Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
✝ Herdís HelgaHalldórsdóttir
fæddist á Akur-
eyri 21. apríl 1935.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu
á Akureyri 1.
október 2011. Her-
dís var dóttir
hjónanna Halldórs
Aðalsteins Krist-
jánssonar bónda
og Jóhönnu Elínar
Jóhannesdóttur húsfreyju.
Hún var næstelst sex systk-
ina. Eftirlifandi systkini Her-
dísar eru Birna, Björn og
Halldór, öll búsett á Akur-
eyri. Herdís lætur eftir sig
þrjú uppkomin börn. Gunnar
Hafdal, f. 1954, sambýliskona
hans er Hrafnhildur Þórhalls-
dóttir, Elín Sig-
ríður Karlsdóttir,
f. 1959, eigin-
maður hennar er
Sigurður Skúla-
son og Hanna
Karlsdóttir, f.
1972. Herdís læt-
ur einnig eftir sig
sex barnabörn og
átta barnabarna-
börn.
Herdís vann við
margt á sinni lífsleið en lengst
af var hún húsfreyja á Heiða-
rbraut í Þingeyjarsveit og
síðar skólaliði í Reykjavík.
Herdís var búsett í Keflavík
þegar hún lést.
Útför Herdísar fór fram í
kyrrþey frá Akureyrarkirkju
10. október 2011.
Elsku mamma, þú ert farin
og á betri stað eins og þú trúðir
svo innilega. Ég bíð alltaf eftir
að þú hringir eða gangir inn en
því miður í þessu tilfelli er
raunveruleikinn óraunveruleg-
ur. Hvers er að minnast þegar
einhver sem manni þykir meira
vænt um en allt annað í lífinu
fellur frá? Eru það stundirnar
sem hækkað var í útvarpinu,
tekin nokkur dansspor og sung-
ið með? Eru það stundirnar
sem setið var við eldhúsborðið
og spjallað saman eða eru það
stundirnar sem ekkert var sagt
vegna þess að þess þurfti ekki?
Þú varst svo lífsglöð og vildir
hafa mikið um að vera og fullt
af fólki í kringum þig. Að koma
í heimsókn til þín var eins og
að koma á skemmtistað, sjón-
varpið á fullu, útvarpið á fullu
og einhver vinkona í kaffi og
mikið hlegið og gert grín. Þú
hafðir skoðanir á öllu og varst
hrein og bein.
Fráfall þitt skilur eftir sig
stórt skarð sem verður aldrei
fyllt. Ég fékk sent þetta fallega
ljóð eftir að þú kvaddir og mig
langar að láta það fylgja með.
Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu
móður þinnar,
sem mildast átti hjartað og þyngstu
störfin vann
og fórnaði þér kröftum og fegurð
æsku sinnar
og fræddi þig um lífið og gerði úr
þér mann.
Þú veizt, að gömul kona var ung og
fögur forðum,
og fátækasta ekkjan gaf drottni sín-
um mest.
Ó, sýndu henni vinsemd í verki og í
orðum.
Sú virðing sæmir henni og móður
þinni bezt.
Því aðeins færð þú heiðrað og metið
þína móður,
að minning hennar verði þér alltaf
hrein og skír,
og veki hjá þér löngun til að vera
öðrum góður
og vaxa inn í himin – þar sem kær-
leikurinn býr.
(Davíð Stefánsson)
Elsku mamma, þú tókst mig
að þér og ólst mig upp og
vegna þín er ég betri mann-
eskja. Orð munu ekki breyta
því að þú ert farin en þú munt
alltaf eiga stað í hjarta mínu.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
mig og Kristjönu og fyrir það
verð ég þér ávallt þakklát. Ég
mun alltaf sakna þín.
Þín dóttir,
Hanna.
Fyrst þegar ég hitti Dísu þá
varð mér starsýnt á þessa
konu, hún ljómaði öll, var með
mikið af glingri á sér og skær-
an varalit, faðmaði mig þétt-
ingsfast og kyssti þannig að ég
var líka komin með skæran
varalit á mig. Alltaf voru heim-
sóknirnar til hennar Dísu
skemmtilegar og í flestöll skipti
sem ég kom til hennar þá var
hún búin að breyta inni hjá sér
og bæta við skrauti.
Seinustu árin vorum við hjá
þér á jólunum í Keflavík og
vorum við farin að hlæja að því
að á aðfangadag þegar verið
var að elda þá náðum við yf-
irleitt að kalla út Securitas-
kallana því hamagangurinn var
svo mikill við að elda að bruna-
kerfið fór alltaf af stað og
glumdi um alla Suðurgötuna.
Ljósanæturkaffiboðin eru líka
ógleymanleg, það var eins og
þú værir að taka á móti 100
manns í kaffi, það átti sko eng-
inn að fara svangur frá þér.
Þegar þú fluttir á Kirkjuveginn
hringdir þú í mig og sagðir að
næst þegar við kæmum suður
þá fengjum við sko að sofa í
„svítunni“, en svítan var
geymslan hjá Dísu og alveg
yndislegt að sofa þar. Á hverju
ári komstu til Akureyrar og
stoppaðir þá yfirleitt í nokkrar
vikur og hélst til hjá okkur í
Norðurgötunni og yfirleitt
komstu með góða veðrið með
þér því það var alltaf gott veð-
ur hjá þér hvar sem þú varst.
Við áttum yndislega ferð frá
Keflavík til Akureyrar í sumar
þar sem við fórum saman á
bílnum þínum, ég að keyra og
þú sem farþegi, við vorum bún-
ar að hlusta á sama geisladisk-
inn með countryinu 3 hringi og
bara komnar upp í Mosó þegar
ég spurði hvort ekki mætti
skipta um disk. Jú, hvað er
þetta kona, auðvitað get ég
skipt!
Í sumar þá fór ég á Gler-
ártorg og labbaði fram hjá búð
með allskonar glingri og sá
svakalega flottan kertastjaka
og hugsaði með mér þetta er
sko eitthvað handa Dísu, hugs-
aði svo ekkert meira um það.
Nokkrum dögum síðar kemur
þú skælbrosandi og segist sko
verða að sýna mér það sem þú
hafir verið að kaupa, ferð út í
bíl og sækir stóran poka og
tekur upp úr honum kerta-
stjakann sem ég horfði á
nokkrum dögum áður. Það var
greinilegt að ég var farin að
þekkja hvað þér fannst fallegt.
Ég gæti sennilega skrifað
miklu meira því minningarnar
eru margar. Ég veit að það er
stuð hjá þér þar sem þú ert
núna og þangað til við hittumst
aftur þá kveð ég þig með sökn-
uði.
Þín tengdadóttir,
Hrafnhildur.
Elsku amma.
Þú ert yndislegasta amma
sem til er. Það var alltaf gaman
að koma heim til þín. Íbúðin
þín var alltaf skreytt eins og
það væru alltaf jól, seríur,
gerviblóm og óróar. Þegar ég
þurfti að fara í pössun þá stakk
mamma uppá nokkrum mann-
eskjum en ég sagði oftast að ég
vildi að amma mín passaði mig.
Mér finnst gott að við náðum
að vera saman um síðustu jól.
Þú gafst mér hundateppi í
stærsta gjafapoka sem ég hef
séð. Þótt þú sért dáin lifir þú
ennþá í hjartanu mínu. Guð
blessi þig og ég veit að þú fylg-
ist með mér.
Ég elska þig og mun aldrei
gleyma þér, íslandsmeistari.
Þín ömmustelpa,
Kristjana.
Herdís Helga
Halldórsdóttir
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Skálalækjarás 3, fnr. 229-2188, Skorradal, þingl. eig. Magnús E. Bald-
ursson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf., mánudag-
inn 17. október 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
12. október 2011.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Laugaból 1, 123691, Mosfellsbæ, þingl. eig. Bær ehf., gerðarbeiðandi
Íslandsbanki hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 14:30.
Leifsgata 28, 200-8897, 50%, Reykjavík, þingl. eig. Lísa Kristjánsdóttir,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., mánudaginn 17.
október 2011 kl. 10:00.
Reykjavegur 54, 208-4305, Mosfellsbæ, þingl. eig. Eyjólfur Óli
Jónsson, gerðarbeiðendur Avant hf.,Tollstjóri og Vátryggingafélag
Íslands hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 14:00.
Sólheimar 14, 202-1399, Reykjavík, þingl. eig. Heiða Steingrímsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vörður tryggingar hf.,
mánudaginn 17. október 2011 kl. 11:30.
Sólheimar 24, 202-1449, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Hannes
Vilhjálmsson, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda,
mánudaginn 17. október 2011 kl. 11:00.
Stórholt 24, 201-1585, Reykjavík, þingl. eig. Örn Árnason, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:30.
Urðarholt 4, 208-4570, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hugi Freyr Valsson,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 17. október 2011 kl.
13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
12. október 2011.
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógar-
hlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Asparfell 12, 205-1958, Reykjavík, þingl. eig. Bólstaður ehf.,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 17. október 2011 kl.
10:00.
Ásland 18, 208-2810, Mosfellsbæ, þingl. eig. Jóhann Guðmundur
Guðjónsson, gerðarbeiðandi Mosfellsbær, mánudaginn 17. október
2011 kl. 10:00.
Birkiteigur 3, 227-7116, Mosfellsbæ, þingl. eig. GÖH ehf.,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 17. október
2011 kl. 10:00.
Blikastaðavegur 2-8, 229-7084, Reykjavík, þingl. eig. Stekkjarbrekkur
ehf., gerðarbeiðandi Framkvæmda- og eignasvið Reykja., mánu-
daginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Brúarvogur 1-3, 230-9730, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. þb.
Skúlagata 30 ehf., bt. Ástráðs Haraldssonar, gerðarbeiðandiTrygg-
ingamiðstöðin hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Bræðraborgarstígur 18, 200-1110, Reykjavík, þingl. eig. Miðsvæði ehf.,
gerðarbeiðendur Drómi hf. v/SPRON, Reykjavíkurborg og Vörður
tryggingar hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Bugðulækur 3, 201-6652, Reykjavík, þingl. eig. Irma Sjöfn Óskars-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Stafir lífeyrissjóður,
mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Dalaland 11, 203-6772, Reykjavík, þingl. eig. Birgir Örn Birgisson,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 17.
október 2011 kl. 10:00.
Dvergholt 6, 208-3339, Mosfellsbæ, þingl. eig. Sigurður Bjarki
Magnússon, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 17.
október 2011 kl. 10:00.
Efstasund 3, 201-8016, Reykjavík, þingl. eig. Rafnkell Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 17. október 2011 kl.
10:00.
Eirhöfði 12, 204-2860, Reykjvík, þingl. eig. Dominium hf., gerðar-
beiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Engjavegur 10, 223-2763, Mosfellsbæ, þingl. eig. Guðrún Ólöf
Jónsdóttir og Michael Valdimarsson, gerðarbeiðandi Kaupthing
mortgages Fund, mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Fannarfell 2, 205-2384, Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur Bergmann
Pálsson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 17.
október 2011 kl. 10:00.
Fálkagata 25, 202-8689, Reykjavík, þingl. eig. Röstí ehf., gerðar-
beiðandi Landsbankinn hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Fálkagata 28, 202-8541. Reykjavík, þingl. eig. Jón Hafþór Þórisson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 17. október 2011 kl.
10:00.
Fiskislóð 45, 228-4614, Reykjavík, þingl. eig. VASA ehf., gerðarbeið-
andi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Fiskislóð 45, 231-2210, Reykjavík, þingl. eig. VASA ehf., gerðarbeið-
andi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Grettisgata 44a, 200-7903, Reykjavík, þingl. eig. Þórdís Bjarnadóttir,
gerðarbeiðandi NBI hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Hvassaleiti 24, 203-1604, Reykjavík, þingl. eig. Árni Björgvinsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg, mánudaginn
17. október 2011 kl. 10:00.
Kistumelur 6, 231-2607, Reykjavík, þingl. eig. Kistumelur ehf.,
gerðarbeiðandi NBI hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Kistumelur 6a, 204158, Reykjavík, þingl. eig. Kistumelur ehf.,
gerðarbeiðandi NBI hf., mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Kringlan 4-6, 222-0523, Reykjavík, þingl. eig. Uppistaðan ehf.,
gerðarbeiðandi Rekstrarfélag Kringlunnar, mánudaginn 17. október
2011 kl. 10:00.
Laugavegur 76, 200-5414, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Elva
Vilhjálmsdóttir, gerðarbeiðandi NBI hf., mánudaginn 17. október 2011
kl. 10:00.
Markholt 17, 208-3887, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hilmar Bergmann,
gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Mávahlíð 20, 203-0195, Reykjavík, þingl. eig. Ásgerður Pálsdóttir,
gerðarbeiðandi Arion banki hf, mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Miðleiti 4, 203-2598, Reykjavík, þingl. eig. Josephine Gonzales
Leosson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 17. október
2011 kl. 10:00.
Skúlagata 60, 200-9642, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Viktorija
Virsilaite, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 17. október
2011 kl. 10:00.
Tunguháls 8, 223-7730, Reykjavík, þingl. eig. AMG Byggingafélag ehf.,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 17. október 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
12. október 2011.
Raðauglýsingar 569 1100
Elsku amma mín, nú ertu
komin í faðm afa og allra engl-
anna á himnum.
Allar okkar stundir saman
munu lifa í minningu minni að ei-
lífu, allar þessar stundir okkar
eru mér dýrmætar. Ég minnist
þess að alltaf þegar ég vaknaði
hafðir þú cheeriosið tilbúið á eld-
húsborðinu með skeið og öllu
nema mjólkin var í ísskápnum og
ég spurði: „Af hverju helltirðu
ekki mjólkinni í líka?“ Væntan-
lega af því að þú gerðir allt klárt
kvöldið áður. Í dag geri ég oft
það sama fyrir börnin mín.
Þú varst svo dugleg og góð
amma, þú gerðir allt sjálf, baðst
aldrei um hjálp og bara gerðir
hlutina með hörku og dugnaði.
Ég hefði viljað kynna þig fyrir
börnunum mínum og leyfa þeim
Guðrún A.
Bæringsdóttir
✝ Guðrún Bær-ingsdóttir
fæddist 24. desem-
ber 1928 í Hnífsdal.
Hún lést á Land-
spítalanum 28.
september síðast-
liðinn.
Guðrún var jarð-
sungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju 7.
október 2011.
að eyða með þér
meiri tíma.
Á jólunum send-
irðu alltaf pakka og
minnist ég þess að
þú pakkaðir alltaf
svo vel inn öllum
gjöfum að það tók
óratíma að opna þá!
Alltaf varstu svo
stríðin og brosmild
en um leið ströng
og ákveðin.
Þegar ég kom í heimsókn til
þín með börnin mín ljómaðir þú
öll upp og ég sá hversu dýr-
mætir þessir tímar voru þér. Ég
vildi óska þess að við hefðum
getað átt fleiri svona stundir
saman.
Þegar þú lást veik á spítalan-
um daginn áður en þú fórst frá
okkur opnaðir þú augun og
brostir breitt til Emmu Karenar,
yngstu dóttur minnar, og purr-
aðir til hennar eins og þú gerðir
alltaf þegar þú sást börnin. Þú
alveg elskaðir að hitta þau og
knúsa. Alveg ómetanlegar stund-
ir og yndislegar vel geymdar
minningar.
Ég elska þig og sakna þín.
Hvíldu í friði elsku amma. Takk
fyrir allt.
Kveðja,
Halldór Sveinn og börn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein",
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar