Morgunblaðið - 07.10.2011, Qupperneq 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ
Viltu aka með hættulegan
farm í Evrópu?
Aflaðu þér réttinda á
ADR-námskeiðum
Vinnueftirlitsins
TOYOTA Avensis stw EXE 2.0.
Skráður 9/2008, ekinn 51 þ.km.
bensín, sjálfskiptur, leður, krókur,
bakkskynjarar. Verð 4.150.000.
Skipti ód. Rnr. 240372.
TOYOTA Rav4 GX.
Skráður 2/2006, ekinn 99
þ.km. bensín, sjálfskiptur. Verð
2.350.000. Skipti ód. Rnr. 116269.
BMW X5 3.0 tdi.
Skráður 8/2007, ekinn 60 þ.km.
dísel, sjálfskiptur, leður, krókur.
Verð 7.390.000. Skipti ód. Rnr.
116288.
NISSAN Patrol GR 35“.
Skráður 11/2006, ekinn 65
þ.km., dísel, sjálfskiptur, sumar
& vetrardekk, krókur. Verð
4.550.000. Skipti ód. Rnr. 115771.
TOYOTA Land Cruiser 120 GX.
Skráður 6/2008, ekinn 69 þ.km.
dísel, sjálfskiptur, húddhlíf, húd-
dmerki, spoiler, krókur. Verð
6.940.000. Skipti ód. Rnr. 121378.
TOYOTA Land Cruiser 120 GX 33“.
Skráður 10/2005, ekinn 71 þ.km,
dísel, sjálfskiptur, krókur, sumar &
vetrardekk á felgum.
Verð 5.350.000. Rnr. 132026.
Toyota Akureyri
Baldursnes 1
Sími 460 4300
www.toyotaakureyri.is
Toyota Akureyri
TOYOTA Yaris Terra 1.0.
Skráður 6/2010, ekinn 35 þ.km.
bensín, 5 gírar. Verð 1.980.000.
Skipti ód. Rnr. 121519.
TOYOTA Prius 1.5 Hybrid.
Skráður 6/2008, ekinn 45 þ.km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.980.000. Skipti ód.
Rnr. 121509.
O
kkur hefur gengið vel
með þennan bíl alveg frá
því hann kom á markað í
byrjun líðandi árs. Að fá
útnefningu sem bíll árs-
ins gaf okkur svo byr í seglin,“ segir
Marinó Björnsson, sölustjóri Heklu
hf. Bandalag íslenskra bílablaða-
manna valdi Volkswagen Passat
Metan á dögunum sem bíl ársins;
það er bestan allra þeirra bíla sem
dómur var lagður á. Einnig voru
veitt verðlaun fyrir efsta bíl í hverj-
um flokki. Í flokki smærri fólksbíla
bar sigur úr býtum Audi A1. Í
flokki stærri fólksbíla var sigurveg-
arinn Volvo S60 og í flokki vist-
vænna bíla Volkswagen Passat Met-
an sem jafnframt varð
hlutskarpastur þeirra allra. Stjórn-
endur Heklu sem hafa umboð bæði
fyrir Volkswagen og Audi mega því
vel við una.
Þegar kreppan svarf að haustið
2008 ákváðu bílablaðamenn að setja
val á bíl ársins á ís. Með vaxandi
sölu bíla þótti hins vegar ástæða til
að taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið.
105 seldir
Alls hafa 105 bílar af Volkswagen
Passat Metan selst á árinu.
Passat Metan er að sögn blaða-
manna rúmgóður bíll, þægilegur í
notkun, vel búinn og veitir fólki sem
í honum er mikla vernd ef slys
hendir. Þetta er verksmiðjufram-
leiddur metanbíll sem ekki er
breytt eftir á. Er drifinn áfram af
innlendum orkugjafa og með há-
marksöryggi. Er góður í akstri og
með aflmikla sparneytna vél.
Sjötta kynslóð í sölu
„Volkswagen Passat hefur fengið
góða dóma alveg frá því bíllinn kom
fyrst á markað fyrir bráðum fjöru-
tíu árum. Sjöunda kynslóðin sem nú
er í sölu er glæsilegur bíll með tilliti
til hönnunar, aksturseiginleika,
sparneytni og öryggis. Þessi við-
urkenning þarf því ekki að koma á
óvart,“ segir Marinó Björnsson um
Volkswagen Passat EcoFuel sem
notar metangas sem aðalorkugjafa
en einnig er hann með 31 lítra bens-
íntak. Hámarksdrægni á metangasi
er um 450 km og 430 km á bensín-
inu. Þannig er hægt að aka 880 km
að hámarki án þess að taka elds-
neyti.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Stálstýri Volkswagen Passat Metan var á dögunum valinn bíll ársins og fengu Heklumenn verðlaunagripinn Stálstýrið. Bíllinn
hefur fengið afar góðar viðtöku á markaði hérlendis. Marinó Björnsson hefur því sannarlega ástæðu til að vera ánægður.
Bíll ársins með byr í seglum
Volkswagen Passat Metan völdu blaðamenn á dögunum bíl ársins á
Íslandi. Rúmgóður og þægilegur. Bílar frá Heklu reyndust mjög sig-
ursælir í valinu. Kemur ekki á óvart, segir Marinó Björnsson sölustjóri.
Er drifinn áfram af inn-
lendum orkugjafa og með
hámarksöryggi. Er góður í
akstri og með aflmikla
sparneytna vél.
Frakkar taka ökufanta engum vettlingatökum eins
og 26 ára maður í Suður-Frakklandi fékk að kenna á
í vikunni. Hann var mældur á 225 km/klst ferð og
varð það til þess að hann var dæmdur í fimm ára
fangelsi.
Lögreglumenn við umferðareftirlit hugðust
stöðva manninn er þeir mældu hann á 156 km/klst
ferð þar sem hámarkshraði er 130 km/klst. Hann
sinnti ekki stöðvunarmerkjum, heldur steig bensín-
ið í botn eftir A6-hraðbrautinni milli Lyon og Parísar.
Lagði lögreglan til eftirfarar og dró ekki saman
þótt hún æki á 225 km hraða. Þung umferð var á
hraðbrautinni þar sem fólk var að snúa heim úr
sumarleyfi og vegna slysahættu hætti lögreglan
eftirförinni. Hún fann bílinn og ökumanninn síðar á
heimaslóðum hans við París.
Er fanturinn loks náðist reyndist hann bæði rétt-
indalaus og á ótryggðum bíl. Hann starfaði sem
sölumaður hjá bílasölu í París. Og aukinheldur kom í
ljós, að þarna var á ferð ökumaður sem áður hafði
verið refsað fyrir akstur án réttinda og m.a. þurft að
bera senditæki á ökkla af þeim sökum svo hægt
væri að fylgjast með ferðum hans. Við það losnaði
hann hálfum mánuði fyrir nýjasta brotið.
Auk þess sem hann þarf að dúsa fimm ár í fang-
elsi – óskilorðsbundið – var bifreið mannsins, þýsk-
ur eðalvagn, gerð upptæk.
agas@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Bíll Hraðakstur getur verið dauðans alvara.
Fimm ár í
steininum