Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 Pétur Blöndal pebl@mbl.is Stundin var hjartnæm þegar Sigurður Guð- mundsson á Goðafossi og Horst Korske loft- skeytamaður á þýska kafbátnum U-300 hittust á bókastefnunni í Frankfurt í gær, féllust í faðma og táruðust. Korske var í áhöfn þýska kafbátsins er hann sökkti Goðafossi í Faxaflóa 10. nóvember ár- ið 1944. Þetta er í fyrsta skipti sem menn úr áhöfnunum hittast og var varla þurr hvarmur í salnum í íslenska skálanum. Tilefnið var blaðamannafundur sem haldinn var til að kynna bókina Goðafoss, sem kom út á þýsku í gær. Höfundar bókarinnar eru Óttar Sveinsson og Stefan Krücken og er hún byggð að hluta á bók Óttars Útkall – árás á Goðafoss. Ekki fór á milli mála að mikill áhugi er á bókinni, íslenski skálinn troðfullur af erlendum fréttamönnum og fólki úr útgáfuheiminum. Áður hafði Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra flutt ræðu, þar sem hann talaði um mikilvægi skilnings og fyrirgefningar: „Við þekkj- um öll af sögum hversu erfitt það er að upplifa svona atburði.“ Leikarinn Joachim Krol las úr bókinni ásamt Thomas Böhm, þýskum bók- menntaráðunauti Sögueyjunnar Íslands. „Þetta var óendanlega hjartnæm stund,“ sagði Óttar Sveinsson. „Báðir mennirnir táruðust. Ég er í raun búinn að bíða eftir þessu augnabliki í átta ár og það var augljós vinskapur sem myndaðist. Ég vonast til að þetta styrki vinskapinn milli Ís- lands og Þýskalands – verði tákn um ævarandi vinskap.“ Og það er táknrænt að höfundarnir koma frá Þýskalandi og Íslandi. „Þegar við hittumst í fyrsta skipti leið mér eins og við hefðum þekkst lengi, hann væri eldri bróðirinn sem ég eignaðist aldr- ei,“ segir Stefan Krücken um samstarfið við Ótt- ar. „Við eigum svo margt sameiginlegt, við vorum báðir í lögreglufréttum, ég í Chicago og hann í Reykjavík, rekum útgáfufyrirtæki, fengumst við svipuð bókarefni – og svo erum við með sömu hár- greiðsluna!“ Ekki þurr hvarmur í salnum  Tæp sjötíu ár eru liðin frá því þýskur kafbátur sökkti Goðafossi  Tveir úr áhöfnunum, Íslendingur og Þjóðverji, hittust í fyrsta skipti á bókastefnunni í Frankfurt í gær þegar bók um þennan hörmulega atburð kom út á þýsku Morgunblaðið/Kristinn Höfundarnir Óttar Sveinsson og Stefan Krücken með bókina Goðafoss í Frankfurt í gær. Sigurður Guðmundsson var háseti á Goðafossi þegar skipið var skotið niður. Eins og fram kom á blaða- mannafundinum var stýrimaður Eymundur Magnússon, afi blaða- manns, báðir björguðust þeir úr lífsháskanum og Sigurður byrjar strax að tala um þá vináttu: „Hann var vinur minn, við vorum alltaf saman á vakt og meira að segja eftir að skipið var skotið nið- ur, þá hringdi hann í mig og sagði: „Siggi, veistu að ég þarf að fara til Halifax með Fjallfossi, mig vantar háseta, geturðu komið með mér?““ – Varstu annars hættur á sjón- um? „Nei, svo vantaði Eimskip líka háseta á leiguskip. Og þá endaði stríðið – á leiðinni út til New York.“ – Þetta var hjartnæm stund þeg- ar þú hittir Korske? „Já, maður var búinn að brynja sig fyrir þessu, en svo kemur þetta yfir mann,“ segir hann og verður aftur klökkur. „Maður getur ekkert gert að því.“ Svo vendir hann kvæði sínu aftur í kross. „Hann var fínn, afi þinn. Svoleið- is menn og Sigurður Gíslason hefðu átt að fá fálkaorðu. Það eru menn sem unnu fyrir henni. Þeir voru hetjur, leiðbeinendur sem hvöttu menn áfram sem urðu smeykir; það var eins og þeir byggju yfir þeim krafti að geta alltaf talað kjarki í alla.“ Er ekki reiður – Hvernig leið þér að hitta Korske? „Það var svolítið erfitt, en ég er feginn að ég skyldi hitta hann fyrst hann er á lífi, því ég heyrði að hann hefði verið leiður út af þessu fólki sem fórst. Ég gat sagt honum að ég væri honum ekki reiður, hann var bara að vinna sínu vinnu – en kannski hef ég ekki átt að vera þarna. Við vorum ekki í stríði.“ – Hefur verið erfitt að sætta sig við þennan atburð? „Ég skal segja þér, að ég var nú ekki nema átján ára gamall þegar þetta gerðist, búinn að sigla í þrjú ár og sjá sitt af hverju. Ég var orð- inn ansi brynjaður fyrir þessu öllu, hélt að ég kynni ekki að hræðast, og svo ýtti ég þessu bara frá mér þegar atburðurinn hafði átt sér stað. En svo þegar við hittumst í dag, þá hálfdatt maður niður.“ Enn fer hann að tala um afa blaðamanns: „Þetta var fínn kall. Ég þekkti líka Þóru ömmu þína. En við sigld- um svo lengi saman. Hann dró mig á vaktir með sér. Einu sinni vorum við á fjögur- til átta-vaktinni, ég var á útkíkki og hann niðri, og það var skal ég segja þér búið að skjóta niður þrjú eða fjögur skip í röðinni fyrir framan okkur. Þá kalla ég til Eymundar: „Það er bara eitt skip eftir þar til röðin kemur að okk- ur.“ Eymundur svaraði: „Siggi minn, við skulum bara vona að þeir verði búnir með torpídóin þegar að því kemur.“ Ég var ekki nema gutti og þegar hann tók þessu svona, þá gerði ég það bara líka.“ – Hvar varstu þegar Goðafoss varð fyrir tundurskeytinu? „Ég skal segja þér, að ég var uppi í bátnum að sækja föt handa fólki sem við höfðum bjargað og læknishjónin voru að hjálpa. Það hafði allt brunnið, því sjórinn log- aði þegar það synti í sjónum. Og þá sá ég tundurskeytið koma, kallaði upp í brú til stýrimannsins, því oft gátu skip sveigt frá, en það var ekki möguleiki í þessu tilfelli. Svo veit ég ekki fyrr en ég ranka við mér niðri á dekki, rotaður. Þá hélt ég bara áfram að gera það sem mér var sagt að gera, bjarga fólki og koma út flekum. Það voru sex flekar á skipinu og þrír flekar ónýtir, þeir höfðu brotnað, þetta voru tréflekar í járnramma með sex tómum tunnum í.“ – Hvernig náðirðu að lifa af? „Ég var í sjónum, synti á eftir fleka og annar til og við vorum eiginlega að geispa golunni. Okkur var farið að líða afskaplega vel og var orðið alveg sama, en svo tókst þeim að koma út drifakkeri, það stöðvaði rekið á flekanum og þá náðum við honum. Ég held að við höfum báðir séð himnaríki, við sáum birtu framundan og þá leið okkur báðum vel. Maður skilur það ekki alveg.“ Morgunblaðið/Kristinn Ég held við höfum báðir séð himnaríki Nær sjö áratugum síðar Það var hjartnæm stund þegar Sigurður Guðmundsson, sem var skipverji á Goðafossi, og Horst Korske loftskeytamaður hittust. Miklar vinsældir hágæðaútsendinga Metropolitan-óperunnar í New York í kvikmyndahúsum víða um lönd skila óperuhúsinu góðum tekjum. Á síðasta ári námu tekjurnar af út- sendingunum um 11 milljónum dala, um 1,2 milljörðum króna. Óperusýningum hefur nú verið varpað til kvikmyndahúsa í fimm ár og samkvæmt frétt The New York Times gerðu þessar tekjur af út- sendingunum félaginu kleift að koma út á sléttu í ár. Er það talsvert önnur staða en hjá hinu fornfræga óperuhúsinu í New York, City Opera, sem hrökklaðist í fyrra frá Lincoln Center, heimili sínu til margra ára, nær gjaldþrota. Rekstrargjöld Metropolitan í ár nema um 325 milljónum dala og er hún dýrasta menningarstofnun Bandaríkjanna. Meira en helming rekstrarfjárins, 182 milljónir dala, fékk óperan í framlög frá vild- arvinum og eru það helmingi meiri styrkir en hún fékk í fyrra. Bíóóperur styðja reksturinn AP Í Metropolitan Reksturinn er dýr en bíóútsendingar afla tekna. Kristinn E. Hrafnsson myndlist- armaður opnar í dag, fimmtudag, sýningu í Ganginum, heimagalleríi Helga Þorgils Friðjónssonar mynd- listarmanns. Á sýningunni eru graf- íkverk, ljósmyndir og skúlptúrar. Gangurinn er á Rekagranda 8 og hefst opnunin klukkan 17. Allir eru velkomnir. „Þetta eru smærri verk sem hafa orðið til samhliða öðrum og stærri verkum, eiginlega öll á þessu ári,“ segir Kristinn og bætir við að Helgi Þorgils sé sýningarstjórinn. „Hann tók þau verk sem hann vildi á vinnu- stofunni minni. Hugmyndalega tengjast þessi verk þó öll sterkum böndum. Ég sýni líka í fyrsta skipti hálfgert „ready-made“ verk.“ Kristinn E. í Ganginum Sýnir grafík, ljós- myndir og skúlptúra Harpa Arnar- dóttir, leikkona og leikstjóri, heldur á morgun, föstudag, fyr- irlestur í Ket- ilhúsinu í Lista- gilinu á Akureyri. Fyrirlesturinn hefst klukkan 14 og er öllum opinn. Í fyrirlestr- inum litast Harpa um í ljósaskipt- unum þar sem mætast lífið og listin og innri veruleikinn reynir við þann ytri. Harpa nam myndlist við MHÍ og útskrifaðist úr Leiklistarskóla Ís- lands 1990. Hún á að baki fjöl- breyttan feril sem leikari, leikstjóri, tónlistarmaður, kennari og farar- stjóri. Fyrirlesturinn er hluti af fyrir- lestraröð listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri og Menn- ingarmiðstöðvarinnar í Grófargili. Harpa í ljósa- skiptunum Harpa Arnardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.