Morgunblaðið - 13.10.2011, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til
að greiða 18 ára gömlum pilti á Ak-
ureyri 31 milljón króna í bætur vegna
örorku, sem hann hlaut 11 ára gam-
all. Taldi fjölskipaður héraðsdómur
að starfsfólk Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri (FSA) hefði sýnt af
sér stórkostlegt gáleysi sem olli pilt-
inum bótaskyldu líkamstjóni.
Drengurinn var lagður inn á
sjúkrahúsið árið 2004 með mjög
slæma sýkingu í kvið. Matsmenn,
sem kvaddir voru til í málinu, sögðu
að meðferð drengsins hefði ekki verið
fullnægjandi í hvívetna en um hefði
verið að ræða óvenjuflókið og erfitt
sjúkratilfelli.
Afleiðingin varð sú að dreng-
urinn lenti m.a. í hjartastoppi og var
honum haldið sofandi í öndunarvél í
fimm sólarhringa eftir það. Þegar
drengurinn vaknaði var ljóst að hann
hafði hlotið verulegan heilaskaða.
Hann er með skerta heyrn og sjón,
nær engin tjáskipti við umhverfið,
verulega spastískur og bundinn við
hjólastól. Varanleg örorka hans er
metin 100%.
Landlæknir rannsakaði málið að
frumkvæði spítalans, og niðurstaðan
var sú að læknar hefðu ekki brugðist
starfsskyldum sínum og í framhaldi
þess hafnaði FSA því að greiða pilt-
inum bætur.
Foreldrar piltsins fengu álitsgerð
frá lyfjafræðiprófessor við Háskóla
Íslands, sem komst að þeirri nið-
urstöðu að lyfjameðferð og vökva-
meðferð sjúklingsins hefði ekki verið
í samræmi við eðlilegar verklags-
reglur.
Dómkvaddir matsmenn töldu að
sjúkdómstilfellið hefði verið flókið og
erfitt en meðferðin hefði ekki verið
fullnægjandi. Niðurstaða fjölskipaðs
Héraðsdóms Reykjavíkur var sú að
mistök við lyfjagjöf og hjartahnoð,
og of sein viðbrögð við endurlífgun
sjúklingsins, hefðu valdið honum lík-
amstjóni.
Fáir, jafnvel enginn, er sennilega
akureyrskari í huga Íslendinga en
Ingimar heitinn Eydal tónlist-
armaður. Hann hefði orðið 75 ára í
næstu viku og af því tilefni verða
haldnir afmælistónleikar í Hofi um
aðra helgi. Til stóð að halda eina en
spurn eftir miðum var slík að þeir
verða þrennir.
Tónleikastaðurinn Græni hatt-
urinn heldur áfram að fóðra mús-
íkþyrsta norðanmenn á gæðaefni.
Um síðustu helgi fór Mugison á
kostum – ótrúlegt hvað sá maður
nær góðu sambandi við fólk í salnum
– og nóg verður um að vera um
helgina.
Hljómsveitin Eldberg með Ey-
þór Inga Gunnlaugsson í far-
arbroddi kynnir frumraun sína á út-
gáfutónleikum á Græna hattinum í
kvöld.
Hinir upprunalegu Hvanndals-
bræður, Röggi, Valur og Summi
halda upp á níu ára afmæli hljóm-
sveitarinnar á Græna hattinum með
tónleikum annað kvöldi og á laug-
ardagskvöldið verður Baggalútur
með Októbergleði í tilefni af útgáfu
nýrrar plötu sveitarinnar.
Fær 31 milljón króna bætur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Frábær Tónlistarmaðurinn Mugiso fór á kostum á Græna hattinum um síð-
ustu helgi, bæði í sögum og söng. Hér segir hann eina góða ...
Þess er krafist í
ályktun þings Al-
þýðusambands
Norðurlands um
liðna helgi, að rík-
isvaldið standi við
gefin loforð,
„annars gætu
samningarnir
verið í uppnámi,“
segir í álykt-
uninni. Á þinginu
komu saman tæp-
lega 100 fulltrúar frá öllum stétt-
arfélögum á Norðurlandi. „Nú eru
blikur á lofti. Stutt er í endurskoðun
kjarasamninga og samkvæmt nýút-
komnu fjárlagafrumvarpi er ekki
gert ráð fyrir að ellilífeyrir, ör-
orkubætur og atvinnuleysisbætur
hækki í samræmi við lægstu laun,
eins og lofað var í tengslum við gerð
kjarasamninganna,“ segir í kjara-
málaályktun þingsins.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar-Iðju, segir að ástand at-
vinnumála hafi brunnið á þing-
fulltrúum og ekki síður boðaður nið-
urskurður á heilbrigðisstofnunum.
,,Við stöndum alltaf í þessu sama
og það er farið lengra og lengra. Nú
eru menn komnir fram af brúninni
og ég held að niðurskurðurinn sé
orðinn slíkur að hann sé farinn að
valda skaða,“ segir Björn.
„Það er algjörlega óþolandi að
ráðist sé á grunnstoðir byggðarlag-
anna með þessum hætti. Því er ljóst
að ef fyrirhugaðar aðgerðir ná fram
að ganga mun það leiða til uppsagna
starfsfólks og fólksfækkunar, auk
þess að þrengja verulega að búsetu-
skilyrðum byggðarlaganna til fram-
búðar,“ segir í ályktun þingsins. Er
sú krafa gerð til þingmanna Norður-
lands að þeir beiti sér af alefli fyrir
endurskoðun á fjárheimildum til
heilbrigðisstofnananna.
Samningar í upp-
námi standi stjórn-
völd ekki við loforðin
Björn
Snæbjörnsson
Örn Þórarinsson
Fljótum
Aðalfundur samtakanna Lands-
byggðin lifir var haldinn í Ketilási í
Fljótum um helgina. Í lok fundarins
var Ómar Ragnarsson heiðraður
fyrir langt og mikið starf að land-
kynningu og landvernd. Viðurkenn-
ingin var málverk af Stíflu í Fljótum,
málað áður en hluti landsins fór und-
ir miðlunarlón Skeiðsfossvirkjunar
laust eftir 1940.
Málverkið var gjöf frá Trausta
Sveinssyni og Sigurbjörgu Bjarna-
dóttur á Bjarnargili í Fljótum til
samtakanna og kom það í þeirra hlut
að afhenda gjöfina. Þrátt fyrir að
fundurinn væri fámennur voru líf-
legar umræður, sérstaklega um þá
varnarbaráttu sem landsbyggðin á í
og einnig um þau sóknarfæri sem
felast á landsbyggðinni.
Nýr formaður samtakanna var
kjörinn í fundarlok, Eðvald Jó-
hannsson á Egilsstöðum.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Heiðraður Ómar Ragnarsson tekur við viðurkenningunni.
Landsbyggðin heiðrar Ómar
Vinafélagið blæs til stofnfundar á
stórmóti í skák í tilefni Alþjóðlegs
geðheilbrigðisdags, fimmtudaginn
13. október klukkan 19. Að Vina-
félaginu standa vinir og velunnarar
Vinjar, athvarfs Rauða krossins við
Hverfisgötu, en lokun vofir nú yfir
þessum griðastað mörg hundruð ein-
staklinga, segir í tilkynningu.
Af þessum sökum hafa nokkrir
einstaklingar tekið höndum saman
um að stofna Vinafélagið, og eru allir
hjartanlega velkomnir í félagið.
Markmiðið er að standa vörð um og
efla samfélagið í Vin. Markmið fé-
lagsins er að safna árlega þeirri upp-
hæð, sem þarf til reksturs Vinjar,
fyrir utan starfsmannahald.
Strax að loknum stofnfundi Vina-
félagsins hefst stórmót sem Skák-
félag Vinjar heldur, í samvinnu við
TR, Helli, Skákakademíu Reykja-
víkur og fleiri. Forlagið gefur vinn-
inga.
Tekið verður við skráningum í
Vinafélagið á staðnum. Einnig tekur
Björn Ívar Karlsson við skráningum
í póstfanginu bivark@gmail.com.
Hyggjast bjarga Vin
Stofnfundur nýrra náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga verður hald-
inn 18. október nk. en markmið undirbúningshóps samtakanna er að sam-
eina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem
muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ing-
ólfs. Markmiðum sínum hyggjast samtökin m.a. ná með virkri þátttöku í
umræðum um stefnumótun í umhverfismálum á Suðvesturlandi og með
samstarfi við stjórnvöld um þau mál.
Stofnfundurinn verður í Gaflaraleikhúsinu (áður Hafnarfjarðarleikhús-
inu) og hefst kl. 20:00.
Ný náttúruverndarsamtök stofnuð
–– Meira fyrir lesendur
MEÐAL EFNIS:
Jólahlaðborð á
veitingahúsum.
Jólahlaðborð heima.
Girnilegar uppskriftir.
Fallega skreytt jólahlaðborð.
Tónleikar og
aðrar uppákomur.
Ásamt full af
spennandi efni.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um jólahlaðborð,
tónleika og uppákomur
í nóvember og desember
föstudaginn 28. október 2011
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 24. október.
Jólahlaðborð
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
SÉRBLAÐ