Morgunblaðið - 07.10.2011, Qupperneq 26
E
f einhver áberandi stefnu-
breyting hefur orðið hjá
bílaframleiðendum síðustu
ár hlýtur það að teljast til-
hneiging þeirra til að
minnka vélar í bílum sínum án afl-
minnkunar og að létta þá án þess að
pláss minnki. Bæði þessi atriði ber
reyndar að sama brunni, það er að
uppfylla síauknar kröfur og reglu-
gerðir yfirvalda um eyðslugrennri og
minna mengandi bíla. Þar á hækk-
andi verð á eldsneyti mikinn þátt og
krafa neytenda rímar við kröfur yf-
irvalda.
Sameiginlega hafa lönd Evrópu
gert kröfur á bílaframleiðendur og
sett fram markmið sem þeir allir
þurfa að ná við lækkun eyðslu og út-
blástur mengandi efna. Síðasti kvarði
sem settur var á og allir bílaframleið-
endur keppast við að hlíta nú er
EURO5 staðallinn og næstu staðlar
munu enn þrengja að framleiðendum
og krefjast þess að þeir geri enn bet-
ur á þessu sviði. Sumir hafa reyndar
bent á að of langt verði gengið í kröf-
unum en ekki verður litið framhjá ár-
angrinum sem náðst hefur með
ströngum kröfum hingað til.
Líka í Bandaríkjunum
Meira að segja í Bandaríkjunum
eru fjögurra sílindra vélar orðnar al-
gengastar, en bara fyrir 5 árum voru
6 sílindra vélar í því sæti. Uppáhald
Ameríku í marga áratugi, 8 sílindra
vélin, er á svo miklu undanhaldi að
nú eru færri en 17% seldra bíla þar
með svo stóra vél. Stutt er í að sú tala
fari undir 10%. Þessi afgerandi
breyting hefur t.d. orðið til þess að
eftirspurn eftir bensíni í Bandaríkj-
unum minnkaði talsvert í síðasta
mánuði í samanburði við sama mán-
uð í fyrra. Staðreyndin er sú að bíl-
arnir eyða minna, bílunum er ekki að
fækka eða fólk að aka minna. Sama
er á hvaða bílaframleiðanda er litið,
hver einasti þeirra er að minnka vél-
ar í bíla sína. Það hefur þó ekki orðið
til þess að minnka afl þeirra.
Gott dæmi er ofurbíll BMW, M5
sportbíllinn. Hann hefur undanfarin
ár verið knúinn 10 sílindra vél sem
skilar 500 hestöflum en mun í næstu
útgáfu fá 8 sílindra vél sem skilar 560
hestöflum. Mest munar þar um til-
komu tveggja túrbína ofan á vélina.
Þar kveður við sama tón og hjá
mörgum öðrum framleiðendum,
margir þeirra hafa einmitt gripið til
þess ráðs að setja rafala í snar-
minnkaðar vélar og fá sama eða
meira afl út úr þeim fyrir vikið. Bíl-
arnir léttast mikið og eyðslan snarm-
innkar.
Ótrúleg þróun véla
Mikil þróun hefur átt sér stað í
smíði véla og sú staðreynd að dísil-
vélar eyða almennt minna en bensín-
vélar hefur orðið til þess að augu
framleiðenda hafa enn meira beinst
Audi Þýski eðaljeppinn hefur vakið verðskuldaða athygli. Áætlanir eru
um að næstu kynslóðir bíla þessara gerðar verði að mestu úr áli, magn-
essíum og plastblöndum en þannig má létta bílinn og spara eldsneyti.
KIA Í dag eru að koma á markaðinn stórir fólksbílar, hálfgerðar límósínur, sem eyða ekki nema fimm lítrum á hundraðið
Minni vélar og léttari bílar
Breytt menning í bílaframleiðslu í heiminum.
Eyðslugrennri og minna mengandi bílar. Minni
eyðsla bensínvéla hefur reyndar haldist í hendur við
dísilvélarnar og með ólíkindum hvaða árangri fram-
leiðendur hafa náð, segir Finnur Orri Thorlacius.
26 | MORGUNBLAÐIÐ
Grænu kjör
www.netbilar.is · www.ferdavagn.is · www.sportbilar.is · www.pallbilar.is
#1 í bílum
• Sérkjör fyrir vistvæna bíla
• Lægsta söluprósentan
Bíllinn þinn kostar Netbilar.is Almenn bílasala Sparnaður
með 3,9% söluþ.
0-1.000.000 kr. = 29.900,- kr. m/vsk. 55.000,- 25.100,-
1.000.000-1.500.000 = 39.900,- kr. m/vsk. 73.417,- 33.517,-
1.500.000-2.000.000 kr. = 49.900,- kr. m/vsk. 97.890,- 47.990,-
2.000.000-2.500.000 kr. = 59.900,- kr. m/vsk. 122.362,- 62.462,-
2.500.000-3.000.000 kr. = 69.900,- kr. m/vsk. 146.835,- 76.935,-
3.000.000-3.500.000 kr. = 79.900,- kr. m/vsk. 171.307,- 91.407,-
3.500.000-4.000.000 kr. = 89.900,- kr. m/vsk. 195.780,- 105.880,-
4.000.000-4.500.000 kr. = 99.900,- kr. m/vsk. 220.252,- 120.352,-
Allt að 50% afsláttur
af sölulaunum fyrir græna bíla
Grænu kjör, auka afsláttur af afsláttakjörum Netbíla,
standa til boða við sölu á bílum í útblástursflokkum A – D.
Netbílar vill styðja við fjölgun umhverfishæfari bíla á íslandi og
býður því ný „græn kjör“. Græn kjör standa til boða við sölu á
bílum í útblástursflokkum A, B, C og D (D er ekki grænn bíll
en við bætum þeim flokki inn hjá okkur).
Þetta eru þeir bílar sem eru með 0-140 g losun CO2
á hvern ekinn kílómetra.
Með þessu vill Netbílar stuðla að hagkvæmari rekstri bifreiða, betri
nýtingu eldsneytis og lækka þannig eldsneytiskostnað landsmanna.
Stórlækkað sölugjald
SKRÁÐUBÍLINN
FRÍTT