Morgunblaðið - 13.10.2011, Page 18

Morgunblaðið - 13.10.2011, Page 18
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þótt vetur konungur sé smám saman að herða tökin á virkjunarsvæðinu við Búð- arháls eru starfsmenn ekkert farnir að slá af. Unnið verður af fullum krafti á tvennum víg- stöðvum í allan vetur en dregið úr jarðvinnu yfir háveturinn. Ekki veitir af ef virkjunin á að komast í gagnið á tilsettum tíma, fyrir lok árs 2013. Orkan fer til að auka framleiðslu á áli hjá Alcan í Straumsvík. Sýnilegasta merki um árstímann er ísinn sem er að myndast á Sultartangalóni. Vet- urinn er þó ekkert farinn að há starfs- mönnum verktaka. Liðlega 250 starfsmenn eru við vinnu á virkjanasvæðinu, flestir á vegum aðal verktakans sem er Ístak hf. Búðarhálsvirkjun er ein stærsta fram- kvæmdin í landinu um þessar mundir. Vatnið leikur á trompet Mesta lífið á virkjanasvæðinu er við Sult- artangalón. Þar rís stöðvarhúsið. Verið er að koma því upp úr jörðinni, ef svo má að orði komast, því það nær 28 metra niður í jörðina og mun aðeins standa um 12 metra upp úr. Jafnframt er verið að gera inntaksmannvirki þar sem tekið er við vatninu úr aðrennsl- isgöngunum og því veitt inn á hverflana í stöðvarhúsinu. Inntakið er mikið mannvirki og flókið í uppsteypu og er stundum líkt við trompet vegna lögunar þess. Vatnið mun leika á þetta hljóðfæri þegar líður á árið 2013. Jarðvegurinn úr stæði stöðvarhússins og inntaksmannvirkja var notaður til að mynda eyrar út í lónið. Þar er athafnasvæði verk- taka og fyllingin er notuð til að beina vatninu úr stöðvarhúsinu á réttan hátt út í lónið. Eiga inni fyrir töfum Ístak hóf framkvæmdir á virkjanasvæðinu í nóvember á síðasta ári. Áður hafði Lands- virkjun unnið að undirbúningi í nokkur ár, meðal annars með því að leggja vegi og brýr og skapa aðstöðu fyrir starfsfólk. Fram- kvæmdir verktakans byrjuðu í hægagangi vegna þess að Landsvirkjun hafði ekki fjár- magnað framkvæmdina en í byrjun febrúar fékkst heimild til að setja allt á fullt. Síðari hluti vetrar var erfiður vegna storma og snjóþyngsla. „Það er almennt orð- ið þannig að ekkert tillit er tekið árstíma í slíkum stórframkvæmdum. En við komumst í gegnum þetta,“ segir Gísli Kristófersson, yf- irverkstjóri hjá Ístaki. „Við munum vinna á fullu í vetur. Það er tafsamt og kostar meira en við verðum að gera það til að halda áætl- un,“ segir Páll Eggertsson, staðarstjóri Ís- Morgunblaðið/RAX Gangamunni myndast Til þess að flýta gerð aðrennslisganganna frá Sporðöldulóni var ákveðið að sprengja frá báðum endum. Göngin eru orðin hátt í hálfur kílómetri að lengd, lónsmegin. Í vik- unni var byrjað að sprengja stöðvarhúsmegin. Eftirlitsmenn Landsvirkjunar litu á aðstæður eftir fyrstu sprengingar. Unnið á tvenn- um vígstöðvum í allan vetur  Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ganga vel  Göng sprengd beggja vegna til að vinna upp tafir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.