Morgunblaðið - 13.10.2011, Side 8

Morgunblaðið - 13.10.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011               !" #  $  %  &&Næsta námskeið byrjar 19. október 2011 Er hugsanlegt að Össur Skarp-héðinsson misskilji starfsheiti sitt: Utanríkisráðherra? Heldur hann að það merki utan- ríkis -ráð- herra? Hann eigi að halda sig sem oftast utan lands svo hann uppfylli starfsskilyrði sín?    Hann þýtur á millilanda, við mann og annan og ræðir við starfbræður sína um ESB-umsóknina. Og fréttamiðlar lepja í hvert skipti upp eins og hverja aðra alvörufrétt að viðkomandi gestgjafi „styðji umsókn Íslands“.    Það er löngu komið fram. Það vargert í atkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum. Því að kosta stórfé til að heyra það aftur?    Það hafa engar samninga-viðræður farið fram. Þeir und- irsátar Össurar sem láta til gamans titla sig samningamenn mæta fyrir embættismenn í Brussel sem yf- irheyra þá um hvernig aðlögun gangi, merkja við og skamma upp- burðarlitlu útsendarana ef eitthvað dregst.    Þessir auðmýkingarfundir hafaekkert með „samninga“ að gera.    Enda biður ESB Íslendinganalengstra orða að vera ekki að kalla aðfarirnar samninga, til þess eins að plata fólk.    Sambandið veit sem er að fyrr eðasíðar munu staðreyndir málsins renna upp fyrir öllum nema þeim sem verst eru haldnir.    Og þá verður fáum skemmt. Þámunu fáir „styðja umsóknina“. Össur Skarphéðinsson Utanlands- ráðherra? STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.10., kl. 18.00 Reykjavík 11 alskýjað Bolungarvík 5 rigning Akureyri 4 skýjað Kirkjubæjarkl. 7 rigning Vestmannaeyjar 10 súld Nuuk 0 léttskýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 8 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Stokkhólmur 6 léttskýjað Helsinki 3 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Brussel 15 súld Dublin 17 léttskýjað Glasgow 11 skýjað London 18 skýjað París 16 skýjað Amsterdam 11 skúrir Hamborg 12 skýjað Berlín 11 skýjað Vín 10 skúrir Moskva 7 alskýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 32 heiðskírt Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Róm 22 heiðskírt Aþena 21 léttskýjað Winnipeg 15 skýjað Montreal 15 skýjað New York 15 skýjað Chicago 21 léttskýjað Orlando 28 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:12 18:17 ÍSAFJÖRÐUR 8:22 18:17 SIGLUFJÖRÐUR 8:05 17:59 DJÚPIVOGUR 7:43 17:45 Dagana 13. – 15. október verður opið hús í Höfða í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjevs, leiðtoga Sov- étríkjanna, í húsinu árið 1986. Höfði verður opinn frá klukkan 12 – 16 dagana 13. og 14. október og frá kl. 11 – 16 laugardaginn 15. október. Almenningi gefst þá tækifæri til að skoða þetta sögufræga hús og sjá ljósmyndasýningu frá leiðtogafund- inum fyrir 25 árum. Boðið verður upp á leiðsögn um húsið. Morgunblaðið/Heiddi Opið hús í Höfða Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Hann er ekki gleymdur sá gamli,“ segir Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri á Akranesi, og vísar til gamla vitans á Suðurflös. Vitinn liggur nú undir skemmdum en um er að ræða sögulegt mannvirki sem byggt var árið 1918 eftir teikningu Thorvalds Krabbe, vitamálastjóra og verkfræðings. „Hann er svolítið munaðarlaus. Þetta er bara yfirgefinn viti og sem slíkur ekki á forræði ann- arra en þeirra sem þykir vænt um að viðhalda sögunni,“ segir Tómas Guðmundsson, verk- efnastjóri Akranesstofu. Að undanförnu hefur verið unnið að því að vekja athygli fólks á versn- andi ástandi vitans í von um að styrktaraðilar finnist þar sem viðgerð á mannvirkinu kann að reynast kostnaðarsöm. Að sögn Tómasar er verk- fræðistofa að vinna að úttekt á vitanum og eftir þá vinnu verður hafist handa við að semja grein- argerð sem m.a. verður send til Húsafrið- unarnefndar. „Þetta verður ekki gert öðruvísi en með opinberri aðkomu,“ segir Tómas. Skelfileg umgengni Gamli vitinn á Akranesi hefur ekki verið notaður frá árinu 1947 og segir Tómas hann hafa þurft að þola mjög slæma umgengni í gegnum ár- in. „Akraneskaupstaður hefur skipt þarna um allt gler reglu- lega en einhverjir hafa mikið fyrir því að brjóta þetta gler,“ segir Tómas og nefnir einnig að ljósmyndasýningar, sem haldnar hafa verið árlega í vitanum að undanförnu, hafi margsinnis verið skemmdar af óprúttnum aðilum. Segir hann því nauðsynlegt að almenningur taki höndum saman og láti sig varða bætta umgengni við þetta forna kennileiti Akraness. „Þetta er fyrsti steypti vitinn og maður skyldi ætla að það væri áhugi fyrir því að passa að hann molnaði ekki niður í brimið.“ Ljósmynd/Hilmar Sigvaldason Minnisvarði Gamli vitinn við Akranes var flottari. Hafa ekki gleymt munaðarlausum vita  Bærinn skiptir reglulega um gler en það er jafnoft brotið Árni Múli Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.