Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
taks við Búðarhálsvirkjun. Páll og Gísli segja
auðveldara að verjast vetrarveðrum eftir því
sem byggingunni miðar áfram.
Stöðvarhúsið á að komast undir þak
snemmsumars og Einar Erlingsson, eftirlits-
maður Landsvirkjunar með bygginga-
framkvæmdum, segir að brúin fyrir stöðv-
arhúskranann þurfi að vera kominn upp 20.
júní því þá hefji verktakar véla- og rafbún-
aðar fyrir alvöru vinnu við að setja niður vél-
ar virkjunarinnar. Hann telur að þar sem vel
hafi gengið í sumar eigi verktakinn inni fyrir
því þótt einhverjar tafir verði í vetur.
Brugðist við töfum í gangagerð
Verkið skiptist aðallega í þrennt. Það er
gerð stíflu og inntakslóns og aðrennsl-
isganga, auk byggingar stöðvarhússins og til-
heyrandi mannvirkja.
Göngin liggja frá nýju inntakslóni, Sporð-
öldulóni við Sprengisandsleið, í gegnum Búð-
arháls og að stöðvarhúsinu við Sult-
artangalón. Þetta er fjögurra kílómetra leið
og um 16 m breið göng, sem samsvarar tvö-
földum Héðinsfjarðargöngum, svo dæmi sé
tekið til samanburðar. Byrjað var að
sprengja lónsmegin og eru gangamenn
komnir talsvert á fimmta hundrað metra inn
í hálsinn. Verkið hefur reynst tafsamara en
gert var ráð fyrir. Við því hefur nú verið
brugðist með því að hefja sprengingar á hin-
um endanum, stöðvarhúsmegin. Sú vinna
hófst í vikunni. Eftirlitsmenn Landsvirkjunar
telja að það dugi til að göngin verði tilbúin í
júli 2013 en þá á að hefja flutning vatnsins
vegna prófana á mannvirkjum og vélum.
„Þetta er ekkert sem ógnar verkinu,“ segir
Dagur Georgsson, aðstoðarstaðarverkfræð-
ingur Landsvirkjunar við Búðarháls.
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn við
gangagerðina. Göngin eru sprengd í tveimur
umferðum, nú er unnið í efri hluta hvelfing-
arinnar. Þegar holan nær í gegn verður neðri
hlutinn sprengdur en það tekur mun
skemmri tíma.
Stíflan byggð upp á næsta ári
Inntakslón Búðarhálsvirkjunar er myndað
með tveimur jarðefnastíflum. Kaldakvísl
verður stífluð skammt ofan við ármótin við
Tungnaá og önnur stífla verður á útfalli
Hrauneyjafossstöðvar, svokallaðrar Sporð-
öldukvíslar. Lónið er nefnt Sporðöldulón.
Veita þarf Kölduvísl fram hjá fram-
kvæmdasvæðinu á meðan unnið er að stíflu-
gerðinni. Þá þarf að hækka brúna á Sprengi-
sandsleið og er umferðinni beint annað á
meðan.
Nú er verið að hreinsa stíflubotninn og
búa hann undir gerð stíflunnar. Dagur
Georgsson segir að undirbúningsvinnu ljúki
vor og þá verði hægt að hefja vinnu við
stíflugarðana.
Páll Eggertsson segir að þar sem ekki sé
hægt að vinna við stíflugerðina í vetur dragi
mjög úr jarðvinnuhlutanum upp úr næstu
mánaðamótum.
Jarðvinnan fer á fullt næsta vor enda er
næsta sumar mikilvægasti tíminn við stíflu-
gerðina. Vatni verður síðan hleypt á lónið
smám saman á síðasta ári framkvæmdanna.
Gangsett í lok árs 2013
Fyrirhugað er að gangsetja fyrri hverfil
virkjunarinnar í október 2013 og þann seinni
í desember. Ekkert bendir enn til annars en
að virkjunin komist í fullan rekstur fyrir lok
þess árs, eins og áformað hefur verið.
Morgunblaðið/RAX
Búðarhálsvirkun Starfsmenn Ístaks eru þessa dagana að járnabinda og steypa undirstöður röranna sem leiða vatnið úr inntaksmannvirkjum niður í vélar stöðvarhússins. Stöðin sést fyrir neðan
og lætur lítið yfir sér. Þar er þegar búið að steypa mikið í grunni hússins en það nær 28 metra niður í jörðina og fullklárað stendur það aðeins 12 metra upp fyrir barmana.
Búðarhálsvirkjun
» Virkjunin er rennslisvirkjun sem nýtir
vatn frá Hrauneyjafossstöð og úr Köldu-
kvísl. Virkjað er 40 metra fall á milli
Hrauneyjafoss- og Sultartangastöðva.
» Framkvæmdir hafa staðið yfir í tæpt
ár og þeim á að ljúka í lok árs 2013.
» Heildarkostnaður er áætlaður 26 millj-
arðar kr.
» Inntakslónið við Sporðöldu verður um
7 ferkílómetrar að stærð.
» Vatnið verður leitt þaðan um fjögurra
kílómetra aðrennslisgöng undir Búð-
arháls að sveiflujöfnunarþró og stöðv-
arhúsi við Sultartangalón.
» Í stöðvarhúsinu verða tvær vatnsvélar.
Gert er ráð fyrir að uppsett afl verði 95
MW. Vatnið er síðan leitt út í Sult-
artangalón.
» Orkan verður notuð í álver Alcoa í
Straumsvík. Þar er verið að undirbúa
straumhækkun til að auka framleiðsluna.
Efnisflutningar Eftir sprengingar er stöðugur
straumur bíla með efni út úr göngunum.