Morgunblaðið - 07.10.2011, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 07.10.2011, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 H itatölur á Íslandskortinu í veðurfréttatímum sjón- varpsstöðvanna verða senn bláar, enda október runninn upp og allra veðra von á landinu bláa. Starfsfólk bensínstöðvanna er þegar búið að taka fram rúðusköfurnar og dekkja- verkstæði undirbúa komandi vertíð í dekkjaskiptum. Ansi sniðug tæki Stilling selur bílahitara, sem geta verið hentug tæki fyrir þá sem vilja losna við að skafa rúðurnar á köld- um vetrarmorgnum, auk þess sem notalegt er að setjast inn í hlýjan bíl- inn. Og ekki skemmir fyrir að vélin er heit og tilbúinn í vetraraksturinn. „Já, þetta eru ansi sniðug og hent- ug tæki. Við erum með tvenns konar vélahitara, sá einfaldari er frá sænska fyrirtækinu Calix. Tækinu er einfaldlega stungið í samband við heimilisrafmagn og hitarinn sér svo um að halda bílnum heitum og fín- um,“ segir Ísleifur Erlingsson hjá Stillingu hf. „Slíkir hitarar koma í veg fyrir óþarfa slit á vélinni og draga líka verulega úr eldsneytiseyðslu þegar kalt er í veðri. Þægindin við að þurfa ekki að skafa rúðurnar eru líka mikil og svo sest fólk upp í bílinn sinn heit- an, sem auðvitað er mikill plús. Hit- ararnir frá Calix kosta á bilinu 30 til 50 þúsund krónur og það er til- tölulega einfalt að koma þeim fyrir í bílnum,“ segir Ísleifur. Borgar sig á fjórum árum Hin tegund bílahitara sem Stilling er með umboð fyrir er frá þýska fyr- irtækinu Eberspächer, sem er leið- andi á þessu sviði. Hitararnir frá þessu fyrirtæki eru mjög fullkomnir og góðir og kosta 190 þúsund krón- ur. Hitarinn, sem er fyrirferðalítill, samanstendur af brunahólfi, loft- mótor, vatnsdælu, tölvustýrikerfi, slöngum og olíudælu. „Það tekur nokkra tíma fyrir fag- mann að koma hitaranum fyrir í bílnum, en hann er jafnframt hægt að fjarlægja ef til dæmis eigandinn skiptir um bíl. Miðað við verð á elds- neyti í dag er ekki ólíklegt að þessi búnaður borgi sig upp á þremur til fjórum árum. Eldsneytiseyðslan er mikil þegar vélin er ísköld, auk þess sem slíkur búnaður kemur í veg fyr- ir slit á vélum og öðrum búnaði. Al- gengast er að hitarar séu settir strax í nýja bíla, enda í mörgum tilvikum hægt að fá þá sem staðalbúnað, til dæmis í Benz. Alltaf er þó töluvert um að fólk komi og kaupi slíkt tæki til að setja í eldri bíla,“ segir Ísleifur Erlingsson hjá Stillingu. karlesp@simnet.is Tæknin sem heldur bílnum heitum og fínum Morgunblaðið/Sigurgeir S Ylur Bílahitarar eru sniðug tæki og koma sér vel á veturna. Ísleifur Erlingsson heldur á tækinu sem fæst í nokkrum gerðum. Bílahitarar spara elds- neyti og koma í veg fyrir slit véla. Stilling flytur inn tvær gerðir af þess- um tækjum sem eru sannkallað þarfaþing. Slíkur búnaður kemur í veg fyrir slit á vélum og öðrum búnaði. Algengast er að hitarar séu settir strax í nýja bíla, enda í mörgum tilvikum hægt að fá þá sem staðalbúnað Meira í leiðinniWWW.DEKK.IS HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI N1: Fellsmúli 440 1322 | Ægisíða 440 1320 | Bíldshöfði 440 1318 | Réttarháls 440 1326 | Stórihjalli 440 1342 | Dalbraut Akranesi 440 1394 Langitangi Mosfellsbæ 440 1378 | Reykjavíkurvegur Hafnarfirði 440 1374 | Grænásbraut Reykjanesbæ 440 1372 FJÖGUR DEKK, VINNA OG VENTLAR ERU INNIFALIN Í ÖLLUM TILBOÐUNUM* *Tilboðin fást aðeins á hjólbarðaverkstæðum N1 á meðan birgðir endast. Tilboðin gilda ekki með öðrum tilboðum eða afsláttum. VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI Á DEKKJAHÓTELI N1 BÝÐST ÞÉR AÐ GEYMA SUMARDEKKIN GEGN VÆGU GJALDI VR. A97 3100 175/65 R 14 FULLT VERÐ: 62.835 KR. TILBOÐ: 44.900 KR. VR. A97 3102 185/65 R 15 FULLT VERÐ: 71.235 KR. TILBOÐ: 51.900KR. VR. A97 3103 195/65 R 15 FULLT VERÐ: 73.235 KR. TILBOÐ: 54.900KR. VR. A97 3104 205/55 R 16 FULLT VERÐ: 86.940 KR. TILBOÐ: 64.900 KR. VR. A97 3105 225/45 R 17 FULLT VERÐ: 102.460 KR. TILBOÐ: 72.900 KR. VR. A97 3101 185/65 R 14 FULLT VERÐ: 68.035 KR. TILBOÐ: 49.900 KR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.