódýra bíla og
þar með eru ákveðin gæði sett til
hliðar. Þetta getur verið stór-
hættulegt fyrir ferðaþjónustuna og
skaðað hana verulega. Sumir er-
lendir ferðamenn gera sér grein
fyrir þessu, greiða minna og fá
þess vegna ekki eins góða bíla.
Aðrir átta sig ekki á stöðunni og
telja sig oft á tíðum svikna. Þegar
heim er komið segja þeir frá
óánægju sinni á bloggsíðum og öðr-
um miðlum, sem auðvitað bitnar á
allri ferðaþjónustunni.“
Múlakvísl var mikið átak
Mjög reyndi á þjónustu bílaleiga er
vegurinn yfir Múlakvísl rofnaði um
miðjan júlí sem sagt á háannatíma.
Steingrímur segir að strax hafi
verið ákveðið að opna tvær útleigu-
stöðvar eftir að vegurinn rofnaði.
„Við settum upp stöðvar á
Kirkjubæjarklaustri og í Hraun-
eyjum og buðum upp á rútuferðir á
milli þessara staða um Fjallabaks-
leið nyrðri tvisvar á dag. Þannig
gátu okkar viðskiptavinir skilað
bílunum á öðrum hvorum staðnum,
tekið rútuna og fengið nýjan bíl
þegar komið var á leiðarenda. Mik-
ið var í húfi fyrir okkur og ekki síð-
ur viðskiptavinina. Þetta tókst með
samstilltu átaki allra starfsmanna
fyrirtækisins. Ég er viss um að
margir þeirra útlendinga sem lentu
í þessu eiga eftir að koma aftur til
Íslands, enda voru þeir mjög hrifn-
ir af þjónustunni og hvernig brugð-
ist var við á þessum tímapunkti.
Þetta kostaði vissulega sitt, en mun
örugglega skila sér í framtíðinni.“
Mælirinn má ekki sýna of mikið
Steingrímur segir þá breytingu
helsta hafa orðið í starfsumhverfi
bílaleiga á síðustu misserum að í
dag noti bílarnir yfirleitt dísil.
Hlutfallið er um 70% á móti 30%
bensínbíla. Bílarnir megi sömuleið-
is ekki vera of mikið eknir.
„Ef kílómetramælirinn er kom-
inn upp í 70 þúsund fyllist við-
skiptavinurinn tortryggni, þannig
að við kappkostum að halda bíla-
flotanum sem yngstum. Það eru
ekki mörg ár síðan bílaleigur
keyptu ódýra og hráa bíla, en í dag
eru þeir mun betur útbúnir. Við
tökum mikið tillit til eyðslu elds-
neytis og kolefnislosunar þegar
ákvörðun er tekin um bílakaup.
Bílaleiga Akureyrar er eina bíla-
leiga landsins sem er bæði með
gæða- og umhverfisvottun. Mark-
mið okkar er meðal annars að
draga árlega úr kolefnislosun.
Krafa viðskiptavina hefur í raun
alltaf verið einföld, að fá traustan
og góðan bíl og við reynum eftir
megni að uppfylla þær óskir.“
Allir leggjast á eitt
Steingrímur fullyrðir að stærstu
bílaleigur landsins bjóði upp á betri
þjónustu en víðast hvar annars
staðar.
„Já, það leyfi ég mér að gera.
Víða erlendis eru bílaleigur með
„heilagan afgreiðslutíma“, en
hérna leggjast allir á eitt að bjarga
hlutunum ef eitthvað fer úrskeiðis.
Til dæmis ef flugi til landsins
seinkar er einfaldlega beðið, slíkt
gerist ekki oft erlendis. Reyndar er
opið nánast allan sólarhringinn á
Keflavíkurflugvelli yfir háannatím-
ann. Þjónustustig bílaleiga og
reyndar ferðaþjónustunnar í heild
sinni er mjög hátt hérna á Íslandi.
Þess vegna er einmitt svo
skemmtilegt og gefandi að starfa í
greininni,“ segir Steingrímur Birg-
isson, forstjóri Bílaleigu Akureyr-
ar.
karlesp@simnet.is
Ljósm/Karl Eskil Pálss
Flotinn Díselbílar eru orðnir ráðandi í starfsemi bílaleiga á Íslandi, þar á meðal bílaleigu Akureyrar sem er alls með um 2.200 bíl í útgerð sinni. Umhverfissjónarmið eru ráðandi í rekstrinum.
Fljótið Bílaleigur voru í vanda þegar brúna á Múlakvísl tók af sl. sumar. Bílaleiga Akureyrar setti upp leigustöðvar beggja
vegna Mýrdalssands og ófáir létu ferja trukka bíla sína yfir sem leysti mikinn vanda þá fáu daga sem smíði nýrrar brúar tók.
Forstjórinn Steingrímur Birgisson segir þjónustustig bílaleiga á Íslandi mjög hátt.
Ef kílómetramælirinn er
kominn upp í 70 þúsund
fyllist viðskiptavinurinn
tortryggni, segir Stein-
grímur Birgisson hjá
Bílaleigu Akureyrar.
Umhverfisþátturinn
vaxandi í starfseminni.
Markmið okkar er meðal
annars að draga árlega úr
kolefnislosun. Krafa við-
skiptavina hefur í raun allt-
af verið einföld, að fá
traustan og góðan bíl
Krafan er traustur og góður bíll