Morgunblaðið - 13.10.2011, Page 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
2 5 8
2 4 9
5 3 1
9 2 5
8 3 4
3 5 4 6
9 3
8 2 6 9
1 2 8
1 8 6
5
9 2 7
2 4 9 1
7 6 1 8
9 4
2 4 7 5
8 6 7
4 9
2 8
9 5 1
6
9 6 4
7 2 8
4 5 3
6 4 9
7 6
2 1 8
8 7 3 6 9 4 1 2 5
1 5 9 7 8 2 4 3 6
4 6 2 1 5 3 7 9 8
6 2 1 8 4 5 3 7 9
9 3 5 2 6 7 8 4 1
7 4 8 9 3 1 6 5 2
2 9 4 3 1 6 5 8 7
3 1 7 5 2 8 9 6 4
5 8 6 4 7 9 2 1 3
1 6 4 3 7 5 8 2 9
3 5 9 2 1 8 7 6 4
8 2 7 9 4 6 3 5 1
5 3 6 4 8 2 1 9 7
7 4 2 1 3 9 6 8 5
9 1 8 6 5 7 4 3 2
2 7 3 8 9 1 5 4 6
4 9 1 5 6 3 2 7 8
6 8 5 7 2 4 9 1 3
4 3 7 6 2 1 8 9 5
1 6 5 4 9 8 3 2 7
8 9 2 5 3 7 6 1 4
5 2 6 3 4 9 7 8 1
9 1 3 8 7 6 5 4 2
7 8 4 1 5 2 9 6 3
6 4 8 7 1 3 2 5 9
3 5 9 2 6 4 1 7 8
2 7 1 9 8 5 4 3 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 13. október,
286. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji fylgist með bókamess-unni í Frankfurt úr fjarska.
Þýskir fjölmiðlar hafa farið mikinn
vegna hátíðarinnar. Í Die Welt segir
að í upphafi hafi ákvörðunin um að
Ísland yrði í heiðurssessi í Frank-
furt vakið furðu í Þýskalandi og
menn hafi spurt sig hvar 320 þúsund
manna þjóð ætlaði að finna nógu
mikið af bókum til að kynna á mess-
unni. Á Íslandi hafi þó fáir orðið
hissa. Íslendingar fylgist reyndar
með meistaradeild Evrópu og Beð-
málum í borginni eins og aðrir, en
séu þó enn þjóð, sem skrifar og les.
x x x
Um 200 íslenskar bækur koma útí Þýskalandi sérstaklega í til-
efni af bókastefnunni. Þessa dagana
má lesa umsagnir um íslenskar
skáldsögur og bækur, sem ekki eru
allar nýjar af nálinni. Í Die Welt
birtist 1. október löng umsögn um
Alþýðubók Halldórs Laxness, sem
er nýkomin út í þýskri þýðingu. Bók-
in er ekki sögð bókmenntalegur
gimsteinn á borð við Íslandsklukk-
una, en hún beri sínum tíma vitni og
sé auk þess heimild um höfundinn.
Höfundurinn taki að sér að reyna að
hífa Íslendinga upp á sitt andlega
plan og útskýra samtímann í marx-
ískum anda, en bókin sé um leið
mjög persónuleg og þrátt fyrir oft
brattan tón verði lesandinn nánast
hrærður við lesturinn.
x x x
Í sama blaði er fjallað um 79 afstöðinni eftir Indriða G. Þor-
steinsson, sem nú kemur út á þýsku,
en kom upphaflega út hér 1955. Bók-
in er sögð fyrsta „stórborg-
arskáldsaga“ Íslands. Náttúran víki
fyrir ónáttúrulegum rafmagns-
ljósum borgarinnar. Skáldskapur
Indriða er sagður minna á Hem-
ingway og sagan sé svo „dásamlega
borgarleg og svöl að frekar minni á
stemminguna í frönskum noir-
myndum sjötta og sjöunda áratug-
arins, en bók frá norðurhluta Skand-
inavíu“. Ekki gerist mikið í bókinni,
en „ástarþjáningin“ sé þar sett fram
af slíkum grundvallartilvistarþunga
að hún skelli á lesandanum „eins og
kylfuhögg“. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þreifa á, 4 and-
spænis, 7 undirokað, 8 álit-
leg, 9 eldstæði í smiðju, 11
ský, 13 urgur, 14 bjarta, 15
þakklæti, 17 vitleysa, 20
reiðikast, 22 meyr, 23 hár,
24 glatað, 25 sveiflufjöldi.
Lóðrétt | 1 sverleiki, 2
skips, 3 ójafna, 4 endavegg-
ur, 5 borguðu, 6 dregur, 10
hróður, 12 ílát, 13 óhrein-
indi, 15 nafntogað, 16 hella,
18 heimild, 19 skil eftir, 20
hlassið, 21 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 afturhald, 8 vakur, 9 langt, 10 als, 11 lónar, 13 teina, 15
hjall, 18 saggi, 21 orm, 22 liðug, 23 ámuna, 24 manngildi.
Lóðrétt 2 fákæn, 3 urrar, 4 helst, 5 lindi, 6 hvel, 7 átta, 12 afl, 14
efa, 15 hóll, 16 auðna, 17 login, 18 smári, 19 grund, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Eigi skal gráta …
Norður
♠DG74
♥K632
♦D7
♣Á86
Vestur Austur
♠85 ♠10963
♥G1094 ♥--
♦K106 ♦G9853
♣DG104 ♣9732
Suður
♠ÁK2
♥ÁD875
♦Á42
♣K5
Suður spilar 6♥.
Líkur á því að fjögur tromp varn-
arinnar sitji öll á sömu hendi eru ná-
kvæmlega 10%. Ekki mikið, en hver
spyr að tíðni þegar staðan kemur
upp. Þá gildir að safna liði.
Suður tekur laufútspilið með kóng
heima og býst við léttu verki – taka
trompin og leggja upp. En austur
neitar að fylgja lit í hjartaásinn.
Það er ótímabært að gefast upp,
því ef vestur á ♦K til hliðar við
trompslaginn má skipta við hann á
sléttu. Suður tekur toppana í tromp-
inu, hreinsar út laufið og spilar síðan
háspöðum. Vestur er illa endaspil-
aður ef hann trompar, enda þarf
hann þá að spila frá ♦K eða laufi í
tvöfalda eyðu. Betri vörn er að
henda tveimur tíglum og láta sagn-
hafa giska í lokin. En ♦10 er afhjúp-
andi.
13. október 1845
Ofviðri rauf þak af Bessa-
staðakirkju og skemmdi
glugga í skólahúsinu á staðn-
um. „Þótti furða að menn
sköðuðust eigi,“ segir í Annál
nítjándu aldar.
13. október 1952
Veturliði Gunnarsson listmál-
ari vísaði listfræðingi út af
sýningu í Listamannaskál-
anum. „Einsdæmi í sögu
Reykjavíkur,“ sagði Þjóðvilj-
inn. „Feikileg aðsókn“ var að
þessari fyrstu einkasýningu
Veturliða að sögn Morg-
unblaðsins, á fimmta þúsund
manns, og 74 myndir voru
seldar.
13. október 1987
Kýr synti yfir Önundarfjörð,
frá Flateyri að Kirkjubóli í
Valþjófsdal. Hún hafði verið
leidd til slátrunar en reif sig
lausa og lagðist til sunds. Kýr-
in hét Harpa en eftir afrekið
var hún kölluð Sæunn.
13. október 1992
Haukur Morthens söngvari
lést, 68 ára. Hann var einn ást-
sælasti dægurlagasöngvari
þjóðarinnar í nær hálfa öld.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ólafur Flosason fæddist 13. október árið 1956 og
er því 55 ára í dag. Hann er tónlistarmaður, bóndi,
hestaferðafrömuður og kennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar. Þar mun hann einmitt eyða afmæl-
isdeginum við kennslu á blásturshljóðfæri. „Ég
veit ekkert um það hvernig deginum verður ann-
ars eytt. Þú verður eiginlega að hringja í konuna
mína. Þetta er hennar deild. Hún kannski hendir í
eina hjónabandssælu,“ sagði Ólafur í gær þegar
hann var spurður hvernig hann ætlaði að eyða af-
mælisdeginum. „Það verður enginn tími fyrir
veislu en kannski heldur maður upp á afmælið síð-
ar. Það er samt aldrei að vita nema einhver kíki í kaffi. Það er nú sið-
ur í sveitinni að það er ekkert verið að bjóða í afmæli, menn bara
mæta í kaffi ef því er að skipta,“ segir Ólafur sem hefur lítið haldið
upp á afmælin sín í gegnum tíðina. „Ég var með mikla veislu þegar ég
varð 25 ára og ég held að það sé sú afmælisveisla sem stendur upp úr.
Ólafur óttast það ekki að eldast, finnst meira spennandi að verða
sextugur en aftur fertugur ef það væri í boði. „Ég vil miklu frekar
eldast heldur en að yngjast, ég myndi ekki nenna að vera einhvers-
staðar þar sem ég er búinn að vera.“ ingveldur@mbl.is
Ólafur Flosason er 55 ára
Vill frekar eldast en yngjast
Hlutavelta
Karla Anna Karls-
dóttir, Marý Guðleif
Karlsdóttir, Silja Maren
Björnsdóttir og Sóley
R. Unnarsdóttir héldu
tombólu við verslun
Samkaupa í Hrísalundi
á Akureyri og söfnuðu
1.000 krónum sem þær
styrktu Rauða krossinn
með.
Flóðogfjara
13. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.46 0,5 6.51 4,0 13.02 0,5 19.06 3,8 8.12 18.17
Ísafjörður 2.52 0,3 8.50 2,1 15.11 0,3 21.01 2,0 8.22 18.17
Siglufjörður 4.59 0,2 11.08 1,3 17.16 0,2 23.36 1,2 8.05 17.59
Djúpivogur 4.07 2,2 10.22 0,4 16.19 2,0 22.24 0,4 7.43 17.45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Láttu ekki atburðarásina kippa undan
þér fótunum heldur haltu þínu striki ótrauð/
ur. Þú eignast góðan vin.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Himintunglin gefa í skyn að traust sé af
skornum skammti í dag. Gerðu það sem þú
getur til að forðast ágreining í fjölskyldunni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er hætt við að einhvers konar
deilur komi upp á milli þín og maka eða náins
vinar í dag. Þú ert skynsemin uppmáluð í
búðunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Samskipti þín við fjölskylduna eru
kraftmikil og skemmtileg. Leggðu þitt af
mörkum til samkomulags. Láttu ekkert verða
til að egna þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vertu bjartsýn/n og láttu vol annarra
engin áhrif á þig hafa. Flýttu þér hægt því til-
boðin eru margvísleg og margt er að varast í
þeim efnum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Margir sem hafa fengið óskir sínar
uppfylltar, gera lítið úr þeim við aðra. Láttu
ekki endalaust segja þér fyrir verkum, vertu
þinn eiginn herra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú er nú nokkuð laus við tafir seinustu
mánaða. Ræddu við ættingja og fegraðu
hreiðrið þitt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Gættu þess að leggja vel við
hlustir í öllum samskiptum þínum við aðra í
dag. Reyndu að lyfta þér upp ef kostur er. Frí
er framundan.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ástvinir þarfnast þín – mjög svo.
Leggðu allt í sölurnar svo þú getir eignast
það sem þú þarfnast mest.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gættu þín á að vera ekki stutt/ur í
spuna. Trú þín á það góða mun koma þér og
þínum á hærra plan.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þig langar til að brjótast út úr viðj-
um vanans. Staðan er sú sama og hún var í
gær og hún verður eins á morgun, nema þú
takir til hendinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur lagt óvenju hart að þér sl.
mánuð. Líttu málin raunsönnum augum og
þá sést að flest er í lagi þó einhverjar krónur
vanti í budduna.
Stjörnuspá
Helgi Axel
Davíðsson, Vog-
um, er 90 ára í
dag. Hann verð-
ur að heiman á
afmælisdaginn.
90 ára
1. c4 e5 2. g3 Rf6 3. Bg2 d5 4. cxd5 Rxd5
5. Rf3 Rc6 6. O-O Rb6 7. Rc3 Be7 8. Hb1
O-O 9. b4 Bf5 10. b5 Rd4 11. d3 Dd6 12.
Rxd4 exd4 13. Bf4 Dd7 14. Ra4 Rd5 15.
Be5 a6 16. Bxd4 axb5 17. Rc5 Bxc5 18.
Bxc5 Rc3 19. Dc2 Rxb1 20. Bxf8 Hxf8
21. Hxb1 c6 22. a4 bxa4 23. Dxa4 He8
24. Bf3 h6 25. Da7 He7 26. Dc5 He8 27.
Db4 He7 28. Ha1 He8 29. Ha7 Hb8 30.
Df4 Hc8 31. Db4 Hc7 32. Dc5 Hc8 33. d4
Be6 34. e4 Hd8 35. Ha4 b5 36. Hb4 Bc4
37. d5 cxd5 38. exd5 Df5 39. Bg2 Dd3 40.
h3 Ha8 41. Hb2 g6 42. De3 Dd1+ 43.
Kh2 Ha1 44. f4 Bxd5 45. Hd2
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga sem lauk fyrir skömmu í Rogaska
Slatina í Slóveníu. Bjarni Jens Krist-
insson (2033) hafði svart gegn hinum
hollenska Freddie Van Der Elburg
(2221). 45… Dh1+! og hvítur gafst upp
enda mát í næsta leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.