Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Náttúra, tónfræði, vísindi, nám og
leikur renna saman í eitt í tónvís-
indasmiðju reykvískra grunnskóla-
barna sem hófst í fyrradag í tónlist-
arhúsinu Hörpu, í tengslum við verk
Bjarkar Guðmundsdóttur, Biophiliu.
Smiðjan er samstarf Bjarkar, Há-
skóla Íslands, Reykjavíkurborgar og
Iceland Airwaves-tónlistarhátíð-
arinnar en hljómplata Bjarkar, Bio-
philia, kom út 10. október sl. Platan
er aðeins brot af verkinu Biophiliu,
þverfaglegri margmiðlunartilraun
sem sameinar vísindi og listir, til-
gangurinn að skilja í stærra sam-
hengi tengsl manns og náttúru.
Grunnskólanemar notast m.a. í
smiðjunni við iPad-spjaldtölvur sem
hafa að geyma sérstök Biophiliu-
„öpp“, forrit hönnuð sérstaklega fyr-
ir Björk og gera notendum kleift að
móta heim Biophiliu með sínum
hætti, „öpp“ sem eru þau fyrstu sinn-
ar tegundar í heiminum. Tón-
menntakennarar, náttúrufræðikenn-
arar, skólahljómsveitarstjórar og
vísindamenn og kennarar úr Háskóla
unga fólksins í HÍ sjá um að leiða
nemendur um tónheim Biophiliu í
sérhönnuðum vísinda- og tón-
fræðismiðjum. Börnin sem sækja
smiðjuna eru 48, á aldrinum 10-12
ára en smiðjan stendur yfir í fjórar
vikur og er börnunum skipt niður á
þær í fjórum hópum.
Umfjöllunarefnin eru engan veg-
inn einföld. Ekki er nóg með að börn-
in þurfi að takast á við flókinn heim
tónlistar heldur einnig vísindatengd
fyrirbæri á borð við svarthol, vírusa,
möndulhalla og erfðaefni. Þó var
ekki að sjá neinn óróa eða kvíða í
andlitum þeirra barna sem sátu önn-
um kafin með spjaldtölvur í Hörpu í
gær þegar blaðamann bar að garði.
Sköpunarþörfin réð ríkjum.
Stjórnandi smiðjunnar er mynd-
og tónlistarmaðurinn Curver Thor-
oddsen en Guðrún Bachmann, kynn-
ingarstjóri hjá Háskóla Íslands, hef-
ur umsjón með þeim hluta sem snýr
að vísindum. Blaðamaður settist nið-
ur með Curver og Guðrúnu í gær og
ræddi við þau um þessa merkilegu
smiðju.
Ný gerð tónlistarskóla
„Í byrjun er þetta hugmynd frá
Björk. Það hefur lengi blundað í
henni að reyna að búa til eins konar
tónlistarskóla sem er meira spont-
ant, með meiri áherslu á sköpun
þannig að þú þurfir ekki að læra full-
komlega alla tónfræði áður en þú
getur farið að semja lög,“ segir Cur-
ver um tilurð smiðjunnar. Smiðjan
gangi út á sköpun fyrst og fremst og
fari fram samhliða Biophiliu-
tónleikum en þeir fyrstu hér á landi
voru haldnir í gærkvöldi í Hörpu.
Curver segir tónlistina á Biophiliu
innblásna af fyrirbærum úr nátt-
úrunni og vísindum. „Platan er mjög
rík að þessu. Hvernig verður raf-
magn og eldingar til? Hvernig virka
vírusar? Björk notar þessi element
og fjallar um þetta,“ segir hann. Mik-
il rannsóknarvinna búi að baki hjá
henni og vangaveltur um útgáfu-
form. „Hún vildi stækka einhvern
veginn formið þannig að þessi plata
kemur líka út sem „app“, eða „við-
rit“. Þetta er fyrsta „viðrita“-platan í
heiminum, fyrsta „app“-albúmið sem
gefið er út,“ bendir Curver á. Enginn
hafi áður gefið út sambærilega plötu
og útgáfunni fylgi tvö element, vís-
inda- og tónfræðielement. „Þetta
notum við sem útgangspunkt hjá
okkur í smiðjunni, þessi „öpp“ til að
geta sameinað þetta en auðvitað eru
aðrir hlutir sem tengjast henni líka.“
Guðrún segir þau element sem
Björk vinni með mjög skýr, þekkt
vísindahugtök sem vísindamenn á
vegum Háskóla Íslands vinni út frá í
smiðjunni. Í Háskóla unga fólksins
hafi vísindum verið miðlað til ung-
menna og því hafi hún getað leitað til
góðs hóps vísindamanna sem hafi
þjálfun í því að miðla flóknum heimi
vísindanna til ungmenna með ein-
földum og skapandi hætti. Þetta fólk
hafi sest niður með Björk og mótað
það hvernig þessi kennsla eða miðlun
færi fram í smiðjunni, hvernig hægt
væri að tvinna saman saman tónlist-
ina og vísindi. „Það er líka gríðarleg
sköpun í vísindum. Listir og vísindi
eiga alveg ótrúlega mikla samleið,“
segir Guðrún. Vísindamennirnir sem
leiðbeini í smiðjunni njóti þess að fá
að vinna með færu tónlistarfólki og
-kennurum og hugmyndaríkum
börnum. Þá njóti þeir ekki síst þess
að taka þátt í stöðugri leit Bjarkar að
nýjum leiðum. „Þessi börn eru að
læra með sköpun og upplifun, í raun
að nýta öll skynfærin til að læra.“
Ný aðferð
-Haldið þið að hér sé á ferðinni ný
aðferð við tónlistarsköpun?
„Mér skilst það á tónmenntakenn-
urunum að þetta hafi ekki verið gert
áður. Það eru til alls konar hug-
myndir, fræði og skólar um hvernig á
að kenna börnum en þetta er frekar
nýstárlegt, þessar spjaldtölvur og
hvernig er verið að keyra saman
þessa tvo hluti og nota sköpun sem
rannsóknaraðferð,“ segir Curver.
„Þetta er ný aðferð við að reyna að
koma börnum í gang með sköpun, að
skoða heiminn og upplifa.“ Komið sé
að tónlistarsköpun frá nýrri hlið.
Guðrún segir það sama eiga við um
vísindi og tónlist, að uppgötvanir og
nýjungar komi út frá leit einhvers
sem þori að fara út fyrir kassann,
þori að vera öðruvísi. „Ég held að við
getum farið í svo margar áttir, það er
hægt að þróa þetta í svo ótrúlega
margar áttir,“ segir hún um smiðj-
una. Þá séu landamæri engin fyr-
irstaða, allt sé mögulegt.
„Þessi litla hugmynd hjá Björk, að
reyna að búa til tónlistarskóla á með-
an á smiðjunni stendur; ef hún getur
þróast og öðlast eigið líf væri það
draumurinn. Maður lærir með því að
skapa,“ bætir Curver við. „Við erum
að opna veröld fyrir þessum krökk-
um, veröld vísinda og tónlistar. Þeg-
ar þú byrjar að gægjast inn í svona
heima þá heldurðu því gjarnan áfram
og leggst í einhvers konar ferðalag
þar. Það er það sem við erum að
hvetja þau til að gera. Hvort sem þau
verða í báðum heimunum eða þvæl-
ast á milli þeirra þá eru þau búin að
kynnast einhverju sem mun örugg-
lega hafa áhrif á þeirra líf,“ segir
Guðrún.
Ferðast um heim vísinda og tónlistar
Hópur 10-12 ára reykvískra grunnskólanema sækir tónvísindasmiðju Biophiliu Bjarkar Komið að
tónlistarsköpun frá nýrri hlið, tónlist og vísindi mætast Flókin hugtök einfölduð fyrir börnin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sköpun Guðrún Bachmann og Curver Thoroddsen með önnum köfnum grunnskólanemum í tónvísindasmiðju Bi-
ophiliu í Hörpu í gær. 48 börn úr þremur grunnskólum í Reykjavík taka átt í smiðjunni sem hófst í fyrradag.
App Hluti af nýjasta verki Bjarkar, Biophiliu, eru s.k. öpp fyrir spjaldtölvur
og snjallsíma. Eitt app eða viðrit fylgir hverju lagi á plötunni.
www.bjork.com
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
KILLER ELITE Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:20 (Power)
ABDUCTION Sýnd kl. 8 - 10:20
RAUÐHETTA 2 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
JOHNNY ENGLISH REBORN Sýnd kl. 6 - 8 - 10:20
HANN HLÆR
FRAMAN Í
HÆTTUNA
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND Í ANDA BOURNE MYND-ANNA
MEÐ TAYLOR LAUTHER ÚR TWILIGHT ÞRÍLEIKNUM
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
SIGURJÓNI SIGHVATSSYNI KEMUR
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND
HLAÐIN STÓRLEIKURUM
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:20
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR MR. BEAN
ROWAN ATKINSON
HHH
„JOHNNY ENGLISH Í
GÓÐUM GÍR“
- K.I. -PRESSAN.IS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
WHAT´S YOUR NUMBER KL. 8 - 10 12
KILLER ELITE KL. 8 - 10 16
JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 6 7
ELDFJALL KL. 6 L
WHAT´S YOUR NUMBER KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
I DON´T KNOW HOW SHE DOES IT KL. 5.40 L
PROJECT NIM KL. 8 L
LE HAVRE KL. 6 - 10 L
BOBBY FISHER KL. 8 - 10 L
ELDFJALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 L
MÖGNUÐ
SPENNUMYND
Í ANDA BOURNE
WHATS YOUR NUMBER KL. 10 12
KILLER ELITE KL. 10 16
KILLER ELITE LÚXUS KL. 10 16
RAUÐHETTA 3D KL. 4 L
RAUÐHETTA 2D KL. 4 L
STRUMPARNIR 3D KL. 3.30 L
SPY KIDS 4 4D KL. 3.30 L
JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 10 16
ABDUCTION KL. 10 12